Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Side 22
42 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 Fólk í fréttum Kristinn Björnsson Kristinn Bjömsson, skíðakappi frá Ólafsfirði, sem nú dvelur í Lil- lehammer í Noregi, náði þeim frá- bæra árangri að lenda í öðru sæti í svigi í heimsbikarmóti í Park City í Utah í Bandaríkjunum á laugardag- inn var. Starfsferill Kristinn fæddist á ÓMsfirði 26.5. 1972 og ólst þar upp í foreldrahús- um. Hann stundaði bama- og ung- lingaskólanám á Ólafsfirði, stund- aði menntaskólanám í Norges Top Itrek íþróttaskólanum í Geilo í Nor- egi jafnframt því sem hann stundaði þar skiðaþjálfun og lauk þar stúd- entsprófi 1992. Kristinn vann á sumrin með námi á Ólafsfirði, m.a. i byggingar- vinnu og hefur starfað við íþrótta- miðstöðina á Ólafsfirði. Kristinn lærði komungur á skíði og hefur keppt á skíðamótum fyrir Leiftur, Ólafsíjörö og fyrir Islands hönd frá sex ára aldri er hann fyrst tók þátt i Andrésar andar-móti á Akureyri. Hann hefur keppt á fjölda móta hér á landi, á skólamótum og alþjóðlegum mótum víða um heim, er margfaldur meistari á Andrésar andar-mótum og marg- faldur unglingameistari og íslandsmeistari í alpa- greinum. Hann hefur fimm sinnum orðið ís- landsmeistari i stórsvigi karla og þrisvar orðið ís- landsmeistari í svigi karla. Kristinn hefur að und- anfórnu dvalið í Lille- hammer þar sem hann er í skíðaþjálfun. Fjölskylda Unnusta Kristins er Hlín Jens- dóttir, f. 8.5. 1970, frá Neskaupstað, skíðakennari og starfsmaður við ferðaskrifstofu. Hún er dóttir Jens Péturssonar, bílstjóra á Neskaup- stað, og Ölfú Sigurðardóttur hjúkr- unarfræðings. Systkini Kristins eru Ólafur Hartwig, f. 3.10.1967, íþróttakennari og skíðaþjáifari í Lillehammer, en kona hans er Indíana Stefánsdóttir, landfræðingur við kennaranám í Hamar; íris, f. 31.1. 1976, nemi við HÍ. Foreldrar Kristins eru Bjöm Þór Ólafsson, f. 16.6. 1941, íþróttakenn- ari á Ólafsfirði og marg- faldur íslandsmeistari í skíðastökki og í nor- rænni tvíkeppni, og k.h., Margrét Kristine, f. 1.8. 1943, húsmóðir. Ætt Bræður Björns Þórs era Stefán Víglundur Ólafs- son, verslunarmaður á Ólafsfirði, og Guðmundur Ólafsson, leikari í Reykja- vík. Bjöm Þór er sonur Ólafs Stein- gríms, sjómanns og þekkts skíða- stökkvara á ÓMsfirði, bróður Krist- ins sem einnig var þekktur skíða- stökkvari. Ólafur var sonur Stefáns Hafliða, sjómanns og verkamanns í Hólkoti og Miðbæ á Ólafsfirði, Steingrímssonar, frá Vestarahóli í Flókadal, Hafliðasonar, Fljótaskálds í Steinakoti, Finnbogasonar. Móðir Stefáns var Kristín Hallbera, frá Litlubrekku á Höfðaströnd, Jónas- dóttir. Móðir Ólafs Steingríms var Jónína Kristin Gísladóttir, b. á Mel- breið í Fljótum og á Grund á Ólafs- firði, Gíslasonar, b. í Austarahóli í Flókadal, Gíslasonar, b. þar, Finn- bogasonar, skálds á Helgustöðum í Flókadal. Móðir Bjöms Þórs var Fjóla Blá- feld Víglundsdóttir, kennara á Ólafsfirði, Nikulássonar, b. í Garða- brekku í Staðarsveit, Árnasonar, b. í Kálfárvallakoti, Jónssonar. Móðir Víglundar var Ólöf, systir Guðlaug- ar, langömmu Reynis Hugasonar verkfræðings. Önnur systir Ólafar var Vigdís, móðir Sveins Bjarnason- ar (Edgar Holgers Cahill), listfræð- ings í Bandaríkjunum. Ólöf var dóttir Bjarna, b. í Hraunholtum Jónssonar, bróður Vísinda-Kobba, langafa Guðbergs Bergssonar. Móð- ir Ólafar var Guðrún Jónsdóttir trá Tröð. Móðir Fjólu var Sigurlaug Magnúsdóttir, b. í Þverá í Ólafsfirði, Magnússonar, og Önnu Baldvins- dóttur. Systur Margrétar Kristine era Sigrid Toft, húsmóðir á Egilsstöð- um; Irmgard Toft, ballettkennari í Reykjavík, og Anna Toft, húsmóðir i Reykjavík. Foreldrar Margrétar Kristine: Hartwig Toft, kaupmaður í Reykja- vik, fæddur í Ábenrá í Danmörku, og k.h., Kristine Toft, af þýskum ættum, fædd í Lúbeck í Þýskalandi. Kristinn Björnsson. Andlát Ólafur K. Magnússon Ólafur K. Magnússon, aðalljós- myndari Morgunblaðsins, Mela- braut 30, Seltjamamesi, lést á heim- ili sínu laugardaginn 15.11. sl.. Jarðarförin fer fram frá Krist- kirkju í Landakoti i dag, miðviku- daginn 26.11., kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort Kaþólsku kirkjunn- ar á íslandi. Starfsferill Ólafur fæddist í Reykjavík 12.3. 