Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1997, Síða 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 1997
íþróttir unglinga
Reykjavíkurmótið undir 16 ára i snóker 1997:
Leikurinn gegn
Halli erfiðastur
- sagði Bjarki Halldórsson, Þróttheimum, fyrsti Reykjavíkurmeistarinn
Þessir strákar skipuöu efstu sætin í fyrsta Reykjavíkurmóti 13-16 ára sem fór fram í Biljardstofunni Klöpp. Frá
vinstri, Hallur Árnason, Þróttheimum, 3.-4. sæti. ingvar Ragnarsson, Frostaskjól, 3.-4. sæti. Bjarki Halldórsson,
Þróttheimum, 1. sæti og Bergur Benediktsson, Tónabæ. 2. sæti.
Fyrsta Reykjavíkurmótið í snók-
er 13-16 ára stráka fór fram í
Biljardstofunni Klöpp dagana
22.-23. febrúar. Mótið tókst með
miklum ágætum, að sögn Björgvins
Hólm Jóhannessonar, formanns Bil-
jard- og snókersambands íslands:
„Þetta er í fyrsta skipti sem keppt
er í Reykjavíkurmóti i þessari í-
þróttagrein og var þátttakan mjög
Umsjón
Halldór Halldórsson
góð sem bendir til þess að áhugi
unglinganna fyrir greininni sé
mikill," sagði Björgvin.
Hallur erfiöur
Bjarki Halldórsson og Hailur
Ámason háðu mjög tvísýna keppni
í undanúrslitum Reykjavíkurmóts-
ins:
„Leikurinnn gegn Halli var mjög
erfiður og úrslit réðust á síðustu
kúlunni í aukaviðm-eigninni. Úr-
slitaleikurinn gegn Bergi var aftur
á móti mun léttari en ég bjóst við,“
sagði Reykjavíkurmeistarinn Bjarki
Halldórsson.
„Ég var klaufi í aukaviðureign-
inni gegn Bjarka, þegar ég hitti ekki
svörtu kúluna en þau mistök voru
dýr. Ég fæ annan möguleika á
vinningi seinna," sagði Hallur.
íslandsmót
í púli 8. mars
„í fýrsta sinn
í sögunni, þann
8. mars, verður
leikið til úrslita
í fyrsta íslands-
mótinu í púli,
13-16 ára, og fer
keppnin fram í
Keiluhöllinni
og hefst kl. 14.
Um 20 félags-
miðstöðvar úr
Reykjavík,
Reykjanesbæ,
Vestmannaeyj-
um og Hvera-
gerði taka þátt í
undankeppninni, en þetta verður
liðakeppni, (3 í liði) og komast 10 lið
í úrslit. Er búist við snörpum
viðureignum þar sem strákamir
æfa mjög stíft um þessar mimdir.
Við höfum lengi verið með kynn-
ingu á snóker og púli í félagsmið-
stöðvmn í Reykjavík og verður svo
áfram og er hún opin öllum ungl-
ingum, 13-16 ára. Þaö em púlborð í
öllum félagsmiðstöðvum í Reykja-
víkurborg og víðar og viljum við
benda krökkum úr fyrrnefndum
aldurshópi á að þau eru öllum opin
til æfinga."
íslandsmót í snóker
„Ætlunin er einnig að vera með
íslandsmót í snóker í apríl og em
undirtektir allar mjög jákvæðar.
Það gætir því mikiílar bjartsýni
um framhald þessarar iþrótta-
greinar vegna hinna góðu viðbragða
krakkanna," sagði Björgvin Hólm.
Úrslit í Reykjavíkurmótinu
A-riðill: 1. Hallur Ámason, Þrótth. 2.
Andri Guðmundss., Hólmaseli. 3. Gunn-
laugur Hrólfss., Bústöðum. 4. Helgi Guð-
mundsson, Bústöðum.
B-riðill: 1. Guðflnnur Ómarss., Þrótth. 2.
Bjarki Halldórsson, Þrótth. 3. Hjálmar
Ragnarss., Frostaskjóli. 4. Halldór Guð-
mundsson.
