Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Page 5
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997
5
!
*
i
í
i
!
I
I
\
\
\
i
*
x>v_______________________________________Fréttir
Kvennalistinn leitar framhaldslífs:
Glæpsamlegt að breyta
forsendum eftir á
- segir Kristín Ástgeirsdóttir um kröfu Steinunnar V. Óskarsdóttur
Er húsið með flötu þaki?
Þú gerir það vatnshelt
með einni yfirferð af
ROOF KOTE. Efnið sem
límist við næstum öll
þakefni, t.d. tjöru og
asfalt. Auðvelt í notkun
og endist 10 sinnum
lengur en tjara og asfalt.
Taktu á málinu og
kynntu þér möguleikana á viðgerð-
um með ROOF KOTE, TUFF KOTE
og TUFFGLASS viðgerðarefnun-
um. Efnin voru þróuð 1954 og hafa
staðist tímans raun.
Heildsala:
G.K. Vilhjálmsson
Smyrlahrauni 60 - S. 565 1297
Kristín Ástgeirsdóttir segir kröfu
Steinunnar V. Óskarsdóttur borgar-
fulltrúa ffáleita, um að unnið verði
úr viðhorfskönnun sem gerð var
meðal Kvennalistakvenna um fram-
tíð Kvennalistans. „Það væri óheið-
arlegt, jafnvel glæpsamlegt að
hreyta forsendum könnunarinnar
eftir á. Þegar könnunin var send út
til 700 kvenna var skýrt tekið fram
að ef ekki næðist 50% þátttaka, yrði
ekki unnið úr henni,“ segir Kristín
Ástgeirsdóttir, alþingiskona
Kvennalistans, í samtali við DV.
Rúmlega 190 svör bárust.
Kristín segir að meðal Kvenna-
listakvenna sé mikill vilji til að
halda áfram á framboðsleiðinni en
ómótuð sé stefna um hvemig það
verði gert. „Við erum enn í umræð-
um um hvernig beri að halda áfram.
Það er fyrst og fremst samstarf við
núverandi stjórnarandstöðuflokka
sem er til umræðu, en það er viða
tregða, bæði innan Kvennalistans
og Alþýðubandalagsins. Þá hefur
Framsóknarflokkurinn ekkert ljáð
máls á því að fara inn í einhvers
konar kosningabandalag."
Kristín var spurö um undirtektir
annarra stjórnarandstöðuflokka við
hugsanlegu framboðssamstarfi við
Kvennalista í ljósi þingstyrks
flokksins og fylgis í skoðanakönn-
unum. Hún sagði áhuga þeirra vera
fyrir hendi enda væri innan
Bónus:
M&IVI
sælgætið
kláraðist
„Við áttum rúmlega 100 kassa af
M&M og það kláraðist allt á ör-
skömmum tíma. Þetta féll í góðan
jarðveg hjá viðskiptavinum okkar.
Við munum skoða hvert framhaldið
verður og hvort við pöntum meiri
birgðir af sælgætinu,“ segir Guð-
mundur Marteinsson, rekstrarstjóri
hjá Bónus.
„Síðan 1988 hefur verið bannað að
selja M&M hér vegna þriggja litar-
efna sem eru í sælgætinu. Það er að
koma nýr aukaefnalisti til okkar og
ég býst við að þessi þrjú litarefni
verði leyfð á honum. Hins vegar er
ljóst að það verður að framfylgja
þeim reglum sem eru i gangi. Þegar
við komum að athuga málið í versl-
unum Bónuss var búið að selja
þetta M&M sælgæti. Ég býst ekki
við að við munum gera neitt stór-
mál úr þessu,“ segir Rögnvaldur
Ingólfsson hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur. -RR
Meö vikugamalt bílpróf:
Köstuöust út
eftir veltu
Bíll valt á Sauðárkróki á þriðju-
dag. Tveir voru í bílnum. Þeir voru
ekki í bílbeltum og köstuðust báðir
út. Miðað við það er óhætt að full-
yrða að þeir hafi sloppið vel. Annar
piltanna var lagður inn á sjúkrahús-
ið á Sauðárkróki vegna verkja í
baki. Ökumaðurinn, sem aðeins
hafði vikugamalt bílpróf, gaf þá
skýringu að hann hefði verið að
taka fram úr og misst vald á bílnum
í lausamöl. -sv
Kvennalistans stór hópur kvenna
sem byggju yfir mikilli stjórnmála-
reynslu, sem gömlu flokkana hrein-
lega vantaði, ekki sist Alþýðuflokk-
inn. „Okkar fylgi hefur vissulega
sveiflast, en þær hugmyndir sem
við höfum sett fram höfða til ákveð-
ins hóps fólks og það gefur framboð-
um breiðari skírskotun ef þar eru
Kvennalistakonur innanborðs,“ seg-
ir Kristín Ástgeirsdóttir.
-SÁ
KÆcetffHiclciau/^
sunnudaginn 11. maí 1997 C—f
Ræktun afskorinna blóma á íslandi þykir
mjög frambærileg og jafnast hiklaust á við
það sem best gerist 1 heiminum.
í blómaverslunum á íslandi starfar þaulreynt
og menntað blómaskreytingafólk sem ávallt
leggur fagmennsku og metnað í vinnu sína.
...Látið blómin tala
Blómaverslanirnar
- fagmennska í fyrirrúmi
ÍSLENSK
GARÐYRKJA
-okkar allra vcgtta!