Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
Spurningin
Hvaö finnst þér best
aö boröa?
Heimir Gylfason nemi: Piparsteik.
Hafþór Eiríksson nemi: Kcilkún.
Silja Glömme nemi: Það eru
tacoskeljar.
Tinna Guðmundsdóttir nemi:
Djúpsteiktar rækjur og pasta með
piparosti.
Hreinn Sigurðsson: Saltkjöt og
baunir.
ída Kristjánsdóttir nemi:
Lasagna.
Lesendur
Sameign - þjóðnýting
Sigurgeir Jónsson skrifar:
Á því sumri sem nú er á enda hafa
kaupendur Morgunblaðsins mátt sjá
hver skrifin eftir önnur um kröfu til
þjóðnýtingar fiskimiðanna. Hafa þar
margir komið við sögu en eitt eiga
þeir flestir sameiginlegt; að vera
starfsmenn ríkisins eða nýkomnir á
eftirlaun hjá ríkinu. Eftirlaun sem
eru í engu samræmi við það sem
hinn almenni vinnandi maður á kost
á þegar starfsdegi lýkur.
Nú er það svo að þjóðnýtingar-
stefnan er ekki nýtt fyrirbrigði,
hvorki hér á landi né annars staðar.
Hún kom fyrst fram að einhverju
marki eftir miðja síðustu öld og
náði hámarki hundrað árum síðar,
um 1960. Hér á landi var þessi
stefna einna sterkust um 1944-48.
Kom það meðal annars fram í kröfu
um að fiskveiðigróðinn yröi þjóð-
nýttur. Var það orðalag sem notað
var þá nánast það sama sem þeir
sem mest tala um þjóðnýtingu nú
nota. ítrekuö var líka krafan um
réttlæti.
Nú er það svo að flest fólskuverk
sem hafa verið framin af þjóðarleið-
togum hafa verið framin í nafni
réttlætis. Ekki vantaði hagfræðinga
til að styðja þjóðnýtingarstefnuna,
enda var höfundur hennar hagffæð-
ingur. Þeir voru til hér á landi, og
eru enn, sem berjast fyrir þjóðnýt-
ingu, kjósa þó að fela sig bak við
grímu frjálshyggju, enda er þeim
vel kunnm- fortíðarvandi þjóðnýt-
ingar fiskveiða og flskstofna.
En hver var reynsla þjóða af þjóð-
nýtingu fiskveiða? Þar sem gengið
Ekki má gleyma stórum þætti í fiskveiðistefnu þjóönýtingarríkjanna sem var
rányrkja fiskimiðanna.
var lengst í þjóðnýtingarstefnunni,
þ.e. ríkið átti bæði skip og leyfi til
veiða, hrundi efnahagur ríkjanna
og sjómenn og annað starfsfólk út-
gerðanna mátti lifa á hungurmörk-
um meðan forkólfar þjóðnýtingar-
stefnunnar lifðu í vellystingum.
Ekki má heldur gleyma stórum
þætti í fiskveiðistefnu þjóðnýtingar-
ríkjanna sem var rányrkja fiskimið-
anna. Þar sem fæða átti fólk og fjár-
magna ríkissjóði þessara rikja m.a.
með fiskveiðigróðanum, var stöðugt
haldið lengra í rányrkjunni. Jafnt
út um höf sem á heimamiðum.
Eftir hrun efnahags þjóðnýtingar-
ríkjanna var þjóðnýtingarstefnunni
hafnað í fiskveiðum sem ööru. Var
og er staðan þá þannig i fiskveiðum
ríkjanna aö fiskveiðifloti þeirra er
að hnrni kominn, svo þau geta varla
veitt þann afla sem veiða má, án
þess að ofgera fiskstofnum á heima-
miðum. Sama staða er í fiskvinnslu
þessara ríkja, svo ekki sé minnst á
lífskjör fólks í þessum löndum.