1926 og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Ingimarsskólann og lauk þaðan prófum, hélt til New York 1944 og stundaði þar nám í ljós- myndun í eitt ár og síðan nám í kvikmyndun hjá Paramount Pict- ures í Hollywood. Ólafur sneri heim til íslands 1947, hóf þá störf við Morgunblaðið og var aðalljósmyndari blaðsins í hálfa öld eða þar til hann lét af störfúm í ársbyrjun 1997. Fjölskylda Ólafur kvæntist 10.3. 1956 Evu Kristinsdóttur, f. 19.5. 1931, sjúkra- liða. Hún er dóttir Kristins Magnús- sonar, f. 2.11. 1895, d. 5.8. 1956, skip- stjóra, og Ágústu Kristófersdóttur, f. 17.11. 1908, húsmóður. Böm Ólafs og Evu em Kristinn Ólafsson, f. 24.1.1960, kvæntur Lauf- eyju Gissurardóttur og em börn þeirra Andri Már, f. 21.4. 1981, Eva Margrét, f. 1.12. 1985 og Gissur Ari, f. 11.2. 1993; Berglind Ólafsdóttir, f. 22.11. 1961 en maður hennar er Dag Helge Iversen og era börn þeirra Edda, f. 2.2.1997, og Ylva, f. 2.2.1997; Anna Lóa Ólafsdóttir, f. 1.11. 1964, en synir hennar era Kristinn Frans Stefánsson, f. 25.12.1987 og Atli Dag- ur Stefánsson, f. 29.1. 1992; Margrét Lind Ólafsdóttir, f. 13.10. 1967 en maður hennar er Jóhann Pétur Reyndal og era synir þeirra Ólafur Alexander, f. 27.8. 1989, og Tómas Gauti, f. 3.3.1993; Magnús Sverrir Ólafsson, f. 12.3. 1970. Bræður Ólafs era Hafliði Magnús- son, f. 6.7. 1917, kjötiðnað- armaður í Reykjavík; Jó- hann Magnússon, f. 15.7. 1918, skipstjóri og haf- nsögumaður í Reykjavík; Gunnar Magnússon, f. 25.9. 1921, sjómaður í Reykjavík; Sverrir Magn- ússon, f. 4.11. 1923, d. 14.11. 1978, skipasmiður og sjómaður, fyrst í Reykjavík og siðar i Svi- þjóð. Foreldrar Ólafs voru Magnús Kristinn Jó- hannsson, f. 16.6. 1894, fórst með Jóni forseta 27.2. 1928, skipstjóri í Reykjavík, og Kristín Hafliðadóttir, f. 9.10. 1896, d. 8.4. 1984, húsmóðir. Ætt Magnús Kristinn var sonur Jó- hanns, frá Borgum í Húnavatns- sýslu, Magnússonar, og Margrét Bjömsdóttur af Barðaströnd. Kristín var dóttir Guðrúnar, móð- ur Vilborgar Kristjáns- dóttur, fulltrúa á forseta- skrifstofunni, móður Kristjáns Jóhannssonar prófessors. Kristín var dóttir Haf- liða, starfsmanns við Kirkjugarðana í Reykja- vík, Jónssonar, b. á Áifs- stöðinn á Skeiðum, Magnússonar, b. á Mið- felli í Hrimamanna- hreppi, Einarssonar. móðir Hafliða var Mar- grét, systir Eiríks í Mið- dal, afa Vigdísar forseta. Annar bróðir Margrétar var Einar, faðir Guðmundar frá Miðdal, föður Er- rós. Margrét var dóttir Guðmundar, b. í Miðdal, Einarssonar, b. á Álfs- stöðum, Gíslasonar, bróður Ingveld- ar á Fjalli, langömmu Guðbjargar í Hvammi, langömmu Guðlaugs Tryggva Karlssonar hagfræðings. Sonur Ingveldar var Ófeigur á Fjalli, langafa Tryggva Ófeigssonar útgerðarmanns. Olafur K. Magnússon. Tilkynningar Tapað fundið Ef einhver hefur fundið ADIDAS sundtösku sem lítill 6 ára gaur týndi einhvers staðar í kring um Fellaverslanirnar í Efra-Breiðholti þá er sá hinn sami beðinn að hringja í síma 897-9091. ER-þjónustan Hjónin Ragnhildur Sveinsdóttir og Ragnar Einarsson, sem reka ER- þjónustuna við Kleppsmýrarveg, hafa ákveðið að láta eitt hundrað krónur af hverri umfelgun ganga til Neistans, styrktarfélags hjartveikra bama. Hjónin létu búa til stóran hjartalaga bauk fyrir framlögin til Neistans. