Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Side 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1997
Afmæli
Rósa Rögnvaldsdóttir
og bóndi á Norður-Jót-
landi, og k.h., María Bo-
letta, f. Jakobsen, húsmóð-
ir.
Dætur Rósu og Hans eru
Ragna, f. 3.1.1938, húsmóð-
ir á Akureyri, gift Sveini
Þorbergssyni, verkamanni
og fyrrv. bónda á Syðri-
Reistará, og eiga þau tvær
dætur; Hildur María, f.
20.2. 1952, húsmóðir á Ak-
ureyri, gift Guðmundi Ár-
manni, listmálara og kenn-
ara, og eiga þau fimm
Rósa
Rögnvaldsdóttir.
Reykjavík, látinn; Jón,
lengst af kokkur á skip-
um, búsettur á Siglufirði;
Steinunn, dó á fyrsta ári;
Sigrún, húsmóðir á Húsa-
vík; Steinunn, húsmóðir á
Siglufirði; Kristján, tog-
araskipstjóri og síðar
hafiiarvörður á Siglufirði;
Ari, starfsmaður hjá Hita-
veitu Akureyrar.
Foreldrar Rósu voru
Rögnvaldur Sigurðsson, f.
1888, d. 1934, formaður í
Litlu-Brekku á Höfða-
strönd, og k.h., Guðný
r, f. 1891, d. 1981, húsmóðir.
Rósa Rögnvaldsdóttir húsmóðir,
Þingvallastræti 42, Akureyri, er átt-
ræð í dag.
Starfsferill
Rósa fæddist í Málmey á Skaga-
firði en ólst upp í Litlu-Brekku á
Höfðaströnd. Hún fór í vist á ungl-
ingsárunum og var vinnukona á bæj-
um í Skagafirði og Eyjafirði. Þá var
hún um skeið við síldarsöltun á
Siglufirði á árunum 1939-42, auk þess
sem hún starfaði í frystihúsi hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa í fimmtán
ár.
Fjölskylda
Eiginmaður Rósu er Hans Peder-
sen, f. á Norður-Jótlandi 12.12.1908, d.
1994. Hann kom til íslands 1932, iðn-
verkamaður. Foreldrar hans voru
Kristian Bhchsted Pedersen, smiður
böm.
Rósa átti ellefu systkini en hún á
nú fimm systkini á lífi. Systkini
hennar: Þóranna, húsmóðir, lengst af
á Hjalteyri, látin; Sigurður, vélstjóri á
Húsavík, nú látinn; Matthías, vél-
stjóri, fórst með Heklu á stríðsár-
unum; Páll, dó ungur; Rögnvaldur,
vélstjóri, lengst af á Siglufirði, siðar í
Ætt
Rögnvaldur var sonur Sigurðar, b.
í Hólakoti á Höfðaströnd, bróður
Lofts, föður Jóns, framkvæmdastjóra
í Reykjavík, afa Jóns L. Ámasonar
stórmeistara, en annar sonur Lofts
var Páimi, forstjóri Skipaútgerðar
ríkisins, afi Más Gunnarssonar,
starfsmannastjóra Flugleiða. Sigurð-
ur var sonur Jóns, b. á Hóli í Svarfað-
ardal, Jónssonar, b. á Hóh, Jónsson-
ar, bróður Ambjargar, langömmu
Einars Olgeirssonar. Móðir Lofts var
Gunnhildur, systir Jóns á Jarðbrú,
afa Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra
SÍS. Gunnhhdur var dóttir Hahgríms,
b. á Stóru-Hámundarstöðum, bróður
Þorláks, langafa Bjöms Th. Bjöms-
sonar. Hahgrímur var sonur Hah-
gríms, b. á Stóm- Hámundarstöðum,
Þorlákssonar, b. og dbrm. á Skriðu í
Hörgárdal, Hahgrímssonar. Móðir
Rögnvalds var Guðlaug Þorsteins-
dóttir frá Skáldalæk í Svarfaðardal.
Guðný var dóttir Guðna Jónssson-
ar, b. á Heiði í Sléttuhlíð, og Kristín-
ar Jónsdóttur.
Rósa er að heiman á afmælisdag-
inn.
Svanberg Sveinsson
Svanberg Sveinsson málarameist-
ari, Vogatungu 95, Kópavogi, varð
níræður á laugardaginn var.
Starfsferill
Svanberg fæddist að Múla í Kirkju-
hvammshreppi í Vestur-Húnavatns-
sýslu. Hann flutti th ísafjarðar 1927,
lærði þar málaraiðn og stundaði síö-
an þá iðngrein.
