Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1997, Page 15
14
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997
43
Iþróttir
Ofurtilboð
í Beckham
Spænska stórliðið Barcelona
hefur gert hosur sínar grænar
fyrir David Beckham, miðvallar-
leikmanni meistara Manchester
United.
Barcelona er að leita fyrir sér
aö sterkum leikmanni eftir að
Ronaldo hvarf á braut og hefur
nú að sögn enskra fjölmiðla boð-
ið United 16 milljónir punda i
Beckham.
„Beckham er tvímælalaust
einn besti knattspyrnumaður
heims um þessar mundir og
mjög stórt nafn. Barcelona er
líka mjög stórt félag sem alltaf
reynir aö ná til sín bestu knatt-
spymumönnum heims hverju
sinni,“ sagði einn af forráða-
mönnum Barcelona i gær.
Það þarf varla að taka það
fram að Alex Ferguson hefur
ekki hlustað á tilboð Barcelona
og Beckham, sem skrifað hefur
undir fimm ára samning við
United, er ekki til sölu. Málið er
ekki flóknara en það.
-SK
Faldo vill
borga símtalið
Breski kylfingurinn Nick
Faldo er orðinn óþolinmóður og
vill fá að vita hvort hann verður
valinn í úrvalslið Evrópu sem
mætir Bandaríkjunum í keppn-
inni um Ryder bikarinn.
Faldo hefúr sent fyrirliða Evr-
ópuliðsins, Spánverjanum Sever-
iano Ballesteros, tóninn og skil-
ur ekki hvers vegna hann er
ekki búinn að láta hann vita um
niðurstöðuna. Tveimur sætum
er enn óráðstafað í Evrópuliðinu
og Faldo hefur ekki enn verið
valinn. „Ég skil ekki af hverju
Ballesteros getur ekki hringt í
mig. Ég skil að hann vilji halda
valinu á liðinu leyndu fyrir al-
menningi fram á síðustu stundu.
Jarðarbúar eru um 7 milljarðar
og af hverju skyldi hann ekki
geta sagt mér hvert val hans er.
Skiliði því til Ballesteros að
hringja í mig. Ég skal borga sím-
talið,“ sagði Faldo við blaöa-
menn. Ballesteros velur liðið á
sunnudag. Verði Faldo fyrir val-
inu verður það í 11. skipti sem
hann keppir í Ryder bikamum
sem verðm- um leið nýtt met.
-SK
Dalglish vill
ekki hafa
áhorfendur
Áhorfendur mega ekki lengur
horfa á æflngar hjá toppliði
Newcastle 1 enska boltanum.
Kenny Dalglish, stjóri liösins,
tók þessa ákvörðun og hefur hún
ekki mælst vel fyrir meðal
stuðningsmanna liðsins sem
margir hverjir eru ákaflr í meira
lagi.
Ef Dalglish gerir alvöru úr því
að vísa stuðningsmönnum liðs-
ins frá æfingum er víst að hann
skapar sér litlar vinsældir. For-
veri hans hjá Newcastle, Kevin
Keegan, leyfði áhorfendum alltaf
að fylgjast með æfingum liðsins
og féll þaö í mjög góðan jarðveg
hjá stuðningsmönnunum.
-SK
Midaráleik
Chelsea-Arsenal
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn
getur útvegað 20 miða á leik
Chelsea og Arsenal í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu
sem fram fer laugardaginn 20.
september. Nánari upplýsingar
eru hjá Úrvali-Útsýn í s. 569-9300.
Úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu:
Mikilvægur sigur ÍBV
í botnbaráttunni
Unnum umferðina
með jafnteflinu
„Við erum á réttri leið og þessi
sigur var mjög mikilvægur fyrir
okkur í botnbaráttunni, sem við
ætluðum okkur alls ekki að standa
í. Við ætluðum okkur mun meiri
hluti og við erum vonandi á mikilli
uppleið núna,“ sagöi Erna Þorleifs-
dóttir, leikmaður ÍBV, eftir sigur á
Stjömunni, 0-3, í Garðabænum.
Leikurinn bar þess merki að
þarna fóru tvö af botnliðum deildar-
innar, en Vestmannaeyingar voru
mun ákveðnari í öllum sinum að-
gerðum og náðu Stjömustúlkur
aldrei að sýna hvað í þeim býr.
