Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 Fréttir Norski sjávarútvegsráðherrann fær stuðning útvegsmanna: Kurteisishjal Bondeviks - er álit þeirra á tali forsætisráðherrans um Smugusamning Norskir útvegsmenn fagna af- dráttarlausri afstöðu Peters Angel- sens sjávarútvegsráðherra í Smugu- deilunni en þykir samt að hann gæti gengið lengra í skilyrðum sín- um fyrir samninginn við íslendinga. Angelsen sagði í DV-yfirheyrslu í fyrradag að íslendingar bæru einir ábyrgð á Smugudeilunni og kvóti í norskri lögsögu fengist ekki nema fyrir kvóta í íslenskri. „Það er rétt að menn geri sér grein fyrir að það er enginn grund- völlur fyrir samningum um Smug- una og það verður ekkert samið í vetur. Þetta er bara kurteisishjal í Bondevik forsætisráðherra og Vollebæk utanrikisráðherra þegar þeir segjast vilja semja i vetur,“ seg- ir Audun Marák, framkvæmdastjóri Sambands norskra bátaútvegs- manna, í samtali við DV. Marák segir að íslendingar verði fyrst að viðurkenna rétt Norðmanna til að stjóma fiskveiðunum í Bar- entshafi, síðan aö lofa að hætta veiö- um í Smugunni og eftir það geti komið til greina að semja um kvóta í norskri lögsögu gegn jafnverðmæt- um kvóta í íslenskri lögsögu. „Ég skil vel viðbrögð Kristjáns Ragnarssonar og að honum finnist kröfumar óaðgengilegar en íslend- ingum bauðst umtalsverður kvóti fyrir tveimur áram. Þá voru þeir of gráðugir og vildu meira. Nú geta þeir valið á milli samnings á þeim nótum sem Angelsen hefur nefnt og þess að fá ekkert," sagði Marák. Hann taldi að norska ríkisstjóm- in væri einhuga um þetta. I það minnsta gæti séra Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra ekki gert ráö fyrir stuðningi við samning á öðrum nótum en þeim sem Angel- sen hefur sett fram. „Bondevik kemur frá miklu sjáv- arútvegshéraði og veit að hann getur ekki hleypt íslendingum inn í norska lögsögu nema gegn sömu réttindum í íslenskri lögsögu,“ sagði Marák. Oddmund Bye, fomiaður Norges Fiskarlag, er enn svartsýnni á samninga um Smuguna. Hann sagð- ist í samtali við DV ekki skilja hvað norskir ráðamenn væra að fara þeg- ar þeir töluðu um samninga i vetur. Forsendur fyrir samningum væra einfaldlega ekki fyrir hendi. „Mér líst illa á hugmyndina um að láta fisk fyrir fisk. Við þurfum ekki að láta neitt og norskir sjó- menn munu seint sætta sig við að norskir þorskkvótar gangi kaupum og sölum á íslandi," sagði Odd- mund. Hvalfangarinn og stórþingsmað- urinn Steinar Bastesen var bjart- sýnni á samninga þegar DV ræddi við hann. Bastesen teldi þó aö kröf- ur Angelsens myndu ráða for og þá væri það undir íslendingum komið hvort samningar tækjust. „Það er togstreita innan norsku stjómarinnar um hver eigi að leiða samningana. Vollebæk utanríkis- ráðherra vill útiloka Angelsen frá viðræðunum og Angelsen notar hvert tækifæri sem hann fær til að minna á nærvera sína. Vollebæk veit hins vegcir að Angelsen talar fyrir munn sjómanna og útvegs- manna og hann mun ráða ferðinni," sagði Bastesen. -GK Friðrik Friðriksson, forstöðumaður Breiðbands P&S: Aukabúnaður nauðsynlegur Póstur og sími hf. hóf um helgina lokaprófún á útsendingu sjónvíups- efnis í gegnum breiðbandið og verð- ur dagskráin að öllum líkindum opin fram að áramótum. 17 erlendar sjónvarpsstöðvar era sendar út og þijár íslenskar. Að sögn Friðriks Friðrikssonar, forstöðumanns breiðbandsdeildar P&S, munu tvær rásir bætast við fljótlega. Breiðbandið hefur verið leitt í um 20 þúsund heimili á höfuðborg- arsvæðinu en Friðrik telur að um 2 þúsund heimili hafi nú þegar að- gang að því. Breiðbandið hefur ver- ið leitt í öll ný hverfi á höfuðborgar- svæðinu, í gömul hverfi þar sem lagnir hafa verið endumýjaðar og svo í þau hverfi þar sem aðgengilegt var að leggja það. Eins og sjá má á meðfylgjandi götukorti eru það einkum gömul og gróin hverfi sem ekki hafa aðgang að breiðbandinu en þó era nokkrar undantekningar. I þeim húsiun sem breiðbandið hefur verið leitt í er að finna gráan kassa, í flestum tilfellum við síma- inntakið. Ekki er þó nóg að hafa að- gang að breiðbandskerfinu því í flestum tilfellum