Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Page 29
28 helgarviðtalið ' ik ik' LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 JjV LAUGARDAGUR 5. JÚLl 1997 heigarviðtalið 37 *■ - segir Guðríður Elíasdóttir sem fær hvorki starfslokasamning né laun frá nýrri stjórn félagsins Guðríður Elíasdóttir, fyrrverandi formaður Verkakvennafélagsins Framtíðarinnar í Hafnarfirði, hefur verið í hópi kunnustu verkalýðs- leiðtoga landsins um áratugaskeið. í lok síðasta árs hvarf hún óvænt af sviði verkalýðsforystunnar. Hún segir að sér hafi verið bolað burtu. Notfærðu sér veikindi mín „Andstæðingar mínir í félaginu notfærðu sér það að ég fékk snert af heilablæðingu skömmu fyrir að- alfund félagsins í nóvember síðast- liðnum. Þær komu því þannig fyr- ir með bolabrögðmn að ég var hrakin frá. í fyrra voru sett lög þess efnis að aðalfúndir verkalýðs- félaga skyldu haldnir að vori. Þess vegna var þetta síðasti haustfund- urinn. Ég ætlaði að gefa kost á mér til formennsku fram að aðalfundin- um í vor er leið en þaö voru um 4 mánuðir. Þá voru liðin 50 ár frá því ég tók sæti í stjórn Framtíðar- innar, 30 ár frá því að ég varð for- maður og starfsmaður félagsins og ég átti 75 ára aflnæli. Mig langaði til að hætta með reisn á þessum margföldu tímamótum. Andstæð- ingar minir í félaginu gátu ekki unnt mér þess,“ sagði Guðríður í samtali við DV, þegar hún var beð- in um að segja frá hinu óvænta brotthvarfi sinu úr verkalýðshreyf- ingunni. Erfiður tími Hún segir að síðustu tvö árin hafi margt verið sér mótdrægt og það er hreint með ólíkindum hvað þessi aldna verkalýðshefja hefur orðið að þola á þeim tíma. „í apríl 1995 missti ég manninn minn, Jónas Sigurðsson. Hann hafði átt við heilsuleysi að stríða um langan tíma. í apríl fékk hann heila- blóðfall og var allur eftir eina viku. Aðeins fjórum dögum eftir að hann var jarðsettur kviknaði í húsinu minu og af urðu miklar skemmdir af eldi, reyk, sóti og vatni. Það tók á fjórða mánuð að koma húsinu í íbúðarhæft ástand aftur og hreinsa og lagfæra innanstokksmunina. Bömin mín hvöttu mig til að fara eins fljótt og ég gæti að vinna aftur eftir þessi tvö miklu áfoll. Ég gerði það. Allir sögðu að ég myndi hafa gott af því að komast aftur út í mannlífið. En það var ekki allt búið enn. í júní 1996 lenti ég í alvarlegu bilslysi þegar ég ók á vegg. Ég bæði ökklabrotnaði og brotnaði mikið á bringunni. í þessu átti ég i 4 mánuði en var komin til vinnu aftur í byrj- un október í fyrra. Þegar ég kom í vinnuna byrjaði ég að undirbúa að- alfúnd félagsins, með mínu fólki, en ætlunin var að halda hann í nóvem- ber. Allt gekk eðlilega. Stillt var upp stjóm, varastjóm og trúnaðarráði. Hálfu ári áður hafði varaformaður- inn, Málfríður Þórhallsdóttir, sagt mér að hún gæfi ekki kost á sér áfram. Ég fékk því Þóm Björgvins- dóttur á listann í hennar stað. Sömuleiðis tilkynnti Linda Baldurs- dóttir, sem nú er formaður, að hún gæfi ekki kost á sér í stjómina. Ég bað því konu sem heitir Halldóra Gunnarsdóttir að taka hennar sæti og hún samþykkti það. Ætlaði að hætta „Ég kallaði þennan hóp saman til fundar. Þar tUkynnti ég um að ég ætlaði að hætta sem formaður á að- alfundi, sem nýjum lögum sam- kvæmt bæri að