Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1997, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 T>V
*Ó!k
Sigurður Sigurjónsson bætir nýrri persónu í sarpinn:
Fyrirmynd að
Sæla er til
Sigurður Sigurjónsson, leikar-
inn ástsæli, hefur gert margar per-
sónur frægar eins og Ragnar
Reykás og Kristján Ólafsson neyt-
endafrömuð. í auglýsingu frá
Happdrætti DAS er að finna nýja
persónu, Ársæl, eða Sæla eins og
hann er oftast kallaður, sem Sig-
urður leikur. Þetta er frekar ógeð-
felld týpa með alltof ljóst hár og
skemmtilega leiðinlegur. Sigurður
var spurður hvernig hann færi að
þegar hann væri að búa til nýjar
persónur.
„Þessi gaur varð til í samvinnu
við Gísla Rúnar Jónsson. Við unn-
um saman aö þessari auglýsingu.
Það vill svo til að það er til fyrir-
mynd að Sæla. Ég hef reyndar ekki
séð hann sjálfur en honum var lýst
fyrir mér. Þeir sem til þekkja segja
að ég hafi náð honum nokkuð vel,“
segir Sigurður.
Að sögn Sigurðar er engin hætta
á því að Sæla-fyrirmyndin þekki
sjálfa sig í auglýsingunni.
„Þegar ég fer að skoða þetta betur
þá sé ég að það eru til nokkrar
svona týpur. Þeir eru kannski ekki
nákvæmlega eins en með mörg lík
einkenni. Það er mjög gaman þegar
maður sér það,“ segir Sigurður.
Tllviljun ræður
Sigurður segir að týpurnar sem
hann leikur verði oft til fyrir tilvilj-
un. Það sé ekki ákveðið fyrirfram
hvemig þær eigi að líta út. Persón-
an þróast eftir því sem meira er
unnið með hana.
„Það eru ekki mjög vísindalegar
aðferðir sem ég nota þegar ég er
að búa til nýjar persónur. Það fer
alveg eftir því hvað er í kollinum
á manni hverju sinni. I þessu til-
felli kom Gísli Rúnar með
ákveðnar hugmyndir til mín
og við unnum saman úr
þeim. Það er ekkert sérstakt
lagt til grundvallar. Maður prufar
og flflast svolítið og athugar hvað
virkar," segir Sigurður.
10-20 manngerðir
Sigurður segir að manngerðirnar
sem hann hefur leikið séu ekkert
sérstaklegar margar. Þær séu allar
likar innbyröis ef vel væri að gáð.
Þær séu þó í kringum 10-20. Hann
heldur í augnablikinu mest upp á
Sæla. Það sem sé ferskt og nýtt sé
skemmtilegast hverju sinni.
Sigurður hefur að venju i nógu að
snúast. Hann leikur út júní í Fiðlar-
anum á þakinu. Hann mun leika
áfram í leikritinu Á sama tíma að
ári sem hefur gengið geysilega vel.
„Eg
ætla síð-
an að
reyna
að hafa
það
náð-
ugt og
fara í
nokkra
veiði-
túra. Ég fer
meðal annars í
Hörðudalsá og
Svartá. Ég var
einmitt á flugu-
hnýtingamám-
skeiði og hnýtti
nokkrar flugur.
Ég hef að vísu
engan tima til
þess. Fyrir
nokkrum árum
gat ég hnýtt
flugur á milli at-
riða þegar ég var
í smáhlutverk-
um í leikhús-
inu. Ég hef
ekki tíma til
þess núna,“
segir Sigurð-
ur. -em
DAS-kallinn
Sæli kallar
ekki allt ömmu
sfna.
erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Mlchael Ondaatje:
The Engllsh Patlent.
2. John Grlsham:
Runaway Jury.
3. Jeffrey Archer:
The Fourth Estate.
4. Jllly Cooper:
Apasslonata.
5. Nlck Hornby:
Hlgh Fldellty.
6. Tom Sharpe:
The Mldden.
