Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1997, Qupperneq 10
10
ennmg
FIMMTUDAGUR 20. MARS 1997
Mavurinn:
Sjaldgæfir sjávarréttir
Mávurinn við
Tryggvagötu andspænis
Hafnarbúðum ber svip
milliverðsstaða, en er
ein af dýru matstofun-
um. Þótt hann sé kall-
aður „við sjávarsíð-
una“, er hann ekki
hefðbundinn sjávar-
réttastaður, enda ekki í
boði neinn fiskréttur
dagsins annar en sjö
fiska sýnishorn fyrir út-
lendinga. Raunar er alls
enginn seðill dagsins.
Þótt staðurinn veki
sumpart væntingar,
sem ekki rætast, er
hann samt góður. Mat-
reiðsla fiskrétta er með
hinni vönduðustu, sem
þekkist í borginni og
þjónusta fyrsta flokks.
Andrúmsloftið er nota-
legt innan um undarleg-
ar innréttingar, sér-
kennilega trektarstóla,
örljósanet í lofti, ljót
risamálverk á veggjum
og lifandi
blóm á gler-
plötum borð-
anna.
Þetta er
lítill staður
með of há-
værri tón-
list, aðeins
opinn á
kvöldin.
Vinstra meg-
in inngangs
er bar og
setustofa
með djúpum
sófum.
Hægra meg-
in er veit-
ingarými
fyrir um 30
manns. Fín-
ust eru salernin að tjaldabaki, þar sem hver
gestur fær eigið handklæði. Meðalverð
þriggja rétta máltíðar með kaflí er 1940 krón-
ur fyrir utan vel valin og ekki dýr vín, meðal
annars frá Chile, Nýja-Sjálandi og Ástralíu.
Rækilegar útskýringar fylgja vínlistanum, en
árgangar eru ekki skráðir, svo að útkoman er
þykjustuleg.
Volgar brauðkoflur hússins og smjördeigs-
femingar komu fljótt á borð. Ennfremur sýnis-
hom af kryddlegnum laxi eða kryddlegnu
Andrúmsloftiö er notalegt innan um undarlegar innréttingar...
lambakjöti meðan beð-
ið var eftir forrétti.
Mflli forrétta og aðal-
rétta var borið fram
freyðivínskrap. Aflt sló
þetta virðulegan,
franskan tón. Hvers-
dagslegra var staðlað
meðlæti á hliðardisk-
um með aðalréttum.
Pönnusteiktir snigl-
ar voru meyrir, bland-
aðir gljáðmn perlu-
lauk, sveppum og
beikoni, í afar sterkri
og sætri rauðvínssósu.
Hvítlauksristaður
smokkfiskur var líka
meyr og góður, með
rósmarínkryddaðri og
mildri kampavínssósu.
Sjávarsíðusúpa revndist vera gott og milt
humarsoð með flnskornum skelflski.
Anísleginn lax var góð tilbreyting frá graf-
laxi, með litlum tómati, lárperumauki, sinnepi,
A boröum eru lifandi blóm og lifandi fiskar í búri
Veitingahús
Jónas Kristjánsson
DV-myndir Hilmar Pór
laxahrognum og bragðsterkum ostakexgrind-
um, svo og hrásalati í stökku næfurbrauði,
sem mótað var eins og blóm. Kryddlegið lamb
var fremur gott, með faUegu hrásalati, blönd-
uðu feta-osti og olífum. Hreindýrakæfa var
gróf, með furuhnetum, portvínslegnum rúsín-
um og góðu hrásalati.
Einna bezti forrétturinn var blandað hrásal-
at með rauðlauk, feta-osti, litlum tómötum, olíf-
um, nokkrmn tegundum af litlum hnetmn og
bragðsterkri ostakexgrind. Þessi skrautlegi
réttur var borinn fram í fagurri skál úr stökku
næfurbrauði úr smjördeigi og tómatsósa látin
koma á óvart í sérstakri skál.
Mávurinn sérhæfir sig í matreiðslu sjald-
séðra fiska. Pönnusteiktur langhali var hæfi-
lega og skemmtUega eldaður í kartöfluþráða-
skel, mjúkur og fmn, stinnur og hvítur, með
humarbitum. GriUaður barri var einnig meyr
og finn, með blaðlauk og hvítvínsblandaðri
smjörsósu. Ekki var lakari heitreykt og hring-
vafm bleikja með beðju af gulrótarþráðum og
mUt engifer-kryddaðri guirótarsósu. Góða
heitreykingarbragðið leyndi sér ekki.
