Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1997, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1997, Page 38
LAUGARDAGUR 15. MARS 1997 S+»t> «g sfyf+a fentjingarbarhsms/ Tölvan er óuimleilanlega stoð og stytta Jieirra sem ætla sér stóra liluti í framtíðinni og þvi skiptir val á slíkum bunaði miklu máli. ey.foo íerwimsarf íIboí> í i LASER Expression Pentium 133MHz* 16MB minni* 1.6 GB harður diskur • Geisladrif • Hljóðkort* Hátalarar• 15" lággeisla litaskjár• Skjákortmeð2MBskjáminni« Windows 95 stýrikerfi • HP DeskJet 400 bleksprautuprentari 139.900 kr. stgr. W//LASER (&' computer Heimilistæki hf TÆKIMl-OC TÖLVUDEILD SÆTÚNI 8 • SÍMI 569 1500 • http://www.ht.is lífræni Bændaferð til Þýskalands: A Islendingar kynntu sér líf- rænan landbúnað í heimsókn hjá einum bóndanum í Pýskalandi. Þennan dag var Guömundur Bjarnason, landbúnaðar- og umhverfisráöherra, og kona hans með hópn- um. DV-mynd Sigrún Bj. Síðustu viku febrúarmánaðar var 20 manna hópur frá íslandi á ferð um Þýskaland að kynna sér lífræn- an landbúnað. Þátttakendur voru víða að af landinu en þó flestir af Fljótsdalshéraði. Meðal þátttakenda voru ráöunautar, bændur sem stunda lífræna ræktun og sérfræð- ingm- frá RALA, auk nokkurra áhugamanna um málefnið. Fyrsta daginn voru heimsóttar höfuðstöðvar Heimssambands líf- rænnar ræktunar í heiminum, IFOAM, á búgarðinum Imsback, tveggja tima akstur austur frá Lúx- emborg. Þar tók á móti hópnum framkvæmdastjóri þessara sam- taka, Bemward Geier. Hann var á ferð hér á landi fyrir ári og hélt þá fyrirlestur á Egilsstöðum og RALA um lífræna ræktun. Þegar Bernward var hér á ferð í fyrra skoðaði hann Fljótsdalshérað og kvað upp úr með það að ef vatns- og skolpmálum yrði komið í gott horf, gróðureyðing stöðvuð og unn- ið að skógrækt yrði þar eitt sam- felldasta og stærsta lífræna svæðið. í IFOAM era nú 517 aðilar, ein- staklingar og félagasamtök í 100 löndum. Samtökin standa fyrir fræðslu um lífræna ræktun um all- an heim með því að gefa út fræðslu- efni og reglur þar að lútandi á 18 tungumálum. 30 prósent hærra verð fyrir lífrænt Til að framleiðsla á lífrænum vör- um borgi sig þarf að fást fyrir þær 30% hærra verð en hefðbundna framleiðslu. Eftirspurn eftir þessum vörum í Þýskalandi er mikil og þar er t.d. leyft að selja mjólk beint frá bóndanum en kaupendum í sjálfs- vald sett hvort hann gerilsneyðir hana. í Týrol og Salzburg er helm- ingur bænda í lífrænni ræktun, í Sviss um 7%. Hópurinn skoðaði sýningu í Frankfurt á lífrænum vörum víðs vegar að úr heiminum. Það voru dæmigerðar landbúnaðarvörur, heilsuvörur og fatnaður. Þar var bás frá íslandi með ullarvörum, heilsuvörum og fleiru. Einnig var í textildeild bás með íslenskum ullar- flíkum. í forsvari var íslensk kona búsett í Saarbrucken. Saga Reytschulen Á stórum búgarði sunnan við Saarbrucken skammt frá landamær- um Frakklands var komið á hesta- búgarð. Þar voru 200 íslenskir hest- ar á járnum og 60 kýr í fjósi, auk ferðaþjónustu og reiðskóla. Salan á íslenskum hestum hefur verið í lægð undanfarið en ákveðið hefur verið að hleypa lífi í hana að nýju. Þannig á að stofna reiðskóla sem tengist íslandi og kallaður er Sögu- reiðskólinn. Mikill áhugi er á íslenska hestin- um í Þýskalandi eins og kunnugt er og talið er að ná mætti til fjögurra milljóna manna sem áhuga hefðu á að læra að fara með hestinn, jafnvel þó viðkomandi hefði ekki tök á að hugsa um hann sjálfir. Það var eftirtektarvert að afurðir þeirra lífrænu búa sem við skoðuð- um voru fullunnar heima og seldar á staðnum. Þannig voru á einum stað framleiddir geitaostar. Kiðling- arnir voru teknir undan mánað- argamlir og aldir á kúamjólk en geiturnar mjólkaðar. Á samyrkju- búi sem 10 fjölskyldur ráku var ostabúð, brauðbúð og mjólkurbúð, allar með heimaframleiddum vör- um. Lífræn opin hreinsun á vatni Hópurinn heimsótti skolphreinsi- stöð sem byggð var fyrir tíu árum fyrir 600 manna þorp. Öllu skolpi frá byggðinni er veitt í opna tjöm sem um 50x200 fermetrar að stærð þar sem fostu efnin setjast á botn- inn. Þaðan er vatninu dælt upp í stórt svæði sem er með smávegis- halla og vaxið hávöxnu sefi. Þarna seytlar vatnið um jarðveginn og sef- ið tekur upp næringarefni. Síðan er vatninu dælt frá lægri helmingi svæðisins í aðra tjöm og þar botn- fellur það sem eftir er af fóstum efn- um. í þeirri tjöm era fiskar sem þrífast vel. Vatninu er síðan dælt úr þessari tjörn í skurð og þaðan er það notað til vökvunar. Á tveggja ára fresti koma bændur og tæma botnfallið úr báðum tjörnunum og nota sem áburð. Engin ólykt var á þessum stað. Eftir að þetta lífræna svæði varð til settust þar að sjald- gæfir fuglar sem voru í útrýmingar- hættu og dafna vel. Nokkur þorp hafa nú komið upp álíka hreinsi- búnaði. Enginn vafi er að þessi ferð var lærdómsrík og á eftir að verða líf- rænum búskap á íslandi mikil lyfti- stöng. -SB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.