Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Qupperneq 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1997
Utlönd
Arababandalagið ályktar:
Viðskiptabann
ísrael á ný
Eiginkonan kom-
in til geimvera
Tveir fyrrum félagar í trúfélag-
inu Hlið himinsins eru sannfærð-
ir um að félagar þeirra 39, sem
sviptu sig lífl í Kalifomíu í síð-
ustu viku, hafi haldið beint upp í
geimskip eins og leiðtogi þeirra
lofaði. Eiginkona Waynes Cookes,
Suzanne Sylvia, var meöal þeirra
sem frömdu sjálfsmorð. „Ég tel að
hún sé líklega einhvers staðar
þarna úti núna,“ sagði Cooke í
sjónvarpsviðtali um helgina og
lýsti því yfir að hann hefði gjarn-
an viljað vera nógu sterkur til að
fara með. Cooke telur að fjölda-
sjálfsmorðin hafi verið skipulögð
utan úr geimnum til að vekja at-
hygli á trú hópsins.
Ríkissaksóknari
Sviss yfirheyrir
bróður Salinas
Ríkissaksóknari Sviss og yfir-
maður fikniefnalögreglunnar þar
í landi komu til Mexíkó á sunnu-
daginn til að yfirheyra bróður
Carlos Salinas, fyrrum forseta
Mexíkó, vegna leynilegs banka-
reiknings með rúmlega 80 millj-
ónum dollara í Sviss.
Bróðir Carlos Salinas, Raul Sal-
inas, var handtekinn snemma árs
1995. Var hann sakaður um að
hafa lagt á ráðin um morð á hátt-
settum stjórnmálamanni og að
hafa efnast á ólöglegan hátt. Raul
Salinas neitar sakargiftum um að
hann hafi auðgast á fíkniefnasölu
og segir peninga sína fengna með
löglegum viðskiptum.
Skaut skóla-
börn og kenn-
ara til bana
Byssumaður í Jemen var i gær
dæmdur til dauða fyrir að hafa
skotið til bana þrjú börn, skóla-
stýru og kennara í árás á tvo
skóla á sunnudaginn.
Byssumaðurinn skaut í áttina
að hundruðum skólabarna á aldr-
inum 6 til 18 ára er þau söfnuðust
saman á lóðum skóla sinna
snemma morguns. Morðinginn
hafði verið ökumaður skólabíls en
verið rekinn af skólastýrunni. Við
réttarhöldin í gær kvaðst hann
hafa ætlað að myrða eiginmann
skólastýrunnar. Sakaði hann þau
um að hafa samþykkt rán og
nauðgun á 8 ára gamalli dóttur
sinni fyrir hálfu öðru ári.
Reuter
gegn
Bandarísk yfirvöld gagnrýndu i
gær þá ákvörðun utanríkisráðherra
Arababandalagsins að hvetja til að
samskiptum við ísrael yrði slitið.
Sögðu yfirvöld í Bandaríkjunum að
bætt samskipti hefðu stuðlaö betur
að friði.
Utanríkisráðherrar Arababanda-
lagsins tilkynntu í gær, að loknum
tveggja daga fundi í Kaíró í Egyptal-
andi, að þau hygðust mæla með því
að gamalt viðskiptabann gegn ísrael
yrði endurvakið, skrifstofum ísrael-
skra stjórnarerindreka yrði lokað
og þátttöku í viðræðum um frið í
Miðausturlöndum yrði hætt.
Þessi ákvörðun utanríkisráðher-
ranna er svar við þeirri ákvörðun
Benjamins Netanyahus, forsætisráð-
herra Israels, að halda fast við þá
áætlun að byggja 6 þúsund íbúðir
fyrir gyðinga i hverfi araba í austur-
hluta Jerúsalem. Palestínumenn líta
á þann hluta borgarinnar sem höf-
uðborg framtíðarríkis síns.