7. Graham Swlft:
Last Orders.
8. Ben Elton:
Popcorn.
9. Seamus Deane:
Reading In the Dark.
10. Tom Clancy & Steve Plecenlk:
Op Centre: Acts of War.
Rlt almenns eölls:
1. The Art Book.
; 2. Nlck Hornby:
Fever Pltch.
3. The Splce Glrls:
Glrl Power.
4. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
5. Herodotus:
Tales From Herodotus.
6. Paul Wllson:
A Little Book of Calm.
7. John Gray:
Men Are From Mars, Women Are
From Venus.
8. Wlll Huttonn:
The State to Come.
9. Rlchard E. Grant:
Wlth Nalls.
10. Labour Party Manlfesto 1997.
j Innbundnar skáldsögur:
1. John Grisham:
The Partner.
í 2. Wllbur Smlth:
Blrds of Prey.
3. Raymond E. Felst:
Rage of a Demon Klng.
4. Arthur C. Clarke:
3001: The Flnal Odyssey.
5. Patricla D. Cornwell:
Hornet's Nest.
Innbundin rit almenns e&iis:
1. Jean-Domlnlque Bauby:
The Dlvlng-Bell and the Butterfly.
2. Tim Smlt:
The Lost Gardens of Hellgan.
3. Dava Sobel:
Longltude.
4. Scott Adams:
The Dllbert Prlnclple.
5. Chrlstopher Hlbbert:
Wellington: A Personal Hlstory.
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Uti er ævintýri
Michael Dorris og Louise Edrich kynna bækur sínar á me&an allt
lék í lyndi.
Bandaríski rithöf-
undurinn Michael
Dorris fékk dagsleyfl
frá meðferðarheimili
fyrir áfengissjúklinga,
kom sér fyrir á móteli í
New Hampshire, hellti
í sig svefntöflum og
vodka og festi svo
plastpoka yfir höfuð
sér. Þannig lauk ævi
sem fram til þessa
hafði verið ævintýri
líkust.
Dorris, sem var 52
ára, var af Modoc-
indíánum i aðra ættina
og ólst að hluta til upp
á verndarsvæði þeirra.
Honum tókst að kom-
ast til mennta og nam
mannfræði við háskól-
ann í Yale. Árið 1972
stofnsetti hann og stýrði sérstakri
deild í indíánafræðum við Dart-
mouth College.
Hann varð fyrstur einstæðra
karlmanna í Bandríkjunum til að
fá að ættleiða bam. Það var Abel,
drengur af indíánaættum, sem
beið alvarlegt heilsutjón vegna
áfengissýki móðurinnar meðan á
meðgöngunni stóð. Hann ætt-
leiddi tvö önnur börn sem þjáðust
af hinu sama og skrifaði bókina
„The Broken Cord“ um reynslu
sina og barnanna og áhrif þessa
sjúkdóms sem böm fá í vöggugjöf.
Þrátt fyrir vantrú útgefandans sló
hún í gegn bæði hjá almenningi
og gagnrýnendum, hlaut ein virt-
ustu bókmenntaverðlaun Banda-
ríkjanna, National Book Award,
var kvikmynduð og hafði þau
áhrif að bandarísk stjómvöld fóru
að taka á því alvarlega vandamáli
sem börn áfengissjúkra mæðra
eiga við að stríða. Síðar sendi
hann m.a. frá sér tvær skáldsög-
ur.
Ástin blómstrar
Ástin kom inn í líf Michaels Dorr-
is þegar stúlka af ættum Chippewa-
indíána í Norður-Dakóta kom til
náms hjá honum við Dartmouth.
Hún hét Louise Erdrich og er nú 42
ára. Þau giftust árið 1976 og náðu
Umsjón
Elías Snæiand Jónsson
bæði, þegar tímar liðu, miklum ár-
angri á bókmenntasviðinu.