halda í vor er leið. Allir á fúndinum lýstu því yfir að þeir ætluðu að starfa með mér þessa mánuði, frá nóvemher 1996 til apríl 1997 að nýr aðalfundur yrði hald- inn,“ segir Guðríður. Meiri erfiðleikar Erfiðleikar Guðríðar vora ekki búnir. Þann 16. nóvember veiktist hún. Um var að ræða snert af heila- blæðingu sem varð til þess að hún átti erfitt um mál í nokkrar vikur. „Þegar ég vaknaði að morgni 16. nóvember var það fyrsta sem kom í huga mér að ég þyrfti að ræða við starfsstúlku Framtíðarinnar, Lára Sveinsdóttir, um ákveðið máleflii. Ég hringdi klukkan að verða tíu en hafði ekki talað við neinn fram að því enda ein í húsinu. Þegar ég ætl- aði að tala við Lára gat ég ekki gert mig skiljanlega. Hún spurði hvort ég væri drakkin. Ég hætti því að reyna að ræða við hana og hringdi í dóttur mína. Hún heyrði strax að eitthvað var að og kom til min. Lára hafði hringt í son minn og sagt að eitthvað væri að hjá mér og hann kom líka til mín. Þau fóra með mig inn á Borgarspítala. Ég fann að það var ekkert að mér ann- að en að ég átti bágt með að tala, enda hafði ég ekki orðið vör við neitt um nóttina. Ég var rannsökuð mjög vel og síðan fór ég á Grensás- deildina og var þar næstu nótt.“ Dóttir Guðríðar lét starfsstúlku Framtíðarinnar, Lára Sveinsdóttur, vita um líðan hennar. Sagði að ekki vottaði fyrir heilablæðingu og ekk- ert annað að en hún ætti erfitt með að tala. „Lára sagði þá dóttur minni að hún væri búin að boða stjómarfund næsta dag. Dóttir mín spurði þá hvort hún ætti eitthvað með það? Lára sagði svo vera enda vissi hún alveg hvemig væri með fólk sem væri búið að fá heilablæðingu, það væri búið að vera. Sagðist þekkja þetta vel. Mér var skýrt frá þessu og þótti skrýtið. Hún hefði alla vega átt að hafa samband við mig um málið eða þá varaformanninn. Samt sem áður héldu þær stjómar- fundinn á sunnudeginum. Þeim lá svo mikið á enda höfðu þær afskrif- að mig. Á þessum stjómarfundi var aðalfúndinum, sem halda átti næsta þriðjudag, fl-estað í eina viku og þótti mér það fallegt gert af þeim. Kjaftasögur fara af stað Nú fóra hlutimir að gerast hratt. Kjaftasögur vora settar af stað inn að Guðríður væri búin að vera. Hún myndi aldrei ná sér og gæti því ekki haldið áfram sem formaður. Ekkert vit væri í að kjósa hana áfram og annað í þessum dúr. Síðar í þessari sömu viku var aftur haldinn stjóm- arfundur. Þar var meðal annars samþykkt að reyna að fá Guðríði til að segja af sér. „Ég var útskrifuð af sjúkrahúsinu að kvöldi 18. nóvember og fór heim til mín. Um miðjan næsta dag kom Málfríður varaformaður til mín og bað um að fá að tala við mig. Það var auðvitað sjálfsagt enda taldi ég okkur vinkonur eftir áralangt sam- ■ starf í félaginu. Ég hafði að auki fylgst með henni frá því hún fædd- ist. Hún sagði mér frá frestun aðal- fundarins. Síðan sagðist hún eiga annað erindi við mig. Hún ætti að athuga hvort ég vildi ekki segja af mér. Mér fannst þetta eins og blaut tuska fram í mig. Ég spurði hana hvort hún væri komin til að reka mig. Varstu send til þess? spurði ég. Hún neitaði því og ég sagði henni þá að ekki kæmi til greina að ég segði af mér. Lengra varð samtal okkar ekki.