Bryndís Jóhannesdóttir skoraði
fyrsta mark ÍBV á 29. mínútu eftir
að vöm Stjömunnar hafði mistek-
ist að hreinsa frá marki og Bryndís
bætti við öðm marki á 61. mínútu
eftir homspyrnu. Eva Sveinsdóttir
innsiglaði síðan sigurinn á 66. min-
útu eftir góða sókn.
Með sigrinum er ÍBV komið í
fimmta sæti deildarinnar og hefur
skilið Hauka, Stjömuna og ÍBA eft-
ir í fallbaráttunni. Joan Nilson var
best í liði ÍBV en hjá Stjömunni var
það helst Sigríður Þorláksdóttir
sem lék af eðlilegri getu.
Annað eftir bókinni
Á Akureyri sigraöi Valur ÍBA,
3-0. Ásgerður H. Ingibergsdóttir
skoraði tvö mörk fyrir Val og Berg-
þóra Laxdal eitt en öll mörkin voru
skoruð í síðari hálfleik.
KR-ingar era enn ósigraðar í
deildarkeppninni og það breyttist
ekki í gær þegar ÍA kom í heimsókn
í vesturbæinn. KR sigraði 3-0, eftir
að staðan hafði veriö 2-0 í hálfleik.
Olga Færseth skoraði tvívegis og
Hrefna Jóhannesdóttir einu sinni.
í Hafnarfirði tóku Haukastúlkur
á móti nýbökuðum bikarmeisturum
Breiðabliks. Blikastúlkur gáfu
heimamönnum ekkert eftir og unnu
sannfærandi 4-0 sigur með mörkum
frá Ki'istrúnu L. Daðadóttur, sem
skoraði tvö mörk, og þær Erla
Hendriksdóttir og Helga Ósk Hann-
esdóttir skoruðu sitt markið hvor.
KR-stúlkur halda því öraggri for-
ystu i Stofndeildinni en Breiðablik
heldur enn í vonina um að halda ís-
landsmeistaratitlinum í Kópavogi.
Úr því fæst ekki skorið fyrr en 3.
september þegar þessi tvö lið mæt-
ast í síðari umferðinni í Kópavogi.
KR 11 10 0 0 45-4 33
Breiðablik 11 10 0 1 51-13 30
Valur 11 7 0 4 32-22 21
ÍA 11 3 2 6 9-20 11
ÍBV 11 3 1 7 16-24 10
Stjarnan 11 3 0 8 15-30 9
Haukar 11 3 0 8 12-33 9
ÍBA 11 2 1 8 12-46 7
Siguröur Örn Jónsson og Brynjar Gunnarsson eiga hér í höggi viö einn sóknarmann OFI í leik liöanna á Krít í gær þar sem heimamenn fögnuöu sigri, 3-1, og komust
þar meö áfram í Evrópukeppni félagsliöa en KR-ingar eru úr leik.
Símamynd Reuter
í Reykjavík
- sagði þjálfari OFI eftir leikinn
DV, Krít:
„Við áttum í smávandræðum í
fyrri hálfleik og spiluðum heimsku-
lega. Skipulagið á liðinu þá var ekki
nógu gott. Seinni hálfleikur var
hins vegar okkar eign frá upphafi
til enda og sigur okkar sannfær-
andi. Ég er þó ekki nægilega ánægð-
ur með mína menn. Þeir gerðu of
mikið af tæknilegum mistökum sem
verður að laga hið snarasta. KR-lið-
ið kom mér ekkert á óvart. Ég vissi
það að þeir yrðu að sækja eins og
við. Þetta er gott lið en þessi leikur
var okkar. Ég segi það enn og aftur
að við unnum þessa umferð með því
að ná jafntefli í Reykjavík," sagði
Gerhard Eugenios," hinn hollenski
þjálfari OFI, við DV eftir leikinn.