Svanherg starfaði í Iðnaðarmanna-
félagi ísfirðinga og i Lúðrasveit ísa-
íjarðar. Hann hefur samið sönglög og
lagt sfimd á bókband og málaralist.
Fjölskylda
Svanberg kvæntist
16.7. 1932 Þorbjörgu
Kristjánsdóttur, f. 10.4.
1910, d. 28.2. 1984, kenn-
ara. Hún var dóttir
Kristjáns Kristjánsson-
ar, bónda í Stapadal, og
Guðnýjar Guðmunds-
dóttur húsfreyju.
Börn Svanbergs og
Þorbjargar era Ásgeir, f.
4.10. 1932, ráðsmaður
Skógræktarfélags Reykjavíkur, bú-
Svanberg
Sveinssonson.
settur í Kópavogi, kvænt-
ur Ásthhdi Pálsdóttur og
eiga þau fimm böm; Gísli,
f. 3.6.1934, húsvörður, bú-
settur í Reykjavík, var
fyrst kvæntur Nönnu
Henriksdóttur en síðan
Margréti Hákonardóttur
og á hann fjögur böm;
Ingibjörg, f. 27.2.1940, hús-
freyja á Seyðisfirði, gift
Guðmundi Sigurbjöms-
dóttir og eiga þau þrjú
böm; Erla, f. 20.2. 1944,
húsfreyja á Siglufirði, gift Birgi
Guðlaugssyni og eiga þau þrjú böm;
Þorbjörg, f. 5.7. 1949, húsfreyja í
Borgamesi, gift Sveini Guðmunds-
syni og eiga þau tvö börn.
Alsystir Svanbergs var Margrét
Sveinsdóttir, síðast húsfreyja í
Sandgerði, gift Björgvini Guð-
mundssyni en þau era bæði látin.
Foreldrar Svanbergs vora Sveinn
Jósefsson, f. 10.7.1861, d. 1918, bóndi
á Eghsstöðum á Vatnsnesi, og k.h.,
Ingibjörg Sveinsdóttir, f. 18.5. 1865,
d. 1926, húsfreyja.
Starfsdagar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja:
Starfshlaup með „drottningaþrautum“
Ný flugvél flugmólastjórnar hefur nú veriö tekin í notkun. Um er aö ræöa flug-
vél af geröinni Beechcraft King Air 200 en hún getur tekiö alls 10 farþega.
Flugvélin var keypt frá Þýskalandi og kom hingaö til lands á dögunum og
myndin var tekin viö þaö tækifæri. Frá vinstri er Haukur Hauksson, Sálman
Pétur í Grund, samgönguráöherra Færeyja, Halldór Blöndal, samgönguráö-
herra fslands, Þorgeir Pálsson flugmálastjóri ásamt dótturdóttur sinni og flug-
stjórarnir Sæbjörn Guöbjörnsson og Kári Guöbjörnsson. DV-mynd s
DV, Suðurnesjum:
„Hlaupið heppnaðist sérstaklega
vel í ár og má segja að sjaldan hafi
verið jafii mikh stemning í skólan-
um,“ sagði Ólafur Jón Ambjöms-
son, skólameistari Fjölbrautaskóla
Suðumesja, í samtali við DV.
Hið árlega starfshlaup F.S. var
haldið 21. mars. Þátttakendur voru
ahir nemendur og kennarar skól-
ans. Skipt var í 9 lið og voru á mhli
40 og 60 í hverju liði. Hlaupið er
boðhlaup þar sem hvert lið þarf að
leysa úr um 40 mismunandi verk-
efnum. Að sögn Ólafs þurftu liðin að
búa yfir mikilli breidd þar sem
verkefhin vora bæði bókleg og verk-
leg - frá því að leysa flóknar eðlis-
fræðhegar þrautir, þýsk og frönsk
verkefhi, verkefiii í loftstýringu og á
hinum ýmsu sviðum lista og
íþrótta. Hvert verkefni gaf ákveðin
stig en síðan kepptu nemendur
einnig við tímann. Undirbúningur
hefur staðið yfir í nokkum tíma og
hafa fihltrúar kennara ásamt út-
skriftamemum staðið að honum.