“ Guðríður sögð búin að vera Á stjómarfundi skömmu eftir þetta skýrði varaformaðurinn frá þessari ferð sinni til Guðríðar. Hún sagðist sannfærð um að hún væri búin að vera. Það yrði að fá hana til að segja af sér. Guðrún Guðmundsdóttir, sem þá var ritari stjórnar og hlustaði á þetta blaðaviðtal við Guðríði, segir að þetta hafi verið mikið rætt og aðrar stjómarkonur, sem mættar voru, sagt að þetta mál þyrfti að kanna betur. Þær hefðu allar lofað að styðja Guðríði til formennsku fram á vorið, á komandi aðalfúndi. Um væri að ræða þriggja til fjög- urra mánaða tímabil. Þá yrðu öll þessi afinæli sem áður hefúr verið sagt frá. Þessi fúndur endaði þannig að allar sem lofað höfðu að styðja Guðríði vildu að farið yrði til henn- ar og málið kannað. Varaformaður- inn einn var á móti því. Hún vildi hana einfaldlega burt. Það varð svo úr að Málfríður og Unnur Helga- dóttir vora kosnar til að ræða við Guðríði en sú sem nú er formaður, Linda Baldursdóttir, kom líka án þess að hafa verið til þess kosin. „Þær komu inn til mín og vora ekki fyrr sestar niður en Linda spyr hvort ég vilji ekki bara segja af mér til að firra vandræðum. Ég sagði henni að það kæmi ekki til greina. Ég væri búin að svara þessari spumingu áður. Mikið meira var ekki rætt og þær fóra með þetta.“ Sögulegur aðalfundur „Eg hafði síðan samband við starfsstúlku félagsins og hað hana að auglýsa aðalfundinn á þeim degi sem ákveðið hafði verið að halda hann. Þá komu þær til mín eina ferðina enn til að biðja mig að segja af mér. Enn neitaði ég. Ég sagðist sjá út í hvaða skítverk þær væra að fara og þær skyldu bara ljúka því sjálfar. Ég ætlaði ekki að draga þær að Iandi.“ Aðalfúndin-inn var svo haldinn 26. nóvember. Öll venjuleg aðal- fundarstörf gengu eðlilega fyrir sig. Allar nefndir vora kosnar hverju nafni sem þær nefnast, líka trúnað- armannaráð og stjóm af listanum sem stjóm og trúnaðarráð stóðu að. Þegar þetta var afstaðið gerðist mjög sérstæður atburður. „Málfríður varaformaður bað þá um orðið. Hún lét bóka að kosning- in væri ólögleg og að hún hefði íhugað að standa að öðrum lista. Hún sagði að einn dag vantaði upp á að framboðsfrestur væri löglegur og að engin kjörsfjóm hefði verið kosin. Hún krefðist því fresflmar á aðalfundinum og framhaldsaðal- fundar. Hún var meira að segja með lögfræðing ASÍ með sér. Hann og fráfarandi stjóm skutu á fundi. Hann sagði þeim best að ganga að þessum kröfum því þær væru ákveðnar í að kæra málið ef ekki yrði farið að kröfum þeirra. Hvorki varaformaðurinn né starfsmaður félagsins höfðu sagt mér að eitt- Ég ætlaði aö gefa kost á mér til formennsku fram ab aöalfundinum í vor er leiö en þaö voru um 4 mánuöir. Þá voru liöin 50 ár frá því ég tók sæti i stjórn Framtíöarinn- ar, 30 ár frá því aö ég varö formaöur og starfsmaður félagsins og ég átti 75 ára afmæli. Mig langaöi til aö hætta meö reisn á þessum margföldu tímamótum. maður félagsins í fyrra. Raunar fékk þessi kunningi minn þau skilaboð frá stjóm Framntíðarinnar að form- aðurinn væri ekki ráðinn í vinnu og þess vegna þyrfti ekki að segja hon- um upp. Formaður eigi bara að ganga út þegar hann lætur af for- mennsku þótt hann sé líka starfs- maður. Þess vegna væri ekki um neinn starfslokasamning að ræða. Við þetta situr enn.