Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Page 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1997
Fréttir
Þórshafnarhreppur:
Kostnaður við
íþróttahús
120-140
milljónir
DV, Akureyri:
„Það er verið að leggja loka-
hönd á teiknivinnu við húsið og
við reiknum með að smíði þess
verði boðin út í næsta mánuði,"
segir Reinhard Reynisson, sveit-
arstjóri á Þórshöfn, um byggingu
íþróttahúss í bænum. Reiknað er
með að verklegar framkvæmdir
við húsið hefjist þegar í sumar.
Að sögn Reinhards er um að
ræða byggingu á þremur hæð-
um og veröur heildarfermetra-
flöldi hússins um 1700. í húsinu
verður 32x34 metra íþróttasalur,
17 metra löng sundlaug sem
verður reyndar til hliðar við
húsið en yfirbyggð, þá verða
minni íþrótta- og æfingasalir i
húsinu. Þar verður einnig skóla-
mötuneyti, aðstaða fyrir starfs-
menn og félagsaðstaða á efstu
hæð sem mun m.a. nýtast skól-
anum á staðnum. Þá verða bún-
ingsherbergi sem nýtast íþrótta-
húsinu, sundlauginni og íþrótta-
svæði utanhúss.
Reinhard Reynisson segir að
kostnaðaráætlun viö byggingu
hússins liggi ekki fyrir endan-
lega en reiknað sé með að kostn-
aðurinn nemi á bilinu 120-140
milljónum króna. -gk
Nótastöð
stofnuð
DV, Eskifiröi:
Hraðfrystihús Eskiijarðar er
enn að skjóta styrkari stoðum í
rekstur fyrirtækisins og eflingu
atvinnulÚsins á Eskifirði. Nú er
unnið af fullum krafti að stand-
setja 1.000 fermetra húsnæði og
gera það að nótastöð. Nótastöð-
in mun þjóna hinum þremur
nótaskipum Eskfirðinga og öðr-
um viðskiptavinum loðnuverk-
smiðjunnar.
Húsnæðiö, sem gengur undir
nafninu Húsið á sléttunni, er
steinsteypt skemma í nálægð
loðnulöndunarbryggjunnar og er
talin henta einkar vel sem nóta-
stöð. Forstööumaður nótastöðv-
arinnar hefur verið ráðinn Stef-
án Ingvarsson netagerðarmaður.
Hann er 36 ára og lærði hjá Seifi
hf. í Reykjavík. Eiginkona hans
er Jóhanna Benediktsdóttir á
Reyðarfirði. Sturlaugur Stefáns-
son verður verksfjóri og er reikn-
að með að stöðin taki til starfa
um miðjan næsta mánuð. Byijað
veröur með 6-8 starfsmenn og
vonandi fjölgað eftir umfangi
hvetju sinni. Reglna
Jeppabifreiö og fóöurflutningabíll skullu saman í höröum árekstri á gatna-
mótum Holtavegar og Sæbrautar. Fóöurbíllinn hentist á Ijósastaur sem
brotnaði og lenti ofan á þaki bílsins. Ökumaöur og farþegi úr jeppanum voru
fluttir á slysadeild en meiösl þeirra voru minnháttar. Báöir bílarnir eru mjög
mikiö skemmdir eftir áreksturinn. -RR/ DV-mynd S
Brotamaður sem hefur afplánað dóm í Þýskalandi kominn heim til íslands:
Rykið nú dustað af
x ára afbrotamáli
- gefið að sök að hafa svikið út vörur og þjónustu í 54 skipti á 4 dögum
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur karlmanni á sex-
tugsaldri, margdæmdum afbrota-
manni, fyrir mikið tékkamisferli á
örfáum dögum árið 1991 - fyrir sex
árum - þar sem hann skrifaði út
54 tékka fyrir ýmsum munum,
talsverðu magni af skartgripum,
fatnaði, áfengi, þjónustu og fleiru,
samtals upp á tæpa eina milljón
króna. Honum eru einnig gefin að
sök íjársvik upp á á aðra milljón
króna með því að falsa víxla og
skuldabréf og nota þau í viðskipt-
um.
Samkvæmt upplýsingum DV
hefur maðurinn verið dæmdur í
hátt í 20 ára fangelsi á sinni lífs-
leið. Ákæra á hendur honum í
framangreindu sakamáli hefur
ekki verið gefin út fyrr en nú
vegna þess að maðurinn hefur
ekki verið staddur hér á landi. Síð-
ast var hann dæmdur í þriggja og
hálfs árs fangelsi í Þýskalandi árið
1993.
