Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1997, Blaðsíða 2
22 MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1997 íþróttir 1. deild karla: Þróttur áfram á sigurgöngu 0-1 Einar Öm Birgisson (65.) Þróttarar héldu sigurgöngu sinni í 1. deildinni áfram á föstu- dagskvöld þegar þeir unnu mik- ilvægan sigur á Breiðabliki, 0-1, í toppslag deildarinnar. Þróttar- ar eru þvi með fullt hús stiga eft- ir fjórar umferðir og eru líklegir til afreka í deildinni en gengi Blika hefur verið brösótt. Leikurinn var ákaflega til- þrifalítill og sterkur norðanvind- urinn ásamt kuldanum sem honum fylgdi var í aðalhlutverk- inu. Þróttárar höfðu meiri vilja til að sigra og börðust betur og það réð úrslitunum. Einar Örn Birgisson skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik og var nokkur heppnisstimpill yfir því. Boltinn fór af varnarmanni Blikanna til Einars sem þakkaði fyrir sig með því að leggja bolt- ann snyrtilega í netið. I jöfnu liði Þróttar voru varn- arjaxlamir Lúðvík Jónasson og Þorsteinn Halldórsson bestir. Liðið er annars vel mannað og það kæmi á óvart ef það yrði ekki í einum af tveimur efstu sætunum í deildinni í haust. Blikarnir hafa ekki verið sannfærandi í leikjum sínum og þurfa mikið að hressa upp á leik sinn eigi þeim að takast að kom- ast í hóp bestu liða landsins á ný. Sérstaklega hefur þeim gengið illa að skora mörk og markahrókurinn Mihaljo Biber- cic er greinilega ekki á skotskón- um þessa dagana. Maður leiksins: Lúðvík Jón- asson, Þrótti. -GH Coca Cola-bikarinn: Mikið skorab Fjölnir-Bolungarvík.........5-3 Völsungur-Hvöt............. 1-0 HK-Selfoss..................3-1 Nökkvi-Dalvík............... 0-1 KR 23-Haukar................3-0 Leiknir-Valur 23............5-2 Reynir-Ægir.................4-1 Stjaman 23-Víðir........... 1-2 ÍA 23-Grótta................6-0 Víkingur-KSÁÁ...............8-2 Sindri-Höttur...............2-1 KVA-Þróttur, N..............2-3 Magni-KS.................... 0-2 Breiðablik 23-Keflavík 23 ...0-3 UMFA-Framherjar.............3-0 Léttir-ÍR....................1-4 3.deildin Framherjar-Ármann ...........4-3 Léttir-KFR..................0-0 Reynir, HN.-HVÍ .......... 10-0 Smástund-Ármann............ 1-2 Sagt eftir leikinn: Mikilvægasta markiö „í fyrri hálfleik gekk okkur illa að skapa tækifæri því ís- lenska vörnin var vel skipulögð. í siðari hálfleik vorum við beitt- ari og ég held að sigurinn hafi verið sanngjarn. Þetta er eitt mikilvægasta markið mitt á ferl- inum,“ sagði Hristov, marka- skorari Makedóníu, í leiknum. „Þetta var minn fyrsti lands- leikur og eftir þennan sigur eig- um við möguleika. íslenska sóknin var stórhættuleg síðustu 20 mínúturnar," sagði Sasa Ilic. „Við verðskulduðum sigur. Eftir að ég fékk rauða spjaldið kom upp taugaveiklun í leik okkar. Þetta var stórsigur fyrir Makedóníu," sagði Toni Mii- evski fyrirliði eftir leikinn. -Vladimir Novak Guðni leikjahæstur Guðni Bergsson lék sinn 73. landsleik gegn Makedóníu og er orðinn leikjahæsti landsliðsmað- urinn frá upphafi. Þeir félagarnir Guðni og Ólafur Þórð- arson, ÍA, voru með 72 leiki fyr- ir leikinn í Skopje. -JKS Arnór Guöjohnsen átti góöan leik gegn Makedóníumönnum í