Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1997, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1997, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997 Fréttir Óánægja vegna dragnótaveiða á Önundarfirði: Rúsla lífríkið í firðinum - segir Pétur Þór Hafþórsson trillusjómaður DV, Flateyri: „Ég sætti mig ekki við að þessir bátar fái að veiða hér uppi í kart- öflugörðum. Þeir rústa lífríkið í firðinum með þessum veiðum," seg- ir Pétur Þór Hafþórsson, trillusjó- maður á Flateyri, um veiðar nokk- urra dragnótabáta örskammt undan landi á Önundarfirði. Mokveiöi Bátarnir hafa mokveitt ýsu, kola og lúðu. Landað hefur verið allt að 5 tonnum eftir daginn. Flateyringar hafa margir hverjir séð þá út um glugga sína. „Það er grátlegt að horfa á þessar veiðar út um gluggann heima. Ég hef grun um að einhverjir þeirra hendi þorskinum þó ég geti ekki sannað það. Það liggur þó fyrir að þorskurinn er horfinn hér úr firðin- um. Þá vekur það athygli mína að þeir landa litlu af þorski en því meira af ýsu og öðrum tegundum. Fólk hér er almennt mjög óánægt með þetta,“ segir Pétur. Hann vill að gripið verði til ráð- stafana til að forðast meira tjón en orðið er. „Það þarf að loka firðinum fyrir þessum veiðiskap sem kominn er út í öfgar. Þetta er ekkert annað en skemmdarverkastarfsemi," segir Pétur. Þeir dragnótamenn sem DV ræddi við vísa því algjörlega á bug að skaði sé vegna veiðanna. Þeir segja að þvert á móti hressi þetta lif- ríkið við þar sem dragnótin róti upp æti af botninum. -rt Vegurinn frá Reykholti að Geysi nær ófær: I raun lífshættulegur - segir Marta Gísladóttir á Heiði - breyta þarf áherslum, segir Guðni Ágústsson „Þetta er í raun moldartroðningur með nokkrum steinum á en kallaður vegur. Enda er það svo að slys á þessum 12 kílómetra kafla eru ótrú- lega tíð og við teljum veginn lífs- hættulegan. Það er ekki bara að fólk sé orðið svo vant malbikuðum veg- um að það eigi erfitt með að aka mal- arvegi heldur er það nær bjargar- laust þegar það kemur á svona hryll- ing,“ sagði Marta Gísladóttir á Heiði í Biskupstungum í samtali við DV. Hún og aðrir íbúar á svæðinu frá Reykholti að Geysi hafa afhent þingmönnum Suðurlandskjördæmis bréf þar sem skorað er á þá að vinna að því að hafist verði handa við að setja varanlegt slitlag á veg- inn. „Ég skil vel áhuga manna á þess- ari vegagerð í Biskupstungum enda um fjölfarinn veg að ræða. Ég á von á því að í haust verði hafist handa við varanlega vegagerð upp fyrir Heiði. Hins vegar koma kröfurnar viða að. Við eigum ekki veg með varanlegu slitlagi að Þingvöllum. Auðvitað þarf að breyta áherslum í vegamálum. Á meðan menn eru að tala um rugl eins og veg með varan- legu slitlagi yfir Möðrudalsöræfi, fyrir hundruð milljóna, eða bora göt í gegnum fjöll í fámenninu, fæst ekki fjármagn i mikilvægar fram- kvæmdir við vegi þar sem hálf þjóð- in og flestir ferðamenn, sem til landsins koma, fara um,“ sagði Guðni Ágústsson, þingmaður Sunn- lendinga, í samtali við DV um þetta mál. „Þessi ómalbikaði kafli frá Reyk- holti að Geysi er einn fiölfarnasti vegur landsins. Nær allir ferða- menn, innlendir sem erlendir, sem koma að Gullfossi og Geysi, fara þennan veg. Segja má að