Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997
Viðskipti
Nýsköpunarverðlaun:
Hugvit hf. verð-
launað
Rannsóknarráð íslands og Út-
flutningsráö Islands hafa sam-
þykkt að veita verðlaun ungu ís-
lensku fyrirtæki sem þykir hafa
skarað fram úr í nýsköpun.
Markmið verðlaunaveitingar-
innar er að vekja athygli á vel
útfærðum nýjungum 1 atvinnu-
lífi sem sýnast líklegar til vaxt-
ar, arðs og atvinnuauka fyrir
þjóðfélagið. Hugvit hf. hlýtur
nýsköpunarverðlaunin að þessu
sinni. Það hefur einbeitt sér að
þróun svonefndra „hópvinnu-
kerfa“ fyrir þjónustufyrirtæki
og opinberar stofnanir.
Samanburður skatta:
Verslunin greið-
ir meira
í Fréttapósti Kaupmannasam-
taka íslands segir að fjármála-
ráðuneytið hafi staðfest tölur
um greiðslur tekjuskatts og
tryggingagjalds. Þar segir að
verslunin greiði fimmfaldan
tekjuskatt á við sjávarútveg og
tvöfaldan á við iðnað. Trygg-
ingagjaldsgreiðslur verslunar
og sjávarútvegs eru hins vegar
álika að krónutölu, um einn
milljarður, en ef verslunin nyti
sama gjaldtaxta og sjávarútveg-
ur greiddi hún 580 milljónum
krónum minna en hún þyrfti að
inna af hendi. Ákveðið hefur
verið að jafna þennan mun
þannig að allir greiði jafn hátt
tryggingagjaid, 5,5%, eftir þrjú
ár.
Hagstæð vöru-
skipti
Árið 1996 voru fluttar út vör-
ur fyrir 126,3 milljarða króna en
inn fyrir 124,8 miUjarða sam-
kvæmt endanlegum tölum frá
Hagstofu. Afgangur var því af
vöruviðskiptunum við ísland
upp á 1,5 miUjarða króna. Á
sama tima árið áður voru þau
hagstæð um 13,1 miUjarð á föstu
gengi. Sjávarafurðir voru 73%
aUs útflutnings, samanborið við
72% í fyrra, og var verðmæti
þeirra 11% meira, eða sem nam
8,8 miUjörðum.
Óhagstæð við-
skipti
Viðskiptajöfnuður á síðasta
ári var neikvæður um 9,1 millj-
arð króna eða um 1,9% af lands-
framleiðslu en á árunum
1993-1995 var afgangur á við-
skiptum við úUönd. Óhagstæð
þróun vöruskiptajafnaðar, sem
að framan greinir, skýrir að
mestu þennan viðsnúning. í
Hagvísum Þjóðahagsstofnunar
segir aö vöruútílutningur hafi
aukist um 10% að magni en
vöruinnflutningur á sama tíma
um tæp 16%.
85% heimila
með Visa
Samkvæmt upplýsingum frá
Visa ísland eru Visakort nú á
85% heimila í landinu og 75%
allra á aldrinum 18-67 ára eru
korthafar Visa. Fjöldi útgefinna
korta var 227 þúsund í árslok,
þar af kreditkort 107 þúsund og
debetkort 120 þúsund. Hagnaður
af reglulegri starfsemi fyrirtæk-
isins nam 86,7 milljónum króna
eftir skatta. Eigið fé i árslok
nemur 874,2 millj. kr.
Færslumagn i heild nam 27
milljónum og jókst verulega,
einkum i debetkoi-taviðskiptum,
eða 44%. Rafræn viðskipti hafa
vaxiö mjög og fara um 95% ein-
greiðslna fram á þann veg.
Kortafals hefur stórminnkað eft-
ir aö posamir komu til sögunn-
ar og er nær ekkert í debet-
kortaviðskiptum. -sv
DV
Fjármögnun á álveri Columbia Ventures á Grundartanga:
Einn milljarður komi
frá íslendingum
„Þessi umræða er alveg á byrjun-
arstigi og við munum hitta menn
frá Landsbréfum til þess að ræða
fyrstu hugmyndir að þessu, hvort
þetta sé hagkvæmt og hvort af þessu
getur oröiö,“ segir Þorgeir Eyjólfs-
son, formaður Lífeyrissjóðs verslun-
armanna, aðspurður hvort til stæði
að lífeyrissjóðimir kæmu með fjár-
magn inn í álver á Grundartanga.
Landsbréfum hefur verið falið að
kanna hvort áhugi sé fyrir því að ís-
lendingar leggi ffam hluta fjár-
magnsins í álver Columbia
Ventures á Grundartanga. Um er að
ræða lánsfé en ekki hlutafé.
Að sögn Þorgeirs er ljóst að lang-
stærstur hluti fjármagnsins kemur
erlendis frá en að þau tvö fyrirtæki
sem Columbia hafi fengið til liðs við
sig til þess að annast samskipti við
fjármálastofnanir hafi viljað að
kannað yrði hvort hægt væri að
leggja fram eitthvert fé með útgáfu
skuldabréfa hérlendis.
