Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997 Fréttir Hörkudeilur á aukabæjarstjórnarfundi i ísafjarðarbæ: Norðurtanganum hafnað - ekki vantraust, segir oddviti sjálfstæöismanna Aukafundur i bæjarstjóm ísa- fjarðarbæjar i gærkvöldi, sem boðað var til að kröfu sex bæjarfulltrúa, hafnaði kaupum á húseignum fyrr- um Norðurtanga á ísafirði undir skólahúsnæði með sex atkvæðum gegn fimm. Bæjarstjómarfúndurinn stóð fram yfir miðnætti og var fjöl- setinn áheyrendum. Ekki stóðu allir upphaflegu flutningsmanna að sam- þykktinni um að hafiia kaupunum, þar sem Kristján Freyr Halldórsson, Funklista, bar fram tillögu um frest- un á afgreiðslu málsins fram yfir borgarafund, eða til fimmtudags í næstu viku, en sú tillaga var felld. í stað hans studdi Guðrún Stefáns- dóttir, F-lista, tillöguna ásamt Sig- urði Ólafssyni, A lista, Jónasi Ólafs- syni, D-lista, Kolbrúnu Halldórs- dóttur, D-lista, Kristni Jóni Jóns- syni, B-lista, og Smára Haraldssyni af F-lista. Sigurður Ólafsson, Alþýðuflokki, hafði fyrir fram lýst því yfir að ef kaupin yrðu samþykkt þá myndi hann innan fimm mínútna hætta meirihlutasamstarfi við Sjálfstæöis- flokk, en hvemig líst honum á framhaldið? „Það er ekki í minni hendi leng- ur. Nú em for- sendumar sem ég gaf fyrir að ég myndi slíta meirihlutanum ekki fyrir hendi lengur. Það er því í höndum oddvita Sjálfstæðisflokks- ins hvað hann gerir.“ - En Norðurtanginn er endanlega út af borðinu: „Ég tel það, en það var ekkert formlegt kauptilboð til í Norður- tangann. Hann var kominn inn í skýrslu VSÓ sem möguleiki, en ég tel að hann sé nú farinn út. Það em fimm möguleikar eftir í skýrslunni og það er um nóg að ræða á morg- un,“ sagði Sigurður Ólafsson. „Ég les ekki annað út úr þessari stöðu en það að gmnnskólamálun- um er skotið á frest um óákveðinn tima. Væntanlega verður annar starfshópur skipaður og önnur skýrsla búin til sem væntanlega verður dregin jafnmikið í efa og þær fyrri," segir Þorsteinn Jó- hannesson, odd- viti sjálfstæðis- manna. - Hvað með framtíð bæjar- stjómarmeiri- hlutans? „Það held ég að sé allt of snemmt að segja nokkuö til um. Við skulum gera okkur grein fyrir því að hér var samþykkt þverpólitísk tillaga. Þetta skoðast því ekki sem vantraust á meirihlut- ann.“ Þorsteinn Jóhannesson. Magnea Guö- mundsdóttir. Tap fyrir börnin - Hvað með aðra möguleika varð- andi húsnæðismál grunnskólans? „Ég harma þessa niðurstöðu vegna þess að hún kemur til með að skjóta öllum málum á frest. Ég þekki mitt fólk af bráðabirgðalausn- um, þeir vilja sitja allt of lengi yfir málum. Ég held að þetta sé fyrst og fremst tap fyrir grunnskólann og bömin okkar,“ sagði Þorsteinn Jó- hannesson. Forseti bæjarstjórnar, Magnea Guðmundsdóttir, sagðist slegin yfir þessari niðurstöðu. Hún sagöist miður sín yfir þeirri framkomu sem fræðslunefnd, vinnuhópi, skýrslu- höfundum, foreldnun og kennurum hefur verið sýnd. Sagðist hún ekki vita hvemig fræðslunefnd ísafjarð- arbæjar gæti starfaö áfram og lagt fram fleiri tillögur til úrbóta. Lýsti hún yfir áhyggjum sínum af