Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
Fréttir
Skuldir íslenskra heimila í samanburði við sjö OECD-lönd:
Skuldir hlutfallslega mest-
ar en eignir hvað minnstar
- skuldahlutfall heimilanna hér eitt hið hæsta í OECD
Skuldir heimilanna
- sem hlutfall af ráöstöfunartekjum -
Skuldir heimilanna viö lánakerf-
ið hafa hvorki meira né minna en
sjöfaldast frá því árið 1980 til árs-
loka 1995 en þá skulduðu heimili og
einstaklingar samtals 318 milljarða
króna. Eignir fjölskyldnanna hafa
hins vegar ekki aukist að sama
skapi því að eignaaukningin á
þessu sama tímabili er aðeins 4,4%.
Meðalvöxtur skulda heimilanna hef-
ur hins vegar numið 13,6% á ári frá
1980.
Skuldir íslenskra heimila eru að
langmestu leyti tiltölulega nýjar en
70% af öllum lánum til einstaklinga,
sem voru útistandandi í árslok 1994,
voru tekin árið 1985 eða síðar og
næstum öll lánin, eða 98,5%, voru
tekin árið 1980 eða síðar eða eftir að
verðtrygging var tekin upp. Þetta
kemur fram í skýrslu sem hagdeild
Seðlabankans gerði fyrir félags-
málaráðherra um skuldir og vanskil
einstaklinga og kynnt var fyrr í
þessari viku og í riti Seðlabankans,
Hagtölum mánaðarins.
„Skýrslan er eins og nokkurs
konar þverskurðarmynd af stöð-
unni eins og hún var í árslok 1994
og sýnir hvemig vanskil dreifast á
aldurshópa og einstaklinga og ann-
að því um líkt,“ segir Már Guð-
mundsson, yfirmaður hagfræði-
deildar Seðlahankans, í samtali við
DV. Már segir að skýrslan veiti ein-
stæðar upplýsingar sem ekki hafi
verið teknar saman á einn stað í ná-
grannalöndunum og því sé ekki til
alþjóðlegur samanburður á skuld-
um og skuldaskilum einstaklinga.
Alþjóðlegur samanburður um
skuldir einstaklinga og heimila í
hlutfalli viö ráðstöfunartekjur
þeirra i löndum OECD er hins veg-
ar til og var m.a. fjallað um það mál
í riti Seðlabankans, Hagtölum mán-
aðarins, í maí 1996. Þar kemur fram
að hlutfall skulda af ráðstöfunar-
tekjum heimilanna er mjög hátt á
íslandi og í samanburði milli sjö
OECD-ríkja er skuldahlutfallið hæst
á íslandi, eða 128%, sem þýðir það
að skuldir heimilanna eru að meðal-
tali 28% hærri en tekjurnar. Skulda-
hlutfallið er lægst hjá ítölum í þess-
um sjö landa samanburði eða 33%
en samanburðurinn er sýndur í
heild á meðfylgjandi grafi.
íslendingar virðast hins vegar fá
mun minna út úr þessari háu
skuldabyrði miðað við Bandaríkja-
menn því að hlutfall hreinnar eign-
ar af ráðstöfunartekjum er aðeins
2,96 hér en í Bandaríkjunum 5,02.
Þeir virðast því með öðrum orðum
geta eignast mun meira fyrir lánin
sín heldur en við.
Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður sagði í samtali við DV í gær
að hátt hlutfall skulda íslenskra
heimila megi að miklu leyti rekja til
þess að stór hluti islenskra fjöl-
skyldna á íbúðarhúsnæði sitt og
skuldar í því. Þá væri lánsfé verð-
tryggt, en verðtrygging þekktist
ekki annars staðar og skuldir heim-
ilanna breyttust í takti við almenn-
ar verðbreytingar og bara á þeim
tíma sem núverandi ríkisstjórn hef-
ur setið hafi skuldir heimilanna
hækkað um 60 milljarða vegna
stjómvaldsaðgerða.
Hún sagði að oft væri látið í veðri
vaka að heimilin hér á landi væru
að eyða meiru en heimili annars
staðar. Svo væri hins vegar ekki
heldur væru aðstæður heimilanna
hér öðruvísi og meðal annars væru
laun hér lægri en t.d. í Danmörku
þar sem launin duga fyrir fram-
færslunni.
Meiri skuldaaukning en í
samanburðarlöndunum
Skuldir heimilanna hafa aukist
mjög mikið og mun meira þessi sL
15 ár en hjá þeim OECD-ríkjum sem
upplýsingar liggja fyrir um og þegar
hlutfall eigna og ráðstöfunartekna
þessara sjö landa, sem borin eru
saman á grafinu, er athuguð kemur
í ljós að eignahlutfallið er mun
lægra á íslandi en í samanburð-
arlöndunum. Hæst er það sem fyrr
segir í Bandaríkjunum, 5,02, eða ríf-
lega flmmfalt hærra en ráðstöfunar-
tekjur hvers árs. í Japan er það 6,83,
Frakklandi 4,51, Ítalíu 5,86, Bret-
landi 5,69, Kanada 4,60 og á íslandi
2,96. Már Guðmundsson tekur þó
fram að þessi hlutfallstala fyrir ís-
land sé ekki fyllilega marktæk þvi
að í henni sé ekki talin hlutafjár-
eign.
