Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Side 4
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 ★ ★ * fféttir Gamall landgönguliði í Bandaríkjaher á íslandi telur sig eiga afkomanda hér: Enn að leita að Pal- ínu og barni hennar Á þessum stað f Bankastræti kveöst Maurice síðast hafa séö til Pálínu - konunnar sem bar barn hans undir belti þeg- ar hann gegndi herþjónustu hér á iandi árin 1941-1942. DV-mynd S „Ég sá hana síðast hér - rétt fyrir utan Fish and chips veitingastaðinn þar sem hún vann þegar ég kynntist henni fyrst,“ sagði Maurice J. Car- dinale, 76 ára, fyrrum landgönguliði í Bandaríkjaher, sem dvaldi hér á ís- landi frá því í júlí 1941 þangað til í mars 1942. Hann er staddur hér á landi til að leita að fyrrverandi vin- konu sinni og afkomanda þeirra - dóttur eða syni Pálínu, reykvískrar vinkonu hans sem var ófrísk þegar leiðir þeirra skildu - hann var þá kvaddur í átök við Japani í Guadal Canal í Kyrrahafinu eftir að Banda- ríkjamenn lýstu stríði á hendur þeim. Eftir það tókst honum ekki að Finna Pálínu. Cardinale kom hingað til lands i fyrrasumar í sömu erinda- gjörðum að leita Pálínu, en án árang- urs. „Þegar ég kom fyrst til íslands vorum við sendir í Álafoss-kampinn fyrir utan Reykjavik. Síðan dvöld- umst við í Shelby-kampinum (í Laug- arnesi). Ég var búinn að vera hér nokkra daga þegar ég hitti Pálínu. Hún var há, grönn og ljóshærð með blá augu. Vinkona hennar var kölluð Pála. Pálína var forstöðukona á Fish and chips staðnum í Bankastræti. Við hittumst annað hvert kvöld. Hún fór reyndar ekki út með mér fyrr en eftir um þrjár vikur eftir að við kynntumst.“ Maurice, sem var kallaður Moe á sínum tíma, man ekki nafn götunnar þar sem Pálína bjó en hann telur jafnvel að það hafi verið Skólavörðu- stígur. Hann er þó ekki viss. Pálína gekk til hans í rigningunni Maurice segir að samband hans og Pálinu hafi orðið býsna alvarlegt - þau hafi íhugað að gifta sig. í desem- ber 1941 lýstu Bandaríkjamenn stríði á hendur Japönum. „Þá breyttist allt hjá okkur. Aginn varð mun meiri. Ég gat ekki hitt Pálínu. Eitt atvik öðru fremur rifjar Maurice upp sem hann telur Pálínu eiga að kannast við: „Eitt sinn, þegar ég var ekki í kampinum, frétti ég að hún hefði komið gangandi í rigningu alla leið að heiman frá sér. Yfirmaður minn sagði mér síðar að hún hefði spurt um mig en ég var ekki á staðnum. Hún hefði grátið og verið blaut. Hún fékk að koma inn þar sem hengt var upp tjald fyrir hana á meðan fót hennar voru þurrkuð. Síðan var náð í bíl fyrir hana. Yfirmaður minn skammaði mig þegar ég kom heim en ég hafði ekkert vitað um þessa heimsókn. Pálína nefndi þessa heimsókn síð- an aldrei við mig. Síðast þegar ég sá Pálínu var það í bænum. Hún var þá í þannig félagsskap að ég vildi ekki trufla - við brostum þó hvort til ann- ars. Hún var greinilega ófrísk. Hún bar mitt barn undir belti. Það er eng- inn vafí,“ sagði Maurice. Hann kveðst ekki hafa haft ráð- rúm til að kveðja Pálínu áður en hann var sendur til Bandaríkjanna og síðan til Kyrrahafsins þar sem hann tók þátt í stríðsátökum við Jap- ana. Hann slasaðist þar en náði sér af meiðslum sínum. „Eftir að ég kom heim til Banda- ríkjanna vissi ég ekkert hvert ég átti að snúa mér til að hafa uppi á Pál- ínu. Ég hef þó alltaf hugsað til henn- ar og barnsins. Vinur minn kom svo með mér til íslands í fyrra og eftir það hef ég mikið reynt að finna hana og barnið," sagði Maurice. Upplýsingar fyrir þá sem hafa áhuga á að liðsinna Maurice er hægt að fá í síma eða 55 74773 eða 55 71644. Landsmótsstemning í Borgarnesi Landsmóti var fram haldið í Borgarnesi og nágrenni í gær. Þegar liða tók á daginn tók fólki að fjölga verulega og var orðin sannkölluð landsmótsstemning þegar kvöldaði, en veðurguðirnir fóru frekar mjúkum höndum um mótsgesti. Mótið nær hins vegar hápunkti sínum í dag, en þá er keppt til úrslita i helstu greinum s.s. 100 m hlaupum. Alls er gert ráð fyrir að íbúar Borgarbyggðar veröi um 8-10 þúsund manns þegar mest er. -PS Keppt var f jurtagreiningu aö Hvanneyri f gær. Á landsmóti er aöeins keppt í handknattleik kvenna og er hann leikinn utanhúss. Hér eigast viö grannarnir úr Keflavfk og Grindavík og sigruöu þær fyrrnefndu, 27-11. Lagt á borð! Keppnin fór fram í heimavistinni að Hvanneyri, en um sveitakeppni var aö ræöa. Þaö var sveit USAH sem bar sigur úr býtum. DV-myndir Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.