fram- haldinu. Hús Norðurtangans sem hafnaö hefur veriö. Gönuhlaup Þorsteinn Jó- hannesson, odd- viti sjálfstæðis- manna, lét gera bókim áður en at- kvæðagreiðsla hófst. Þar lýsti hann furðu sinni og vonbrigðum með það gönu- hlaup sexmenn- inganna að fara fram á aukafund í bæjarstjóm ísafjarðarbæjar vit- andi það að almennur kynningar- fundur í bæjarstjóm ísafjarðarbæj- ar hefði verið boðaður í dag, fimmtudag 27.11. Sagði Þorsteinn að ofangreindir bæjarfulltrúar leyfðu sér þvílíka valdníðslu að ætla að keyra þetta mál í gegn í bæjarstjóm án þess að hafa fengið þar faglega umfjöllun. Þessir bæj- arfulltrúar ætli að hundsa álit meirihluta kennara í Grunnskóla ísafjarðar. Virða að vettugi sam- hijóða tillögu fræðslunefndar um að ódýrasta og hagkvæmasta leiöin sé valin til úrlausnar í húsnæðis- málum grunnskólans. „Þessi fram- koma er ofantöldum bæjarfulltrú- um til vansa. Þetta hlýtur að skoð- ast sem blaut tuska framan í andlit kjósenda. Jafnt framan í nemendur og starfsfólk grunnskólans í nútíð og framtíð." Bókunin hieypti illu blóði í sex- menningana og lagði Kol- brún Hall- dórsdóttir fram eftirfar- andi bókun: „Undirritaðir bæjarfulltrú- ar hafa ekki enn fengið boðun um fyrirhugaðan borgarafund og lýsir það vinnubrögð- rnn formanns bæjarráðs og forseta bæjcirstjómar. Við undirrituð biðj- umst undan slíkum aðdróttunum sem fram hafa komið í bókun Þor- steins Jóhannessonar. Við lýsum okkur reiðubúin til að mæta á borg- arafund hvar og hvenær sem er.“ -HKr Siguröur Ólafsson. Bílvelta varö á Hafnarfjaröarvegi á níunda tímanum í gærkvöld. Annaö afturhjóliö losnaöi undan bfl sem var á ferö. Ökumaöur missti stjórn á bílnum sem valt á veginum. Þrennt var í bílnum og var fólkiö flutt á slysadeild. Meiösl fólksins reyndust minni háttar. DV-mynd S. Mamma fékk fýrsta eintakið Davíð Oddsson forsætisráðherra fékk fýrsta eintakið af smásagna- safninu sínu í hendur í fyrrakvöld og gaf mömmu sinni það. í dag get- ur hann fengið eins mörg og hann vill því í dag kemur bókin hans út hjá Vöku-Helgafelli: Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar. „Ég gæti sagt að ég komi út hjá sama forlagi og Halldór Laxness," sagði forsætisráð- herra á fimdi með blaðamönnum í gær, „en það er líka sama forlagið og gefur út Andrés önd!“ Þetta eru níu smásögur, klassísk- ar að formi; sumar minna með lif- andi samtölum sínum á að höfund- ur hefúr skrifað leikrit. Þær hafa orðið til á löngum tíma og ekki hægt að negla þær niður á stjómar- samstarf. Hugmyndir koma víöa að, úr beinni lífsreynslu, gömlum fjöl- skylduminnum og hleruðum sam- tölum. Davíö meö fyrsta eintakiö. Aðspurður hvort hann kviði gagnrýni sagðist hann vissulega gera það, þó væri hann kominn með sigg á sálina, eins og Ólafur Thors komst að orði. „Skrif hafa góð áhrif á sálina ekki síður en bóklestur, þær létta róðurinn," sagði Davíð. „Sumir safna frí- merkjum en þetta hentar mér bet- ur.