Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Side 13
FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997 ( 13 Fréttir Hér sést hvernig vörubíl Hagkaups var lagt beint framan viö Nóatúnsskiltiö í Mosfellsbæ á laugardag. DV-mynd S Hagkaup opnað við hlið Nóatúns: Orðinn vanur yfirganginum - segir framkvæmdastjóri Nóatúns Vörubíl frá Hagkaupi var lagt beint fyrir auglýsingaskilti frá Nóa- túni í Mosfellsbæ á laugardaginn var. Ný verslun Hagkaups opnaði þennan sama dag og þetta tUtæki fór mjög fyrir brjóstið á forsvars- mönnum Nóatúns. „Ég er ýmsu vanur og þessi at- burður segir allt sem segja þarf. Þetta er bara yfirgangur og ekkert annað. Þeir sem vilja allt gleypa haga sér svona,“ sagði Júlíus Jóns- son, verslunarstjóri Nóatúns í Mos- fellsbæ, við DV í gær. Hann segir að margir hafi orðið yfir sig hneyksl- aðir á þessu tiltæki. -HI Hiti í jörðu í Tungudal DV, ísafjaröarbæ: Þegar boraðar hafa verið sjö af 14 hitastigulsholum í og við Skutuls- Qörð á vegum Orkustofnunar og Orkubús Vestfjarða eru vonir manna um heitt vatn famar að glæðast. Heitasta holan til þessa er skammt frá jarðgangamunnanum í Tungudal en þar virðist hitastigull benda til 100 gráða hita á 1000 metra dýpi. Ekki er þó enn vitað um hvort heitt vatn er á svæðinu en reiknað er með að frekari athuganir verði gerðar á þvi. Áður hafði heitasta holan verið boruð í Hnífsdal, þar sem vísbendingar voru um nokkuð minni hita í jarðlögunum, en einnig hefur verið borað í Engidal og víðar við Skutulsfjörð. -HKr. Tilboðsdagar frábært úrval af glæsilegum sófum 20% afsláttur af klukkum og glösum ný sending -y*ÆÆÆÆÆÆ*ÆÆÆÆÆÆÆÆWJjrÆ'ÆÆi staögreiöslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur Smðauglýsingar S50S000 yfSSSSS^ Opið á laugardögum kl. 10 - 16 og sunnudögum kl. 13 - 18 HERRAFATAVERSLUN BIRGIS FAKAFENI 11 • 108 REYKJAVIK • SIMI 553 1170 Nú fyrir jólin er Herrafataverslun Birgis sneisafull af hlýjum og fallegum gæðafatnaði fyrir herramenn á ölium aldri. Verslunin býður stolt upp á úrvals vörur frá þekktum vörumerkjum, t.d. hinn frábæra og endingargóða fatnað frá Gant, Peter van Holland og Baumier, peysur frá ítalska fýrirtækinu Enzo Lorenzo og skyrtur frá Gentiluomo sem eru í algerum sérflokki hvað varðar hönnun og gæði. Mjúkir, hlýir og fallegir - á verði sem kemur öllum í jólaskap

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.