verða húseigendur að láta leggja kapal frá breiðbands- inntakinu í svokallaðan deili sem nemur merki annarra sjónvarps- stöðva. Þannig geta sjónvarpsnot- endur fengið efni breiðbandsins beint inn um sama tengil og tengd- ur er viö sjónvarpsloftnetið. Friðrik segir rafvirkja og raf- magnsvirkja annast þessa þjónustu. Hann segir að ekki sé komin nein fóst tala á kostnað við að tengjast breiðbandinu með réttum búnaði en reynslan sýni að hann sé á bil- inu 5.000-20.000 eftir þvi hvort um fjölbýlishús eða einbýlishús sé að ræöa. Að sögn Friðriks er flutningsget- an á breiðbandinu einátta fyrst um sinn, þ.e. að efni berst einungis inn til notenda. Hins vegar sé gert ráð fyrir því í náinni framtíð að komið verði upp gagnvirkum búnaði þannig að hægt verði að panta myndir eða horfa á gamlar fréttir að óskum. Húsvíkingar munu bráðlega bæt- ast í hóp þeirra sem nú eiga aðgang að breiðbandinu og aðrir landshlut- ar munu fylgja í kjölfarið á næsta ári. Það mun þó a.m.k. taka eitt til tvö ár að breiðbandsvæða alla þjóð- ina. -Sól. Breiðbandið - dreifing 1997 - Tangar Skjól * i Sund mMm u?Á\ Kleppsvegur 4' Hlíöar iu"eimafcW 4 )\Vogar /i'fHaaleiti //' * Árbær Traöir » * Baiiar #^.Selás4 -^^jallar ¥ ÍLindir Fell Hæöir ’ , Rimar Engi SmárarjB^ Stöðvar á breiðbandinu Animal Planet Sky News CNN CNBC BBC Prime TNT-kvikmyndir TNT-teiknimyndir Computer Chanel Eurosport MTV-tónlist VHl-tónlist CMT-tónlist Pro7 ARD Rai-Uno M6 Minnisvarði um breska sjómenn i Vesturbyggð: Erum ekki að stela hugmynd segir Viðar Helgason bæjarstjóri Allt bendir til þess að minnis- merki um breska sjómenn sem drakknað hafa við íslandsstrendur verði reist á Patreksfirði en ekki viö minjasafnið á Hnjóti eins og upphaf- lega stóð til. Deilt hefur verið um staðarval minnismerkisins frá því í haust að bæjarstjóm Vesturbyggðar samþykkti að það skyldi reist inni í þorpinu. Bæjarstjóri hefur nú sent út viljayfirlýsingu Breta um að far- ið skuli að tillögu bæjarstjórnarinn- ar. Egill Ólafsson, bóndi og safnstjóri minjasafnsins á Hnjóti, hóf viðræð- ur við bresk yfirvöld um hugsan- lega aðild þeirra að slíku minnis- merki í febrúar 1996. Upphaflega stóð til að minnast þeirra sem fór- ust með skipinu Sargon út af Hnjóti fyrir um það bil fimmtíu áram, en Kristinn Egilsson á Hnjóti segir að síðar hafi verið afráöið að minnast Viðar Helgason, bæjarstjóri Vestur- byggðar, segir það einiæga ósk Breta að minnismerkið verði reist á Patreksfirði. DV-mynd ÞÖK allra sem drukknað hafi við íslands- strendur, og erindi þess efnis verið sent út til breskra yfirvalda. Fulltrúar fjögurra hafnarbæja - Grimsby, Hull, Fleetwood og Aber- deen - komu og könnuðu staðhætti í ágúst en þá kom bæjarstjóm Vest- urbyggðar fyrst að málinu. Þann 11. september samþykkti svo bæjar- stjóm að lagt skyldi til að minnis- varðinn yrði reistur inni í þorpinu í stað minjasafnsins. Viðar Helgason, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir að sú hugmynd um að reisa minnisvarða vegna tengsla Patreksfjarðar viö breska sjómenn hefði kviknað hjá bæjar- stjóm án nokkurrar vitneskju um fyrirætlanir Egils á Hnjóti. „Við vissum ekki af Agli i þessu máli fyrr en Bretamir komu til Pat- reksfjarðar í sumar,“ fullyrðir Við- ar. „Ég tel okkur því ekki vera að stela neinni hugmynd." Viðar segir að hefði Egill verið búinn að ganga frá öllum endum við bresku bæjarfélögin hefði allt verið klappað og klárt og minnisvarðinn reistur að Hnjóti. Bretamir hafi hins vegar falið bæjarstjóminni að gera tillögu um staðarvalið og fallist á hana. Bjami Hákonarson, bæjarfulltrúi Vesturbyggðar, sem var mótfallinn ákvörðun bæjarstjómar um að reisa minnisvarðann í þorpinu, segir málið nú horfa öðru vísi við eftir að þessi yfirlýsing barst frá Bretum. Bjami tekur þó skýrt fram að hann hafi ekki gert upp við sig hvort taka skuli málið upp aftur innan bæjar- stjórnar vegna þeirrar óánægju sem risið hefur vegna málsins, eða láta kyrrt liggja vegna þeirrar yfirlýs- ingar sem borist hefur frá bresku sveitarstjómarmönnunum. -Sól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.