Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Page 14
14 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 JjV Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT111,105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Augiýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, símt: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Tvær hliðar íþróttanna íslenskt æskufólk er þessa dagana að reyna með sér í keppni og leik á landsmóti ungmennafélaganna í Borg- arnesi. Þúsundir manna munu ýmist taka þátt í mótinu eða fylgjast með viðureign keppenda um helgina á glæsi- legu íþróttasvæði Borgnesinga. Á landsmóti sem þessu mæta til leiks bæði ýmsir kunnustu íþróttamenn landsins og ungt fólk sem er rétt að hefja keppnisferil sinn. Keppendur, sem eru hátt á annað þúsund, koma alls staðar af landinu. Fyrir marga þessa einstaklinga er þátttaka í slíku móti besta tækifær- ið sem þeim gefst til að kynnast og reyna sig við þá sem helst skara fram úr í sinni íþróttagrein í landinu. Á undanförnum árum hefur þátttaka almennings í alls konar íþróttastarfsemi og líkamsrækt aukist verulega. Það er hluti þess lífsstíls sem sótt hefur verulega á hin síðari ár að hugsa vel um líkama sinn, borða heilsusam- legan mat og hreyfa sig hæfilega. Eitt dæmi um þessa al- mennu viðhorfsbreytingu er mikil þátttaka í íþróttavið- burðum á borð við Kvennahlaupið sem eöit er til á hverju ári. í síðasta mánuði tóku um tuttugu þúsund konur þátt í slíku hlaupi víðs vegar um landið. Fleiri að- ilar eru famir að skipuleggja hliðstæða atburði í ein- stökum bæjarfélögum, og á landsmótinu í Borgamesi gefst almenningi líka tækifæri í dag til að taka þátt í svo- nefndu Skógarhlaupi sem er af sama toga. Allt eru þetta ljós dæmi um það sem jákvæðast er við íþróttirnar. Almenn þátttaka í mótum þar sem enginn þarf að ofbjóða sjálfum sér til að taka þátt er ánægjuleg- ur hluti af lífi þúsunda íslendinga. Sá heilbrigði keppn- isandi sem þessu fylgir verður vafalaust til að efla dug og þroska einstaklinganna. Sérstök ástæða er til að fagna þessum jákvæðu þáttum vegna þess að margt virðist stefna á hinn verri veg í heimi keppnisíþróttanna. Hér eins og annars staðar ráða peningar sífellt meiru um gengi íþróttafélaga í mörgum þeim greinum sem vinsælar eru meðal almennings, svo sem í knattspyrnu og handbolta. Gífurlegu fjármagni skattborgaranna er varið til íþróttamannvirkja sem eru einkum til atnota fyrir þá sem stunda íþróttirnar a.m.k. að hluta til sem atvinnu. Almenningur fær oft einungis aðgang að slíkum mannvirkjum sem áhorfendur. Á alþjóðavettvangi eru íþróttirnar fyrst og fremst söluvara þar sem gífurlega flármuni þarf til að ná mikl- um árangri. Einstakir leikmenn eru keyptir og seldir fyrir svimandi íjárhæðir. Þau lið sem ekki hafa efni á að taka þátt í þeim darraðardansi hljóta að verða undir í samkeppninni, því markaðurinn ræður í hinum alþjóð- lega íþróttaheimi eins og annars staðar nú á dögum. Almenningur nýtur góðs af þessari þróun í hlutverki áhorfandans. Stóraukin áhersla alþjóðlegra sjónvarps- stöðva, og íslenskra reyndar líka, á beinar útsendingar frá íþróttamótum gefur íslendingum eins og öðrum kost á að fylgjast með ýmsum helstu afreksmönnum íþrót- tanna heima í stofu. Það á við um alþjóðlegar hetjur frjálsra íþrótta, knattspymu, körfubolta, golfs, tennis og margra annarra íþróttagreina. Jafnvel hástig villi- mennskunnar