Þeir voru miklu betri en viö í
kvöld
„Þeir voru bara hreinlega betri
en við í þessum leik. Við klúðrað-
um þessu heima með því aö ná þar
ekki sigri. Við sýndum ekki það
sem við getum í þessum leik. Mér
fannst þetta allt í lagi fram að fyrsta
marki þeirra en þá kom alveg
hræðilegur kafli af okkar hálfu. Við
virtumst svo aðeins ná áttum og
yorum heppnir að setja á þá mark
en svo var seinni hálfleikurinn auð-
vitað arfaslakur. Við þurftum að
breyta um leikskipulag, náðum eng-
um tökum á miðjunni og svo sló vít-
ið okkur alveg út af laginu. Við lent-
um í meiðslum í seinni hálfleik,
þeir pressuðu okkur stíft og mér
fannst í seinni hálfleik þetta bara
orðin spurning um það hvemig við
slyppum frá þessu. Þeir vora bara
miklu betri en viö í kvöld,“ sagði
Haraldur Haraldsson, þjálfari KR,
við DV eftir leikinn.
Halda haus og ná Evrópu-
sæti aftur
„Leikurinn heima skipti sköpum.
Hefðum við klárað færin þar hefð-
um við verið í mun betri málum
hér. Þeir spiluðu hratt og létu bolt-
ann ganga vel og þeir áttu sigurinn
skilinn i þessum leik. Það var erfitt
að vera þarna einn frammi gegn
þremur til fjórum vamarmönnum.
Ég er búinn að vera með einhveija
bölvaða magakveisu undanfarið og
lítið getað borðað en maður var þó
að gera sem maður gat. Nú er bara
að fara heim og halda haus og ná
aftur Evrópusæti. Ef við náum því
ekki er þetta tímabil alveg farið í
vaskinn enn og aftur hjá KR-lið-
inu,“ sagði Andri Sigþórsson, við
DV eftir leikinn.
Öflug gæsla
KR-liðið fór í lögreglufylgd á völl-
inn og stuðingsmenn þess. Mikill
viðbúnaður var á vellinum og
hundrað lögreglumanna umkringdu
innganginn að vellinum. Það voru
þónokkur læti þegar KR liðið mætti
til leiks og lögreglan þurfti að
stugga æstum stuðningsmönnum
OFI frá. -ÖB
ffcjt ENGLAND
Liverpool vann sinn fyrsta sigur í
ensku úrvalsdeildinni í gær þegar lið-
ið lagði Leeds á útivelli, 0-2. Steve
Mcmanaman skoraði fyrra markið á
23. minútu með laglegu skoti og Þjóð-
verjinn Karl Heinz Riedle opnaði
markareiking sinn fyrir Liverpool
þegar hann skoraði síöara markið á
75. mínútu.
Helstu úrslit i síðari leikjum 1.
umferð deildabikarkeppninnar:
Draumur inn
úti
- enginn titill i vesturbæinn þetta árið eftir 3-1 tap KR fyrir OFI á Krít
DV, Krit:
Eftir leik KR-inga hér á Krít
gegn heimamönnum í OFI er
ljóst að enn um sinn verður
bið á þvi að íslenskt lið komist
í gegnum 2. umferð í Evrópu-
keppni. Eftir markalaust jafn-
tefli í Reykjavík þar sem KR-
ingar heföu hæglega getað
pakkað Grikkjunum saman
snerist dæmið alfarið við á
troðfullum leikvangi Krítverja.
Heimamenn höfðu ham-
skipti frá því sem áður var og
mættu geysilega grimmir og
ákveðnir til leiks. Að sama
skapi vora skref KR-inga þung
og ekki nægilega markviss svo
Krítverjar áttu ekki í miklu
basli með að innbyrða 3-1 sig-
ur og senda því vesturbæinga
heim með sárt enniö.
Fjörleg byrjun
Leikurinn í gærkvöld byrj-
aði fjörlega enda æstur áhorf-
endafjöldinn búinn að kynda
vel upp. KR-ingar áttu ágætis
spretti í byrjun en það vora
samt heimamenn sem gáfu
tóninn með marki strax á 10.
mínútu. Við þaö virtist KR-lið-
ið missa taktinn og má segja
að þeir hafi ekki náð honum
aftur það sem eftir var leiks.
Hilmar Björnsson náði þó rétt
fyrir leikhlé að þagga niður í
heitum stuðningsmönnum
OFI-liðsins um stundarsakir
með góðu marki eftir lipra
sókn. Leikar stóðu því 1-1 í
hálfleik.