Kjötréttir reyndust lakari. Folaldasteik var
meyr, en bragðdauf, með hæfilega sterkri
grænpiparsósu. Lambasneiðar voru sæmUegar,
með furuhnetum, sveppum og tómatsafa. ViUi-
bráðartvenna var misheppnuð, með
ólseigri gæs og frambærUegum svartfúgli,
borin fram með afar sterkri plómusósu
með yfirgnæfandi kóríanderbragði.
Skemmtun, fræðsla, upplifun
I kvöld eru aðrir tónleikar
Sinfóníuhljómsveitar Islands í
blárri tónleikaröð. Bláa röðin
var upphaflega vettvangur nýrr-
ar tónlistar, svo varð hún vett-
vangur kirkjutónlistar, en í vet-
ur er slagorð hennar „skemmt-
un, fræðsla, upplifun". Hug-
myndin er að nota hana til að
kynna hljómsveitina sjálfa, auk
tónskálda og tónverka, og er efn-
isskráin unnin í náinni sam-
vinnu við Jónas Ingimundarson
píanóleikara sem líka er kynnir
tónleikanna.
Efnisskráin er ekki kynnt fyr-
irfram heldur er sami háttur
hafður á og á tónleikaröð Jónas-
ar, Við slaghörpuna, og gestir
látnir fá prógrammið eftir á.
Þetta heldur þeim spenntum og
gerir hverja tónleika að sérstakri reynslu.
EðlUega leitaði Sinfóníuhljómsveitin tU
Jónasar Ingimundarsonar við skipulagningu
tónleikaraðarinnar; enginn hefur annað eins
lag á að lokka fólk tU að hlusta á músík og
hann og fáir annað eins lag á að gera mann
forvitinn og glaðan tónleikagest. Þó er eins
og honum sé ekkert svo mikið í mun. Fasið
er kæruleysislegt, næstum eins og hann sé
annars hugar, þegar hann byrjar að tala - en
áður en áheyrendur vita af eru þeir farnir að
hlæja og gleypa um leið viskuna, áreynslu-
laust! Hann talar eins og sá sem allt veit og
þekkir og sem við getum verið fullkomlega
Ingveldur
leiknum.
Ýr - tók fullan þátt
Jónas - hefur yndi af aö fræöa og
skemmta í einu lagi.
örugg með. Ef hann veit ekki aUt þá er hann
góður leikari.
Á tónleikum Jónasar í Gerðarsafni í Kópa-
vogi fyrir þremur vikum var gestur hans -
því hann hefur gjaman gesti Við slaghörp-
una - Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópran,
sem hefur viða farið þrátt fyrir ungan aldur.
Hún var nýkomin úr tónleikaferð tfl Ástral-
íu þegar þetta var. Salurinn í Gerðarsafni er
sérstaklega faUegur og hlýlegur þótt þar sé
skeUibirta inni, og þar var setinn bekkurinn
þetta kvöld.
Margt kom lítt skóluðum áhugamanni um
tónlist á óvart um kvöldið. TU dæmis byijaði
Ingveldur á Draumalandinu eft-
ir Sigfús Einarsson - það þurfti
ekki að koma á óvart, því það
gerir söngvari sem er nýkom-
inn heim frá útlöndum, út-
skýrði Jónas. En á eftir söng
hún annað lag við sama kvæði
eftir Bjama Þorsteinsson. Hún
söng líka tvö lög við Söng bláu
nunnanna eftir Davíð Stefáns-
son og - það sem kom mest á
óvart - tvö lög við íslenskt
vögguljóð á hörpu eftir HaUdór
Laxness. Það fyrra eftir Jón
Þórarinsson, þetta sem við
þekkjum öU og syngjum við
bömin okkar á kvöldin; það
seinna var eftir Sigvalda Kalda-
lóns, óþekkt lag en svo faUegt
„að maður trúir því að guð sé tU
þegar maður hlustar á það,“
sagði kynnirinn.
Jónas og Ingveldur skemmtu sér æ betur á
sviðinu eftir því sem leið á kvöldið. Söngkonan
hafði gífurlega gaman af að leika duttlungafúUa
prímadonnu í laginu mn dívuna eftir Eric
Satie, - og gerði það líka afburðavel - en há-
punkti var náð þegar hún kom fram í
knalirauðum kjól og söng ljóð bóhemjunnar úr
Carmen eftfr Bizet.
Það er einstæður sjarmi yfir kvöldunum með
Jónasi Ingimundarsyni. Þau sameina lýsi og
sykur í einni skeið eftir bestu uppskrift frá
Mary Poppins. Það má búast við fúflu húsi hjá
Sinfóníunni i kvöld. Stjómandi er Rússinn Lev
Fyrirlestur um myndlist
A morgun 21.3. kl. 14 heldur Douglas Davis
fyrirlestur á Kjarvalsstöðum um veraldarvef-
inn og myndUstina. Hann er kunnur myndlist-
argagnrýnandi, fræðimaður og myndlistarmað-
ur sem hefúr sérhæft sig í að gera myndlistar-
verk á veraldarvefnum og hafa verk hans vak-
ið mikla athygli vestanhafs. Hann ætlar að
fjalla um listræna möguleika vefsinw og áhrif-
in sem hann getur haft á eðli listaverka og hug-
myndir manna um list- og höfundarhugtakið.