“ Davíð kvaddi sér ungur hljóðs sem höfundur gamanþátta og leik- rita og var einn Matthildinga sem breyttu smekk þjóðarinnar fyrir gríni óaflnrkallanlega. Sér hann eftir því að hafa ekki lagt ritstörf fyrir sig? „Ég hafði ekki nægt sjálfstraust þá til þess að ákveða að verða al- vöru rithöfundur," svarar forsætis- ráðherra. „Nú er ailt í lagi að gefa út bækur þvi nú ætla ég ekki að „verða“ neitt.“ -SA I>V Stuttar fréttir NAMMCO og selveiðar Þriggja daga ráðstefnu NAMMCO í Saint John’s á Ný- fundnalandi um selveiðar lýkur í dag. Fram hefúr komið að veiði- stofnar við N-Atlantshafið em bæði stórir og heilbrigðir og vel nýtanlegir á sjáifbæran hátt. Eftir- spurn eftir selskinnum hefur verið að aukast jafnt og þétt síðan hún var á lágmarki í upphafi níunda áratugarins. 3,8% atvinnuleysi 3,8% atvinnuieysi er á landinu í nóvember samkvæmt vinnumark- aðskönnun Hagstofunnar. Það jafngildir því að 5.700 einstakling- ar hafi verið án vinnu um miöjan mánuðinn. Á sama tíma í fyrra vom 5.500 manns án vinnu. Meira púst íslenskir ráð- herrar vilja komast að sam- komulagi um meiri útblástur gróðurhúsaloft- tegunda frá fiskiflotamun og frá stóriöju á umhverfisráð- stefnunni í Kyoto. Þeir telja að á heimsvísu stuðli þetta aö minni út- blæstri vandræðaefnanna vegna þess að orkuframleiðsla til stóriöju hér fer fram án slíks útblásturs. Þróun hjá Gelmer Gunnar Már Kristjánsson, deild- arstjóri þróunarseturs ísl. sjáv- arafurða, hefur verið ráðinn þró- unarstjóri hjá Gelmer í Frakk- landi, sem ÍS keypti nýlega. Nýr forstöðumaður þróunarsetursins hefur verið ráðinn. Hann heitir Tryggvi Finnsson. Aspir fjarlægðar Tæpa tvo tugi aspa, sem gróöur- settar voru fyrir tæpum tveimur áratugum í Kópavogi, skal fjar- lægja samkvæmt dómi Héraðs- dóms Reykjaness. Rætur aspanna hafa komist í skolplagnir á næstu lóð og skemmt þær, sem og gang- stétt og innkeyrslu. RÚV sagði frá. í rússneskan vísindahóp Þorsteinn Tómasson, forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins, hefúr verið kjörinn í rússnesku vísindaakademíuna. RÚV sagði frá. Farandverkafólk Fulltrúar fiskvinnsludeildar Verkamanna- sambandsins hafa lagt fram kröfur á hendur Samtökum fisk- vinnslustöðva um bættan að- búnað farand- verkafóiks. Með því er verið að fylgja eftir bókun í síðustu kjara- samningum um að semja beri um bætt kjör og aukin réttindi farand- verkafólks. Hrútasæðí utan Tveir bandarískir bændur ætla að kaupa sæði úr um 15 hrútum. Sæðið verður tekið á næstunni, eða þegar fengitími islenska ijár- ins hefst. Það verður fryst og sent út til Bandaríkjanna í febrúar. Morgunbiaðið sagði frá. D-listinn eflist Sjálfstæðisflokkurinn fengi 44% fylgi i alþingiskosningum nú, samkvæmt könnun Félags- vísindastofnunar. Flokkurinn hefur bætt við sig frá síðustu könnun en þá var fylgið 36%. Fylgi við jafnaðarmannafiokk, sem rætt er um að stofna, hefur aukist i tæp 11% úr 3,7% í síð- ustu könnun. Úr stjórn FÍ Samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur er stjórnarmönnum og starfsmönnum Flugleiða óheimiit að sitja í stjóm Flugfé- lags íslands þar sem það stríöi gegn samkeppnislögum. Stöö 2 sagði frá. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.