Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1997, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 1997
7
Fréttir
Könnun meðal fyrirtækja á Akureyri:
Um fjórðungur fýrirtækja
er í óhentugu húsnæði
DV, Akureyri:
Tæplega fjórðungur fyrirtækja á
Akureyri, eða 24,4%, er í óhentugu
húsnæði, samkvæmt könnun á
rekstrarumhverfi fyrirtækja sem
unnin var af nemendum á öðru ári
í rekstrarfræði við Háskólann á Ak-
ureyri. Könmmin var unnin fyrir
Atvinnumálaskrifstofu bæjarins.
Alls var leitað svara hjá 224 fyrir-
tækjum í hænum en svör bárust frá
161 þeirra. Markmiðið með könnun-
inni var að nálgast ýmsar upplýs-
ingar um atvinnulífið, viöhorf
stiómenda til ýmissa mála og til að
vera hagnýtt kennsluefhi við Há-
skólann á Akureyri.
Samkvæmt könnuninni hefur um
þriðjungur fyrirtækjanna sem svör-
uðu hug á breytingum í húsnæðis-
málum sinum og þar af sjá 88%
stjórnenda þeirra fyrir sér stækkun
á húsnæði. Aukin húsnæðisþörf er
sögð í 65% tiifella stafa af aukinni
sölu eða þjónustu og í 16% tilfelfa
vegna nýrrar framleiðslu.
í svörum fyrirtækjanna kom fram
að um 74% þeirra telja þörf á endur-
menntun starfsmanna sinna og
langflest þeirra, eða 92%, eru tilbú-
in að greiða fyrir þá endurmenntun.
Einnig var spurt um á hvaða hátt
svarendur teldu að bæjaryfirvöld
gætu best stuðlað að uppbyggingu at-
vinnulífs og góðu rekstrarumhverfi.
Flestir nefndu lækkun opinberra
gjalda, lækkun veitugjalda, bærinn
hefði áhættufjármagn til nýsköpunar
og tilraunastarfsemi og að Akureyr-
arbær ræki ekki starfsemi í sam-
keppni við fyrirtæki í bænum. -gk
—
Nokkur töf varð á umferö á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eftir aö nokkur kör, full af loðnu, féllu
af flutningabíl þar á sunnudag. Vinnuvél var fengin á vettvang til aö hreinsa loðnuna af götunni. DV-mynd S
Fyrirtæki á Akureyri
Nei
24%
Er núverandi húsnæði hentugt?
76%
Já
Já
32%
68%
Nei
Eru væntingar um breytingar á
húsnæðisþörf hvað varðar stærð?
Minni þörf
Eru væntingar um aukna
eða minni húsnæðisþörf?
Hvers vegna
er aukin
húsnæðisþörf?
lllÉfiJISlí:
Vegna aukinnar
sölu/þjónustu
65%
16%
Aukin þörf
Vegna væntinga um
nýja framleiðslu
Annaö
Kópavogur:
Þrír piltar teknir
Þrír piltar voru handteknir i
Kópavogi á laugardagskvöld.
Piltamir voru staðnir að verki
þar sem þeir voru að stela hjól-
börðum undan bílum í Smiðju-
hverfi. Piltunum var sleppt að
loknum yfirheyrslum hjá lög-
reglu. -RR
Enginn norskur fiskur:
Ástæðan
léleg afla-
brögð en ekki
mótmæli
DV, Akureyri:
„Þetta mál hefur því miður ekki
gengið eins og við höfðum vonast
til. Við erum svo óheppnir að tíð-
arfar á norskum fiskimiðum hefur
verið mjög slæmt og aflabrögð
óvenjulega léleg þannig að við höf-
um ekki fengið þann fisk sem við
ætluðum að fá, segir Guðbrandur
Sigurðsson, framkvæmdastjóri Út-
gerðarfélags Akureyringa hf.
Útgerðarfélagið leigði norskt
flutningaskip til að flytja ferskfisk
frá Vesterolen til vinnslu á Akur-
eyri. Skipið kom til Vesterolen 18.
febrúar og hefur legið þar síðcm.
Enginn fiskur hefur fengist keyptrn-
vegna þess hversu léleg aflabrögð
hafa verið og útlitið er ekki of gott.
„Veiðar Norðmannanna eru 30% af
því sem þær voru í fyrra þrátt fyrir
aukinn kvóta og ástandið er þannig
að veiðarnar hafa verið gefnar
frjálsar. þetta er ástand sem enginn
átti von á þegar við fórum af stað og
batni það ekki í næstu viku neyð-
umst við að öllum líkindum til að
gefa þetta frá okkur,“ segir Guð-
brandur.
Hann segir að mótmæli, sem höfð
voru uppi í Noregi gegn því að Út-
gerðarfélagið fengi keyptan flsk
þaðan til vinnslu á íslandi, hafi ekki
haft neitt með þróun málsins að
gera, ástæðan sé einungis sú að
nægur fiskur hefur ekki borist á
land.
Útgerðarfélagið réði um 20 manns
í 15 stöðugildum í frystihús sitt á
Akureyri vegna þessara hráefhis-
kaupa frá Noregi. Guðbrandur segir
að mál hafi sem betur fer þróast
þannig hér heima að næg verkefni
hafi verið í frystihúsinu og ekki séu
nein áform uppi um að segja þessu
fólki upp störfum. -gk
HBALENO
ÖRUGGUR • LIPUR • TRAUSTUR • FRÁBÆR f AKSTRI
HANN VINNUR
HUG ÞINN OG HJARTA
BALENO WAGON 4
BALENO WAGON 2
3-dvra BALENO
kr
4WD
580
000
kr
2WD
450
000
kr
140
000
Prufukeyrðu Suzuki í dag.
Taktu nokkrar beygjur, finndu þœgilegan gír.
Mjúkur og léttur - eins og akstur á at
SÍIZUKt
AFLOC,
ÖKVGGf
vera.
SUZUKI BÍLAR HF
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sfmi 431 28 00.Akureyri: BSA hf. Laufásqötu 9, simi 462 63 00. Skeifunni 17,108 Reykjavík.
Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf. Miðási 19, sími 471 20 11. Keflavik: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50.
Sími 568 51 00.