Skopje. Hann vann vel á miöjunni og sýndi að hann er er í mjög góöu formi. Hér er hann umkringdur leikmönnum en hans var vel gætt í leiknum. DV-mynd Tomas Mihajlovic í Skopje Undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu: Tap í Skopje - íslendingar enn án sigurs í riölinum DV, Skopje: íslendingar er enn án sigurs í 8. riðli undankeppni heimsmeistara- keppninnar í knattspymu. ísland mætti Makedóníu og varð að lúta í lægra haldi, 1-0, á marki sem var skorað snemma í síöari hálfleik. íslendingar hefðu með smáheppni getað unnið þennan leik eða að minnsta kosti krækt sér í eitt stig. Tvö stórgóð marktækifæri í síðari hálfleik fóru í súginn eftir frábæran undirbúning frá Bjarka Gunnlaugs-syni sem var besti maður íslenska liðsins. Makedónia lagði ofurkapp á að vinna sigur til að fá aukna mögu- leika á að komast áfram í keppn- inni. Með sigrinum skaust liðið upp í annað sætið. Lið Makedónu hefur oft áður leikið mun betur en þetta en það nægði engu að síður. Liðið stillti upp sóknarliði í byrjun en náði ekki að ógna íslenska markinu að neinu ráði. íslenska liðið átti heldur ekki verulega hættuleg tækifæri í fyrri hálfleik. Samt sem áður barðist liðið vel og sérstaklega var miðjuspilið sterkt og vel útfært. íslenska liðið varðist vel og skyndiupphlaupum var beitt án þess að ógna verulega en það átti eftir að breytast í síðari hálfleik. Fljótlega í honum voru Make- dóniumenn heppnir að fá ekki á sig mark þegar Viktor Trenevski, sem kom inn á í byrjun síðari hálfleiks, bjargaði á undraverðan hátt. Eftir því sem á leikinn leið lögðu íslendingar meiri þunga í sóknina. Bjarki Gunmlaugsson og Þórður Guðjónsson gerðu oft usla í vöm heimamanna og nutu þar góðrar aðstoðar þeirra Eyjólfs Sverrissonar og Amórs Guðjohnsens. Svo virðist sem skiptingar hjá íslendingum hafi komið of seint, þær frískuðu upp á sóknina en hefðu að ósekju mátt koma fym. Það er aldrei að vita hvað gerst hefði ef íslendingar hefðu jafhað metin. Það verður að segjast eins og er að ef kjarkurinn hefði verið til staðar frá byrjun hefðu úrslitin getað orðið önnur. Kjarkurinn kom bara of seint. -Vladimir Novak , Jækifærin forgörðum" - sagði Logi Ólafsson, þjálfari íslenska liðsins DV, Skopje: „Ég er á margan hátt ánægður með leikinn hjá minum leikmönnum en á sama tíma er ég bitur af því að við töpuöum leiknum. Við fengum nokkur góð tækifæri til að skora í leiknum en því miður fóru þau öll forgörðum," sagði Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari íslendinga, eftir leikinn á laugardagskvöldið. Fréttamaður sjónvarpsins í Makedóníu spurði Loga Ólafsson hvort rétt væri að ef íslenska liðiö myndi tapa leiknum yrði honum sagt upp störfum. Logi svaröi spurningunni á eftirfarandi hátt: „Ég veit ekkert um það. Þú verður að spyrja einhverja aðra en mig um það.