Tékkamisferlið árið 1991 telst
vera skjalafals enda var ekki inni-
stæða fyrir úttektunum á reikn-
ingi mannsins. Á aðeins fjórum
dögum skrifaði hann, samkvæmt
ákæru, út á sjötta tug tékka þar
sem hann keypti í tugi skipta
áfengi og aðra þjónustu á veitinga-
húsum en einnig keypti hann dem-
antshálsmen og ýmsa aðra skart-
gripi, myndavél, gleraugu, video-
tökuvél, ýmsan fatnað, bæði á sig
og kvenfólk, skó, lottómiða fyrir
tugi þúsunda, leðurvörur, hjól-
barða, áfengi og ýmislegt fleira.
Nítján fyrirtæki, flest í Reykjavík,
hafa lagt fram bótakröfu á hendur
manninum í málinu. -Ótt
140 milljónir lagð-
ar í skólabygging-
ar til aldamóta
DV, Akranesi:
Þriggja ára áætlun bæjarsjóðs
Akraness fyrir árin 1998-2000 var
samþykkt nýlega í bæjarstjórn
Akraness. Þar er meðal annars gert
ráð fyrir því að útsvar verði 11,99%
og gert ráð fyrir aukningu um 2% á
ári, útsvartekjumar verði á árinu
1998 635 milljónir og árið 2000 661
milljón og skatttekjur alls á árinu
1998 753 milljónir.
Þá er gert ráð fyrir miklum fram-
kvæmdum við skólabyggingar, leik-
skóla, gatnagerð og við viðhald á
stofnunum bæjarins. Þannig er
áætlað að leggja 142 milljónir í það
að ljúka einsetningu grunnskólanna
á Akranesi um eða eftir aldamótin.
í 1. áfanga verður byggt 800 m2 við-
bygging við Brekkubæjarskóla og er
heildarkostnaður við það verk 96
milljónir króna og er áætlað að
þeirri byggingu verði lokið á árinu
1998. Þá er áætlað að byrja á 2.
áfanga við Grundaskóla árið 1999 og
á þvi árinu eru lagöar til 50 milljón-
ir til verksins.
Gert ráð fyrir byggingu þriggja
deilda leikskóla við Laugabraut sem
á að vera lokið á árinu 1998, um er
að ræða 510 m2 leikskóla og er bygg-
ingarkostnaður áætlaður 140 þús-
und á fermetra.
Átak verður gert í viðhald á stofn-
unum bæjarins. Þannig er gert ráð
fyrir því að unnin verði fram-
kvæmdaáætlun um hönnun, endur-
skipulagningu og frágang 2. hæðar
bókhlöðunnar og miðað við að fram-
kvæmdatiminn verði næstu 3-4 ár
og lagt til þess 3,5 milljónir 1998. Þá
er gert ráð fyrir því að vatnsrenni-
braut verði komin á Jaðarsbökkum
á árinu 1998 og 2,5 milljónir lagðar í
endurbætur árlega til viðhalds
iþróttahússins við Vesturgötu.
Þegar Landmælingar ríkisins
koma til Akraness árið 1999 er gert
ráð fyrir því að leigutekjur bæjar-
sjóðs af húsnæðinu sem bærinn á
verði 6,2 milljónir á ári og áætlað er
að bæjarsjóður verði rekinn með 86
milljóna króna haOa á árinu 1998 og
tekin ný langtímalán upp á 76,2
milljónir, síðan minnkar hallinn
árið 1999 niður í 18 miUjónir og árið
2000 verður bæjarsjóður rekin með
hagnaði upp á 23,6 milljónir.
-DVÓ
Rafmagnsstaurar fjarlægðir.
DV-mynd Ægir Már
V atnsley suströnd:
Raflína fjarlægð
DV, Suðurnesjum:
„Þessi rafmagnslína þjónaði
Vatnsleysu siðustu árin. Nú er búið
að leggja streng meðfram ströndinni
þannig að línan er óþörf og verið er
að taka hana niður. Staurarnir
verða seldir hinum og þessum aðil-
um og verða sennilega mikið not-
aðir undir sumarbústaði. Vírinn
notum við aftur sem jarðvír með
strengjum," sagði Júlíus Jónsson,
forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, i
samtali við DV.
Um er að ræða 90 rafmagnsstaura
á 8 kílómetra kafla frá Vogum í átt
að Kúagerði. Rafmagnslínan var
lögð 1945-46 og náði alveg frá Bola-
fæti í Njarðvík og inn í rafstöðina
við Elliðaár í Reykjavík en það sem
Hitaveitan er nú að fjarlægja er það
síðasta sem eftir er af línunni. Að
sögn Júlíusar verður unnið á fullu
við að fjarlægja staurana meðan
frost er í jörðu og vinnuvélar geta
farið um svæðið án þess að valda
skemmdum. -ÆMK