Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Side 3
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997
Fréttir
Fjölskyldutekjur 1996
- meöaltal T þúsundum króna -
300 þús. ~ Samanlagöar tekjur og bætur hjóna eöa fólks í sambúö -
200
223
- 215 Ú “
% I! ^
’-í “c1 $8 s,
i .1 |
■í .|fí *o
Skýrsla Félagsvísindastofnunar:
Breytir engu
um okkar
kröfur
- segir Pétur Sigurðsson
„Það kemur ekkert á óvart að
meðaltekjur á Vestfjörðum séu
háar. Þær hafa verið það mörg und-
anfarin ár. Þetta er hlutur sem vill
gjarnan gleymast í allri þessari nei-
kvæðu umfjöllun að þótt hér sé
kannski örlítið dýrara að lifa vegna
vöruverðs, samgangna og húshitun-
arkostnaðar hefur það lengi verið
svo að hér er hægt að þéna miklar
tekjur i kringum sjávarútveginn,”
sagði Einar Jónatansson, formaður
VSV, um skýrslu Félagsvísinda-
stofnunar fyrir árið 1996.
Þar kemur fram að meðaltekjur
fjölskyldna á Vestíjörðum eru þær
hæstu á landinu. Þessi skýrsla kem-
ur út á sama tíma og verkalýðsfélög-
in á Vestfjörðum eru í verkfalli
vegna krafna um meiri hækkun
launa en annars staðar á landinu.
„Við erum að tala um réttlæti í
því hvað laun eigi að vera fyrir dag-
vinnu,“ sagði Pétur Sigurðsson, for-
maður Alþýðusambands Vestfjarða,
aðspurður um málið. „Það er það
sem laun í landinu grundvailast á.
Ég sé ekki hvemig heiidartekjur
koma því við. Inn í þá tölu vantar
upplýsingar um hversu langur
vinnutími er aö baki þessu kaupi og
við höfum ekki verið að kvarta yfir
því að hér hafi verið ónóg vinna.
„Atvinnurekstm’ á islandi á að geta
borgað a.m.k. 100 þúsund krónur á
mánuði fyrir dagvinnulaun. Mér
finnst það vera aðalatriðið. Þessi
skýrsla breytir engu um það.“ -vix
Sammála um landsmót
hestamanna í Reykjavík
árið 2000
„Það er ánægjulegt að stjóm
Landssambands hestamannafélag-
anna (LH) var sammála um að veita
Fáki í Reykjavík landsmót hesta-
manna fyrir áriö 2000 og Vindheima-
melum landsmótið árið 2002,“ segir
Birgir Sigurjónsson, formaður LH.
„Lándsþing hestamanna sam-
þykkti í október síðastliðinum í
Reykjanesbæ að stjóm LH skyldi sjá
.um að velja landsmótsstaði fyrir árin
2000 og 2002. Við fengum tvær um-
sóknir um hvort mót. Frá Fáki í
Reykjavík og Rangárbökkum um
mótið árið 2000 og Vindheimamelum
og Melgerðismelum fyrir árið 2002.
Við lögðum fram viðmiðunaróskir
um alla aðstöðu fyrir hesta og menn
og funduðum með umboðsmönnum
allra umsóknanna og fóram yfir þær.
Ástæða þess að Reykjavík varð fyrir
valinu er að það var okkar mat að
Fákur eigi þess kost að byggja upp
gott svæði og við töldum ekki ráðlegt
að koma í veg fyrir það.
Árið 2000 verður Reykjavík menn-
ingarborg Evrópu og við teljum að
landsmótið geti orðið aðdráttarafl
fyrir þann viðburð og eins að lands-
mótið sé stórkostlegur kostur sem
auglýsing fyrir íslenska hestinn,”
segir Birgir. -E.J.
Renault Mégane Berline 1997?
Mégane RN: Verð frá 1.338.000 kr.
Mégane RT: Verð frá 1.468.000 kr.
• Við tökum gamla bílinn þinn upp í á góðu verði
• Fríar álfelgur á bílinn og stálfelgur í skottinu, t.d. fyrir vetrardekkin
• Einkanúmer eóa 30.000 kr. afsláttur af kaupverói nýja bílsins
Bílstjórasæti með
hæðarstillingu.
Þijú þriggja punkta belti
og tveir höfuðpúðar i
aftursætum.
Niðurfellanlegt
bak aftursætis,
40/60%.
Útihitamælir varar
ökumanninn við
ísingarhættu.'
Þokuljós.
Fjarstýrðar samlæsingar
hurða og skottloks
ásamt ræsivörn.
Tölvustýrðar rúðuþurrkur
að framan og aftan.
3 bremsuljós.
Samlitir stuðarar.
Renault Mégane Berline RT
Aukabúnaður er staðalbúnaður! Renault Mégane RT!
RENAULT
FER Á KOSTUM
B&L, Suóurlandsbraut 14 & Ármúla 13, Sími: 568 1200, Beinn sími: 553 1236
Fax: 568 8675, Email: bl@bl.is, Internet: www.bl.is
Föstudagur og laaaangur laugardagur
sandalar
15-30%
afsláttur
sendum í póstkröfu
ART skór
20 - 40%
afsláttur
Laugavegi 67 • sími 551 2880
Full búð af frábærum tilboðum