C-riðill: 1. Tómas Jörgensen, Tónabæ. 2.
Ingvar Ragnarsson, Frostaskjóli. 3.
Guðni Brynjarsson, Þróttheimum. 4.
Þorsteinn Arinbjamarson, Bústöðum. 5.
Helgi Þ. Helgason, Fjörgyn.
D-riðill: 1. Bergur Benediktss., Tónabæ.
2. Hilmar Sigurðsson, Búst. 3. Einar
Ólafsson, Búst. 4. Guðjón Pétursson,
Bústöðum. 5. Guðlaugur Hauksson, Tóna-
bæ. 6. Gústaf Viðarsson, Bústöðum.
8-manna úrslit: Hallur Ámason/Hilm-
ar Sigurðsson 2-1. Tómas Jörgensen-
/Bjarki Halldórss. 1-2. Guðfínnur
Ómarsson/ Ingvar Ragnarss. 0-2. Bergur
Benediktsson/Andri Guðmundss. 2-1.
4 manna úrslit: Hallur Ámason/Bjarki
HaUdórsson 1-2. Ingvar Ragnarss. /Berg-
m- Benediktss. 1-2.
Úrslitaleikur: Bjarki Halldórss. Þrótth./
Bergur Benediktss., Tónabæ, 3-0.
Hér vandar Bjarki Halldórsson sig vel, enda Reykjavíkur-
meistaratitillinn í húfi. Bergur Benediktsson, Tónabæ, fylg-
ist spenntur meö.
íslandsmótið í handbolta - 5. flokkur stráka:
Haukarnir með sterkt B-lið
- og unnu í B-liði í Strandgötu sem var síðasta umferð fyrir úrslitakeppnina
Haukastrákamir stóðu sig mjög
vel í síðasta mötinu (Hafnarfjarðar-
mótinu), fyrir úrslitakeppnina, og
sigruðu i keppni B-liða, unnu FH í
úrslitaleik, 14-12. Strákamir mæta
að sjálfsögðu i úrslitakeppnina sem
fer fram bráðlega og em til alls
vísir.
Góöur árangur
Bikarsigur meistaraflokks Hauka
í karla- og kvennaflokki hlýtur að
virka hvetjandi á yngri flokka fél-
agsins - og það er einmitt það sem
hefur skeð því frammistaða þeirra
yngri hefur verið mjög góð í vetur.
Ef við lítum á árangurinn í 5. og
6. flokki stráka og stelpna í
fjölliðamótum þá er hann þessi.
5. flokkur karla:
A-lið varð í 4. sæti. B-liðið í 1.
sæti og C-liðið í 2. sæti. Ekki
slæmur árangur það.
6. flokkur stráka:
A-liðið varð í 1. sæti. B-lið í 5.
sæti. C-lið í 6. sæti.
5. flokkur stelpna:
A-lið varð í 3. sæti og B-liðið í 3.
sæti.
6. flokkur kvenna:
A-liðið í 6. sæti. B-liðið í 4. sæti og
C-lið í 2. sæti.
Allir þessir flokkar eru komnir í
úrslitakeppni HSÍ og leika því um
íslandsmeistaratitilinn í marsmán-
uði.
Bjart fram undan
Aðrir yngri flokkar félagsins hafa
einnig náð mjög viðunandi árangri
- þannig að framtíð Hauka er björt
og hún felst að sjálfsögðu í þessu
unga fólki.
Ljóst er á öllu að Hafnarfjarðar-
liðið Hauka er þegar orðið stórveldi
í handbolta á íslandi!
5. flokkur Hauka, B-liö. Aftari r. f.v.: Hallfreður liösstj., Helgi, Emil, Lárus, Ar-
on, Siguröur og Eiías þjálfari. Fr. röö f.v.: Sævar, Sigurjón, Ásgeir, Kristján.
