Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1997, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997
7
DV Sandkorn
Pappakassarnir
Á ísafirði er gefið út blað sem
heitir BB. Menn þar á bæ reiddust
vegna frétta DV á dögunum af fólks-
flótta af
Vest-
fjörðum.
Þeir
viður-
kenna
aö fólk
sé að
flytja í
burtu
en segja
aö fólk sé líka að koma i staðinn.
Samt er það svo að hvergi er pappa-
kassa aö fá fyrir vestan til að pakka
búslóðinni niður. Þess vegna var í
vikunni sendur bíil með farm af
pappakössum til ísaijarðar. Því
vaknar sú spurning hvort þess hafi
verið þörf ef allur þessi fjöldi er að
flytja til ísafjarðar eins og ráða-
menn segja. Mætti ekki einfaldlega
tvinýta pappakassana. Flytja fyrst i
þeim búslóðir vestur og síðan bú-
slóðir í þeim að vestan. Vantar
samt kassa?
Bakhliðin
í Austra segm frá því að mikið
hafi gengið á í sumum bæjarfélög-
um á Austurlandi í sumar. Sum
hafi átt afmæli
og önnur haldið
mannfagnaði af
ýmsum gerð-
um. Forseti lýð-
veldisins hafi
komið i heim-
sókn til afmæl-
isbæja og
íbúarnir reynt
allt sitt til að
gera bæjarfélög-
in sem snyrti-
legust. Þannig
hafa einhverjir málað húsin sín og
þá kannski bara forsetahliðina en
það er hliðin sem sést frá götunni.
Ekki alls fyrir löngu sáust betri
hjón á Egilsstöðum vera á kafi við
að mála bakhlið húss síns. Ná-
granninn kom að og var svona hálft
í hvoru undrandi, vissi að um vorið
hafði forsetahliðin verið máluð.
Hann spurði því í sakleysi sínu
hvað nú stæði til, hvort einhver
heimsókn væri i vændum. „Jú,“
svaraði frúin, „nú er vetur konung-
ur væntanlegur.“
Að sigra leikinn
Meðan menn enn reyndu að
vanda málfar í fjölmiðlum var það
ævinlega harðlega gagnrýnt ef
íþróttafrétta-
menn not-
uðu orðið
keppnií
fleirtölu og
sögu keppn-
ir. Nú er
þessi mál-
villa orðin svo algeng að fólk virðist
hætt að taka eftir henni og gagn-
rýnin er hljóðnuð. Hjá RÚV er ný-
byrjaður ungur íþróttafréttamaður
af Schram-ættinni. Að sjálfsögðu
talar hann alltaf um keppnir en það
sem verra er; hann segir ævinlega
að þetta eða hitt „liðið hafi sigrað
leikinn," eða að „liðið hafi sigrað
keppnina." Sennilega er enginn
málfarsráðunautur lengur starfandi
hjá RÚV því í tölvu- og inter-
netspoppþætti á rás 2 á sunnu-
dögum kveður stjómandinn hvern
viðmælenda sinn ævinlega með orð-
unum „bæ, bæ,“ „ókey, sí jú,“ eða
„ókey, bæ, bæ.“ Og á Aðalstöðinni
sagði kvöldplötusnúður að það væri
kveðja til hans „Örns sem væri far-
inn til Akureyris.“
.©
iriVARPIÐ
Allt er hljótt og
engin styggð
Enda þótt margir fáist við að
yrkja vísur nú til dags hefur þeim
fækkaö sem leika sér að hring-
henduforminu,
hvaö þá að gera
það vel. Ágústa
Ósk Jónsdóttir,
umsjónarmaöur
vísnaþáttar í
Austra, er góð-
ur hagyröingur.
