Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 Spurningin Hvernig finnst þér þátturinn Stöðvarvík í Ríkissjónvarpinu? Kristinn Kristinsson sjómaður: Ég horfi sjaldan á hann en ætli mér fínnist hann ekki ágætur. Jón Ingi Tómasson guðsmaður: Ég horfi lítið á sjónvarp en mér finnst gæta þreytu í þeim þáttum sem ég hef séð. Hákon Zimsen nemi: Mér finnst Spaugstofumenn vera „ýkt kúl gæjar". Fjalar Elvarsson nemi: Mér finnst þetta frekar slappt. Berglind HaUgrímsdóttir, stjóm- arráðsfuUtrúi í umhverfisráðu- neyti: Það hefur alltaf verið mikið haldið upp á Spaugstofuna á mínu heimili en þátturinn hefur valdið vonbrigðum í vetur, því miður. Hrafnhildur Ármannsdóttir flug- freyja: Mér finnst þátturinn bara hafa verið góður í vetur. Lesendur Olía og gas fram- tíðarauðlindir hér? Örn Gunnarsson skrifar: Nú hefur hreppsnefnd Öxarfjarð- arhrepps riðið á vaðið með það verkefni að láta hefja rannsóknir á háhitasvæðinu í Öxarfirði. Til þess að þetta megi verða að veruleika hefur ofangreindur hreppur fengið til liðs við sig nágrannasveitarfélög og opinberar stofnanir. Til að byrja með verður framkvæmdum beint að rannsóknarholu sem m.a. á að geta upplýst að fullu um hvort þarna sé að finna jarðgas og jafnvel olíu. Það hefur þegar fundist lífrænt gas í borholum þarna á svæðinu og það vill svo til að þar er um að ræða sömu gastegundir og finnast yfir- leitt á olíusvæðum. Það vekur svo upp þær vonir að finna megi vinn- aideg brennsluefni í jarðlögunum. Þetta hefur m.a. verið sannað af að- ilum hjá Orkustofnun. En til að kanna þetta enn betur þarf að bora eina eða fleiri rannsóknarholur sem þurfa að vera þetta einn til einn og hálfur kílómetri að dýpt, samkvæmt fréttum um málið. Mál þetta allt má ef til vill rekja allt til áranna í kringum 1980 og ’82 þegar þessi mál vöru til umræðu í Dagblaðinu. Ég átti lengi eintak af þessum blöðum en hef nú glatað þeim og því man ég ekki nákvæmar dagsetningar. Þar var minnst á rannsóknir Orkustofnunar og birtar myndir af mönnum við jarðvegs- rannsóknir í Flatey á Skjálfanda. - Einnig minnir mig að i DV hafi, fyrr á þessu ári, verið eins konar raðskrif af hinum ýmsu aðilum, bæði þingmönnum og sérfræðing- um, aðallega frá Orkustofnun, þar sem fjallað var um málið. Þingmenn úr Sjálfstæðisflokki báru fram tillögu til þingsályktunar um að fela ríkisstjóminni að láta fara fram fullnaðarrannsókn á því hvort hér við land sé um vinnan- lega olíu að ræða. Þetta er því ekk- ert fleipur eða grín, þótt einhverjir vilji greinilega ekki að málið fari í eölilegan farveg eða því haldið á lofti. Það er ekkert ólíklegt að hér viö land eöa á landi vöknum við upp við þær fréttir að fundist hafi vinn- anlegt gas og olía. Eða hvers vegna skyldu þessi náttúruefni ekki geta orðið að framtíðarauðlindum hér líkt og annars staðar? Olíufundur og vinnsla er ekki lengur bundin við Arabalönd eða Mexíkóflóann eins og allir vita. Mannskapur frá Orkustofnun viö jarövegssýniboranir í Flatey á Skjálfanda upp úr 1980. Kosningalöggjöf og réttlæti - landið eitt kjördæmi Haraldur Sigurðsson skrifar: í riti ríkisstjórnarinnar, Áfangar á réttri leið, er boðuð endurskoðun á kosningalöggjöfinni. Því er eðlileg spurning hvort ekki sé tímabært og sanngjarnt að sú endurskoðun leiði til þess að lögin þjóni sem best hags- munum kjósenda. Núverandi kosningalöggjöf og kjördæmaskipan þjónar fyrst og fremst hagsmunum stjórnmála- flokka og versti gallinn er sá að þingmenn geta áhyggjulítið traðkað á rétti kjósenda í fámennari byggð- arlögum og gera það óhikað. Gott dæmi um það er ófremdar- ástand vega utan þéttbýlis, til dæm- is í Norður-Þingeyjarsýslu. Meira vægi atkvæða á landsbyggðinni hef- ur reynst þeim kjósendum einskis- virði. Það er sanngjöm krafa að landið verði eitt kjördæmi með möguleika á persónukjöri af fleiri en einum lista. Breiðband Pösts og síma Jón Guðmundsson skrifar: Frá Breiðbandi Pósts og síma berst nú sú orðsending að byrjað verði að dreifa sjónvarpsefni í reynsluskyni. Þar með gefist al- menningi, segir í fréttum, kostur á að kynna sér sjónvarpsefni frá allt aö 17 