Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1997, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 10. MAÍ1997
DV, Beriín:_____________________
Skóflustunga að nýju sendiráði
íslands í Þýskalandi var tekin í
Berlín i vikunni. Byggingin er á
sameiginlegu svæði með hinum
Norðurlöndunum í hjarta borgar-
innar, nánar tiltekið á horni
RauschstraBe og KlingelhöferstraBe
við Tiergarten, helsta útivistar-
svæði Berlínarbúa. Hvert land hef-
ur sína byggingu auk einnar sam-
eiginlegrar þar sem aðstaða verður
m.a. til veitingasölu og sýninga- og
fundahalda. Það voru sendiherrar
íslands, Danmerkur, Svíþjóðar,
Noregs og Finnlands sem tóku
skóflustunguna sameiginlegri
hendi. Búið var að útbúa skóflu með
fimm sköftum og ekki annað að sjá
en byrjunin lofaði góðu um sam-
starfið í framtíðinni. Fjölmenni var
við athöfnina og ríflega 80 blaða-
menn og ljósmyndarar meðal við-
staddra.
Byggingamar, sem alls em 7.200
fermetrar að stærð, verða teknar í
notkun sumarið 1999. Þá munu
sendiráð landanna, sem flest eru í
Bonn í dag, flytjast til Berlínar.
Upphafleg hugmynd að sameigin-
legu sendiráðssvæði er í raun kom-
in frá Þjóðverjum eftir að ákveðið
var að flytja aðsetur þings og ríkis-
stjórnar tfl Berlínar. Norðurlöndin
tóku hugmyndinni vel. Undirbún-
ingur að lóðarkaupum og gerð
samnings hófst fyrir fimm árum.
Ríkisstjórn íslands samþykkti fram-
kvæmdina árið 1994.
Umlukið kopargirðingu
Efnt var tfl samkeppni um heild-
arskipulag svæðisins og hana unnu
austurrískur og finnskur arkitekt.
Tfllaga þeirra gerði ráð fyrir einni
húsaþyrpingu, nokkurs konar borg,
og er tjöm í henni miðri sem snert-
í
Í
l
«
j
J
i
Skóflustunga tekin að nýju sendiráði íslands í Þýskalandi - á samnorrænu svæði í Berlín:
Sendiherrarnir taka samhentir fyrstu skóflustunguna í Berlín. Frá vinstri eru
það Bent Hákonsen frá Danmörku, Arto Mansala frá Finnlandi, Ingimundur
Sigfússon frá íslandi, Kjeil Eliassen frá Noregi og Mats Hellström frá Sví-
þjóð. DV-mynd bjb
A besta stað
í borginni
ir öll sendiráðin. Fimmtán metra há
og græn kopargirðing tengir saman
byggingamar og á það að túlka sam-
stöðu Norðurlandanna. Hver bygg-
ing er 14 metra há á fjórum hæðum.
Samkeppni um sendiráðsbygging-
amar var haldin í hverju landi fyr-
ir sig. Á íslandi var það Pálmar
Kristmundsson arkiktet sem bar
sigur úr býtrnn. Hann sagði í sam-
tali við DV að verkefnið hafi verið
mjög skemmtflegt og spennandi.
Samstarf við aðra arkitekta og ráð-
gjafa hafi gengið mjög vel. Hann
sagði byggingarnar hafa vakið
mikla athygli i Berlín, þær skæra
sig frá þeim skýjakljúfum sem verið
væri að reisa í horginni. Þeim hafi
verið gert að hanna hús innan
ákveðins forms en þó alls ekki eins.
Þeir beðnir að túlka þjóðareinkenni
hvers lands fyrir sig. Þannig væri
viðm- áberandi í norsku bygging-
unni en steinn í þeirri islensku.
Islenskt líparít notað
í fyrsta sinn
Stærð hverrar byggingar ræðst af
umfangi sendiráðanna og eins og
gefur að skflja er sú íslenska lang-
minnst. Þannig er danska byggingin
fimm sinnum stærri. Reiknað er
með 11 starfsmönnum í íslenska
sendiráðinu. Byggingin er 450 fer-
metrar að stærð á fjórum hæðum.
Skrifstofuhúsnæðið sjálft er 20
metrar á lengd og aðeins fjórir á
breidd. Það er klætt að utan með ís-
lensku, rauðgulu líparíti úr Djúpu-
vík, nokkuð sem ekki hefur gert
áður við íslenska húsaklæðningu að
sögn Pálmars. Með áföstu stiga- og
lyftuhúsi verður byggingin 10 metr-
ar á breidd. Það er klætt með hrárri
steinsteypu með báraáferð. Fyrir
framan bygginguna er hraunlagður
garður með lýsingu undir. -bjb
Pálmar Kristmundsson arkitekt
hannaði íslenska sendiráöiö.
Líkan af sendiráðssvæöinu var til sýnis í Berlín og vakti mikla athygli. Hér
hafa byggingarnar verið merktar, lesendum til glöggvunar. DV-mynd bjb
Kvöldskóla
Kópavogs
verður 11. maí, kl. 13.00-18.00
í Snælandsskóla
Bútasaumur
Skrautskrift
Silfursmíði
Video
Grænmetisréttir
Fatasaumur
Leirmótun
Vatnslitamálun
Trésmíði
Bókband
Trölladeig
Ljósmyndun
Útskurður
Verið velkomin!
M
KVDLDWÓLI121
KOPAVOGS#
SNÆLANDSSKÓLI -200 KÓPAVOGUR