Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1997, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1997, Page 22
26 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 1997 Fréttir Tónlistarsafn í Keflavík: Staðið verður að því af miklum metnaði - segir Rúnar Júlíusson tónlistarmaður DV, Suðurnesjum: „Það er mjög áhugavert að setja upp hér í bænum tónlistarsafn. Þar gætu ungir sem aldnir skoðað tón- listarsöguna og notið þess sem safn- ið kemur til með að bjóða upp á. Þessi hugmynd hefur legið í loftinu lengi, verið draumur margra og vonandi heppnast þetta og að safnið verði að veruleika," sagði Rúnar Júlíusson, tónlistarmaðurinn þekkti í Keflavík. Á fundi bæjar- stjómar Reykjanesbæjar nýlega var ákveðið að skipa þriggja manna nefnd til að kanna með hvaða hætti mætti koma slíku safni á laggirnar. Þetta hefur verð draumur Rúnars lengi en nú getur farið svo að hann verði að veruleika. Rúnar fór fyrir nokkru á fund Ell- erts Eiríkssonar bæjarstjóra til að kynna honum hugmynd sína og það varð til þess að nefndin var stofnuð. Rúnar er í henni ásamt Guðmundi Hermannssyni og Kjartani Má Kjartanssyni, skólastjóra Tónlistar- skóla Keflavíkur. Eftir er að móta hugmyndina sem er á algjöru byrj- unarstigi og nefndarmenn em ný- byrjaðir að funda um verkið. Menn- ingarnefnd bæjarfélagsins telur Keflavík vera vöggu íslenskrar Rúnar Júlíusson. popptónlistar og safnið eigi hvergi annars staðar heima en í sveitarfé- laginu. „Ég vona að þetta gangi hratt fyr- ir sig og hægt verði að finna hent- DV-mynd GVA ugt húsnæði. Þetta verður gert með miklum metnaði," sagði Rúnar. Að- spurður um nafn á tónlistarsafnið sagði hann að Tónlistarsafn íslands í Keflavík myndi hljóma vel.-ÆMK Vígsla á Stöðvarfirði: Skólahús 14 ár í byggingu og þó ekki fullgert DV, Stöðvarfirði: Nýbygging grunnskóla Stöðv- arfjarðar var formlega tekin í notkun 15. febrúar sL en um 14 ár em síðan hafist var handa við byggingu skólans. Stærð nýju byggingarinnar er 830 m2 en eldri byggingin er um 330 m2 að flatarmáli. Kostnaður er kominn yfir 60 milljónir en eftir er að ganga frá aðstöðu fyrir kennara, félagsað- stöðu nemenda svo og eldhúsi. Er ráð fyrir því gert að það verði tilbúið fyrir næsta skólaár og þá veröur kostnaður kominn í 70 milljónir króna. í húsinu er auk kennsluaðstöðu mikið miðrými, með litlu sviði sem kemur i góð- ar þarfir við samkomuhald nem- enda. Við vígslu léku nemendur grunn- og tónlistarskólans stórt hlutverk. Fluttu þeir tónlist og sýndu dansa frá fjórum þjóð- löndum sem nemendur skólans em frá eða hafa búið í, öðrum en íslandi. Fjölmenni var og eftir ávörp og skemmtiatriði gæddu menn sér á drykkjum og bakk- elsi, m.a. tertu einni mikilli í líki skólans. Margir hafa unnið að byggingunni frá ýmsum stöð- um á Austurlandi. Arkitekt var dr. Maggi Jónsson. GH Frá vígslunni. Skólastjóri er Jónas Ólafsson. DV-mynd Garöar Iþróttahúsiö á Akranesi: Enn deilt um nýja gótfiö Þáttur Boney M tekinn á íslandi selst vel DV, Akranesi: Samþykkt bæjarstjórnar Akra- ness um að leggja 17 milljónir króna í að skipta um gólfefni í íþróttahúsinu við Vesturgötu og fresta um sinn framkvæmdum við að leggja slitlag á Kalmannsvelli og Smiðjuvelli, þar sem á annað hund- rað manns vinna, valda enn deilum sem hafa hleypt illu blóði í forráða- menn fyrirtækjanna. Áskorun hefúr borist frá þeim um að lagt verði slitlag á göturnar á svæðinu og þeir