Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Side 12
12 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 TIV m_k „Trúbadorinn" með harmomkuna: Það er draumastaðan að geta fengist við þetta DV, Akureyri:_____________________ „Ég er búinn að vera að spila á harmóníkuna síðan ég var 6 eða 7 ára. Ég komst þá yfir nikku sem bróðir minn átti. Ég ólst upp í Lón- inu og lít alltaf á mig sem Homfirð- ing,“ segir Örvar Kristjánsson harmóníkuleikari. Örvar er enn að með harmóníkuna sína, nú án hljómsveitar. Nú ferðast hann einn um og leikur á nikkuna á samkom- um víðs vegar mn landið. „Ég spilaði í fyrsta skipti opinber- lega á fermingardaginn minn. Þá var ég farinn að geta spilað dálítið, það var dansleikur á Höfn þann dag og ég fékk að hita upp fyrir hljóm- sveitina í klukkutíma milli klukkan níu og tíu um kvöldið. Það má segja aö ég hafi verið að spila opinberlega síðan, mismikið að vísu.“ Drýgði tekjurnar „í upphafi vorum við tveir nikk- arar að spila saman en síðan fóru að koma inn í þetta trommur og þetta óf upp á sig hægt og bítandi. Leið mín lá til Reykjavíkur nokkrum árum síðar til að læra bifvélavirkj- un, það þýddi lærlingskaup sem var ekki hátt og ég fór að spila til að drýgja tekjumar.“ Örvar segir að síðari hluta sjö- unda áratugarins hafi hann farið að spila samfellt í hljómsveitum og hann nefnir hljómsveitimar Úthljóð og Erlu frá þessum tíma, einnig sína eigin hljómsveit og Tríó Birgis Marinóssonar. Sú hljómsveit starf- aði á Akureyri og víðar og hafði meira að gera en menn gátu komist yfir með góöu móti. Ég man að við leystum Ingimar Eydal af í Sjallan- um þegar hann var að byrja að fara til Spánar með sína hljómsveit.“ Spilað á níu hljómplötur „Ég er búinn að spila inn á níu hljómplötur. Sú fyrsta kom árið 1971 en það var Pálmi Stefánsson sem þá var með Tónaútgáfuna sem fékk mig til þess. Hann hringdi í mig og ég man hvað ég var hissa. Svo komu plötumar með um tveggja ára millibili flestar, Pálmi gaf út fimm plötur, Fálkinn tvær, Steinar Berg gaf eina út og Stöðin eina með mér en það var reyndar geisladiskur. Ég hef núna áhuga á að koma úr- vali að þessari tónlist á safndisk en það er ekki komið enn. Það er mik- ið spurt um það hvar sé hægt að komast yfir þessa tónlist, hún er mikið til ófáanleg í dag.“ - Hvað er þekktast af þinni tón- list? „Ég veit það ekki. Á sínum tíma var Sunnanvindurinn þekktastur en við Hjördís Geirsdóttir sungum þetta saman. Ég kom varla á nokkurn stað án þess að hvískrað væri að þama væri Sunnanvindur- inn kominn. Svo kom Hlín rósalin sem var mikið og gott lag, Fram í heiðanna ró, Komdu inn i kofann minn og ég gæti talið áfram og áfrarn." - Harmóníkan hefur ekki alltaf verið tískuhljóðfæri, kom ekki tals- verð niðursveifla í þetta um tíma? „Nei, þetta hefur ekki alltaf veriö vinsælt hljóðfæri, ekki a.m.k. eins og nikkan er í dag. Á bítlatimanum vildu fáir líta við þessari tónlist en það hefur breyst mikiö til dagsins í dag.