“ Þjófkennd Guðriður segir að nýja stjórnin hafi ekki látið þetta nægja, heldur hafi allt verið gert til að reyna að finna eitthvað á sig. „Þær leituðu um allt að einhverju á mig. Og loks fundu þær mál sem þær þóttust geta hankað mig á. Þær fundu það að ég hafði fengið 13. mán- uðinn greiddan það árið sem aðalkj- arasamningagerð stóð yfir. Eftir hina löngu og ströngu samningalotu í „sólstöðusamningunum" 1977 fór ég fram á það við þáverandi stjóm að ég fengi launahækkun til að mæta þessari miklu vinnu sem samninga- gerðin var orðin. Þær samþykktu það ekki en þess í stað að ég fengi 13. mánuðinn greiddan aðalkjarasamn- ingaárið. Síðan hefúr það verið þannig. Ég hef fimm eða sex sinnum, síðastliðin 20 ár, fengið 13. mánuð- inn greiddan. Þessi samþykkt mun ekki hafa verið færð til bókar. Á þessu ætlaði núverandi sfjóm að hanka mig þar sem engin bókun var fyrir þessu. Þegar þetta kom upp hitti ég eina konuna sem sat í stjórn- inni 1977 og sagði henni hvað væri það nýjasta hjá nýju stjóminni. Nú væri verið að þjófkenna mig fyrir 13. mánaðargreiðsluna. Hún kallaði þeg- ar í stað saman þær konur sem þá sátu í stjóm og samþykktu greiðsl- una til mín 1977. Og þann 18. mars síðastliðinn skrifuðu þær undir yfir- lýsingu þar sem staðfest er að greiðslan til mín sé til komin vegna mikils álags og vinnu við gerð kjara- samninga. Þess vegna hefði verið samþykkt að greiða mér 13. mánuð- inn árin sem aðalkjarasamningar eru gerðir. Þá loks lét hin nýja stjórn sér segjast í þessu máli. Glerlistaverk endursent Guðríður átti 75 ára afmæli 23. apríl síðastliðinn. Á sumardaginn fyrsta, 24. apríl, boðaði forseti ís- lands hana til Bessastaða og sæmdi hana íslensku fálkaorðunni fyrir störf að verkalýðs- og félagsmálum. Rétt áður en hún lagði af stað til Bessastaða kom sending frá blóma- búð í bænum. Þetta var glerlistaverk og blóm. Ég las á kortið og sá að þetta var frá félaginu. Ég hafði ekki geð í mér til að þiggja þetta eftir allt sem þær höfðu gert mér. Þær voru svo litlar sálir að þær treystu sér ekki einu sinni til að koma með þetta sjálfar. Þær höfðu beðið son minn að fara með þetta til mín. Hann sagði þeim að gera það sjálfar. Ég lét því skila þessu aftur niður í blómabúð og biðja fólkið þar að koma þessu til réttra aðila. Þegar málið var svo tekið fyrir á fundi hjá þeim í stjórninni sögðu þær að ég hefði ekki tekið við gjöfinni. Þá spuröi fúndarkona hvers vegna ég hefði ekki tekið við gjöfinni. Stjórn- arkonurnar sögðust ekki vita ástæð- una. Ég er því afskaplega fegin að geta nú skýrt hafnfirskum verkakon- um frá ástæðum þess að ég þáði ekki glerlistaverkið," sagði Guðríður Elí- asdóttir. -S.dór hvað væri aðfinnsluvert við lista okkar. Að skipa kjörstjórn þegar einn listi er borinn fram er út í hött. Það er hvergi gert því hann er sjálfkjörinn. Kjörstjórn er ekki skipuð nema kosið sé milli tveggja eða fleiri lista. Og hvernig fram- boðsfrestur gat verið of stuttur þar sem búið var að fresta aðalfundi um heila viku var út í hött. En það sem er alverst í þessu er að lögleg- ur aðalfundur samþykkti lista okk- ar og kaus stjórnina af honum at- hugasemdalaust. Eftir það kemur Málfríður fram með þessa bókun. Það er ekki hægt að breyta ákvörð- un aðalfundar fyrr en á næsta aðal- fundi. Og lögmaður Alþýðusam- bandsins tók þátt í þessari vitleysu með þeim. Ég treysti mér ekki á þennan fund. Það fór svo illa með mig þessi aðför að mér dagana á undan auk annars sem hafði geng- ið á hjá mér. Þar fyrir utan hafði ég ekki náð fullkomnu valdi á að tala.