Aðspurður hvort til stæði að líf-
eyrissjóðirnir legðu fé i Jámblendi-
verksmiðjuna sagðist Þorgeir ekki
vita til þess að sú innræða hefði
nokkurs staðar farið fram að ein-
hverju marki.
„Menn hafa auðvitað fylgst með
skylmingunum við Elkem aö und-
anfómu og þekkja vel þá stöðu sem
er uppi. Hins vegar er mér ekki
kunnugt um að þessi umræða hafi
farið fram. Það er hins vegar sjálf-
sagt og eðlilegt að skoða það mál
þegar og ef það kemur upp,“ sagði
Þorgeir við DV í gær.
„Það er verið að tala um að heild-
arpakkinn hljóði upp á um 13 millj-
arða króna og okkur hefur verið
falið að kanna hvort fjármagn upp á
700- 1.000 milljónir fáist hér á landi.
Við munum nú á næstu vikum
kanna með hugsanlegar viðtökur og
kjör og ákvörðun Columbia mun
síðan vitaskuld taka mið af þeim
kjörum sem hér bjóðast," segir Dav-
íð Björnsson, deildarstjóri fyrir-
tækja- og stofnanasviðs Landsbréfa.
Davíð segist lítið geta sagt um lik-
umar á því að af þessu verði, segir
lítið hafa enn verið rætt við fjár-
festa en að vitaskuld verði fyrst og
fremst horft til lífeyrissjóðanna með
fjármagn.
„Þarna er verið að tala um lang-
tímafjármagn, til 10 ára, og lífeyris-
sjóðirnir eru langstærstu langtíma-
fjárfestamir hér á landi. Þetta verð-
ur því varla gert án þátttöku
þeirra," segir Davíð Bjömsson. -sv
Samskip hafa tekiö á leigu nýtt skip í staö Dísarfells til siglinga milli íslands
og Evrópu. Nýja leiguskipiö heitir Heidi og er systurskip Arnarfells sem
Samskip tóku á leigu í nóvember. Skipið er 122 metrar að lengd og 20 á
breidd og flutningsgeta í tonnum er 7.968. Skipið gengur 17 mílur.
Helgi Sigurðsson, framkvæmdastjóri nýja apóteksins á Selfossi, ásamt starfsstúlkum sínum, Kolbrúnu Ylfu Gissur-
ardóttur og Sigrúnu Guömundsdóttur, til vinstri. DV-mynd Kristján
Selfoss:
Samkeppni \ lyfjasölunni
DY Selíoss:
Um áratugaskeið hefur Kaupfélag
Ámesinga starffækt apótek á Selfossi
og hefur enginn fengið að koma ná-
lægt slíkri sölu fyrr en nú með til-
komu nýrra laga um sölu og jrekstur
apóteka í landinu.
Selfyssingurinn og lyfjafræðingur-
inn Helgi Sigurðsson hefur nú opnað
nýtt apótek á Selfossi, í sama húsnæði
og KÁ var með sitt apótek áður en það
var flutt í Vöruhúsið. Nýja apótekið
fékk nafnið Ámesapótek. Er það mjög
smekklegt í aUri umgerð og hlýlegt að
koma þar inn.
Samkeppnin hefúr haft það í fór
með sér að KÁ-apótek auglýsir nú af-
slátt á verði nokkurra vara „í tilefhi
opnunar nýs apóteks". Þar birtist sam-
keppnin í sinni bestu mynd. -Kr. Ein.
Alverðið
rýkur upp
Heldur minni viðskipti vom á
hlutabréfamarkaði Verðbréfa-
þings íslands og Opna tilboðs-
markaðarins í síðustu viku en
vikunni þar áður. Heildarvið-
skipti vikunnar vom rúmar 216
milljónir króna. Mest vora við-
skiptin með bréf í SR-mjöli hf.
eða fyrir rúmar 30 milljónir
króna. Bréf í Hampiðjunni seld-
ust fyrir tæpar 16 milljónir, bréf
í Eimskipi seldust fyrir tæpar 14
milljónir og eigendaskipti urðu á
bréfum í Haraldi Böðvarssyni
fyrir rúmar 13 milljónir. Hluta-
bréf í íslandsbanka hafa verið á
nokkurri hreyfingu á liðnum vik-
um og í síðustu viku seldust bréf
fyrir tæpar 13 milljónir króna.
Þingvísitala hutabréfa lækkaði
í gær um 0,13% en hún hefur
hækkað um 9,99% frá áramótum.
Hlutabréf í Marel lækkuðu um
nærri 17% í gær.
Álverðið er á fullri ferð upp á
við og hefur hækkað um 150 doll-
ara á hálfum mánuöi. Verðið fór
hæst í 1.693 dollara tonnið í
fyrradag en byrjunarverðið í gær
var 1.668 dollarar tonnið. Ástæð-
an fyrir þessari uppsveiflu er
rakin til jiess að litlar álbirgðir
eru tU í heiminum.
Dollarinn stendur traustur um
þessar mundir og er aftur á upp-
leið frá örlitlu niðurspori í fyrri
viku. Pundið heldur áfram að
hækka, sem og jenið, en markið
lækkar. -sv
Mark
ÞingvísiL hlutabr.
Flugleiðir
Olíufélagið
Skeljungur
Síldarvinnslan