Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997
Fréttir
DV með bresku köfurunum um borð 1 Óðni:
Kafarar telja sig
vita um annað líkið
- á fimmta tug manna vinnur að köfun í Æsu
DV, Bíldudal:
Bresku kafararnir um borð í varð-
skipinu Óðni fóru niður að flaki
kúfiskbátsins Æsu á fallaskipt-
um upp úr klukkan 14 i gærdag.
Vegna mikils straums geta þeir
aðeins kafað tvisvar á sólar-
hring og þá í hálftíma í senn.
Þegar niður kom unnu þeir und-
irbúningsvinnu að því að fara
niður og inn í skipið til að ná
líkum skipverjanna tveggja sem
fórust með skipinu. Þeir náðu að
hreinsa víra og annað frá inn-
gangi í skipið á þeim hálftima
sem þeir geta verið í kafi í senn.
DV var um borð í varðskipinu
Óðni frá því skipið kom i Amar-
fjörð á miðvikudag og þar til í gær og
fylgdist með framvindu mála.
Erfiðleikar
Kafararnir lentu í erfiðleikum eft-
ir að niður kom og misstu straum af
ljósum sem þeir höfðu í hjálmum
sínum og voru því í myrkri neðan-
sjávar. Þá var slakað niður til
þeirra ljóskösturum úr eigu Gæsl-
unnar sem virkuðu ekki heldur.
Þrátt fyrir erfiðleikana tókst þeim
að ljúka ætlunarverki sínu og festa
líflínu milli Óðins og flaksins. Hálf-
tíma eftir að þeir fóru niöur var
byrjað að hífa þá aftur. Mikil
spenna var í loftinu þegar þeir
komu upp á yfirborðið því þá hafa
þeir aðeins þrjár mínútur til
að komast í afþrýstihylki sem
staðsett er í þyrluskýli Óðins.
Takist þeim ekki að komast á
þeim tíma er hætt við að þeir
fái köfunarveiki með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum.
Eftir að bresku kafararnir
fóru niðrn- á það 76 metra dýpi
sem Æsan er á, var ætlunin að
kafa aftur á fallaskiptum í gær-
kvöld með það fyrir augum að
ná líkum annars eða beggja
mannanna. Töldu kafararnir
liklegt að í þeirri ferð yrði
mögulegt að kanna bæði brú skips-
ins og káetu stýrimannsins. I gær-
kvöld hafði síðan aúkið vind og þá
var ákveðið aö fresta köfun þar til í
dag. Einn kafaranna hafði á orði við
Hér má sjá Kristin Ingólfsson aögeröastjóra fara yfir
öryggisatriöi meö skipverjum Óöins í Arnarfirði.
Hér má sjá breska kafarann Alan House eftir aö hann kom úr kafi í gær. Bresku kafararnir fóru þá i fyrsta sinn niöur
aö Æsu og geröu klárt til aö geta fariö inn í næstu köfun. Mikiö var um aö vera þegara kafararnir komu upp. Ekkert
má út af bera og menn hafa aöeins 3 minútur til aö koma köfurunum i afþrýstitanka. Ef þaö dregst er hætta á köfun-
arveiki. DV-myndir Hilmar Þór
j rödd
Já f OLKSINS
904 1600
Er sameining
jafnaðarmanna tímabær?
DV að þeir teldu sig vita hvar lík
annars mannsins er eftir að hafa
skoðað myndbandsupptöku sem ís-
lenska köfunarfyrirtækið Djúp-
mynd gerði eftir að hafa skoðað
flakið.
Mikil leynd hvílir yfir aðgerðum
um borð i Óðni og eru aðeins örfáir
sem samráð hafa um framkvæmd
aðgerðar á hinum ýmsu stigum.
Þegar köfun hófst í gær voru allir
beðnir að víkja af þilfari og strang-
ar reglur giltu um það hverjir
mættu koma þar nærri.