„Keppninni lauk í hátíðarsal skól-
ans þar sem keppt var í ýmsum hóp-
verkefnum. Á tölvuskjá gátu nem-
endur fylgst með árangri síns liðs
þar sem stigin vora færð inn jafn
óðum og þau bárust. Sigurliöið bar
nauman sigur úr býtum og fékk í
verðlaun flatbökuveislu," sagði
Ólafur Jón Ambjömsson, sem var
greinhega í skýjunum með daginn
Ein þrautin í starfshlaupi FS var
keppni um bestu drag-drottninguna
og í henni gaf aö iíta margan skraut-
legan manninn. DV-mynd æmk
og skal engan undra þar sem mikh
stemning var í skólanum. -ÆMK
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA
UMSÓKNARFRESTUR UM 0RL0FSHÚS
sumariö 1997
Umsóknarfrestur um sumarleigu á orlofshúsum
Fólags járniönaöarmanna er frá 1. apríl 1997 til 30. apríl 1997.
Stjórn Félags járniönaöarmanna
Hl hamingju
með afmælið
1. apríl
85 ára_________________________
María Benediktsdóttir,
Lindargötu 12, Siglufirði.
Gísli Guðmundsson,
Vogatungu 83, Kópavogi.
80 ára_________________________
Auðbjörg Ingimarsdóttir,
Grensásvegi 56, Reykjavík.
Rósa Rögnvaldsdóttir,
Þingvallastræti 42, Akureyri.
Kristján Magnússon,
Dvalarheimhinu Lundi, Hehu.
Kristín Ásthildur Lúthersdóttir,
Bæjartúni 6, Kópavogi.
75 ára
Ámi Danielsson,
Hafnarbraut 16, Hólmavík.
Maria Jensen,
Samtúni 28, Reykjavík.
70 ára_________________________
Katrin Héðinsdóttir, húsmóðir
Stórholti 37, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Magnús
Jónsson sjómaður.
Þau hjónin verða aö heiman á af-
mælisdaginn.
Signý Hermannsdóttir,
Hólmgarði 50, Reykjavik.
Jónína Bjarnadóttir,
Víðhundi 20, Akureyri.
60 ára_________________________
Sigursveinn Magnússon,
Sunnuhvoli, Akureyri.
Loreley Gestsdóttir,
Bjarkarbraut 5, Dalvík.
Halldór E. Halldórsson,
Leifsgötu 10, Reykjavík.
Guðlaug Guðmundsdóttir,
Hólagötu 8, Sandgerði.
50 ára
Reynir
Kristinsson,
framkvæmda-
stjóri Hagvangs
hf„
Vöhum, Kjalar-
neshreppi.
Kona hans er Lhja
Guðmundsdóttir.
Þau biðja vini og
velunnara að samgleöjast sér á
þessum tímamótum í sal Ferðafé-
lags íslands, Mörkinni 6 á afmælis-
daginn 1.4. frá kl. 17.30.
Pálmi Þór Vilbergs,
Brekkutanga 21, Mosfehsbæ.
Guðni Guðmundsson,
Borgarhraimi 8, Hveragerði.
Vilhjálmur Þorkelsson,
Stekkjarbergi 11, Hafnarfirði.
Jóhann Helgason,
Vallholti 30, Selfossi.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Álfhólsvegi 137 C, Kópavogi.
Guðbjörg Jóelsdóttir,
Koltröð 19, Egilsstöðum.
Árni Sörensen,
Arkarholti 11, Mosfehsbæ.
Guðrún Sonja Guðmundsdóttir,
Hnjúkaseli 9, Reykjavík.
Ríkarður Rlkarðsson,
Fossahlíð 5, Eyrarsveit.
Sigurrós Rikharðsdóttir,
Dalhúsum 63, Reykjavík.
Snorri B. Ingason,
Byggðarenda 5, ReykjavUc.
40 ára_________________________
Concordia Svand Guðmannsdóttir,
Ljótshólum, Svínavatnshreppi.
Hjálmar Eysteinsson,
Huldubraut 38, Kópavogi.
Guðfinna Jónsdóttir,
Fannafold 143, Reykjavík.
Kristin Svava Svavarsdóttir,
Hverafold 22, Reykjavík.
Jónas Sævar Hrólfsson,
Litlabæjarvör 25, Bessastaðahreppi.
Dagbjartur Ragnar Jónsson,
Sólbakka, Borgarbyggð.
Svanbjörn Tryggvason,
Hafraholti 30, Isafirði.
Valgerður J. Reginsdóttir,
Grandavegi 1, Reykjavík.
Una Sveinsdóttir,
Byggðarenda 7, Reykjavík.
Ingvar Hreinsson,
Leiratanga 25, MosfeUsbæ.