Heimamönnum brugðiö
þegar Hilmar skoraöi
Það var ljóst á heima-
mönnum að þeim var nokkuð
brugðið við mark KR-inga.
Þeir héldu þó sínum takti þeg-
ar síðari hálfleikur hófst og
voru mjög svo taktvissir allt til
loka. Grikkimir tóku öll völd á
miðjunni og pressuðu stíft á
KR-vömina sem framan af
náði að verjast nokkuð fim-
lega. Sóknarþungi Grikkjanna
var mikill og að lokum varð
eitthvað undan að láta. OFI-
menn bættu við tveimur mörk-
um og slógu af öryggi síðustu
naglana í kistu KR-inga sem
var send heim með 3-1 tap í
farteskinu.
Gjörbreytt liö
Grikkjanna
OFI-liðið frá Krít var gjör-
breytt frá því í fyrri leiknum í
Reykjavík og sannaði þar að
heimavöllur þeirra er mikil-
vægur. Grikkirnir spiluðu
hratt og ákveðið, höfðu taum-
inn í sínum höndum mestallt-
an leikinn.
Ekki kvöld KR-inga
Gærkvöldið var hins vegar
ekki kvöld KR-liðsins. Leik-
menn náðu ekki að gera þá
hluti sem lagt var upp með og
virtust hreinlega ekki hafa út-
hald til að fylgja griska liðinu
eftir að þessu sinni. KR-ingar
eru hins vegar fjarri því að
vera fyrsta liðið til að tapa í
þessari ljónagryfu á Krít. Það
hafa lið eins og Atletico Ma-
drid og Olympiakos orðið að
þola líka.
Hafa stimplaö sig á kort-
iö
KR-liðið getur því með sanni
borið höfuðið hátt eftir þátt-
töku sína í þessari keppni. Það
er búið að stimpla sig rækilega
á kortið í Evrópuknattspym-
unni og þaö letur verður ekki
máð í burtu á næotunni.
-ÖB
Lúðvík til Noregs
- hefur verið boðinn 3ja ára
Knattspymumaðurinn Lúðvik
Jónsson úr Stjömunni er að öllum
líkindum á leið í norsku knatt-
spyrnuna. Honum hefur verið boð-
inn þriggja ára samningur við
norska úrvalsdeildarliðið Tromsö
og norsku meistaramir í Rosen-
borg, yfirburðaliði i Noregi til
margra ára, eru einnig með Lúðvík
í sigtinu. Lúðvík hefm- æft með
báðum félögunum í vikunni. For-
ráðamenn Tromsö buðu honum
samning um leið og hann á fund
með forráðamönnum Rosenborg á
morgun.
„Það er nær öraggt að ég spila i
samningur við Tromsö og ra
Noregi og það er aðeins spumig
með hvaða liði ég verð. Mér var
boðið að koma út til Tromsö og
æfði með liðinu í tvo daga og er
með samning í höndunum frá fé-
laginu sem mér líst vel á. Ég æfði
með Rosenborg í síðustu viku og
það hefur óskað eftir fundi með
mér á fimmtudaginn. Eggen, þjálf-
ari Rosenborg, var mjög jákvæður
í minn garð og ég ræði við hann
betur á fimmtudag. Ef tilboð kem-
ur frá Rosenborg þarf ég að skoöa
málin. Rosenborg er frábært lið og
vissulega yrði erfiðara að komast
þar að en hjá Tromsö sem vantar
ir við Rosenborg á morgun
mann í mína stöðu. Ég ætlaði til
Noregs til að læra en ekki spila fót-
bolta en hlutimir era fljótir að
breytast. Ég gæti byrjað að spila
strax með Tromsö þar sem félagið
skráði nafn mitt áður en fresturinn
til að skipta um félag rann út.
Núna bíður maður bara spenntur
eftir fundinum með Rosenborg,"
sagði Lúðvík við DV í gær.
Norskir ijölmiðlar hafa fylgst
meö málinu og hafa meðal annars
líkt Lúðvik við norska
landsliðsmanninn Ronnie Johans-
sen, leikmann Manchester United.
