Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1997, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1997, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1997 9 Utlönd Astarsagnahöfundurinn Barbara Cartland: Díönu prinsessu þyrsti í ást Breski ástarsagnahöfundurinn Barbara Cartland sagði í viðtali sem birtist í gær að sorgin sem almenn- ingur sýndi vegna fráfalls Diönu prinsessu myndi ekki verða til að auka gæfu bresku konungsfjöl- skyldunnar. „Gleymið konungdæm- inu. Við skulum ekki gleyma því að þessi fjölskylda er Þjóðverjar. Prinsessan af Wales var ensk en ekki þau. Við söknum hennar og enginn kemur í stað hennar," sagði Cartland meðal annars í viðtali við italska blaðið La Repubblica. Cartland var stjúpamma Díönu þvi dóttir rithöfundarins giftist foð- ur prinsessunnar. Að sögn Cartland leitaði Díana örvæntingarfullt að ást. „Díönu þyrsti alltaf í ást og hana fann hún í bókunum mínum. Hún trúði á ást og þráði ást. Hjarta hennar var yfir- fullt af ást.“ Dodi Fayed, ástmaður Diönu prinsessu, hafði gefið henni hring að verðmæti um 15 milljónir íslenskra króna aðeins nokkrum klukkustundum áður en þau létust bæði af völdum hörmulegs bílslyss. Þetta kemur fram í breska blaðinu Sun í dag. Blaðið greinir frá því að Þessi maður las dagblað á meðan hann beið eftir að rita nafn sitt í minningarbok um Díönu prinsessu í London. Símamynd Reuter. NILFISK HONNUÐ FYRIR ÞARFIR ATVINNUMANNSINS NILFISK GS90C - kjörin fyrir hótel og veitingahús, hreingerningafyrirtæki, skóla, skrifstofur og verslanir. AÐEINS KR. 24.980,- stgr. JFOniX HÁTÚNI6A REYKJAVlK SlMI 552 4420 Dodi hafi sjálfúr hannað hringinn og gefið Díönu hann er þau snæddu saman síðustu kvöldmáltíðina á Ritzhótelinu í París. Eftirspurn eftir minjagripum um Díönu er nú gífurleg í London. Sál- fræðingar segja að almenningur fái tengsl við prinsessuna með því að kaupa minjagripina. Reuter Fullmark Eccrjet Bleksprautuhylki og áfyllingar • Apple, Canon, • Epson og • Hewlet Packard prentara. • ISO-9002 aæSavottun á framleiSsíu. Mjög hagstætt verð. mM) i. ÁSTVfilDSSON HF. Sklpholti 33 105 Reykjavík Sími 533 3535 verulegum dag og á morgun ! BILAÞING HEKLU N O T A Ð I R B I L A R Allir fjármögnunarmöguleikar, m.a. 100% lán til 48 mánaða. LAUGAVEGI 174 •SIMI 569 5660 • FAX 569 5662 OPIÐ: Virka daga 9-19, laugardaga 12-16.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.