“ „Trúbador" í átta ár Fyrir um átta árum hóf Örvar að fara einn um með nikkuna sina og spila víðs vegar um land eins og hann gerir I dag. „Það sem olli því var m.a. að ég sá að kaupið sem hægt var að hafa fyrir þetta var ekki til skiptanna, samkeppnin á þessum markaði er geysihörö og mikið framboð á alls kyns tónlist. Ég held að ég hefði ekkert að gera ef ég væri ekki einn á ferðinni. En ætli ég hafi það ekki umfram aðra Örvar Kristjansson harmóníkuleikari. nikkara að ég er að reyna að raula með þessu og ég hljóðflyt harm- óníkutónlistina öðruvísi en aðrir.“ Eins og tríó Og þessu er farinn að fylgja mik- ill útbúnaöur, það er ekki bara harmóníkan eins og var. „Hann er þannig að ég spila „diskantinn" í gegnum venjulegan mikrófón en ég er með rafmagnaðan bassa og leiði hann í gegnum bassa- magnara. Þetta skapar mikla fyll- ingu í tónlistina og það má segja að þetta komi út eins og aö tríó sé á ferðinni." Undanfarin ár hefur Örvar verið að spila á Kanaríeyjum hálft árið en hina mánuðina hér heima. „Ég hef verið að spila hjá íslenskri konu sem rekur matsölustað þar og svo hef ég spilað fyrir Úrval-Útsýn. Þetta er mjög gott fyrirkomulag, að vera þama úti á vetuma og svo hér heima á sumrin. Það er nóg að gera og draumastaðan að geta fengist við tónlistina á þennan hátt,“ segir Örv- ar. -gk erlend bóksjá K ★ ★ Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Joanna Trollope: Next of Kln. 2. James Herbert: ‘48. 3. Roddy Doyle: The Woman Who Walked Into Doors. 4. Meave Blnchy: Evenlng Class. 5. Jackle Colllns: Vendetta. 6. John le Carré: The Talor of Panama. 7. Jeannle Brewer: A Crack In Forever. 8. Danlelle Steel: Mallce. 9. John Grlsham: Runaway Jury. 10. Ben Elton: Popcorn. Rlt almenns e&lis: 1. Blll Bryson: Notes from a Small Island. 2. Frank McCourt: Angela's Ashes. 3. Paul Wllson: A Little Book of Calm. 4. Anne Frank: Dlary of a Young Glrl. 5. Howard Marks. Mr. Nlce. 6. John Gray: Men are from Mars, Women are from Venus. 7. Nlck Hornby: Fever Pltch. 8. The Art Book. 9. Redmond O'Hanlon: Congo Journey. 10. Grlff Rhys Jones rltstjórl: The Natlon’s Favourlte Poems. Innbundnar skáldsögur: 1. Arundhatl Roy: The God of Small Thlngs. 2. Bernard Cornwell: Sharp'e Tlger. 3. John Grisham: The Partner. 4. Wllbur Smlth: Blrds of Prey. 5. Edward Rutherfurd: London: The Novel. Innbundln rlt almenns e&lls: 1. Mlchael Drosnln: The Blble Code. 2. Paul Brltton: The Jlgsaw Man. 3. Granla Forbes: My Darllng Buffy. 4. Slmon Slngh: Fermat's Last Theorem. 5. Jean-Domlnique Bauby: The Dlvlng-Bell and the Butterfly. (Byggt á The Sunday Tlmes) Enskar sumarkiljur Margir grípa pappírs- kiljur með sér í sumar- lejíflð, hvort sem farið er um eigin land eða til út- landa. Erlendir fjölmiðl- ar benda því lesendum sínrnn gjaman um þetta leyti árs á nokkrar nýleg- ar kiljur sem þeim finnst mest til koma. Hér á eftir verður vitn- að til slíkrar upptalning- ar sem birtist í bókablaði The Sunday Times í Bretlandi. Samtími og saga Fyrst nokkrar fróð- leiksbækur sem fjalla ýmist um samtímann eða söguna. Kína er mörgum ofar- lega í huga þessa dagana. Bók eftir kunnan blaða- mann, John Gittings, ætti aö vera mörgum fróðleg lesning. „Real China: From Cannibalism to Karaoke" nefnist hún og er afrakstur farar Gittings um dreifðar byggðir Kína í leit að sannleikanum um líf almennings þar síðustu áratugina. Redmond O’Hanlon er mörgum kunnur af ferðalýsingum um sum afskekktustu héruð jarðarinnar. Nýjasta bókin hans nefnist „Congo Joumey" og segir frá ferð hans um Kongó í leit að Mokélé-mbembé - en það er risaeðla sem samkvæmt þjóð- sögunni lifir við Télé-vatn. Stephen J. Gould er skemmtileg- ur höfundur bóka og greina um náttúrufræðileg efni en hann finnur gjaman óhefðbundið sjónarhorn til að útskýra málin. „Dinosaur in a Haystack" er ný kilja með greinum eftir hann. Það er ekkert nýtt að breskt kóngafólk eigi í hjónabandserfið- leikum. „The Unruly Queen: The Life of Queen Caroline1' er ný bók eftir Flora Fraser um Karólínu af Brunswick sem giftist enskum prinsi sem síðar ríkti sem George IV. Þau þoldu ekki hvort annað frá fyrstu kynnum og hjónabandið end- aði með ósköpum. Fjölbreytt úrval Það er mikið úrval af nýjum Umsjón Elías Snæland Jónsson skáldsögum í enskum kiljum. Þar ber fyrst að nefna verðlaunasöguna „Last Orders“ eftir Graham Swift þar sem farið er meö ösku látins fé- laga til sjávar. „Next of Kin“ er nýjasta fjöl- skyldusagan eftir metsöluhöfundinn Joanna Trollope. Hún hefst reyndar líka við útför sem verður til þess að söguhetjan kannar fortíðina. John le Carré er að sjálfsögðu pottþéttur í sumarleyfið. Nýjasta skáldsagan hans heitir „The Tailor of Panama” en söguþráðurinn teng- ist afhendingu Panamaskurðsins til heimamanna árið 1999. Roddy Doyle er írskur verðlauna- höfundur sem margir kannast við. Nýleg saga hans - „The Woman Who Walked into Doors“ - hefúr hlotiö lof og vinsældir en þar fjallar hann um húsmóður í Dublin sem býr með eiginmanni sem misþyrmir henni reglulega. Nell Dunn, sem vakti mikla at- hygli fyrir nokkrum áratugum fyrir skáldsöguna „Poor Cow“, hefur nú samið aðra bók um aðalsöguhetj- una, Joy. Nýja sagan - „My Silver Shoes“ - gcrist ríflega 20 árum síð- ar. „Cross Channel" er safh tíu smá- sagna eftir einn kunnasta höfund Breta um þessar mundir, Julian Bames. Þar skoðar hann samskipti Breta og Frakka gegnum tíðina. Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. Danlelle Steel: Mallce. 2. Mlchael Crlchton: The Lost Worid. 3. Mary Hlgglns Clark: Moonllght Becomes You. 4. V.C. Andrews: Heart Song. 5. Terry McMlllan: How Stella Got Her Groove Back. 6. Sandra Brown: Excluslve. 7. Julle Garwood: One Plnk Rose. 8. Chaterlne Coulter: Rosehaven. 9. John Grisham: The Runaway Jury. 10. Sherl Reynolds: The Rapture of Canaan. 11. Ellzabeth George: In the Presence of the Enemy. 12. John Darnton: Neanderthal 13. Wally Lamb: She's Come Undone. 14. Ursula Hegl: Stones From the Rlver. 15. Nora Roberts: Sweet Revenge. Rit almenns e&lis: 1. Maya Angelou: The Heart of a Woman. 2. Stephen E. Ambrose: Undaunted Courage. 3. Jon Krakauer: Into the Wlld. 4. James McBride: The Color of Water. 5. Andrew Weil: Spontaneous Heallng. 6. Mary Plpher: Reviving Ophella. 7. Jonathan Harr: A Clvll Action. 8. Carmen R. Berry & T. Traeder: Glrlfrlends. 9. Laura Schlesslnger: How Could You Do That?l 10. Scott Adams: The Dllbert Prlnclple. 11. D. Rodman & T. Keown: Bad As I Wanna Be. 12. Thomas Cahlll: How the Irish Saved Clvillzatlon. 13. Kathleen Norrls: The Clolster Walk 14. Carl Sagan: The Demon-Haunted World. 15. Mary Pipher: The Shelter of Each Other (Byggt á New York Tlmes Book Review)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.