-GH
Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur hér betur í skallaeinvígi gegn einum
sóknarmanna OFI á Krít í gærkvöld. Stmamynd Reuter
Bamet-Norwich............3-1 (4-3)
Bristol Rovers-Bristol C . . 1-2 (1-2)
Grimsby-Oldham...........5-0 (5-1)
Ipswich-Charlton.........3-1 (4-1)
Leyton Orient-Brighton ... 3-1 (4-2)
Man.City-Blackpool.......1-1 (1-1)
Blackpool vann I vítakeppni.
Watford-Swindon..........1-1 (3-2)
Stockport-Mansfíeld......6-3 (8-7)
Sheff.Utd-Wrexham........3-1 (4-2)
Luton-Colchester.........1-0 (1-0)
Hartlepool-Trenmere......2-1 (3-4)
Birmingham-Gillingham .. 3-0 (4-0)
Plymouth-Oxford..........3-5 (3-7)
Bumley-Lincoln ..........2-1 (3-2)
Carlisle-Chester..........3-0 (5-1)
Portsmouth-Peterbor .....1-2 (3-4)
Klára íslandsmótið með sæmd
- sagði Ríkharður Daðason sem lék í annað sinn á Krít
DV; Krít:
„Við náðum bara aldrei að
vinna okkur inn í leikinn
eins og við ætluðum að gera.
Við vissum það alveg að þeir
myndu leika hratt og pressa
en við náðum aldrei að
brjóta það upp og vorum
undir í baráttunni á miðj-
unni. Ég er mjög óánægður
með sjálfan mig þar sem ég
náði ekki að nýta gott færi,
ég ætlaði að skalla hann í
fjærhomið.
Búnir aö gera liöunum
greiða
En við þessu er ekkert að
gera. Nú er bara að fara
heim, klára íslandsmótið
með sæmd og ná Evrópu-
sæti. Við erum búnir að gera
alla vega íslensku liðum
mikinn greiða eftir þessa
keppni og safna mörgum
punktum í skrána í þeim hjá
í Evrópu," sagði Ríkharður
Daðason við DV eftir leikinn.
Ríkharður var eini leik-
maður KR sem leikið hafði á
þessum velli en hann lék
með Kalamata í grísku 1.
deildinni á síðustu leiktíð.
-ÖB
Kristján Finnbogason:
„Ekki nægjanlegt þol“
DV, Krít:
„Þetta var eins og maður bjóst við, nóg að
gera í markinu. Þeir komu af miklum krafti í
leikinn. Við vorum þó inn í leiknum í byrjun
en eftir annað markið þeirra höfðum við bara
einfaldlega ekki nægjanlegt þol til að fylgja
þeim eftir og því fór sem fór,“ sagði Kristján
Finnbogason, fyrirliði og markvörður KR-
inga, við DV eftir leikinn.
Kristján var besti maöur vallarins og
bjargaði sínum mönnum frá stærra tapi með
frábærri markvörslu.
Töpuöum þessu heima
„Já, þetta var frekar erfitt. Við áttum bara
í erfiðleikum allan leikinn. Við náðum að
vísu að jafna en kannski vorum við bara
svona drulluþreyttir. Við áttum bara að vinna
þetta heima. Það er engin spuming að við töp-
uðum þessu þar,“ sagði Brynjar Gunnarsson,
við DV, eftir leikinn.
-ÖB
Iþróttir
OFI (1)3
KR (1)1
1-0 Anastasiou (10.) fékk boltann
yfir til vinstri í vítateig KR einn og
óvaldur og skaut góðu skoti i fjærhomið.
1- 1 Hilmar Bjömsson (40.), fékk
boltann frá Ríkharði Daðasyni, lék
inn í teiginn og skoraði í fjærhornið.
2- 1 Mitic (65.), fékk háa sendingu
i vítateig KR, sneri Óskar Hrafn lag-
lega af sér og skoraði með bogaskoti í
homiö flær.
3- 1 Papadopoulos (70.) úr víti
sem dæmt var þegar Hilmar Björns-
son fékk þrumuskot í höndina.
Lið OFI: K.Haniotakis
P.Adamos, N.Papadopoulos,
G.Koutsoupias, K.Kiassoas
G.Anastasiou, N.Kounenakis,
A.Dedes (K.Staurakakis 46.),
N.Nioplias - N.Tsiadakis (A.Diara
89.), P.Mitic (Z.Riznic 82.).