Vaxandi óþol vegna
spillingar
Guðm. Einarsson skrifar:
Hinn þögli meirihluti þjóðarinnar,
sem oft er nefndur svo, sá hluti
hennar sem borgar skatta sína og
skyldur möglunarlaust af hinum
fostu mánaðarlaunum, er haldinn
verulegu óþoli gagnvart þeim fjölda
spillingarmála sem upp kemur hér á
landi.
Ekki síst í stjórnsýslunni þar sem
kurfar í opinherum stöðum njóta for-
réttinda vegna kunningsskapar við
ráðamann eða stjórnskipaðan emb-
ættismann sem svo aftur reynist
ekkert annað skúrkur sem skarar
eld að eigin köku.
Dæmin úr réttarkerfinu sem
tengjast svo lögreglunni beint eða
óbeint, dæmin um ólöglega veðflutn-
inga með samþykki Húsnæðisstofn-
unar, prívat mannaráðningar ráð-
herra vítt og breitt um landið, yfir-
hylmingar yfir óbótamönnum mán-
uðum saman og vægir dómar yfir
þeim.
Allt er þetta í raun svívirðileg að-
fór að þeim borgm-um sem vilja búa
við sæmilega reisn í einkalífi og
standa skil á sköttum og skyldum til
samfélagsins.
Óöldinni í þjóðfélaginu verður að
linna. Undir hana flokkast og mis-
ferli af ofangeindu tagi, misgengi á
aðstöðu fólks til að svindla á kerfmu.
Þetta er ekki öfund af minni hálfu
vegna þess að ég er ekki í þessari að-
stöðu. - Hér er um þjóðfélagslegt
krabbamein að ræða. Sýnilegt öllum
en ekki skurðtækt. Því er aðeins ein
lækning á þessu; Að víkja öllum
brotlegum úr starfi, jafnt opinberum
sem í einkageiranum.
Löreglustöðin í efra
Breiðholti
Hafliði Helgason skrifar:
Snemma á þessu ári var opnuð
glæsileg lögreglustöð við Völvufell í
efra Breiðholti. Þar stóðu æðstu
menn lögreglunnar fyrir framan
stöðina tilbúnir til þjónustu. í
fréttatilkynningu var sagt að stöðin
yrði opin allan sólarhringinn.
Þama væri um að ræða 23 manna
lið og þjónustusvæðið væri: Breið-
holtshverfin og allt upp á Kjalarnes.
Sunnudaginn 21. september sl
þurfti ég að hringja út á lögreglu-
stöð til að tilkynna tjón er orðið
hafði nóttina áður. Svarað var í
símsvara, að leita skyldi upplýsinga
þjónusta
allan
í síma
5000
lli kl. 14 og 16
Viö opnun nýrrar lögreglustöövar í Breiöholti. - Bréfritari segir minni lög-
gæslu í efra Breiöolti en til stóö.
í upplýsingasíma aðalstöðvar. Hvar
var nú 23 manna liðið í hádegi
sunnudagsins?
Ég fór fram á skýringar, og var
mér sagt að þetta hefði breyst í júlí-
mánuði síðastliðnum. Einhver
maðkur er í mysunni og enn veit ég
ekki nákvæmlega hvað gerðist. Eng-
in fréttatilkynning eða annað.
Manni verður einnig oft hugsað
til þess hvort búið sé að leggja nið-
ur umferðareftirlit lögreglunnar.
Það fer alla vega mjög lítið fyrir
henni, því miður. Þeirri spurningu
er einnig ósvarað. Að sjálfsögðu
þarf að auka stórlega umferðarlög-
gæslu. Sagt er að um 600 ökumenn
séu réttindalausir. Og ekki fækkar
bílunum í umferðinni. Um það em
áreiðanlega flestir sammála að gera
þurfi stórátak í þessum málum og
það hið allra fyrsta.