“ -Vladimir Novak íslendingar hættulegir - sagði landsliðsþjálfari Makedóníu DV, Skopje: „Við gerðum okkur fulla grein fyr- ir þvi að þetta yrði erfiður leikur eins og kom reyndar á daginn. ís- lendingar léku vel og þá alveg sér- staklega eftir að við náðu foryst- unni í leiknum. Ég var búinn að aðvara mína menn um það að ís- lenska liðið væri ekki auðveld bráð. Þeir komust líka að raun um það að sá ótti var á rökum reistur. Þá sáu allir hvað íslenska liðið get- ur reynst hættulegt. Það kom berlega í ljós þegar við opnum svæði fullmikið og það gerðist nokkrum sinnum í síðari hálfleik. íslendingar fengu fyrir vikið nokkur geysilega góð tæki- færi til að skora en sem betur fer gerðist það ekki,“ sagði Djoko Hadjijevski, landsliðsþjáífari Makedóníu, á blaðamannafundi eftir leik þjóðanna í Skopje á laug- ardagskvöldið. -Vladimir Novak f Í UHOAMKEÞPHI HflR ------------------- 1-riðUl Danmörk 5 4 1 0 11-2 13 Grikkland 6 3 1 2 8-4 10 Króatía 5 2 3 0 10-6 9 Bosnía 5 1 0 4 3-11 3 Slóvenía 5 0 1 4 4-13 1 2. riðill Georgía-Moldova 2-0 ítalia 6 5 1 0 11-1 16 England 6 5 0 1 11-2 15 Pólland 5 1 1 3 3-8 4 Georgia 1 1 0 2 2-5 3 Moldova 5 0 0 5 2-13 0 3. riðill Finnland-Azerbaijan 3-0 Ungverjaland-Noregur 1-1 Noregur 5 3 2 0 11-2 11 Finnland 5 2 1 2 8-6 7 Ungverjal. 5 2 1 2 5-5 7 Sviss 4 2 0 2 4-4 6 Azerbaijan 5 1 0 4 2-13 3 4-riðill Eistland-Svíþjóð . 2-3 Lettland-Austurríki 1-3 Hv.-Rússland-Skotland . 0-1 Skotland 7 5 2 1 9-2 17 Austurriki 6 4 1 1 8-4 13 Svíþjóð 6 4 0 2 12-7 12 Lettland 7 2 1 4 9-11 7 Hv.-Rússland 6 1 1 4 3-10 4 Eistland 7 1 1 5 4-11 4 5-riðill Búlgaria-Lúxemborg 4-0 Rússland-fsrael . 2-0 Rússland 6 4 2 0 10-2 14 ísrael 7 4 1 2 9-6 13 Búlgaria 5 4 0 1 14-5 12 Kýpur 6 1 1 4 5-14 4 Lúxemborg 6 0 0 6 1-17 0 6-riðill Spánn-Tékkland . 1-0 Færeyjar-Malta . 2-1 Júgóslavla-Slóvakía . 2-0 Spánn 8 6 2 0 21-4 20 Júgóslavía 8 6 1 1 23-6 19 Slóvakía 6 4 0 2 14-7 12 Færeyjar 7 2 0 5 9-24 6 Tékkland 5 1 1 3 7-4 4 Malta 8 0 0 8 2-2731 0 7-riðiIl Belgía-San Marínó . 6-0 Holland 6 5 0 1 23-3 15 Belgía 6 5 0 1 16-6 15 Tyrkland 5 2 1 2 10-5 7 Wales 6 2 1 3 14-12 7 San Marínó 7 0 0 7 0-37 0 8-riðill Makedónía-Ísland . 1-0 Rúmenía 6 6 0 0 20-0 18 Makedónia 7 4 1 2 19-10 13 írland 6 3 1 2 15-4 10 Litháen 5 3 0 2 6-5 9 ísland 5 0 2 3 1-8 2 Liechtenst. 7 0 0 7 2-36 0 9-riðill Portúgal-Albanía 2-0 Úkralna-Þýskland 0-0 Úkraina 8 4 2 2 7-6 14 Þýskaland 6 3 3 0 11-4 12 Portúgal 7 3 3 1 7-2 12 N-lrland 7 1 4 2 5-5 7 Armenía 6 0 5 1 4-8 5 Albanía 5 0 1 4 3-12 1 Makedónía (0) 1 ísland (0) 0 1-0 Gjorgi Hristov (53.). Boltinn barst fyrir íslenska markið, vöminni mistókst að hreinsa frá og Hristov skoraði viðstöðulaust. Lið Makedóníu: Sasa Hic - Goce Sed- loski, Igor Sasa Nikolovski, Ljupco Markovksi, Boban Babunski -Srdjan Zaharievski, Vlatko Gosev (Ljubo- drag Milosevic 83.), Artim Sakiri (Viktor Trenevski 45.), Gjorgi Gjorgi Hristov - Dejvi Glavevski (Dzevded Sainovski 71.), Toni Micevski. Lið íslands: Kristján Finnbogason - Arnar Grétarsson, Guðni Bergsson, Siguröur Jónsson, Láms Orri Sig- urðsson - Brynjar Gunnarsson (Am- ar Gunnlaugsson 72.), Sigursteinn Gíslason (Ríkharður Daðason 83.), Amór Guðjohnsen (Helgi Sigurðsson 80.), Eyjólfur Sverrisson - Þórður Guðjónsson, Bjarki Gunnlaugsson. Gul spjöld: Babunski (M), Micevski (M), Sigurst. (í), Bjarki (i). Rauð spjöld: Micevski (M) á 80. mínútu fyrir tvö gul spjöld. Dómari: Vadim Zhuk frá Hvíta Rússlandi. Aðstoðardómarar: Yuri Dupanov og Oleg Chikun frá Hvita Rússlandi. Áhorfendur: 13.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.