-SÁ
Uppsveifla í hafinu:
Óhætt að auka þorskkvót-
ann um 50 þúsund tonn
- segja skipstjórnarmenn á Suðurnesjum
DV, Suðurnesjum:
Maöur þarf ekki aö vera hár í loftinu til aö geta veitt niöur um ís og fengiö
góöa veiöi, allavega i soðiö fyrir köttinn. Veiöimaöurinn heitir Andri Freyr og
vatniö er Vestur- HÓpSVatn í VeStUr-HÚnavatSSýslU. DV-mynd Gunnar Bender
Dorgveiði:
Margir fengu fína veiði
„Við ætlum ekki að sitja aðgerða-
lausir, ætlumst til að tekið verði
mark á okkur varðandi veiðiráð-
gjöf. Við fórum af stað á friðsamleg-
um nótum, reynum að koma vitinu
fyrir stjómmálamenn og Hafrann-
sóknarstofnun. Ef reynsla okkar og
þekking er ekki metin förum við í
harkalegar aðgerðir,“ sagði Grétar
Mar Jónsson, formaður Vísis, félagi
skipstjómarmanna Suðurnesjum.
Skipstjómarmenn hjá Vísi skora
á stjómvöld að auka þorskkvótann í
ár þegar um 50 þúsund tonn. Á
fundinn mættu stjórnarmenn í Vísi
ásamt nokkrum skipstjórnarmönn-
um með áratuga reynslu. Þar kom
fram að Hafró þarf að endurskoða
bæði sín eigin gögn og aðlaga sig að
raunveruleikanum hverju sinni.
„Ef Hafrannsóknastofnun tekur
tillit til okkar sjónarmiða þá er rétti
tíminn nú að bæta við þorskkvót-
ann 50 þúsund tonnum eins og við
teljum að sé óhætt að minnsta kosti.
Það er bersýnilega uppsveifla í haf-
inu og við viljum nýta náttúrulegu
uppsveifluna og verðum þá fljótari
að skera niður aftur ef aðstæður
breyta til hins verra. Fiskur á Is-
landsmiðum er ekki fískur í fiska-
búri. Hann kemur og fer og menn
hafa ekkert loforð fyrir að hann
komi aftur. En þegar aðstæður eru í
góðu lagi, metfiskeri, og flestir skip-
stjórnarmenn í okkar félagi hafa
ekki áður kynnst jafnmiklu flskeríi
eins og nú er á jafnvel 40 ára ferli,
þá hlýtur að vera hægt að taka
meira tillti til okkar sjónarmiða.
Menn með handónýt veiðarfæri eru
að mokveiða í kringum landið. Það
er raunverulega verið að setja veiöi-
met miðað við sóknareiningu og
netafjölda," sagði Grétar.
„Við erum að reyna að vekja at-
hygli stjómvalda á að það sé mikið
meiri fiskur í sjónum heldur en
Hafró vill meina. Þeir vanmeta
stofnstærð þorsksins, meta stofn-
stærðina rangt og gefa sér upphaf-
lega rangar forsendur. Hafa verið að
vinna raunverulega í blindni út frá
vitlausum forsendum síðan þeir
byijuðu á þessu rugli sínu. Ef við
skoðum söguna þá vomm við að
veiða yfir 400 þúsund tonn að með-
altali á ári frá 1950-1990. Nú erum
við að veiða undir 200 þúsund tonn-
um 3 ár í röð þegar við ættum að
vera að veiða að mínu áliti 250-300
þúsund tonn.
Þá gagnrýni ég Hafró fyrir of
seinvirkt apparat. Þeir era seinir að
bæta við og verða þar af leiðandi of
seinir að skerða þorkskvótann þeg-
ar að því kemur að niðursveiflan
byrjar. Ég tel að toppurinn sé árið í
ár og þess vegna ber að auka kvót-
ann,“ sagði Örn Einarsson, skip-
stjóri á Erling KE.
-ÆMK
„Veðurfarið hefði mátt vera betra
hjá okkur á Arnarvatnsheiði en
veiðin var fin og stærstu fiskamir
voru um 4 pund. Mest fengum við af
urriða og beitan var rækja," sagði
veiðimaður í samtali við DV en
hann var að koma af Amarvatns-
heiðinni um helgina með góðan
feng. En veiðimenn reyndu víða um
helgina en ís er þykkur víðast á
vötnum landsins þessa dagana.
„Fiskurinn hefði mátt vera stærri
en það var þónokkuð af honum á
Vestur-Hópsvatninu. Það eru til
stærri fiskar í vatninu, sérstaklega
urriðinn,“ sagði Júlíus Sigurbjarts-
son en hann var við veiðar á vatn-
inu ásamt fleiri vöskum viðimönn-
um.
„Við beitum mest rækjum fyrir
fiskinn," sagði Júlíus og hélt áfram
að rýna ofan í ísinn. Fiskurinn var
fyrir hendi þótt smár væri.