það sé orð- ið algilt að fólk fari hringinn sem þama býðst, það er að koma Laug- arvatnsleiðina og fara þessa leið til btika eða öfugt. Við teljum að ástand þessa vegarkafla verði að bæta. Veg- hefill kemur stöku sinnum og hefl- ar. Hins vegar er aldrei borið í veg- inn þannig að hann versnar bara við að vera heflaður," sagði Marta Gísladóttir. -S.dór Þyrla varnarliðsins hefur aðstoöað við að færa neyðarskýli Slysavarnafé- lagsins ó Vestfjörðum. DV-mynd Haukur Már Þyrla varnarliösins: Færði neyðarskýli Þyrla varnarliðsins hefur undan- farna daga aðstoðað við að færa neyð- arskýli Slysavamafélagsins á Vest- fiörðum. Á sunnudag færði þyrlan neyðar- skýlið á Látrum í Aðalvík. Það var fært frá brekkunni og á betri stað þar skammt frá. Litlu munaði þó að illa færi þegar skýlið var komið í rúmlega eins metra hæð. Þá slitnuðu bönd, sem festu það við þyrluna, með þeim afleiðingum að það féll til jarðar. Eng- ar skemmdir urðu þó á skýlinu. Þá var neyðarskýli á Sandeyri snú- ið á mánudag, því að hurðin sneri upp í ríkjandi vindátt en er nú í skjóli. -RR Pétur Þór Hafþórsson, smábátasjómaður á Flateyri, er mjög óánægður með veiðar dragnótabáta á Önundarfirði. Hann er hér með einn slíkan í baksýn. DV-mynd Róbert Reynisson Endurbætur á Tý: Verið að auka öryggi áhafnar og skips - segir forstjóri Landhelgisgæslunnar „Það er fyrst og fremst verið að auka öryggi áhafnar og skips,“ seg- ir Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, um end- urbætur sem orðið hafa á varðskip- inu Tý. Varðskipið kom til landsins í fyrradag frá Póllandi, þar sem tals- verðar endurbætur voru gerðar á skipinu. Lokað var göngum og aft- urþilfari undir þyrlupalli skipsins. Við það skapast aukið öryggi fyrir áhöfnina við störf á afturþilfari og tekur skipið engan sjó inn á sig þar sem áður var talsverð hætta. At- hafnasvæðið verður auk þess mun stærra en áður var. Þyrlulendingar á skipinu verða nú öruggari og auð- veldari. Útsýnisturni skipsins hefur einnig verið breytt. Sett var radar- kúla á skipið en við það eru radar og loftnet varin fyrir ísingu og hvassviðri. -RR Talsveröar endurbætur hafa veriö geröar á varðskipinu Tý. Þaö kom til landsins í fyrradag frá Póllandi. DV-mynd S „ Þýskaland Obreyttir vextir Seðlabanki Þýskalands breytti ekki vöxtum á morgunfundi bankans í fyrradag og eru þeir áfram 3%. Strax eftir fundinn veiktist gengi marksins lítillega en náði að rétta aft- ur úr kútnum, að því er segir i frétt frá viðskiptastofu íslandsbanka. Dollar hefur styrkst verulega frá áramótum gagnvart markinu og virð- ist ekki lát þar á. 1. júlí sl. var dollar- inn jafngildur 1,75 mörkum en er nú kominn í 1,86 mörk. Hlutabréfavísitölur lækkuðu í fyrradag og vó þar þyngst 14% lækkun á gengi hlutabréfa i Skeljungi hf. Skeljungur hf. lagði nýlega fram hálfs árs uppgjör en samkvæmt því er hagn- aður helmingi lægri en á sama tíma í fyrra. Fleiri fyrirtæki leggja nú fram hálfs árs uppgjör og er búist við aö niðurstöðurnar hafi áhrif á gengi hlutabréfa í þeim í kjölfarið. -SÁ Eimskip Þing. hlutabréfa 3500 3250 Síldarvinnslan Flugleiðir Olís Tæknival 20, 15 ;; V:: 5 stig M J J 1550 114

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.