Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Síða 51
JE>"V LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 $fyndbönd » „ Two Faces: Greindarleg ástarsaga „Ég hef alltaf haft áhuga á að fjalla um jákvæðar breytingar og mögulegan mannlegan þroska, um einstaklinga sem nýta hæfileika sína og láta ekki stjórnast af öðru fólki. Ég er áhugasöm um hvernig ást og samhygð getur læknað og frelsað sálina - sleppt henni lausri“. UPPÁHALDS MYNDBANDIO MITT Hannes Hólmsteinn Gissurarson „Uppáhalds- kvikmyndin mín er mynd sem sem ég sá í San Francisco fyrir nokkrum árum og heitir Evr- ópa, Evrópa. Þetta er pólsk/þýsk mynd sem fjallar um gyðinga- dreng í Pól- landi sem tekst að leika á þýska her- menn. Myndin fékk fjöl- margar við- urkenning- ar í Evrópu en kom þvi miður ekki til greina sem besta erlenda myndin við ósk- arsverðlaunaafhend- inguna þar sem Þjóðverj- ar vildu ekki samþykkja hana sem framlag sitt. Þetta er ein- staklega mannleg og hugljúf mynd og vel gerð í alla staði. Af myndum sem ég hef séð ný- verið þá ber tékkneska myndin Kolya af. Vitaskuld gæti maður nefnt fjöl- margar aðrar myndir en í svipinn standa þessar tvær upp úr. Þetta eru myndir sem maður kemur betri maður út af að sýningu lokinni.“ Svo mælir Barbra Streisand, leik- stjóri og aðalstjarna myndarinnar The Mirror Has Two Faces, þar sem rannsóknarefnið er hugmyndir fólks um fegurð, rómantík og ást, og hvernig glansímyndir í kvikmynd- um og auglýsingum í tímaritum, blöðum og sjónvarpi hafa áhrif á þær hugmyndir. Gefum handrits- höfundinum Richard LaGravenese orðið: „Yfirborðskennd fegurð er kynferðislega þrungin tálsýn sem skapar mikil vandamál. Yfir okkur hellast auglýsingar og kvikmyndir þar sem ómögulega fullkomið fólk heyrir undurfagra tóna þegar það verður hrifið af hverju öðru. Venju- legt útlit, venjuleg hrifning og venjulegar tilfinningar virðast ófull- nægjandi. Er það ekki forvitnilegt og einkennilegt að meðan fleiri og fleiri eyða sífellt meiri kröftum í að vinna með sinn innri mann, er leit- in að ytri fegurð orðin örvæntingar- fyllri og ofsalegri en nokkru sinni fyrr?“ Platónsk ást? The Mirror Has Two Faces segir frá ástarsambandi háskólakennar- anna Rose Morgan og Gregory Lark- in. Rose Morgan kennir rómantísk- ar bókmenntir, en hún þráir róman- tíkina sem vantar í líf hennar. Gregory Larkin kennir stærðfræði við sama háskóla. Hann hefur farið illa út úr ástríðufullum samböndum og ákveður að leita eftir sambandi, byggðu á vináttu og virðingu, þar sem kynlíf er alveg látið vera. Rose og Gregory hittast og fella hugi sam- an. Þau stofna til sambands á þeim nótum sem Gregory hefur leitast eft- ir, en það reynist flóknara en að segja það að halda ástríðunum utan við sambandið. Myndin er byggð á eldri franskri mynd, Le Miroir a Deux Faces, eftir leikstjórann André Cayatte. Barbra Streisand leikstýrir, framleiðir, leikur aðal- hlutverkið og semur og flytur titil- lagið ásamt Bryan Adams. Jeff Bridges (The Last Picture Show, Madonna, Antonio Banderas og Jonathan Pryce. :í næstu viku kemur hin marglof- aða mynd Alans Parkers, Evita, út á mynd- bandi. Mynd- in er byggð á söngleik þeirra Andrews Lloyds Webbers og Tims Rice. Hún fjall- ar um lífshlaup Evu Mariu Ibarguren Du- arte Perón sem var af fátæku fólki komin en braust til æðstu metorða í Argentínu og var orðin forsetafrú aðeins 27 ára gömul. Hún tók þegar til við að laga það sem henni þótti aflaga hafa farið í þjóðfélaginu og aflaði sér gifurlegra vinsælda alþýð- unnar með því að ausa fé úr opin- berum sjóðum í byggingu þúsunda nýrra skóla, sjúkrahúsa og annarra velferðarstofnana sem allar báru nafn hennar. Hún stofnaði einnig kvennahreyf- ingu Perónista og aflaði konum kosningaréttar í Argentínu. Með þessu aflaði hún sér einnig óvildar- manna úr hópi háttsettra embættis- manna sem líkaði ekki tangarhald hennar á þjóðinni. Huldublómið Marisa Paredes og Imanol Arias Spænski leikstjórinn Pedro Alma- dóvar er