Undur veraldar
Fyrirlestraröðin Undur veraldar, sem Raun-
visindastofnun HÍ stendur að, hefúr tekist afar
vel. Svo mikU aðsókn varð að fyrsta fyrirlestr-
inum - um sólir og svarthol - að salur 3 í Há-
skólabíói yfirfyUtist og urðu svo margir frá að
hverfa að fyrirlesturinn var endurtekinn. Nú
er komið að þriðja fyrirlestri í röðinni, Spendýr
á norðurslóð, sem PáU Hersteinsson, prófessor
í líffræði, heldur á laugardaginn í sal 3 í Há-
skólabíói kl. 14.
Þær tegundir spendýra sem aðlagaðar eru
fimbulkulda norðurheimskautssvæða eru aUar
yngri en tveggja miUjón ára og komu fyrst fram
á sjónarsviðið þegar ísaldir hófúst. PáU mun
fjalla um aðlögun refsins, isbjamarins og fleiri
dýra að aðstæðum á norðurslóðum, bæði veð-
urfari og fæðufrainboði.
Hallgrímsstefna
Stofnun Sigurðar Nordals og Listvinafélag
HaUgrímskirkju standa saman að
ráðstefnu um HaUgrím Péturs-
son og verk hans í Hallgríms-
kirkju á laugardaginn og hefst
hún kl. 10 með morgunbænum
séra HaUgríms. Fjöldi lærðra
og leikra heldur fyrirlestra á
ráðstefnunni, Helgi Þorláks-
son, Siguijón Ámi Eyjólfs-
son, Vésteinn Ólason, Mar-
grét Eggertsdóttir, Stein-
unn Jóhannesdóttir, Sig-
urbjöm Einarsson biskup,
Þómnn Sigurðardóttir, Wilhelm Fri-
ese og Helgi Skúli Kjartansson. Á orgeUofti
kirkjunnar verður sýning á útgáfum verka
HaUgríms Péturssonar og eiginhandarriti hans.
Vetrarferð Schuberts
Fimmtu tónleikar Schubert-hátíðarinnar í
Garðabæ verða á laugardaginn kl. 17 í Kirkju-
hvoli við Vídalínskirkju. Þar mun hoUenski
barítonsöngvarinn Hans Zomer flytja Vetrar-
ferð eftir Franz Schubert við ljóðaflokk eftir
Wilhelm MúUer. Með Hans Zomer leikur Ger-
rit SchuU á píanó.
Schubert samdi lögin 24 við Vetrarferð rúmu
ári áður en hann dó og hefúr verið sagt að
hvergi hafi honum tekist eins vel að miðla inn-
taki og eðli ljóða í tónlist. Gerrit
SchuU hefúr oftar en hundrað
sinnum tekið þátt í flutningi
verksins víða mn lönd, „en í
hvert skipti sem ég opna
nótnabókina tU að undirbúa
tónleika sit ég eins og gáttað-
\ ur yfir auðgi og margræðni
þessa stórbrotna verks“.
Hans Zomer er einn
virtasti söngvari HoUend-
inga á okkar tímum og
hefur einkum lagt
áherslu á sígUdan ljóðasöng.
Forsala aðgöngumiða er í Bókabúð
Máls og menningar og frá kl. 15 í Kirkjuhvoli á
laugardaginn.
íslensk bókmenntakynning
Síðasta norræna bókmenntakynningin í Nor-
ræna húsinu verður á laugardaginn kl. 16. Þar
segir Dagný Kristjánsdóttir frá íslenskum bók-
um síðasta árs og fjórir höfúndar lesa með
henni, Gyrðir Elíasson (DV- verðlaunahafi árs-
ins í bókmenntum), HaUgrímur Helgason,
Kristin Ómarsdóttir og Vigdís Grímsdóttir.
Samkoman er ætluð fólki annars staðar að af
Norðurlöndum og aUt efni verður flutt á skand-
inavísku.
Dagný segir að bókmenntaárið 1996 hafi ein-
kennst af „ferðabókum" í þeim skilningi að þar
er ferðast í tíma og rúmi, farið tU útlanda í leit
að íslandi, farið í söguna í leit að samtimanum,
farið hamforum eða á barinn. 1 fyrirlestrinum
verður ferðast um skáldverk síðasta árs í leit
að táknum - en ekki stórmerkjum.
Silja Aðalsteinsdóttir