í gervi íþrótta, þar sem keppst er við að berja og jafnvel bíta andstæðinginn þar til hann missir ráð og rænu, sést hér reglulega á sjónvarpsskjám. Keppni afreksfólks er hin besta skemmtun á að horfa, enda fyrst og fremst hluti afþreyingariðnaðar. En meira máli skiptir fyrir lífshamingju einstaklingsins að þjálfa eigin líkama og vera þátttakandi en ekki bara áhorfandi. Elías Snæland Jónsson Erfiðar ákvarðanir um stækkun NATO Síðan Sovétríkin liðu undir lok árið 1991 hefur Atlantshafsbanda- lagið (NATO) tekið stakkaskipt- um. Strax sumarið 1990 var efnt til leiðtogafundar þess i London til að rasða um viðbrögð við hruni Berlínarmúrsins haustið 1989. Á þeim fundi voru fulltrúar íslands, Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra og Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra, eink- um með hugann við afvopnun á höfunum og vöktu undrun sam- fundarmanna sinna. í nóvember 1991 hittust leiðtog- ar NATO-ríkjanna að nýju en að þessu sinni í Róm. Þar samþykktu þeir nýja vamarstefnu bandalags- ins, sem tók mið af því að Evrópu var ekki lengur skipt með jám- tjaldi. Síðast var haldinn leiðtoga- fundur bandalagsins í janúar 1994 og þar voru meðal annars lögð á ráðin um hlut bandalagsins við friðargæslu í Júgóslavíu fyrrver- andi. Þar var lýst yfir því að bandalagið myndi grípa til loft- árása til að koma í veg fyrir eyð- ingu Sarajevo. Þriðjudag og miðvikudag í næstu viku hittast leiðtogar aðild- arríkja NATO í fjórða sinn frá þvi að valdakerfi kommúnista i Evr- ópu hrundi. Verður fundurinn haldinn í Madrid og þar á að ákveða hvaða ríkjum úr fyrrver- andi valdablokk Sovétríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu verður boðin aðild að NATO. Erfið ákvörðun Ákvörðun um stækkun NATO austur á bóginn er ekki auðveld. Ýmsir telja að í raun sé hún óþörf og beinlínis hættuleg fyrir framtíð bandalagsins. Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er í þeim hópi. Telur hann að með því að fjölga aðildarríkjunum muni bandalagið tapa innri styrk sínum og vamar- styrk. Á fundinum í Madrid verður deilt um hve mörgum ríkjum eigi að bjóða til viðræðna um aðild. Þeir sem eru stórtækastir nefna fimm ríki: Pólland, Rúmeníu, Sló- veníu, Tékkland og Ungverjaland. Ríkisstjómir Bandarikjanna og ís- lands nefna þrjú ríki: Pólland, Tékkland og Ungverjaland. Þá er jafnframt deilt um hvort í ályktun fundarins eigi aðeins að nefna þau ríki sem nú er boðið til viðræðna eða einnig hin sem eru næst í röðinni, því að allir eru þó sammála um að stækkun nú sé að- eins fyrsta skref. Þremur verður boðið Úr því að Bandaríkjastjórn vill aðeins þrjú ný aðildarriki er al- mennt gengið að því visu að nið- urstaðan verði á þann veg. Hvert einstakt aðildarríki hefur hins vegar neitunarvald um niður- Erlend tíðindi Björn Bjarnason stöðu leiðtogafundarins. Davíö Oddsson forsætisráð- herra, sem nú situr leiðtogafund NATO í þriðja sinn, hefur sagt að frekari stækkun bandalagsins síð- ar sé liklegri, ef fá ríki séu i fyrstu lotu. Þess vegna sé það skynsam- leg niðurstaða fyrir þá sem bera hag Eystrasaltsríkjanna fyrir brjósti, en þau sækjast mjög eftir því að komast í NATO og njóta meðal annars stuðnings íslands. Talsmenn Bandaríkjastjórnar benda á að engin trygging sé fyrir meiri hluta í öldungadeild Banda- ríkjaþings við stækkun NATO al- mennt. Líkur á andstöðu aukist eftir því sem nýju ríkin séu