Tafir
Tafir höfðu orðið á leiðangrinum
Bresku kafararnir leggja gífuriega áherslu á aö búnaður þeirra sé f full-
komnu iagi enda má ekkert út af bera þegar kafað er niöur á þaö dýpi sem
Æsan er á. Allt er yfirfariö og þrautreynt áöur en kafaö er.
vegna bilunar í búnaði og kom varð-
skipið Óðinn ekki á slysstaðinn fýrr
en sólarhring síðar en gert hafði
verið ráð fyrir. Þegar þangað kom
fór nokkur tími í að staðsetja varð-
skipið yfir flaki Æsu en til þess að
hægt væri að nota hinn flókna bún-
að kafaranna varð að fastsetja skip-
ið. Það var gert með tveimur 4
tonna steinhnullungum og ankerum
skipsins. Búnaður kafaranna var
þrautreyndur meðan þetta stóð yfir.
Það tók um 6 klukkustundir að
koma skipinu þannig fyrir að það
ins telur 19 menn. Alls eru á fimmta
tug manna við aðgerðina sem gagn-
rýnd hefur verið af íslenskum köf-
urum sem segjast geta náð skipinu
á þurrt fyrir svipaða upphæð og
lögð er í yfirstandandi aðgerð.
Gert er ráð fyrir að aðgerðum
ljúki irni eða eftir helgi og í fram-
haldinu verði unnið úr þeim gögn-
um sem fýrir liggja. -rt
Stuttar fréttir
Hér skoöa skipherra og yfirstýri-
maöur Óöins lóöningu á dýptarmæli
skipsins sem sýnir glöggt flak Æsu
á 76 metra dýpi.
væri beint yfir flakinu og þegar því
var lokið voru menn orðnir þreyttir
og ákveðið var að gera hlé á aðgerð-
um svo menn gætu sofið og náð upp
þreki.
í gærmorgun var búri því sem
kafararnir eru í við köfun slakað til
botns til að kanna hvort nokkuð
væri að. Mikil áhersla var lögð á ör-
yggisatriði þar sem ekkert má út af
bera við sjálfa köfunina án þess að
stórhætta hlytist af.
Múgur manns
Fjöldi manns frá rannsóknaraðil-
um kemur að þessari umfangsmiklu
aðgerð. Sjóslysanefnd er með sinn
fulltrúa á vettvangi og Siglinga-
stofnun með tvo, annar stjómar að-
gerðum og hinn er íslenskur kafari
sem annast samskipti við bresku
kafarana. Þá voru tveir menn frá
Rannsóknarlögreglu ríkisins og þrír
lögregluþjónar frá Patreksfirði.
Einn fulltrúi ættingja þeirra sem
fórust fylgist með framvindu mála.
Loks má nefna að áhöfn varðskips-
80 alvarlegar árásir
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefúr rannsakað 80 alvarleg lík-
amsárásarmál frá 1993 til 1997.
Alvarlegar árásir teljast þær
þegar meiðsli fómarlamba verða
mikil og árásarmenn nota gjarn-
an verkfæri. RÚV sagði frá.
Keflavíkurstöö óbreytt
Yfirmaður herafla Atlants-
hafsbandalagsins segir að engar
breytingar séu fyrirhugaðar á
rekstri herstöðvarinnar í Kefla-
vlk í náinni framtíö. Stöð 2
sagði frá.
PCB í hvalkjötinu
Mikið af þrávirkum efnum,
eins og PCB, er í blóði Græn-
lendinga og talið að þeir fái það
I sig úr hval- og selkjöti sem
þeir borða mikið af. RÚV sagði
frá.
1200 tonn af síld
Júpíter ÞH landaði 1200 tonn-
um af síld á Vopnafiröi í nótt
sem skipið fékk í tveimur köst-
um nyrst í Sildarsmugunni.
Áður hefúr Sunnuberg landað á
staðnum en þangað hafa borist
2000 tonn af síld á vertíðinni.
RÚV sagði frá.
300 hjúkrunarrými
vantar
Á þriðja hundrað hjúkrunar-
rými fyrir aldraða vantar í
Reykjavík og biðlistar lengjast
stöðugt og er ástandið orðið al-
varlegt víða, að sögn formanns
Félags eldri borgara á Stöð 2.
-SÁ