ætla að fylgja henni eftir með því að ganga á fund bæjarráðs tU að þrýsta enn meir á bæjaryfirvöld um að farið verði í þessar framkvæmdir. Einn af for- svarsmönnum fyrirtækjanna fór nýlega í íþróttahúsið til að skoða gólfið. Niðurstaöa hans var sú að hægt væri að gera við skemmdimar á gólfinu með því að slípa þær nið- ur. -DVÓ DV, Suðurnesjum: „Ég er mjög ánægður - fjöldi sjón- varpstöðva víða um heim hefur keypt sýningarrétt þáttarins um Bo- ney M sem var tekinn upp hér á landi. Þetta er mikil landkynning," sagði Gunnar Ámason, umboðsm- aður Boney hér á landi. Hann er ný- kominn heim eftir að hafa staðið í ströngu erlendis við að selja þátt- inn. Hann var tekinn upp á íslandi þegar hljómsveitin var hér síðasta vetrardag 1996. Gunnar er hug- myndasmiðurinn við þáttinn en þar er saga Boney M rakin frá upphafi ásamt viðtölum. Saga-film er fram- leiðandi. „Þátturinn á eftir að seljast tU fleiri landa og ég var aUtaf bjart- sýnn á að þetta mundi ganga upp. Hann er vel gerður í aUa staði og kostnaður var mikiU. Þátturinn verður sýndur hér í sjónvarpi en ekki er búið að ákveða dagsetningu eða stöð,“ sagði Gunnar. -ÆMK Miðvikudaginn 19. mars mun um mat og kökur fylgja DV. BlaSiS verSur fjölbreytt og efnismikiS en í því verSur fjallaS um flest þaS er viSkemur matartilbúningi fyrir páskana. MeSal efnis verSa uppskriftir aS kökum, brauSréttum, ostaréttum og hátíSarmatseSill fyrir páskana. Sagt verSur frá páskasiSum o.fl. Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á aS auglýsa í þessu aukablaSi vinsamlega hafi samband viS GuSna Geir auglýsingadeild DV, hiS fyrsta í síma 550-5722. Umsjón efnis er í höndum Ingibjargar ÓSinsdóttur, í síma 567-6993. Vinsamlegast athugiS aS síSasti skiladagur auglýsinga er fimmtud. 14. mars. aukablað Þrotabú Miklalax þinglýst eign Byggðastofnunar - ekkert í sjónmáli nú um framtíö stöðvarinnar DV, Sauðárkróki: Fiskeldisstöð fyrrum Miklalax í Fljótum hefur verið þinglýst eign Byggðastofnunar. Það gerðist í síð- ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 1. / Þjóðleikhúsinu 2. H.C. Andersen 3. Litli-Kláus 4. Djákninn 5. Bergur Þór Ingólfsson og Jóhann Sigurðsson ÞVHIHOIT11 - SÍMI550 5000 ustu viku. Þrotabú Miklalax fékk fyrir skömmu rift kaupum NFO Gruppen vegna vanskUa norska aðUans. MiklUax leysti stöðina tU sín með greiðslu vangoldinna fast- eignagjalda og brunatrygginga að upphæð tæplega fimm miUjónir króna. Að sögn Jóns Magnússonar hjá útibúi Byggðastofnunar á Sauðár- króki er ekkert í sjónmáli í dag um framtíð stöðvarinnar. „Við munum reyna tU þrautar að koma af stað starfsemi í stöðinni. Reynt verður að tryggja að sá rekst- ur endist lengur en síðasta tUraun. Aðalatriðið er að þær fjárfestingar sem þama eru nýtist og fólk í Fljót- unum fái atvinnu. Ýmsar þreifingar hafa verið en ekkert raunhæft uppi á borðinu í dag. Það er fyrst núna sem stofnunin getur raunverulega beitt sér í þessu máli, eftir að eign- arhaldinu er náð,“ sagði Jón Magn- ússon. Það er norski aðUinn StormöUen sem hefur annast rekstur stöðvar- innar við Miklavatn og í samvinnu við heimamenn alið þann fisk sem er í stöðinni. Síðasta fiskinum verð- ur slátrað í júli í sumar og nú er ekki séð hvort eitthvert lifsmark verður með Miklalaxstöðinni eftir þann tíma. Þar starfa tveir menn, en kaUað er út lið úr sveitinni þeg- ar slátrað er. -ÞÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.