fleiri, þar sem Bandaríkjamenn þurfi að bera meginþunga kostnaðar af hinu nýja öryggiskerfi sem fylgir stækkuninni. Jafnframt geri bandarískir þingmenn ríka kröfu um lýðræðislega stjórnarhætti í nýju aðildarríkjunum. Frakkar eru í forystu hinna sem vilja fimm ný aðildarriki. Eft- ir að sósíalistar settust í ríkis- stjórn Frakklands hafa þeir snúið við blaðinu að því er varðar end- urnýjun á þátttöku franska hers- ins í hinu sameiginlega varnar- kerfi NATO. Er það ekki til að auka líkur á að Bandaríkjastjórn fallist á sjónarmið Frakka. Mörgum ríkisstjórnum finnst erfitt að standa frammi fyrir þess- um tveimur kostum, sem í raun er ekki unnt að sætta. Nýtt ferli Stig af stigi hefur NATO lagað sig að breyttum aðstæðum í Evr- ópu. Fáir stjórnmálaflokkar utan Rússlands eru sama sinnis og Al- þýðubandalagið, að aðild að NATO sé óæskileg. Um hitt verð- ur hins vegar rætt á næstu mán- uðum í þjóðþingum aðildarland- anna hvernig taka eigi á móti nýj- um aðildarríkjum og hvenær stækka eigi enn frekar. Mest athygli mun beinast að Bandaríkjaþingi. Þar kemur málið liklega til afgreiðslu vorið eða sumarið 1998. Löggjafarþingin í öllum 16 aðildarríkjunum verða að samþykkja að ganga til þess að stækka NATO. Hið nýja ferli í sögu NATO er rétt að hefjast. Ákvör&un um stækkun NATO austur á bóginn er ekki auðveld. Ýmsir telja aö í raun sé hún óþörf og beinlínis hættuleg fyrir framtíö bandalags- ins. Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisrá&herra Bandaríkjanna, er í þeim hópi. skoðanir annarra Árvekni þörf „Wei Jingsheng, helsti andófsmaðurinn í Kína, var nýlega barinn af samföngum sínum, sem aug- ljóslega voru hvattir af yfirvöldum, að því er ætt- ingjar hans fullyrða. Wei, sem er 47 ára og hefur ekkert til saka unniö annað en friðsamlega lýðræð- isbaráttu, þjáðist þegar af veikindum. Leiðtogar Kína, sem hafa haldið Wei í fangelsi Qest fullorðins- ár hans, hafa neitað honum um almennilega lækn- ishjálp. Þegar yfirvöld í Peking sóttu um að fá að halda ólympíuleikana árið 2000 var Wei sleppt úr fangelsi. Þegar ljóst var að leikamir yrðu annars staðar var Wei stungið inn aftur. Stjóm Clintons og bandamenn hennar ættu að gera allt sem þeir geta tE að sjá til þess að kinverskir ráðamenn komi ekki fram við 6 milljónir Hong Kongbúa á sama hátt án þess aö refsing hljótist af.“ Úr forystugrein Washington Post 30. júní. Stríðsglæpamenn „Það era bráðum tvö ár siðan fjöldamorðin í Szrebrenica vora framin. Borgin varð tákn alls þess blóðs sem hefur verið úthellt og aðgerðaleysis um- heimsins. Tvö sumur og tveir vetur. Það er kannski blóðþorsti að minna á það en í fyrrverandi Júgóslavíu ganga enn 66 manns lausir sem stríðs- dómstóllinn í Haag hefur ákveðið að höfða mál gegn. Handtökuskipanir hafa verið gefnar út. Hand- tökur hafa afgerandi þýðingu fyrir friðarferlið. En það fara engar handtökur fram.“ Úr forystugrein Politiken 30. júní. „Viðunandi" kosningar „Óeirðir hafa lagt landið í rúst. Gripdeildamenn ráða stórum svæðum. Stjórnleysi ríkir í stórum hluta landsins. Samt tókst Albönum að kjósa nýja stjórn á sunnudaginn í kosningum þar sem þátttaka var mikil og lítið um oíbeldi. Alþjóðlegir eftirlits- menn myndu ekki kalla kosningamar frjálsar eða réttlátar en jafnvel „viðunandi" kosningar era af- rek. Nú hefst uppbyggingin." Úr forystugrein New York Times 3. júll.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.