„Netanyahu leikur sér að eldi og
hann verður sá fyrsti sem brennir
sig á honum,“ sagði framkvæmda-
stjóri Arababandalagsins, Esmat
Abdel-Meguid, á fundi með frétta-
mönnum í gær. „Þetta eru skilaboð
til ísraels og til leiðtoga ísraels en
aðalmarkmiðið er að bjarga friðar-
ferlinu. Þeir (ísraelsmenn) hafa al-
gjörlega misreiknað viðbrögð araba
og þetta hefði aldrei átt að gerast,"
sagði framkvæmdastjórinn.
David Levy, utanríkisráðherra
ísraels, sagði ákvörðun
Arababandalagsins lið í tilraun til
að koma ríkisstjóm Netanyahus frá
völdum.
Óeirðir héldu áfram á Vestur-
bakkanum í gær tólfta daginn í röð.
ísraelskir hermenn skutu gúmmí-
kúlum á palestínska mótmælendur
og særðu tvo. Palestínumenn köst-
uðu grjóti að hermönnunum.
í Egyptalandi efndu þúsundir
stúdenta við Azhar-háskólann í
Kaíró til mótmæla gegn stefnu ísra-
els og Bandaríkjanna. Nokkrir
stúdentanna brenndu fána Israels
og Bandaríkjanna en þeir yflrgáfu
ekki skólalóðina sem óeirðalögregla
hafði umkringt. Egypskir náms-
menn hafa efnt reglulega til mót-
mæla síðan ísraelsstjóm ákvað að
reisa þúsundir íbúða fyrir gyðinga í
arabíska hluta Jerúsalem. Reuter
17 létust í lestarslysi
Sautján létu lífið og 50 slösuöust
er lest fór út af sporinu skammt
frá borginni Pamplona í norður-
hluta Spánar í gær.
Fær frest
Forsætisráðherra Indlands, H.D.
Deve Gowda, hefur fengið frest til
11. apríl til að reyna að afla meiri-
hlutafylgis á þingi. Óliklegt þykir
að það takist þar sem stjómin
nýtur ekki lengur stuðnings Kon-
gressflokksins.
Reknir burt
Alþjóðlegir hjálparstarfsmenn
reyna nú að aðstoða um 20 þús-
und hútúa frá Rúanda sem skipað
hefur verið að yfirgefa flótta-
mannabúðir nálægt Kisangani í
Sair.
Clark yfirmaöur
r-ir---------1 Bill Clinton
MpJPPlk' Bandaríkjaforseti
Jl herafla NATO og
liðsins í Evrópu. Clark er nú yfir-
maður bandaríska herliðsins í
Suður-Ameríku og hefur bæki-
stöðvar í Panama. Hann talar
rússnesku og var í sendinefhd
Bandaríkjanna sem átti þátt í að
koma á Daytonfriðarsamkomu-
laginu um Bosníu.
Óttast lokun skóla
Foreldrar bama í íslömskum ung-
lingaskólum óttast að skólunum
fækki vegna deilu hersins í Tyrk-
landi og stjómvalda. Herinn hef-
ur fyrirskipað að skólunum verði
fækkað þar sem þeir séu uppeldis-
stöðvar næstu kynslóðar ís-
lamskra bókstafstrúarmanna.
Auka skammtinn
Yfirvöld í írak segjast ætla að
auka matarskammtinn handa
írökum þar sem fyrsti farmurinn
af matvælum, sem fékkst í skipt-
um fyrir olíu, sé kominn.
Grænt Ijós
Borís Jeltsín Rússlandsforseti hef-
ur gefið grænt ljós á drög að sam-
komulagi um ríkjasamband við
Hvíta-Rússland. Frjálslyndir Rúss-
ar óttast að með því sé Rússlands-
forseti að afsala sér völdum til
harðlínumannsins Lukashenkos
sem er forseti Hvíta-Rússlands.
Pólitískir fangar
Kínversk yfirvöld segjast ekki
hafa neina pólitíska fanga þó yfir
2 þúsund séu í fangelsi vegna
„gagnbyltingarglæpa". Reuter
ísraelskir hermenn jöfnuöu í gær við jörðu heimili Palestínumannsins sem gerði sjálfsmorðsárás á kaffihús í Tel Aviv
fyrir 10 dögum. Eiginkona Palestínumannsins og fjögur börn þeirra bjuggu í húsinu. sfmamynd Reuter
c