Þau unnu afar náið saman við
ritstörfin; ræddu efnistök og per-
sónusköpun, lásu yfir hvort hjá
öðru, breyttu og bættu. Um árabil
sömdu þau smásögur undir höf-
undarnafninu Milou North fyrir
breskt kvennablað. Fyrsta skáld-
saga Louise, „Love Medicine", fjall-
ar hins vegar um líf bandariskra
indíána og hlaut frá-
bærar viðtökur þegar
hún kom út, þar á
meðal verðlaun gagn-
rýnenda.
Glötuð paradís
Michael og Louise
voru nefnd sem sönn-
un þess að þrátt fyrir
allt gætu Bandaríkja-
menn af indíánaætt-
um slegið í gegn. Litið
var á þau sem glæsi-
legt par sem hefði allt
sem lifið hefur upp á
að bjóða: einlæga ást,
þrjár dætur auk fóst-
urbamanna, náið
samstarf og vinsældir
sem leiddu til samn-
ings um 1.5 milljóna
dala fyrirframgreiðslu vegna skáld-
sögu sem birtist undir nöfnum beggja
(Crown of Columbus).
En á bak viö hið opinbera yfir-
borð voru dapurlegir hlutir að ger-
ast í lífi þeirra. Abel fórst í bílslysi.
Annar fóstuisonur var ákærður fyr-
ir að reyna að kúga út úr þeim fé.
Fyrir ári óskaði Louise svo eftir
skilnaði. Þau átök sem gjarnan
fylgja hjónaskilnaði vestra tóku
óvænta stefnu er Louise kom á
framfæri ásökun um að Michael
hefði líklega misnotað eina dóttur
þeirra kynferðislega.
Louise segir nú að þessi ásökun
hafi aldrei átt að verða opinber þótt
henni hafi verið komið á framfæri
við lögreglu sem var að rannsaka
málið. Einnig segir hún Michael
lengi hafa þjáðst af sjálfsvígshvöt.
Vinir hans segja hins vegar að fyrir
hann hafi þessi ásökun verið reiðar-
slag. Hann hafi talið vonlaust fyrir
saklausan mann í sviðsljósi f]öl-
miðla að hreinsa sig af slíkum
áburði og því framið sjálfsmorð.
Metsölukiljur
• ••»••••♦• ••»•••••♦•
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. John Grlsham:
The Runaway Jury.
2. Robln Cook:
Invaslon.
3. Dean Kootz:
Tlcktock.
4. Ursula Hegl:
Stones From the Rlver.
5. Wally Lamb:
She's Come Undone.
6. Mlchael Ondaatje:
The Engllsh Patlent.
7. Catherlne Coulter:
The Wlld Baron.
8. Tom Clancy & Steve Pleczenlk:
Acts of War.
9. Marlo Puzo:
The Last Don.
10. John Saul:
The Blackstone Chronlcles: Parts
1-4.
11. Susan Isaacs:
Llly Whlte.
12. Joseph Wambaugh:
Floaters.
13. Steve Perry:
Shadows of the Emplre.
14. LaVyrle Spencer:
The Camden Summer.
15. Julle Garwood:
The Weddlng.
Rit almenns eölis:
1. Andrew Well:
Spontaneous Heallng.
2. Vlncent Bugllosi:
Outrage.
3. James McBrlde:
The Color of Water.
4. Mary Plpher:
Revlvlng Ophella.
5. Jonathan Harr:
A Clvil Action.
6. Thomas Cahlll:
How the Irlsh Saved Clvlllzatlon.
7. Carmen R. Berry & T. Traeder:
Glrlfrlends.
8. Kathleen Norrls:
The Clolster Walk
9. Carl Sagan:
The Demon-Haunted World.
10. Jon Krakauer:
Into the Wlld.
11. Danalel Jonah Goldhagen:
Hltler's Wllllng Executloners.
12. Mary Karr:
The Llar's Club.
13. Kay Redfleld Jamlson:
An Unqulet Mlnd.
14. J.D. Plstone & R. Woodley:
Donnle Brasco.
15. Isabel Fonseca:
Bury Me Standlng.
(Byggt á New York Tlmes Book Revlew)