Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Blaðsíða 26
34
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997
Afmæli_________________________
Árni Kristinn Þorsteinsson
Ámi Kristinn Þorsteinsson,
fyrrv. deildarstjóri, Smyrilsvegi 29,
Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Árni fæddist í Péturshúsi við
Bræðraborgarstíg í Reykjavík, ólst
upp á Eiðsstöðum við Bræðraborg-
arstíg og lauk prófi frá VÍ 1940.
Ámi starfaði að námi loknu í
tæpt ár hjá Vélaverslun G.J. Foss-
berg en réðst til starfa á skrifstofu
Hins íslenska steinolíuhlutafélags í
ársbyrjun 1941. Árið 1946 hóf hann
störf hjá Olíufélaginu hf. sem hafði
þá keypt eigur Hins íslenska stein-
olíuhlutafélags. Þar starfaði hann
samfellt til 1989 er hann fór á eftir-
laun samkvæmt eigin ósk. Árni var
lengst af deildarstjóri innflutnings-
deildar Oliufélagsins hf. Þá hafði
hann um þrjátíu og fimm ár með
höndum umsýslu fyrir hönd allra
olíufélaganna vegna innkaupa og
flutnings á olíuvörum frá Sovétríkj-
unum en bensín- og gasolíukaup
þaðan námu um 60-70% af heildar-
þörfum landsmanna á því tímabili
sem Árni hafði verkefnið með hönd-
um.
Fjölskylda
Ámi kvæntist 9.2. 1950 Sigríði A.
Sigurðardóttur, f. 5.12.
1919. Foreldrar hennar
voru Sigurður Þorgríms-
son landpóstur og k.h.,
Hólmfríðar Halldórsdótt-
ir.
Sigríður var tveggja
ára er hún missti móður
sína og ólst hún upp hjá
föðursystur sinni, Önnu
Hallgrímsson, er rak
blómaverslunina að Tún-
götu 16 í Reykjavík, og
Sveini Hallgrímssyni
bankagjaldkera.
Börn Árna og Sigríðar eru Anna
Ámadóttir, starfsmaður við Seðla-
banka íslands, og á hún eina dóttur;
Ásta Ámadóttir, deildarstjóri við
Landsbanka íslands, gift Böðvari
Kvaran og eiga þau tvö börn; Þor-
steinn Ámason, rafvélavirki hjá ís-
taki, kvæntur Hrefnu Leifsdóttur og
eiga þau saman eina dóttur; Sveinn
Ámason, rafvirki hjá Eimskip,
kvæntur Sigurlínu Vilhjálmsdóttur
og eiga þau þrjú böm; Ema Þórunn
Ámadóttir, gjaldkeri hjá útibúi ís-
landshanka í Breiðholti, gift Bene-
dikt Sigmundssyni og eiga þau þrjú
böm; Ingibjörg Hólmfríður Áma-
dóttir hárgreiðslumeistari, gift
Finnbirni Agnarssyni og eiga þau
tvö börn.
Systkini Árna: Ingigerður
N. Þorsteinsdóttir, f. 23.5.
1920, nú látin, húsmóðir í
Reykjavík; Þorsteinn J.
Þorsteinsson, f. 20.4. 1931,
sölustjóri hjá Olíufélag-
inu, búsettur á Seltjam-
amesi; Þórunn S. Þor-
steinsdóttir, f. 24.12. 1927,
nú látin, húsmóðir í
Reykjavík; Garðar Þor-
steinsson, f. 26.1. 1935,
framkvæmdastjóri Sjó-
mannadagsráðs; Gyða
Þorsteinsdóttir, f. 26.1.
1935, ritari viö Melaskólann; Kristín
Þorsteinsdóttir sem dó á fyrsta ári.
Foreldrar Árna voru Þorsteinn
Árnason, f. 9.12.1895, d. í mars 1970,
yfirvélstjóri í Reykjavík, og k.h.,
Ásta Jónsdóttir, f. 11.9. 1895, d. 27.8.
1983, húsmóðir.
Ætt
Þorsteinn var sonur Árna, yfir-
fiskmatsmanns og bæjarfulltrúa á
ísafirði, Gíslasonar, formanns og út-
vegsb., Jónssonar. Móðir Áma var
Sólveig Þorleifsdóttir, b. í Æðey,
Benediktssonar, b. á Blámýrum,
Þóröarsonar, stúdents í Vigur og
ættföður Vigurættarinnar, bróður
Ingibjargar, ömmu Jóns forseta.
Þórður var sonur Ólafs, lögsagnara
á Eyri og ættföður Eyrarættarinnar,
Jónssonar. Móðir Þorsteins var
Kristín, systir Halldóru, móður
Jóns Baldvinssonar, fyrsta for-
manns Alþýðuflokksins. Kristín var
dóttir Sigurðar, b. í Hörgshlíð, Haf-
liðasonar, b. á Skarði, Guðmunds-
sonar, bróður Jóhannesar, langafa
Hannibals Valdimarssonar, föður
Jóns Baldvins. Móðir Kristínar var
Guðríður Vigfúsdóttir, systir dr.