I>V
Frjálsíþróttir unglinga:
Úrvalshópur FRÍ
2000 1997
Eftirtaldir unglingar hafa ver-
iö valdir í Sydneyhóp FRÍ 2000
fyrir árið 1997-1998.
Bjöm Margeirsson, 18 ára . UMSS
800 m hlaup.........1:55,91 min.
Einar K. Hjartarson, 17 ára USAH
Hástökk............2,12 metrar.
Halldóra Jónasd., 20 ára . . UMSB
Spjótkast........ 48,82 metrar.
Sunna Gestsdóttir, 21 árs. . USAH
200 metra hlaup.......24,44 sek.
Sveinn Margeirsson, 19 ára UMSS
10.000 metra hlaup......32:51,3
Sveinn Þórarinsson, 18 ára . . . FH
400 metra grindahlaup... . 54,07 sek.
Vala Flosadóttir, 19 ára...ÍR
Stangarstökk.......4,20 metrar.
Hástökk............1,82 metrar.
Egill Eiðsson, landsliðsþjálfari
unglinga, hafði þetta að segja um
framhaldið hjá þessu unga
íþróttafólki:
„Sydneyhóp-
ur FRÍ er hluti
af afreksáætlun
til að undirbúa
afreksunglmga
fram að Ólym-
píuleikunum í
Sydney í
Ástraliu árið
2000.
Þessir sjö ein- Njáll Eiðsson
staklingar hafa þjálfari.
verið valdir
samkvæmt ströngum lágmörk-
um og teljast því vera fram-
úrskarandi efhilegir í sínum
greinum (17-22 ára).
Markmið FRÍ er að skapa
þessum efnilega unglingum
tækifæri til að þroska hæfileika
sína eins vel og kostur er, með
það lokamarkmið að ná lág-
mörkum fyrir fyrir Ólympíu-
leikana í Sydney.
Tveir nýir einstaklingar komu
inn í hópinn núna, þeir Einar
Karl Hjartarson og Sveinn Þór-
arinsson. Fimm af þessum ungl-
ingum stunda nám á framhalds-
skólastigi hérlendis. Sunna
Gestsdóttir dvelur við nám og
æfmgar í Athens í Georgíu í
Bandarikjunum. Vala Flosadótt-
ir býr í Svíþjóð, en hún tekur
þátt í heimsmeistaramótinu í
París um aðra helgi,“ sagði Egill.
Bikarkeppni HSÍ:
FH sigraði í
fjórum flokkum
Úrslitaleikir í Bikarkeppni HSÍ í
yngri flokkum fór fram helgina 22. og
23. febrúar. FH-krakkamir fóru
hamfórum og sigruðu i fjórum
flokkum af sex, IR og Valur unnu í
einum flokki. Úrslitaleikjunum lauk
annars sem hér segir.
4. flokkur kvenna:
Valur-ÍR...................10-8
(Valur bikarmeistari 1997)
4. flokkur karla:
FH-Víkingur...............18-14
(FH bikarmeistari 1997)
3. flokkur kvenna:
FH-Víkingur...............22-10
(FH bikarmeistari 1997)
3. flokkur karla:
ÍR-Stjaman................19-18
(ÍR bikarmeistari 1997)
2. flokkur kvenna:
FH-Stjaman................27-21
(FH bikarmeistari 1997)
2. flokkur karla:
FH-KR.....................26-25
Handbolti 6. fl. stelpna:
Úrslitakeppnin í
umsjón Gróttu
A-úrslitakeppnin í 6. flokki
stelpna fer fram á Seltjarnarnesi
21.-23. mars og er í umsjón
Gróttu. Riðlaskipting er þessi.
A-lið:
A-riðiU: FH, Breiðablik, Stjarnan,
Fylkir, Grótta. - B-riðiU: ÍR, Fram,
Haukar, HK, fBV.
B-Uð:
A-riðiU: Haukar, Fylkir, FH, ÍBV,
Fjölnir. B-riðiU: Fram, Stjaman,
Grótta, Breiðablik.
C-Uð:
Fram, Stjaman(l), Haukar, Grótta,
Stjaman(2).