gervihnattastöðvum, Ríkis- sjónvarpinu, sjónvarpsstöðinni Omega og sjálfu Alþingi. Og svo líka einum tug útvarpsstöðva. Þetta á að vera áhorfendum að kostnaðarlausu fyrsta kastið, þ.e.a.s. þeim sem þeg- ar hafa tengst ljósleiðurunum sem settir hafa verið í sumar götur hér í Reykjavík en ekki næmi allar. Lík- lega þó fæstar ef betur er skoðað. Ljósleiðarana kostuðu Bandaríkja- menn eða NAIO eins og fyrri dag- Veröur þá Breiöbandiö óskamiöill fjölskyldunnar? inn. Við hefðum nú litið viö að vera hér á landi ef ekki værum við stöð- ugt styrktir af auðæfum Bandaríkj- anna - samanber það að við hefðum líklega engar millilandasamgöngur ef Keflavíkurflugvallar nyti ekki við. - En það er nú önnur saga. Þetta með Breiðbandið er samt eitthvað sem fólk skilur ekkert í enn sem komið er. Það eru í raun engar upplýsingar um hvemig fólk á að standa að þessu til að ná serid- ingum. Hvað mun þetta kosta þegar allt er frágengið? Mun þetta leysa af hólmi Sjónvarpið sem sérstakan áskriftarmiðil? Það er hins vegar ljóst að ef þetta kemst í gang þá er Póstur og sími kominn með alveg nýja tegund einokunar hér á landi. Það munu fáir ef nokkur geta stað- ist þessu bákni snúning. - Er það þetta sem stefnt var að? Er það svona sem Póstur og sími ætlar að „ná til“ allra landsmanna? Lindubuff frá- bært sælgæti PáU hringdi: Mér til undrunar sá ég nýlega umsögn í lesendabréfi í DV um það sem kallað var „ólseigt LindubufF'. Mér kemur þetta mjög á óvart, því ég og við á mínu heimili kaupum iðulega Lindubuff öllum til ánægju. Inni- haldslýsingu er að finna undir flipa á pakkningunni. Hins veg- ar held ég að Linda og Góa séu sinn hvor framleiðandinn. Góurúsínur með súkkulaði eru t.d. eitt besta sælgætið á mark- aðnum og í uppáhaldi hjá mér. Hitt stendur og óhaggað af minni hálfú að Lindubuffið er frábært sælgæti. Ávaxtadrykkir og safi: Gífurlegur verðmunur SteUa hringdi: Mér finnst orðinn ansi mikill verðmunur á hinum ýmsu ávaxtadrykkjum og söfum á markaöinum. Ég tek dæmi af þeim drykkjum sem ég hef aðal- lega keypt hingað til en hef nú tekið mér tak og kaupa bara það sem best býðst í verði. Trópí frá Sól kostar t.d. þar sem ég hefi keypt hann kr. 212 en alveg sam- bærilegur að gæðum - einn lítri - kostar 112 krónur. Hér ættu neytendur að gæta vel að því gíf- urlegur verðmunur er á þessari vörutegund innbyrðis. Saknaði mynda frá afmæli Bl Nói skrifar: Mörgum finnst 100 ára afmæli Blaðamannafélags íslands hinn merkasti viðburður. Ég er þeirra á meðal. Því fannst mér ein- kennilegt að hvorugur Ijósvaka- miðillinn, Sjónvarpið eða Stöð 2, sá ástæðu til að fara á vettvang og taka myndir þó ekki væri nema af því þegar prúðbúnir gestir streymdu inn. Þetta sýnir ekki árvekni sjónvarpsstöðv- anna. Einnig get ég ekki annað en mótmælt ummælum í Dags- Ijósi þess efnis að blaðamenn geti vænst styttri starfsævi en aðrir. Flestir blaðamenn hér- lendir hafa einmitt enst vel og oröið allra karla elstir. Ötímabær aðventuljós Ingibjörg Stefánsd. hringdi: Ég var að aka um sl. helgi hér í borginni og m.a. í götu sem liggur fram hjá „Kentucy Fried“ í Faxafeni. Mér blöskraði að sjá þar aðventuljós í gluggum og það löngu fyrir aðventu. Ég veit ekki betur en aöventan hefjist hér um næstu helgi, þ.e. um næstu mán- aðamót. Mér finnst aðventuljós hér alls ótímabær áður en aö- ventan hefst. Kannski veit fólk almennt ekki hvenær hún byrjar eöa í hvaöa tilefni aðventulós eru kveikt. Mér finnst líka allur jólaundirbúningur ótímabær svo snemma sem nú tíðkast. Þingmaður á „skautinu" Árni Björnsson hringdi: Það er einkennilegt að einn al- þingismaður okkar skuli velja háannatímann á þingi til að taka sér frí til að ganga á suðurskaut- inu. Og það með son sinn. Mað- ur heföi nú haldið að hér væri ekki um hættulausa för að ræða. - Svo mjög hefur verið varað við að feögar eöa náin skyldmenni séu t.d. á sjó saman. - Hvaö ís- lenski þingmaðurinn hefur upp úr þessu veit ég ekki en einhver borgar brúsann. Vonandi er þetta okkur skattborgurum að kostnaðarlausu. - Þama em kannski áheit í spilinu sem þá fara til góögerðarmála.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.