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna Styrktarfélag krabbameinssjúkra bama gefur út jólakort í fjáröflunar- skyni. Er þetta þriðja árið í röð sem félagið gefur stuðningsmönnum sín- um kost á jólakortakaupum til að leggja börnum með krabbamein lið. Jólakort SKB í ár er 122 mm há og 170 mm breið. Myndin sem prýðir kortið er gerð af Braga Einarssyni. Byrgið Byrgið er kristið líknarfélag sem stofnað var 1. desember 1996 af kristnum einstaklingum sem sjálfir hafa losnað frá fíkn og öðrum vandamálum sem áfengi og fíkniefn- um fylgir. Byrgið rekur í dag tvö meðferðarheimili í Hafnarfirði; á Hvaleyrarbraut 23 og Vesturgötu 18. í þessum húsum er pláss fyrir 30 vistmenn. í október sl. tók Byrgið Hlíðardalsskóla á leigu og mun þá bætast við starfsemina pláss fyrir 70 vistmenn til viðbótar. Byrgið hefur ekki notið neinna opinberra styrkja. Kexverksmiðjan Frón Það er orðin hefð hjá Kexverk- smiðjunni Frón að baka smákökur fyrir jólin. Það verða 10 smáköku- tegundir í boði fyrir þessi jól. Það verður hægt að fá Frón-jólasmákök- ur í öllum helstu matvöraversl- unum á landinu. Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna Jólakort Barnahjálpar Samein- uðu þjóðanna, UNICEF, era komin á markaðinn. UNICEF hefur selt jólakort til fjáröflunar fyrir starf- semi sina síðan 1949. Starfsemi UN- ICEF skiptist í tvo þætti, þ.e. neyð- arhjálp og þróunaraðstoð. Hér á ís- landi er það Kvenstúdentafélag ís- lands sem sér um sölu jólakorta Bamcihjálparinnar. DV Tíl hamingju með afmælið 26. nóvember 85 ára Halldóra Kristleifsdóttir, Hrafnistu í Reykjavík. Elín Halldórsdóttir, Skíðbakka II, A-Landeyjum. 75 ára Jónas Pálsson, Grettisgötu 38, Reykjavík. Ámi Kjartansson, Hiaðbæ 18, Reykjavik. Sigríður Helgadóttir, Litla-Hvammi 9 B, Húsavík. Hinrik Sigfússon, Vogum III, Skútustaðahreppi. Guðjón H. Sigurðsson, Seltjörn 7, Selfossi. 70 ára Sigrún Björnsdóttir, Tjamargötu 47, Reykjavík. Jón G. Ásgeirsson, Laugavegi 134, Reykjavík. Hann er að heiman. Petra Gísladóttir, Hólavegi 26, Sauðárkróki. 60 ára Hreinn Jóhannsson, Löngufit 34, Garðabæ. 50 ára Bjöm Friðriksson, Borgarhrauni 6, Hveragerði, varð fimmtugur í gær. Eiginkona hans er Lilja Ólafsdóttir. Þau taka á móti gestum að heimili sínu, fóstudaginn 28.11. frá kl. 18.00. Anna Hlöðversdóttir, Bogahlíð 24, Reykjavík. Kristrún Haraldsdóttir, Tungubakka 24, Reykjavík. Sesselja Þórðardóttir, Hryggjarseli 3, Reykjavík. Ragna Bogadóttir, Vatnsendabletti 235, Kópavogi. Snorri Sigurðsson, Birkigrand 14, Kópavogi. Rakel Kristín Níelsdóttir, Klapparstíg 8, Sandgerði. Emilía Guðrún Svavarsdóttir, Baughóli 4, Húsavik. Guðrún Bogadóttir, Bergþórshvoli II, Vestur-Landeyjum. Geir Haukur Sölvason, Áshamri 65, Vestmannaeyjum. Kristín E. Gísladóttir, Dverghamri 35, Vestmannaeyjum. 40 ára Guðrún Þorbjörg Bjömsdóttir, Granaskjóli 9, Reykjavík. Kristín Ólafsdóttir, Reyðarkvísl 3, Reykjavík. Eirikur ísfeld Andreasen, Kársnesbraut 94, Kópavogi. Sigríður Ágústsdóttir, Suðurholti 15, Hafnarfirði. Bjöm Helgi Haraldsson, Hcunragerði 12, Keflavík. Siguijón Kristinn Bergsson, Vestursíðu 20, Akureyri. Sturla Einarsson, Steinahlíð 2 A, Akureyri. Erla Runólfsdóttir, Lónabraut 30, Vopnafirði. Ólafía Þóra Bragadóttir, Heiðarbraut 5, Höfn. Björn Friðriksson Bjöm Friðriksson, Borgarhraimi 6, Hveragerði, varð fimmtugur í gær. Eiginkona hans er Lilja Ólafsdóttir. Þau taka á móti gestum að heimili sínu, Borgarhrauni 6, Hveragerði, föstudaginn 28.11. frá kl. 18.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.