Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 5 I>V Fréttir Starfshópur iönaöarráðherra vegna olíu og gass: Bjartsýnn á að olía finnist - segir Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður DV, Akureyri: Iðnaðarráðherra hefur skipað starfshóp með þátttöku vísinda- manna til að meta hvort rétt sé að hefja markvissar rannsóknir á því hvort olía eða gas fmnist á land- grunni íslands. Hópurinn á að meta sérstaklega þau svæði á landgrunn- inu sem fyrirliggjandi rannsóknir benda til að líklegust séu til að geyma olíu eða gas. í starfshópnum eru dr. Svein- bjöm Bjömsson prófessor, sem er formaður, dr. Árný Erla Svein- björnsdóttir jarðfræðingur, Guð- mundur Hallvarðsson alþingismað- ur, Guðni Ágústsson alþingismaður, Ingunn St. Svavarsdóttir sveitar- stjóri, Guðrún Helgadóttir jarðfræð- ingur, Sigmundur Einarsson jarð- fræðingur og dr. Steinar Guðlaugs- son jarðeðlisfræðingur. Dr. Þorkell Helgason orkumálastjóri mun starfa með hópnum og einnig Karl Gunn- laugsson jarðeðlisfræðingur. „Ég er alltaf jafnbjartsýnn á þetta og þótt menn tali alltaf um einhverj- ar reikniforsendur þá vita menn bara ekki nógu mikið um land- grunnið," segir Guðmundur Hall- varðsson alþingismaður sem sæti á í starfshópnum. „Menn em nánast i lausu lofti og vita varla hvemig þeir eiga að snúa sér. Ýmis svæði em þó mjög áhugaverð til frekari skoðun- ar, s.s. Öxarfjöröurinn, og ljúka þarf bomn í Flatey á Skjálfanda. Þá hef- Björk á BBC 2 DV, Akranesi: Útvarps- og sjónvarpsstöðvar halda áfram að gera íslensku poppstjörnunni Björk Guð- mundsdóttur góð skil. Laugar- dagskvöldið 29. nóvember kl. 23.30 kemur hún fram í þættin- um Later with Jools Holland á sjónvarpstöð BBC 2. Þar mun Björk flytja lög af nýju plötunni, Homogenic. Útvarpstöð BBC 1 tók nýlega upp tónleika Bjarkar í Lundún- um sem verða fluttir á sunnu- dag 30. nóvember kl. 22.00. Björk heldur til Bandaríkjanna í lok mánaðarins. -DVÓ Netto ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR Danskar baðinnréttingar í miklu úrvali. Falleg og vönduð vara á vægu verði. ^onix HÁTÚNI6A REYKJAVlK SÍMI 552 4420 ur einnig verið rætt um að við Grímsey geti verið áhugavert svæði.“ Það hafa fundist setlög, t.d. í Öxarfirði, gagnstætt þeirri trú að þau væm ekki hér við land, gefur það ekki tilefni til bjartsýni? „Jú, og þar hafa menn orðið var- ir við gas. Það hefur verið talað um að setlögin þurfi að vera a.m.k. 1 km til að skynsamlegt sé að fara að reyna eitthvað en setlögin í Öxar- firði em allt upp í 3 km þannig að ég er bjartsýnn," segir Guðmundur Hallvarðsson. Starfshópurinn hefur þegar hafið störf og mun yfirfara niðurstöður rannsókna á landgmnninu og meta á gmndvelli þeirra hvort og þá hvaða svæði landgrunnsins kunni að geyma olíu og/eða jarðgas og gefa ráðuneytinu skýrslu um það. Ef líklegt verði talið að einhver svæði landgrunnsins kunni að geyma olíu eða gas mun starfshóp- urinn meta hvort ætla megi að tækni- og fjárhagslegar forsendur séu til olíuvinnslu á þessum svæð- um. Þá eigi hópurinn einnig að gera tillögur um með hvaða hætti efla megi rannsóknir á svæðum og vinna tillögur um kynningu á þess- um svæðum til að efla áhuga inn- lendra og erlendra aðila á þeim. -gk fyrir b'órn ISLENSKA Þetta eru Ari og Ösp. Þau eru í fyrstu íslensku margmiðlunarbókinni fyrir böm, eftir Bergljótu Amalds, sem Apple-umboðið og Virago gefa út. Ösp er að byrja í skóla og er með stafabókina sína úti á leikvelli, þegar vindhviða feykir stöf- unum úr bókinni. Þegar þeir em lentir í sand- kassanum, fá þeir haus, hendur og fætur. Ekki nóg með það, heldur fara þeir að tala ogíbók- inni fylgjum við Ara í gegnum stafrófið, þar sem hann spjallar við stafa- karlana, en öll sagan er leiklesin af þeim Bergljótu Amalds og Steini Ármanni Magnússyni. Stafakarlam- ir geta verið ansi drjúgir með sig og keppast að sjálfsögðu við að nota orð sem byrja á þeim sjálfum, nema „ð", því ekkert íslenskt orð byrjar á Ð. Þegar sagan er valin gagnvirk, er einnig hægt að leika sér í henni. Á bak við hvern hlut og persónu leynist eitthvað óvænt og skemmtilegt. Markmiðið með þessari líflegu bók er að kenna börnum að þekkja stafina, æfa lestur og auka orðaforða þeirra, en að sjálf- sögðu á skemmtilegan hátt. Stafakarlamir era bæði fyrir Madntosh- og Windows-stýrikerfi. Verð: ÍSLENSK TÖLVUBÓK MacOS Windows Dreifing: JAPISS Brautartiolti 2, Rvk. Smi: 562 5200 Apple-umboðið Skipholti 21, Rvk. Smi: 511 5111

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.