Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1997, Page 33
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997
mm 4i
Fram undan...
10. maí. Neshlaup TKS á Sel-
Itjarnarnesi hefst kl. 11 við
Sundlaug Seltjamarness. Vega-
lengdir 3,25 km, 6,5 km og 13
km með timatöku. Flokkaskipt-
ing, bæði kyn: 12 ára og yngri
(3,25 km), 13-16 ára (6,5 km)
17-34 ára, 35-49 ára, 50 ára og
eldri. Allir sem ljúka hlaupinu
fá verðlaunapening. Verðlaun
veitt fyrir 1.-3. sæti í öllum
flokkum. 30 pitsumáltíðir frá
PizzaBasta í útdráttarverðlaun.
Skráning frá kl. 10.
| 11. maf. Smárahlaup hefst kl.
í 13 við Smáraskóla í Kópavogi.
Vegalengdir 2,5 km og 7 km
með tímatöku. Allir sem ljúka
í hlaupunum fá veðlaunapening
§ og T-bol. Upplýsingar í Smára-
| skóla í síma 5546100.
15. maí. Námsflokkahlaup
Reykjavíkur hefst kl. 19 við
Miðbæjarskólann. Vegalengdir
3 km án tímatöku og 10 km með
tímatöku. Flokkaskipting, bæði
kyn: 39 ára og yngri, 40-49 ára,
50 ára og eldri. Þriggja manna
sveitakeppni, bæði kyn: 39 ára
1 og yngri, 40 ára og eldri. Öllum
þátttakendum boðiö upp á frítt
pasta eftir hlaup. Upplýsingar:
Pétur I. Frantzson í síma 551
| 4096.
17. maí. Breiðholtshlaup
Leiknis hefst kl. 13 við sund-
laugina í Austurbergi. Vega-
lengdir: 2 km án tímatöku og
| flokkaskiptingar, 5 km og 10
s km með timatöku. Flokkaskipt-
1 ing, bæði kyn: 12 ára og yngri
| (2 km), 13-18 ára, 19-39 ára,
40-49 ára og 50 ára og eldri. Um-
sjón með framkvæmd hlaups-
i ins hefúr unglingaráð Leiknis.
ij Upplýsingar: Ólafur 1. Ólafsson
í síma 5579059 og Jóhann Úlf-
| arsson í síma 5050189.
| 24. maí. Landsbankahlaup fer
| fram um land allt. í Reykjavík
: hefst það kl. 13 í Laugardal.
s Rétt til þátttöku hafa börn,
fædd 1984, 1985, 1986 og 1987.
Skráning fer fram I útibúum
Landsbankans.
" 31. maí. Almenningshlaup
Húsasmiðjunnar og FH-keppni
ij í hálfmaraþoni og 10 km með
| tímatöku hefst viö Húsasmiðj-
una við Helluhraun í Hafnar-
firði kl. 12.15. Flokkaskipting,
i bæði kyn: 15-39 ára, 40-49 ára,
I 50-59 ára, 60 ára og eldri.
j Keppni í 3,5 km án tímatöku
hefst á sama stað í Hafnarfírði
j kl. 13 og einnig sama vegalengd
við Húsasmiðjuna í Reykjavík
j kl. 14. Flokkaskipting, bæði
i kyn: 14 ára og yngri, 15 ára og
eldri. Allir sem ljúka hlaupinu
fá verðlaunapening. Sigurveg-
} arar í hverjum aldursflokki fá
verðlaunagrip til eignar. Skrán-
ing í verslunum Húsasmiðjunn-
ar frá kl. 10 keppnisdag. Upp-
lýsingar: Sigurður Haraldsson í
síma 5651114.
1. júní. Hólmadrangshlaup
hefst kl. 14 við hafnarvogina í
j Hólmavík. Vegalengdir: 3 km
án tímatöku og 10 km með
( tímatöku. Flokkaskipting, bæði
j kyn: 12 ára og yngri (3 km),
13-16 ára, 17-39 ára, 40 ára og
eldri. Verðlaun fyrir 3 fyrstu í
| hveijum flokki, auk þátttöku-
viðurkenninga. Upplýsingar:
| Vignir Pálsson í símum 451
| 3310 og 451 3332 og á skrifstofu
1 Hólmavíkurhrepps 1 síma 451
3510.
1. júní. Grandahlaup hefst kl.
13 við Norðurgarð í gömlu
höfninni í Reykjavík. Vega-
lengdir 2 km án tímatöku og 9,3
km með tímatöku. Upplýsingar
á skrifstofu Granda í síma 562
2800.
Námsflokkahlaupið
fellur niður
Námsflokkahlaupið sem vera
átti fimmtudaginn 15. þessa
mánaðar fellur niður að þessu
sinni af óviðráðanlegum orsök-
um.
50 km undirbúningur umhverfis Þingvallavatn:
Prófessorinn fer í 90 km
ofurmaraþon til Suður-Afríku
Ágúst Kvaran, prófessor í efna-
fræði og langhlaupari í fjölda ára,
ætlar að taka þátt í 90 km hlaupi
sem fram fer í Suður-Afríku 16. júní
nk. Þetta hlaup, sem er ein erfiðasta
þolraun hlaupara í heimi, nefnist
Kamerat-hlaupið. Ágúst er nú á lo-
kakafla langs og strangs undirbún-
ings fyrir ferðina til Suður-Afríku.
Liður í honum var 50 km hlaup um-
hverfis Þingvallavatn sem Ágúst
hljóp 27. apríl sl. ásamt nokkrum fé-
lögum sínum. Þeir Sigurður Gunn-
steinsson og Gísli Ragnarsson fóru
alla leið með honum og tók það rétt
um 5 klukkustundir.