Guðbrands í Oxford og Sigurðar
fornfræðings.
Ásta var dóttir Jóns, sjómanns á
Eiðsstöðum, bróður Guðrúnar, móð-
ur Sverris Kristjánssonar sagnfræð-
ings. Jón var sonur Guðmundar, út-
vegsb. í Ánanaustum, Gíslasonar.
Móðir Jóns var Margrét Ásmunds-
dóttir, b. á Bjargi á Kjalamesi, Guð-
mundssonar. Móðir Margrétar var
Guðrún Þórðardóttir, systir Run-
ólfs, afa Bjöms Þórðarsonar forsæt-
isráðherra. Móðir Guðrúnar var
Sigríður Þórólfsdóttir, b. í Engey,
Þorbjamarsonar, bróður Guðlaug-
ar, langömmu Guðrúnar, langömmu
Bjama Benediktssonar forsætisráð-
herra.
Móðir Ástu var Þórann Einars-
dóttir, b. i Skólabæ á Hólavelli í
Reykjavík, Magnússonar og Guð-
rúnar Þorvaldsdóttur.
Árni Kr. Þorsteinsson.
Ingibjörg S. Kristjánsdóttir
Ingibjörg S. Kristjánsdóttir hús-
móðir, Hrannarstíg 18, Grund-
arfirði, varð sjötíu og fimm ára á
mánudaginn var.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist á Þingvöllum í
Helgafellssveit og ólst upp í Helga-
fellssveitinni. Hún sótti farskóla þar
í sveitinn og stundaði síðar nám við
Húsmæðraskólann að Staðarfelli.
Eftir að Ingibjörg gifti sig hefur
hún verið húsmóðir í Gmndarfirði.
Hún hefur starfað í kvenfélaginu
Gleym- mér-ei í Grandarfirði um
árabil.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 27.12. 1947 Guð-
mundi Runólfssyni, f. 9.10. 1920, út-
gerðarmanni. Hann er sonur Run-
ólfs Jónatanssonar, oddvita og verk-
stjóra í Götuhúsi í Grundarfirði, og
Sesselju S. Gísladóttur húsfreyju.
Börn Ingibjargar og Guðmundar
eru Runólfur Guðmundsson, f. 12.5.
1948, skipstjóri í Grundarfirði,
kvæntur Eddu Kristjánsdóttur og
eiga þau tvö börn; Kristján Guð-
mundsson, f. 13.2. 1950, vélstjóri í
Grundarfirði, kvæntur Ragnheiði
Þórarinsdóttur og eiga þau tvö
böm; Páll G. Guðmundsson, f. 27.7.
1952, verkstjóri í Grandarfirði,
kvæntur Guðbjörgu Hringsdóttur
og eiga þau tvö böm; Ingi Þór Guð-
mundsson, f. 9.5. 1955, netagerðar-
maður í Grandarfirði, kvæntur
Hjördísi H. Bjarnadóttur og eiga
þau þrjú börn; Guðmundur S. Guð-
mundsson, f. 18.2. 1957,
framkvæmdastjóri í
Grundarfirði, kvæntur
Jónu B. Ragnarsdóttur og
eiga þau þrjú böm; Svan-
ur Guðmundsson, f. 5.11.
1959, framkvæmdastjóri á
Akranesi, kvæntur Elínu
T. Jóhannesdóttur og eiga
þau eitt bam; Unnsteinn
Guðmundsson, f. 28.6.
1966, vélamaður í Grund-
arfirði, kvæntur Al-
exöndru Arnardóttur og
eiga þau tvö börn; María
M. Guðmundsdóttir, f.
28.6. 1966, húsmóðir í Grundarfirði,
gift Eiði Bjömssyni og eiga þau tvö
börn.
Systkini Ingibjargar eru Kristján
Kristjánsson, f. 12.4.
1919, vélstjóri í Stykkis-
hólmi; Unnur Kristjáns-
dóttir, f. 9.7. 1923, verka-
kona í Reykjavík; Hall-
varður G. Kristjánsson,
f. 18.9. 1928, búsettur að
Þingvöllum í Helgafells-
sveit.
Foreldrar Ingibjargar
vora Kristján Jóhanns-
son, f. 7.5. 1891, d. 4.8.
1984, bóndi að Þingvöll-
um í Helgafellssveit, og
María Magdalena Krist-
jánsdóttir, f. 10.8. 1889, d.
15.12. 1987, húsfreyja.
Ingibjörg verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Ingibjörg S.
Kristjánsdóttir.
Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir
Hafdís Ósk Kolbeins-
dóttir skrifstofumaður,
Tjamarstíg 5, Seltjamar-
nesi, er fertug i dag.
Starfsferill
Hafdís fæddist á Siglu-
firði og ólst þar upp. Hún
hóf störf hjá Magnúsi
Kjaran hf„ umboðs- og
heildverslun, árið 1977.
