Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Síða 24
44 MIÐVIKUDAGUR 26. NOVEMBER 1997 Vill almenning- ur engu ráða? „Halldór Blöndal hefur, vænt- anlega eftir miklum djúpsál- fræðilegum leiðum, fundið það út að i raun vilji almenningur engu ráða heldur afsala sér yfir- ráðum yfir þessari starfsemi og færa hana í hendur nýjum eign- araðilum.“ Ögmundur Jónasson alþingis- maður, um hugmyndir um sölu á Pósti og síma, í DV. What goes up... „íslenskir skíðamenn hafa fram til þessa verið lifandi af- sönnun á enska orðtækinu: What goes up, must come down.“ Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, í Degi. Skottulækningar „Það að nota aðferðir sem ekki hafa verið reyndar vísindalega, eða sem ekki hafa staðist vís- indalegar prófanir, til að lækna sjúkdóma eru skottulækningar." Árni Björnsson læknir, í Morg- unblaðinu. Ummæli Tryggðarkerfin og punktar „Tryggðarkerfin ganga út á að láta neytendann gleyma verði og gæðum, nokkuð sem skiptir neytandann meginmáli. Hann á i staðinn að safna punktum eða öðrum ávinningi." Jóhannes Gunnarsson, fram- kvæmdastj. Neytendasamta- kanna, í DV. Deborah Compagnoni þykir snjöllust kvenna í alpagreinum í dag. Fyrstu skíðin Skíði í einhverri mynd virðist mjög gömul uppfmning. Skíði frá um 2500 f. Kr. fundust lítið skemmd i mómýri nálægt Hoting í Svíþjóð. Hellaristur af skiða- manni frá 6000 f.Kr. fundust í Bessovysledki í Rússlandi. Fyrsta notkun skíða í hernaði sem sögur fara af var í Noregi 1199 í orrustunni við Isen, ná- lægt Ósló. Skíðaiðkun varð þó ekki að íþróttagrein fyrr en 1843 í Tromsö en þar fór fram fyrsta skíðamótið sem vitað er um. Meðlimir Trysil skyte- og skiklubb, sem stofnaður var í Noregi 1861, halda því fram að það sé elsta skíðafélag heimsins. Blessuð veröldin Elstu mótin Elstu skiðamótin í norrænum greinum eru Holmenkollenmótin í Noregi en fyrsta mótið var haldið 1866. Fyrsta keppnin í bruni var haldin í Ástralíu upp úr 1850. Fyrsta svigkeppnin fór fram í Murren í Sviss 21. janúar 1922. Heimsmeistarakeppni i alpagreinum var komið á fót í Sviss árið 1931. Oftast hefur orð- ið heimsmeistari Christel Cranz, þýsk skíðakona sem sigraði tólf sinnum í svigi, bruni og þrí- keppni á árunum 1934-1939. Sá karlmaður sem oftast hefur unn- ið er Austurríkismaðurinn Toni Sailer sem vann alls sjö sinnum á tveimur heimsmeistarmótum, 1956 og 1958. fshaf (Dumbsh GRÆNLAND Norður- djúp Norðaustur- Norðvestur- mlð mið m festfjarða- mið Austur- mið Austurdjúp Austfjarða- W/ mið Breiðafjarðar- 0 mið AfigW ISLAND Vestur- djúp Faxafióa- mið Færeyjadjúp Grænlamls hafii Suðaustur- mið Suðvestur- mið FÆREYX Atlantshaf Suðvestur- djúp Suðurdjúp Suðaustur- djúp íj Hjaltland Mið og djúp í veðursp Kjartan Ólafsson tónskáld: Pössum okkui á að hafa stjóm á tækninni Stutt er síðan hljómplatan Þrír heimar i einum kom út. Á henni er raftónlist eftir Kjartan Ólafsson, flutt af höfundinum sem leikur á tölvuhljómborð, Pétri Jónassyni á klassískan gítar, Hilmari Jenssyni á rafmagnsgítar og Matthiasi Hem- stock, sem leikur á trommur og slagverk. Kjartan fylgdi plötunni eftir með velheppnuðum tónleikum sem verða endurteknir í kvöld. Tónlist Kjartans hefur vakið at- hygli og platan fengið mjög góða dóma hjá gagnrýnendum. En ekki hafa allir hrifist svo Kjartan er fyrst spurður hvers konar tónlist hann semji: „Þetta er tónlist nútím- ans, tónlist dagsins í dag og er framhald af klassískri og róman- tískri tónlist. Sú tónlist var á sínum tíma tilraunatónlist. Viðbrögðin sýna einfaldlega að það eru tvær skoðanir á öllum málum, fólk sem aðhyllist nýja hluti meðtekur tón- listina en þeir sem eru íhaldssamir gera það ekki. Hugmyndin með þessari tónlist er að blanda saman stefnum þannig að fjölbreytileikinn riki.