Auk þess komu nokkrir hlaupafé-
Umsjón
Ólafur Geirsson
lagar þeirra inn í hlaupið á mis-
munandi stöðum og fóru allt frá
rúmlega 30 km til 13 km. Tólf
hlauparar luku síðan hlaupinu með
þá Ágúst, Gísla og Sigurð í farar-
broddi við Nesbúð við Nesjavelli.
Þar borðuðu þeir saman pastamál-
tíð og hvíldu lúin bein í heitum
pottum sem þar eru við hótelið. Þeir
hlaupafélagar hyggjast beita sér fyr-
ir áframhaldi á hlaupi umhverfls
Þingvallavatn eða þessa 50 km leiö
og vilja gjarnan kalla það
„ultramaraþon".
Ágúst Kvaran t.h. og Sigurður
Gunnsteinsson á ferð. Sá sið-
arnefndi hefur ásamt Gísla Ragn-
arssyni hlaupið að staðaldri með
Ágústi þann tíma sem undirbúning-
ur fyrir 90 km Kamerat-hlaupið í
Suður-Afríkur hefur staöið yfir.
Rútuferð á Mývatnsmaraþon
Mývatnsmaraþon er rómað fyrir
fallegt hlaupaumhverfi enda Mý-
vatnssveit víðfræg fyrir náttúrufeg-
urð og fuglalíf. Hlaupið er hið eina
hér á landi þar sem þeim sem fara
vilja heilt maraþon býðst að hlaupa
einn heilan hring en ekki tvo. Þykir
mörgum þetta verulegur kostur.
Auk heils maraþons eru famir 3
km, 10 km og hálft maraþon.
Boðið verður upp á mjög hag-
stæða hópferð frá Reykjavík og
verður lagt af stað um kl. 15 fímmtu-
uaginn 26. júni með rútu. Kostnaður
með ferðum, nesti á leiöinni og gist-
ingu í uppbúnum rúmum í tveggja
og þriggja manna herbergjum og út-
sýnisferðum á föstudaginn verður
aðeins 10 þúsund krónur fyrir
manninn. Skráning og frekari upp-
lýsingar eru hjá Pétri Frantzsyni í
símum h. 553 5362, v. 551 4096 og
boðtæki 846 1756.
Isjakar eru algeng sjón á fjörðum og víkum Grænlands.
Göngufólk á ferð á Grænlandi.
Grænland:
Gengið, siglt og fortíð og nútíð skoðuð
Ganga, skokk og útivist þéttbýlis-
búa þarf síður en svo að einskorðast
við götur og göngustíga í borg og
bæ. Ekki er síður hægt að sameina
göngur almennri náttúruskoðun
hér á landi sem erlendis. Náttúru-
skoðun og gönguferðir eru líka mjög
á dagskrá hjá ýmsum skokk- og
gönguhópum, til dæmis á höfuð-
borgarsvæðinu. Má þar til dæmis
nefna TKS á Seltjamarnesi en félag-
ar þar ganga vikulega á Esju og fara
auk þess lengri og skemmri ferðir á
hverju sumri.
Göngu- og náttúruskoðunarferðir
erlendis eiga einnig vaxandi vin-
sældum að fagna og við fréttum á
dögunum af einni bráðáhugaverðri
ferð sem farin verður til Grænlands
í lok þessa mánaðar. Þar má segja
að sameinuð sé rösk ganga og úti-
vist ásamt náttúruskoðun, sigling-
um og skoðun sögustaða, auk þess
að kynnast nútímalífi á Grænlandi.
Óhætt er að segja aö þama sé boðið
upp á sannkallaða ævintýraferð því
auk þess sem upp hefur verið talið
verður veiðimaður með í ferð og
mun hann afla gönguhópnum vista
með veiði bæði fiska og fugla.
Frá Reykjavík verður flogið til
Narssarssuaq en þaðan verður ferð-
ast gangandi og á bátum. Ferðum
verður hagað þannig að vönum
göngumönnum gefst kostur á löng-
um göngum en aðrir geta farið í
styttri ferðir þaðan sem báturinn
kemur að landi. Gist verður í
bændagistingu, skólum og farfugla-
heimilum.
í feröinni verða gamlar byggðir
norrænna manna á Grænlandi
skoðaðar. Má þar nefna rústir
Hvalsneskirkju, Brattahlið og
Garða. Þá verður farið um gamlar
veiðislóðir Inúita og skoðaðar grafir
þeirra. Farið verður m.a. um svæði
þar sem hreinkýr með kálfa eru og
villt dýralíf með örnum svifandi
yfir.
Göngu- og siglingaferðin um nátt-
úru, nútíð og fortíð Grænlands er
þannig skipulögð að þátttakendum
gefst kostur á að heimsækja skóla-
og menningarbæinn Qaqortoq (Jul-
ianeháb) sem þykir fallegur heim að
sækja og listir og menning þar í
blóma. Ferð þessi, sem er á vegum
Úrvals-Útsýnar, verður farin 24. maí
og stendur til 30. Fararstjóri er
Anna Dóra Hermannsdóttir en hún
hefur starfað á Grænlandi, m.a. við
skipulag leiða um landsvæði fyrir
ferðamenn og fararstjóm.
áf>
r»-
OÍ j /
\ -• ,, /í
Hún Valdi
skartgripi
frá Silfurbúöinni
SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 *Sími 568 9066
- Þarfœröu gjöfina -