þekktur fyrir villt- ar og lit- ríkar myndir með sér- lega beitt- um húmor í myndum eins og Konur á barmi taugá- fafls, Bittu mig, elskaðu mig og Háir hælar sem hafa aflað honrnn mikifla vinsælda. Huldublómið fiallar um Leu sem er ástarsagnahöftmdur sem skrifar undir dulnefninu Amanda Gris. Hún er í óhamingjusömu hjóna- bandi með Paco sem hefur að und- anförnu hneigst æ meira til áfengis- drykkju og meðfram þvi gleymt hin- um rómantísku hliðum hjónabands- ins. Þetta háir Leu mjög við skriftim- ar og einsetur hún sér að ráða bót á vandamálinu, m.a. með aðstoð rit- stjórans Angel á dagblaðinu E1 Pais. Það flækir málin þó dálítið að Ang- el biður Leu að skrifa harðorða gagnrýni á skáldskap Amöndu Gris því bækur hennar fara mikið í taug- arnar á honum. Final Justice Martin Sheen, Patty Duke og Alex- andra Powers. Þegar hinn 17 ára gamli Chris til- kynnir for- eldrum sín- um að hann ætli að | ganga í her- inn veldur það þeim miklum vonbrigðum því þau höfðu vonað að hann myndi ganga menntaveg- inn. Vera Chris í hernum varir þó ekki lengi og dag einn kynnir hann óvænt fyrir for- eldrum sínum eiginkonu sína, Dusty, sem er nokkuð eldri en Chris. Móðir hans, Mary, fær strax ímugust á Dusty, reynir að tala um fyrir syni sínum og fá hann til að leita skilnaðar. Chris neitar og áður en ár er liðið hafa þau Dusty eignast dóttur. En gmnur Mary reyndist réttur og þegar Chris áttar sig loks á því að Dusty er óhæf móðir og eig- inkona ákveður hann að skilja við hana. Dusty verður æf af reiði og áður en skilnaðurinn er kominn í gegn er Chris myrtur á hrottalegan hátt. Yfirkomin af sorg og reiði hefjast foreldrar Chris handa við að fá Dusty sakfellda því þau eru sann- færð um að hún sé morðinginn. Thunderbolt And Lightfoot, Hea- ven’s Gate, Starman, The Fabulous Baker Boys, The Fisher King) leikur Gregory Larkin, en meðal annarra leikara eru nýi Bondinn, Pierce Brosnan, George Segal, Mimi Rogers, Brenda Vaccaro, Elle MacP- herson, Austin Pendleton og Lauren Bacall. Fjölhæf listakona Myndin er sú sextánda á ferli hinnar fjölhæfu Barbra Streisand. Hún setti fótinn inn fyrir dyr skemmtiiðnaðarins með því að vinna söngkeppni i litlum nætur- klúbbi og sló í gegn þegar hún náði i hlutverk Miss Marmelstein í stn- um fyrsta Broadway-söngleik, I Can Get It For You Wholesale. Tveimur árum síðar var hún aðalstjaman í söngleiknum Funny Girl, sem síðar varð að hennar fyrstu kvikmynd. Jafnframt því að syngja og leika á sviði og í kvikmyndum hefur hún gefið út fjöldann aflan af hljómplöt- um og á einar 37 gullplötur og 21 platínuplötu. Engin söngkona hefur selt fleiri plötur en hún. Eftir að hafa fengið óskarsverðlaun fyrir frumraun sina í kvikmyndaheimin- um, Funny Girl, lék hún í söng- leikjamyndunum Hello, Dolly! og On a Clear Day, You Can See For- ever, og fékk síðan fyrsta hlutverk sitt í heföbundinni kvikmynd 1 The Owl And the Pussycat. Eftir What’s Up Doc? og Up the Sandbox fékk hún aðra óskarsverðlaunatilnefn- ingu sina fyrir The Way We Were. í kjölfarið komu For Pete’s Sake og Funny Lady. Næsta mynd hennar var jafnframt frumraun hennar sem Barbra Streisand er framleiöandi, leikstjóri og aðalleikkona myndar- innar The Mirror Has Two Faces. lramleiðandi, en það var hin vin- sæla A Star is Bom, sem aflaði henni jafnframt óskarsverðlauna fyrir lagið Evergreen. Þá komu The Main Event og All Night Long og erum við nú komin inn í níunda áratuginn. Árið 1984 var fyrsta leik- stjórnarverk hennar, Yentl, tilnefnd * til fimm óskarsverðlauna, en ásamt því að leikstýra framleiddi hún, lék aðalhlutverkið, samdi tónlist í henni og söng. Þremur árum síðar lék hún i Nuts, en 1991 gerði hún The Prince of Tides og enn hélt hún á öllum spöðunum sem leikstjóri, framleiðandi og aðalleikkona. Eftir fimm ára biö eftir næsta verki hennar kom The Mirror Has Two Faces loks í kvikmyndahús í fyrra og kemur nú út á myndbandi i næstu viku. PJ <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.