Hún dvaldi i
Brúsabyggð, or-
lofshúsi Bænda-
samtakanna á
Hólum í Hjalta-
dal, í sumar og
orti eftir kvöld-
göngu í skógarreit hjá byggðinni:
Allt er hljótt og engin styggð,
eflaust rótt í bólum
sefur drótt i Brúsabyggð
um bjarta nótt á Hólum.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson
Fréttir
Prestsmál íslendinga í Noregi:
Undirskriftasöfnun
að fara af stað
- bíð eftir gögnum frá Noregi, segir séra Ólafur Skúlason biskup
„Við höldum fund á morgun þar
sem við munum taka endanlega af-
stöðu og senda okkar gögn um mál-
ið til biskups íslands," sagði Þór-
hallur Guðmundsson, formaður ís-
lenska safnaðarins í Noregi, um
prestsmál safnaðarins en biskup
mun skipa í prestsembættið í Nor-
egi að fengnum gögnum frá söfnuð-
inum í Noregi.
Samkvæmt heimildum DV eru
einhverjir famir af stað með undir-
skriftalista í Noregi. Þar er skorað á
biskup að skipa séra Sigrúnu Ósk-
arsdóttur í embættið. Þeir sem eru
með listana í gangi telja að biskup
ætli að skipa séra Öm Bárð Jónsson
í embættið. Þetta er greinilega afar
viðkvæmt mál hjá íslendingunum í
Noregi. Hvorki Þórhallur né Rósa
Ásgeirsdóttir, sem sæti á i safnaðar-
stjórn, vildu tjá sig um þetta mál
fyrr en eftir fundinn í kvöld.
„Það hefur hringt til mín fólk frá
Noregi til að mæla með séra Sig-
rúnu Óskarsdóttur. Ég get því mið-
ur ekki tekið mark á slíkum upp-
hringingum. Ég hef hins vegar ekk-
ert fengið frá þeim mönnum sem
eru í forsvari fyrir íslenska söfnuð-
inn í Noregi nema símtöl. Ég hef
fyrir löngu beðið um að fá frá þeim
gögn til þess að ég geti gengið frá
skipuninni en ekkert fengið. Ég
mun ekki skipa í embættið fyrr en
ég hef fengið þessi gögn,“ sagði séra
Ólafur Skúlason biskup í samtali
við DV í gær.
Hann sagði að forsvarsmenn safn-
aðarins í Noregi hefðu staðið mjög
fagmannlega að því að kynnast um-
sækjendum um embættið. Fengið
var ráðgjafarfyrirtæki í Ósló, sem
unnið hefur fyrir kirkjuna og stórar
stofnanir, til að ræða við þá þrjá
umsækjendur sem safnaðarforystan
hafði valið úr hópi sex umsækjenda.
Þeir höfðu áður fengið sendar um-
sóknir sexmenninganna að heiman.
Síðan völdu þeir þrjá úr hópnum.
Ráðgjafarfyrirtækið gaf hverjum og
einum einkunn sem safnaðarstjóm-
in er enn með. Síðan ræddi stjórnin
við umsækjendurna í marga
klukkutíma.
„Það eru gögnin frá þessum fund-
um öllum sem mig vantar að fá og
bíð eftir,“ sagði séra Ólafur Skúla-
son.
-S.dór
30 daga „Draumaferð“ íshesta um hálendið:
Kynntumst allri íslensku
„veðurflórunni"
- segir Einar Bollason leiðangursstjóri
Hluti þátttakenda í „Draumaferð 2“ á vegum íshesta. Myndin er tekin þegar
hópurinn kom á Akureyrarflugvöll og hélt austur í Þingeyjarsýslur til að
hefja síðasta áfanga ferðarinnar sem nú stendur yfir en þá er riðið yfir
Sprengisand. Einar Bollason er aftastur á myndinni. DV-mynd gk
DVi Akureyri:
„Ferðin hefur gengið afskaplega
vel. Við höfum að vísu fengið yfir
okkur alla íslensku veður„flóruna“,
fengum 2 stiga hita og haglél þegar
við riðum undir Oki og 27 stiga hita
þegar við vorum á ferðinni í Húna-
vatnssýslum," segir Einar Bollason,
eigandi íshesta ehf. og leiðangurs-
stjóri i „Draumaferð 2“ á vegum fyr-
irtækisins sem nú stendur yfir.