Drengurinn
í Texas
Hjálmar skrifar:
Mér finnst íslenskir fjölmiðlar
vera afar ónákvæmir í frétta-
flutningi af máli unga íslenska
drengsins í Texas sem komst
undir mannahendur og er nú í
meðferð þar vestra. í fréttum er
sífellt staglast á því að drengur-
inn hafi verið dæmdur i 10 ára
fangelsi. Þetta er fjarri lagi.
Hann var dæmdur í 3 ára fang-
elsi og 10 ára bryti hann af sér
meðan á meðferð stæði á við-
komandi stofnun. Drengurinn er
nú blessunarlega í góðum hönd-
um hjá sérhæfðu fólki sem ekki
er völ á hér á landi.
Þingmenn okk-
ar í New York
Helga Kristjánsd. skrifar:
Enn eina ferðina hefur ís-
lenskum þingmönnum verið út-
hlutað þeirri „salíbunu" að fara
til New York til að sitja þing
Sameinuðu þjóöanna eins og það
heitir í fréttatilkynningu. Við
eigum því þingmenn á tveimur
þingum í senn, hér og í New
York. Er ekki nóg að fastafull-
trúi okkar hjá SÞ sé á staðnum?
Ég trúi því ekki að þingmenn úr
breska þinginu, franska eða ann-
arra þjóða sendi sína þingmenn
til vetursetu í New York. Eru
þetta ekki bara aukasporslur
upp á farseðilinn, dagpeningana
og grínið?
Óeirðirnar í
miðbænum
Halldór skrifar:
Ég er þess fullviss að hvergi í
erlendum borgum í nágranna-
löndum okkar eru jafh mikil
skrílslæti og ódæði framin og
hér i Reykjavík. Ég hef a.m.k.
ekki heyrt um að hættulegt sé að
ganga um miðborg Kaupmanna-
hafnar, Lundúna, Parísar eða
New York að kvöld- eða nætur-
lagi. - í skuggáhverfum já, en
ekki í miðborginni sjálfri.
Sjónvarpsdag-
skrárnar
Guðrún Jacobsen skrifar:
Nú er fátt um fina drætti hjá
Ríkisútvarpi og Sjónvarpi ásamt
Stöð 2. Gísli Halldórsson hefur
lokið sinum ódauðlega lestri á
Góða dátanum í meistaralegri
þýðingu Karls ísfelds. Hvað rík-
issjónvarpið snertir var
skemmtilegasta persóna Dags-
ljóss, leiklistargagnrýnandinn
Jón Viðar Jónsson, látinn taka
hatt sinn og staf fyrir að segja
sína skoðun. Nú bindur maður
vonir við Stöðina hina einu og
sönnu sem hefur brátt göngu
sína í Sjónvarpinu. Vonandi
tekst henni meö sinum eigin
hætti að rasla út í eitt skipti fyr-
ir öll þessu endalausa rennsli á
forheimskandi amerískum sápu-
óperum og kvikmyndum tveggja
sjónvarpsstöðva áður en síðasti
vitibomi þolandinn gengur af
göflunum!
Svartholið
B. Valdimarsson skrifar:
Seint ætlar ísland að koma út
úr galdrafári miöalda inn í nú-
tímann. íslandsdeild Amnesty
International er sjálfshól um eig-
ið ágæti Norðurlanda, einkum
Finnlands og íslands. Vöntun í
áróðursbæklingi um Evrópu er
frásögn út af fyrir sig! Fáir taka
eftir nýjasta réttarhneykslinu.
Lögmaður og útlendur umbjóð-
andi koma sér saman um að slíta
samstarfi og sá einmana útlend-
ingur ætlar að flytja mál sitt
sjálfur, samkvæmt réttarreglum
siðlegra ríkja. Hæstiréttur
skikkar lögmanninn til aö vinna
i málinu áfram. Síðast er ég vissi
fór nauðungarvinna íslendinga
fram á Brimarhólmi Köbenhavn!