Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Side 31
39 eftirliti og þótt hann verði líklega seint réttur við er þess að minnsta kosti freistað að hefta frekari halla. Nýjustu aðgerðir, sem minnka eiga hættuna á hruni turnsins, eru eins konar styrktarbelti um neðstu hæð- irnar og svo hefur blýbitum, sem vega tugi tonna, verið staflað á undirstöð- ur turnsins að norðanverðu í því augnamiði að vinna á móti siginu. „Þeir segja að hann hafi rétt sig við um sentímetra síðan þeir hlóðu þessum blýstöngum upp,“ kallaði foskinn íssölukarl til mín þaðan sem hann sat undir sólskýli með greiparnar spenntar um umfangs- mikla ýstru. „Nei, afi, hann hefur ekki mjakast nema 3 millímetra," leiðrétti ungl- ingspiltur sem stóð að baki þess gamla upp við girðinguna sem varn- ar aðgangi að Skakka turninum. upp í lampa, auk annarra minja- gripa. Straumurinn er stöðugur. Fullir strætisvagnar ganga til og frá torg- inu og bílstjórarnir eru gjarnan við það að aka niður álkulega útlend- inga sem hafa staðnæmst á miðri götu til þess að ná ...bara einni mynd í viðbót“. Síðustu ljósmynd- irnar vilja þó verða heldur brenglaðar því eftir að hafa einblínt í gegnum linsuna á turninn, sem brýtur gegn lögum um lóðrétt og lá- rétt, bilar innbyggður hallamælir ljósmyndarans um síðir. En borgin fóstrar fleira en ská- settan tum. Þar er erkibiskupsskrif- stofa, herflugvöllur og almennur flugvöllur og miðstöð lestaferða milli Rómar, Flórens og Genóvu. Háskóli hefur verið starfræktur í Pisa frá því á 12. öld og er því einn Skakki turninn íklæddur súkkulaðiumbúöum. Strákur var vel í holdum enda að- gangurinn að ískistu afa ótakmark- aður. „Nújæja, hvað veit ég. Kannski hefur hann ekki haggast neitt, bless- aður,“ tautaði karl en hafði þó ekki tæmt umræðuefnið. Smitandi sjónskekkja í Pisa blómstrar ferðaþjónusta að ógleymdum þeim iðnaði sem sprottinn er af ásókn túrhesta til staðarins. Eftir endilangri götunni meðfram Torgi kraftaverkanna teygir sig tjaldmarkaður sem sel- ur Skakka turninn í mismunandi útfærslum, allt frá lyklakippum elsti og jafnframt einn þekktasti há- skóli á ítaliu. Kirkjumar skipta tug- um og svo má ekki gleyma íbúunum sem reyndar eru ekki mikið fleiri en 100 þúsund. Þægilegt, temprað loftslag á sinn þátt í ásókn ferðamanna til borgar- innar og boðið er upp á góða gistiað- stöðu. Mikið er um að ferðamenn bregði sér í stuttar ferðir á meðan á dvöl þeirra stendur. Til að mynda eru aðeins 10 kílómetrar frá mið- borginni niður að strönd Týrena- hafsins. Um 12 kílómetrar í gagn- stæða átt má svo fmna hús tón- skáldsins Puccini þar sem gefur að líta ýmsa persónulega muni og lista- verk, píanó tónskáldsins og grafhýsi fjölskyldunnar. í skökkum skugga Frægð Pisa grundvallast ekki hvað síst á merkri fortíð. Borgin er talin eiga sér lengri sögu en sjálf Rómaborg og hefur gegnt mörgum mikilvægum hlutverkum í gegnum aldirnar. En samt er það svo að hinn skakki turn arkitektsins Bon- anno Pisano hefur lengst af haldið nafni Pisaborgar á lofti manna á meðal. Aðrar perlur borgarinnar hafa fallið i hans skakka skugga og hefur mörgum þótt það miður, þeirra á meðal prófessor nokkrum sem fyrir skömmu skrifaði grein í ítalskt tímarit undir fyrirsögninni „Mætti ég biðja um tumlausa Pisa- borg ...?“ Og einhver orti: Með hruma að foldu hnígur sá halti turn og stígur í fætur þær ei framar sem frægðin hefur lamað. En fimmtán tonna turnhúsið hjar- ir enn og heldur áfram að vekja að- dáun gesta og gangandi. Þeir smella af. Þegar að því kemur að örlögin láta af miskunnsemi sinni við tum- inn eins og Babelsturninn forðum mun þjóðsagan alltént standa eftir. Og ljósmyndirnar. -Sigurbjörg Þrastardóttir ! Með Tirtual PC opnar þú i windows*forritin á Macintosh! Virtua hugbúnaður sem gerir Macintosh-eigendum kleift að nota Windows-forrit, svo sem leiki, viðskiptaforrit o.m.fl. án þess að þurfa að bæta við vélbúnaði eða spjöldum. Auðvelt i uppsetningu og inniheldur Windows 95. Apple-umboðið Skipholti 21, 105 Reykjavik, sími: 511 5111 Netfang: sala@apple.is Veffang: http://www.apple.is i *6 I m ! | ■■ ! í I m I i i 1 Xt>%; staðgreiðslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandi $KÉ«<igilísi«$st birtingarafsláttur 111 Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík Kynningarfundur nýliöa veröur haldinn í húsnæöi sveitarinnar viö Flugvallarveg þann 10. september kl. 20. Krefjandi og skemmtileg þjálfun í fjalllendi og víðar. y Cortina Sport J Eg er á réttum stað... Brnutarholti 1 • Sími 511 7000 • Fax 511 7070 centrum @ centrum.is • www.centrum.is Iris Guðmundsdóttir söngkona er nýkomin á Netið. Hún komst að því að með Internettengingu Miðheima og tölvupóstinum gæti hún haldið áfram samstarfi við félaga sinn sem fór í framhaldsnám til Bandaríkjanna. írisi finnst Netið spennandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.