Þar stundaði hún skrif-
stofu- og gjaldkerastörf til
1985 er yngri dóttir henn-
ar fæddist.
Hafdís var síðan heima-
vinnandi í tvö ár en hóf
störf hjá bæjarstjóranum á Seltjarn-
amesi 1987 þar sem hún vann við
Hafdís Ósk
Kolbeinsdóttir.
áður er
25.2. 1973,
bókhald. Þar starfar hún
enn og hefur auk þess
starfað á skrifstofu
Starfsmannafélags Sel-
tjarnarness og setið í
nefndum á vegum félags-
ins.
Hafdís giftist 31.12. 1975
Halldóri Inga Andrés-
syni, f. 22.4. 1954, inn-
kaupastjóra Virgin Mega-
store I Reykjavík. Hann
er sonur Andrésar Hall-
mundarsonar smiðs, sem
er látinn, og Aðalheiðar
Elíasdóttur húsmóður.
Dóttir Hafdísar frá því
Guðný Þorsteinsdóttir, f.
í sambúð með Ólafi Frið-
bert Einarssyni, og eiga þau einn
son, Friðbert Þór Ólafsson, f. 2.4.
1994.
Dóttir Hafdísar og Halldórs Inga
er Anna María Halldórsdóttir, f.
31.3. 1985, nemi.
Systkini Hafdísar eru Líney Kol-
beinsdóttir, f. 12.8. 1958, skrifstofu-
maður á Siglufirði; Hafþór Ari Kol-
beinsson, f. 18.6. 1964, verkstjóri á
Siglufirði; Kolbeinn Kolbeinsson, f.
5.12. 1965, lést af slysfóram 14.3.
1979.
Foreldrar Hafdisar voru Kolbeinn
Friðbjamarson, fyrrv. formaður
Vöku á Siglufirði, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norður-
lands vestra og bæjarfulltrúi á
Siglufirði í tuttugu ár, og Guðný
Þorvaldsdóttir, húsmóöir og verka-
kona.
Ætt
Foreldrar Kolbeins voru Frið-
björn Níelsson, kaupmaður og bæj-
arfulltrúi á Siglufirði, og Sigriður
Stefánsdóttir frá Móskógum í
Skagafirði.
Foreldrar Guðnýjar vora Þorvald-
ur Þorleifsson, skipstjóra á Siglu-
firði, og Líney Elíasdóttir, húsmóðir
og verkakona á Siglufirði.
Hafdís verður með heitt á könn-
unni á heimili sinu á afmælisdag-
inn og tekur á móti vinum og ætt-
ingjum.
v.
Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fýrir alla landsmenn.
DV
Tll hamingju með afmælið 5. mars
90 ára
Guðrún Ingvarsdóttir, Foldahrauni 40 F, Vestmannaeyjum. Jófríður Einarsdóttir, Hallsstöðum, Dalabyggð.
85 ára
Helga Ásgrímsdóttir, Suðurgötu 124, Akranesi. Jónína Sigurrós Gunnarsdóttir, Innra-Hólmi, Innri-Akraneshreppi. Hún tekur á móti vinum og ættingjum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar að Ásfelli 2 sunnudaginn 9.3. nk. Stefán Gunnarsson, Höfðagrand 2, Akranesi.
80 ára
Svava Guðnadóttir, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ. Kjartan Halldórsson frá Rauðkollsstöðum, nú til heimilis að Borgarbraut 65 A, Borgarnesi. Hann er að heiman.
75 ára
Aðalbjörg M. Jóhannsdóttir, Vesturbergi 78, Reykjavík.
70 ára
Kristjana Ester Jónsdóttir, Hjajlabrekku 35, Kópavogi. Aðalheiður Þórormsdóttir, Háaleitishraut 38, Reykjavík.
60 ára
Jóel Hreiðar Georgsson, Mávahrauni 17, Hafnarfirði.
50 ára
Egill Jónsson, Hjallabraut 80, Hafnarfirði. Unnur Bjamadóttir, Hofi IV, Hofskoti, Hofshreppi. Guðrún Einarsdóttir, Skeljagranda 4, Reykjavík. Ljósbjörg Alfreðsdóttir, Dynskógum 15, Egilsstöðum. Þóra Baldursdóttir, Túnhvammi 2, Hafharfirði. Jóhanna Guðmundsdóttir, Hraunhæ 60, Reykjavík. Jenna Kristín Bogadóttir, Deildarási 21, Reykjavík. Guðmundur Gúðjónsson, Fjarðarási 6, Reykjavík. Kristinn Helgason, Mosarima 1, Reykjavík. Einar Vilhjálmsson, Marbakkabraut 18, Kópavogi.
40 ára
Þórdís María Guðjónsdóttir, Garðavegi 3, Keflavík. Þóra Gísladóttir, Fjallalind 37, Kópavogi. Pétur Ingi Ásvaldsson, Hafraholti 6, ísafirði. Sigrún H. Sigurbjartsdóttir, Enniskoti, Þorkelshólshreppi.