Ferðin er farin í tilefni af 15 ára
afmæli fyrirtækisins og er „Drauma-
ferðin" 30 daga hestaferð um þrjá
stærstu hálendisvegi landsins, Árn-
arvatnsheiði, Kjöl og Sprengisand.
Ferðin hófst 2. ágúst og lýkur um
mánaðamótin næstu. Þátttakendur í
ferðinni eru 25 talsins og þar af eru
19 erlendir hestaáhugamenn sem
koma frá Þýskalandi, Hollandi,
Sviss, Noregi og Englandi. í ferðinni
eru notaðir alls 200 hestar. Tólf af er-
lendu þátttakendunum tóku einnig
þátt í fyrri „Draumaferð" íshesta
sem farin var 1993 en þá var riðið eft-
ir endilöngu landinu frá Hellissandi
að Reyðarfirði.
Allir komið áður
„Erlendu þátttakendumir í ferð-
inni eru allir þrautreyndir hesta-
menn og hafa allir farið í ferðir á
vegum íshesta áður, sumir þeirra
reyndar mörgum sinnum áður,“
segir Einar Bollason. „Sá sem oftast
hefur komið í ferðir með okkur af
þessu fólki er t.d. í sinni 17. ferð
með íshestum. Þessi ferð sem við
förum núna er lengsta ferð á vegum
íshesta frá upphafi, einum degi
lengri en ferðin 1993.“
Mikil umsvif íshesta
íshestar ehf. er verktakafyrir-
tæki sem er með bækistöðvar á 9
stöðum í öllum landsfjórðungum og
eru um 1300 hestar notaðir á hverju
ári á vegum fyrirtækisins. „Við
erum að taka á móti 6-7 þúsund
manns á ári i alls kyns ferðir og þar
af eru um 1000 erlendir hestamenn
sem fara með okkur í 70 ferðir sem
segja má að séu lengri ferðir. Hinar
ferðimar eru allt frá nokkurra
klukkustunda ferðum og upp í dags-
ferðir,“ segir Einar Bollason.
Hjá íshestum starfa á sumrin við
fararstjóm og skrifstofuhald um 20
manns. Þar fyrir utan eru 40-50
manns sem starfa við annað, s.s.
umhirðu hesta, matseld og annað
sem viðkemur ferðum á vegum fyr-
irtækisins. íshestar er fjölskyldufyr-
irtæki í eigu Einars Bollasonar og
fiölskyldu hans. -gk
40% afsláttur
af þykkum flíspeysum
og stórum bakpokum
Cortina Sport
Skólavöróustíg 20
Sími 552 1555
Allt upppantað í
ágúst, nokkrir
tímar lausir seint
í september.
Myndataka, þar sem þú ræður
hve stórar og nve margar myndir
þú færð, innifalið ein stækkun
30 x 40 cm í ramma.
kr. 5.000
Þú færð að velja úr 10 - 20
myndum af bömunum og þær
færðu með 50 % afslætti frá
gildandi verðskrá ef þú pantar
þær strax.
Sýnishorn af verði:
13 x 18 cm í möppu kr. 1.100
20 x 25 cm í möppu kr. 1.550
30 x 40 cm í ramma kr. 2.300
Hringdu á aðrar
Ijósmyndastofur og kannaðu
hvort þetta verð á stækkunum
er ekki lægsta verðið á landinu.
Tilboðið gildir aðeins
í ákveðinn tíma.
Ljósmyndastofan Mynd
sími: 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími: 554 3020
✓
Odýrari
allt að
50%
og raftækjum
afsláttur
Cj^iji^tir Izoma (fiji'Atir fál
Greiöslukjör við allra hæfi
Wð erurn t n*5*3 hUS' V,ð 'kfcq
(^r
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR
hernsendngaípjtSnusta þjónusta viögaöaíþjónusta
RflFTítKMPERZUIN ÍSLflNDS If
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
5