Lið KR: Kristján Finnbogason -
Sigurðm- Öm Jðnsson, Þormóður Eg-
ilsson (Heimir Guðjónsson 46.),
Bjami Þorsteinsson, Ólafur Krist-
jánsson (Sigþór Júlíusson 72.) -
Hilmar Bjömsson, Óskar H. Þor-
valdsson, Brynjar Gunnarsson, Einar
Þór Danielsson (Þorsteinn Jónsson
68.) - Ríkharöur Daðason, Andri Sigþórs-
son.
Markskot: OFI 24, KR 8.
Horn: OFI11, KR 2.
Gul spjöld: Papadopoulos, Óskar,
Kristján, Andri.
Dómari: Bogdanov frá Búlgaríu,
hliðhollur heimamönnum.
Áhorfendur: Rúmlega 12.000 troð-
fullur vöilur.
Skilyrði: Yfir 20 stiga hiti, ágætur
völlur og trylltir áhorfendur.
Maöur leiksins: Kristján Finn-
bogason, KR. Bjargaði sínum
mönnum frá stærra tapaði með
r# 3. DEIID KARLA
^>4--------------------------
glæsilegri markvörslu.
8-liða úrslit, síðari leikir, sam-
anlögð úrslit í sviga:
Afturelding-Haukar .... 1-0 (4-0)
Ágúst Guðmundsson.
KS-Víkingur Ó1................3-0 (4-1)
Miraiem Hazeda 2, Haíþór Kolbeinsson.
Höttur-Tindastóll ......0-2 (0-4)
- Guðbrandur Guðbrandsson, Gunnar
Gestsson.
Ármann-Emir...................3-0 (5-5)
Arnar Sigtryggsson, Ásgrimur
Reisenhaus, Ólafur M. Magnússon.
Ármann áfram á útimarkareglu.
I undanúrslitum á laugardag-
inn leikur KS gegn Ármanni og
UEFA-BIKARINN
Afturelding gegn Tindastóli.
Wodzislaw-Volgograd .... 3-4 (3-6)
Dundee Utd-Trabzansspor . 1-1 (1-2)
Boby-Rapid Vín...........2-0 (3-6)
Poltava-Anderlecht .......0-2 (0-4)
Malmö-Hajduk.............0-2 (2-5)
Viking-Xamax.............2-1 (2-4)
Hapoel-Vejle .............1-0 (1-0)
C.Brúgge-Goricia.........3-0 (8-3)
Örebrö-Jablonec ..........0-0 (1-1)
Lilleström-Dinamo Minsk . 1-0 (2-0)
Dnjepr-Vladikavkaz.......1-4 (2-6)
Árhus-Ujpesti Dozsa ......3-2 (3-2)
Brann-Grasshoppers .......2-0 (2-3)
Sp.Trnava-Saloniki .......0-1 (3-6)
Moeskrone-Limasol........3-0 (3-0)
Celtic-Tirol .............6-3 (7-5)
Ferencvaros-Helsingborg .. 0-1 (1-1)
Ferencvaros áfram eftir vitaspkeppni.
OFI-KR ...................3-1 (3-1)
Siguröur Jónsson, Amór Guöjohn-
sen og Hlynur Birgisson léku allir
með Örebro og áttu góðan leik. Leik-
urinn var opinn og skemmtilegur
þrátt fyrir markaleysiö en Örebro
komst áfram meö markinu á útivelli.
-EH
Ágúst Gylfason lék allan timann
með Brann gegn Grasshoppers en
þrátt fyrir 2-0 sigur féll liöið úr
keppni þar sem liðið tapaði í Sviss, 3-0.
Toto-keppnin:
Auxerre-Duisburg..........2-0 (2-0)
Bratislava-Halmstad ......1-1 (2-1)
Lyon-Montpellier..............3-2 (4-2)
Guðrún fimmta
Guðrún Amardóttir hafnaði í
5. sæti í 400 metra grindahlaupi
á 4. og síðasta gullmótinu í frjáls-
um íþróttum í Berlín í gær. Tími
Guðrúnar var 55,31 sek. og kom
hún tæpum 2 sek. á eftir Deon
Hemmings frá Jamaíku sem
sigraði. -GH