“ Það vakti athygli fyrir stuttu að Rikissjónvarpið neitaði að sýna myndband með tónlist Kjartans: „Viðtökurnar við plötunni hafa verið mjög ánægjulegar og fyrstu tónleikarn- ir tókust vel. For- dómar gagnvart þeirri tónlist sem ég er að fást við hefur minnkað. En það eru alltaf einhverjir sem þurfa að tjá sig a neikvæðan hátt og þetta mál með Sjónvarpið er óþolandi. Það er ekki hægt að bjóða íslenskum listamönnum upp á að einhver inn- an Sjónvarpsins taki ákvörðun um að tónlist verði ekki flutt án þess að koma með skýringar. Það minnsta sem við getum ætlast til af stofnuninni er að fá skýringar." Einir tónleikar hafa verið haldn- ir, aðrir eru í kvöld og Kjartan ætlar að stefna ótrauður áfram á sömu braut: „Það er mjög skemmti- legt að starfa við tónlist sem er ný og framandi. Tölvumar bjóða upp á mikla möguleika á að flytja flókna og samsetta tónlist og það virðist eiga vel við okk- ur fjóra að starfa saman að slíkri tónlist. Við pöss- um okkur þó að hafa stjórn á tækninni." Kjartan segist ekki hafa neina fordóma gagn- vart nokkurri tónlist: „Ég hlusta á alla tónlist, allt frá tónlist af léttust gerð upp í þunga tónlist. -HK Kjartan Ólafsson. Maður dagsins Myndgátan [/£rr( KJorsuPAN ye/?A oPþín KLAfZ.'.y n<t? -eyÞoK- Tröppugangur Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi. Landslið íslands, sem hér sést i leik gegn Dönum í fyrra, leikur gegn Hol- lendingum í kvöld. Ísland-Holland í körfunni íslendingar era í kvöld að hefja keppni í Evrópumeistarakeppninni í körfubolta. Ljóst er að ísland er í sterkum riðli og rpðurinn verður erfiður. Landsliðið þarf þvi að fá góðan stuðning í kvöld frá áhorf- endum, það og að leikmennimir finni fjölina sína, þá er aldrei að vita nema sigur náist. í kvöld eru það Hollendingar sem eru andstæð- ingarnir og fer leikurinn fram i Laugardalshöll og hefst kl. 20.00. Næsti landsleikur i riðlinum verð- ur svo eftir viku, þá eru andstæð- ingamir Króatía, enn sterkara lið en HoOand. Iþróttir Einn leikur er í 1. deild karla í handboltanum í kvöld. Víkingar ferðast norður til Akureyrar og leika við KA sem er mun sterkara lið á pappirnum, enda er KA í efri hluta deildarinnar en Víkingur á botninum. Bridge Magnús Magnússon og Sverrir Ármannsson unnu nauman sigur á Reykjavíkurmótinu í tvímenningi sem fram fór laugardaginn 22. nóv- ember. Feðgamir Hjalti Elíasson og Eiríkur Hjaltason enduðu í öðru sæti en Guðmundur Páll Arnarson og Bandaríkjamaðurinn Brian Glu- bok í því þriðja, eftir að hafa leitt í síðari hluta mótsins. Þátttakan í mótinu var sérlega dræm; aðeins 23 pör sáu ástæðu til þess að mæta. Spurningin er sú hvort mætingin i þetta mót endurspegli þann doða sem virðist vera yfir bridgelífi á Is- landi um þessar mundir. Þátttaka í helgarmótum og í keppni innan flestra félaga landsins hefur ekki verið lélegri um árabil. Margir telja að samfara fækkun spilara hraki spilamennskunni. Spil 44 í Reykja- víkurmótinu rennir stoðum undir þær skoðanir. Með vandaðri en til- tölulega einfaldri spilamennsku á sagnhafi alltaf að fá 12 slagi í spaða- samningi ef spilað er á austurhönd- ina. Fimm pör af 11 spiluðu 6 spaða á hendurnar, fimm pör létu geimið duga og eitt par fór alla leið í alslemmu. Aðeins 2 pör fengu hins vegar 12 slagi, hin urðu að sætta sig við 11: * 8 V DG64 4 K7653 * 832 —N— * ÁKG432 y . * 109832 s 4 95 4 75 V . 4 D9842 4 KDG1064 4 D1096 * ÁK75 4 ÁG10 4 Á7 Hættan í spilinu er sú að hjörtun liggi 4-0. Margir sagnhafar hafa ef- laust fengið viðvöran þegar suður hefur meldað á lágliti sína. Gegn út- spili í láglit tekur sagnhafi báða ás- ana i láglitunum til að losna við tvi- spil sitt i laufi, trompar lauf, spOar spaða á drottningu, trompar tígul, spOar spaða á tíu og trompar tígul. I þessari stöðu er hægt að leggja niður hjartaás og þegar legan kem- ur í ljós er lágu hjarta spOað frá blindum. Norður er endaspOaður og verður að spila i tvöfalda eyðu eða frá hjartanu. Guðlaugur R. Jóhanns- son, sem spOaði 6 spaða, og Brynjar Jónsson, sem spOaði 7 spaða, voru þeir einu sem fundu þessa spOaleið. Aðrir sagnhafar fengu 11 slagi. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.