“ Andstæðingar Guðriðar fóru svo í að koma saman öðrum lista og halda framhaldsaðalfimd, þar sem hann var samþykktur. Guðriður segir að þar hafi verið konur á lista sem hún hefði orðið hissa á að sjá og líka vonsvikin. Hún sagðist ekki hafa haft geð í sér til að fara út í stríð við þær. „Ég téddi rétt að þær fengju að ljúka við og fullkomna þetta skít- verk sitt.“ Jólaskreytingarnar „Þessi framhaldsaðalfundur var haldinn 16. desember. Um kvöldið, klukkan 22.30, komu tvær úr nýju stjóminni, fyrmefnd Málfríður og Þóra Björgvins, arkandi með stóra jólaskreytingu til mín. Þær spurðu hvort þær mættu koma inn og tala við mig. Ég hélt nú ekki. Þær hefðu ekkert inn til mín að gera og rak þær í hurtu með skreytinguna. Fyrr um kvöldið hafði starfsstúlka félags- ins komið til mín með jólaskreyt- ingu en hún fór sömu leið og hinar. Ég gat ekki fyrirgefið henni hvemig hún hafði unnið á hak við mig. Hún hafði ekki rætt einu orði við mig um aðforina að mér sem formanni félagsins, sem staðið hafði yfir i einn mánuð.“ í fundargerð þessa framhaldsaðal- fundar er bókað að gera þurfi starfs- lokasamning við Guðríði og þakka mér fyrir störfin á liðnum árum. „Æ, þetta venjulega skjall um alla sem verða góðir þegar þeir era dauðir. Ég fór svo til Ammundar Backmans, sem er lögfræðingur fé- lagsins, og spurði hann hver staða min væri við þessi starfslok. Ég hafði verið starfsmaður félagsins í 30 ár. Hann sagði það liggja á borð- inu að ég ætti eins árs starfsloka- samning eftir öll þessi ár. Hann spurði hvort búið væri að segja mér upp en svo var ekki og það hefur ekki verið gert enn. Mér hefur ekki verið sagt upp störfum. Ammundur sagði að fyrst yrði að segja mér upp og síðan að gera við mig starfsloka- samning. Hann gæti ekki orðið styttri en 6 mánuðir samkvæmt lög- um en eðlilegur væri hann 12 mán- uðir.“ Engin laun Svo leið timinn og ég taldi mig vera á veikindadögum og á launa- skrá hjá félaginu. Þann 1. febrúar, þegar sonur minn ætlaði að ganga frá jóla-visareikningi mínum, var ekki búið að leggja launin mín inn og honum sagt að ég væri ekki leng- ur á launaskrá og fengi því ekkert kaup. Meira að segja tóku þær af veikindadaga sem ég átti inni til 16. febrúar. Einhver kom þó vitinu fyrir þær því þessum 16 veikindadögum var síðar komið inn á tékkareikning minn í bankanum síðast í mars.“ Þegar engin laun hárust fékk Guð- ríður löglærðan kunningja sinn til að skoða þetta mál og setja upp drög að starfslokasamningi. Nýja stjórnin sagði alltaf við þennan kunningja hennar að þær ætluðu endilega að ganga frá þessu máli. „En það hefur ekkert gerst. Mér hefur ekki verið sagt upp enn þá en ég hef heldur engin laun fengið frá því ég hætti sem formaður og starfs- Ég er þvf afskaplega fegin að geta nú skýrt hafnfirskum verkakonum frá ástæðum þess að ég þáði ekki glerlistaverkið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.