Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Page 7
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 DV Sandkorn Fjöll og skógar Fullorðin kona, sem alla sína löngu ævi hefur unniö í fiskvinnu, fyrst í saltfiski hjá Kveldúlfi og síðan I fiskvinnslu, hætti nýlega störfum. ■ Konan hefur alla tið unnið mikið og varla litið upp í áratugi, hvað þá að hún hafi legið í ferðalögum út um hvippinn og hvapp- inn. Þvi þótti skyldmennum hennar við hæfi þegar um hægðist hjá gömlu konunni að hún sæi nú eitthvað af landinu sínu sem hún hefur varla séð utan Reykjavíkur og var henni boðið í Þórsmerkurferð. Að ferðinni lokinni hitti hún einn sinna gömlu vinnufé- laga sem spurði hana hvort ekki hefði verið fagurt í Þórsmörkinni. „Ég veit það nú ekki, ég sá svo sem ekki neitt nema fjöll og skóga og svo- leiðis helvítis drasl,“ sagð^sú gamla. Hvar voru þeir Alþýðuflokksmenn kvöddu nýlega fýrrum foringja sinn, Jón Baldvin Hannibalsson, og Bryndísi konu hans, sem senn fara til Washington, þar sem Jón Bald- vin verður sendi- herra íslands. Jón Baldvin hefur ver- ið svipmikill for- ingi krata og oft gustað um hann og liðið að baki karl- inum í brúnni ekki alltaf einhuga. Á stundum hefiir og á ýmsu gengið með gagnkvæma ánægju formannsins og forystumanna HafnarQarðarkrata. Það vakti athygli þeirra sem sóttu samsætið til heiðurs Jóni Baldvin á dögunum í Rúgbrauðsgerðinni að hvorki Guðmundur Árni Stefánsson, alþingismaður úr Hafnarfirði og fyrr- verandi bæjarstjóri, né núverandi bæjarstjóri Hafnarfiarðar, Ingvar Viktorsson, létu sjá sig þar. Margir kratar eru því nú komnir á fullt í Kremlarfræðin fornu og reyna að ráöa hvað valdi. Slyppifengur varstu Þórður Kristleifsson heitinn, fyrr- verandi þýskukennari á Laugar- vatni, var mikill víkingur og atorku- maður. Þegar hann hætti vegna ald- urs á Laugarvatni fluttist harui til Reykjavíkur og kenndi eftir það þýsku í MR í fjölda ára sem stunda- kennari. í kyrrð- inni á Laugarvatni þurftu menn ekki sérstaklega að var- ast bílaumferð og Þórður uggði því ekki að sér einn morguninn þegar hann stikaði yfir Lækjargötuna á leið til kennslu og varð fyrir bil. Nemendur hans á sömu leið sáu þeg- ar bíllinn skall á Þórði sem tókst á loft og sveif yfir bilinn og kom standandi niður fyrir aftan hann, stikaði síðan að framhurð bílsins, reif hana upp og sagði við ökumann- inn: „Slyppifengur varstu, drengur, að drepa mig ekki,“ skundaði síðan upp í MR og skildi gapandi öku- manninn eftir með beyglaðan bílinn eftir áreksturinn. Herbalife á Hlíf Deilur hafa staðið á ísafirði milli félagsmálastjóra ísafiarðarbæjar og Gisla Hjartarsonar ritstjóra hvers vegna elli- og örorkulífeyrisþegar í Vestíjarðakjör- dæmi eru miklu færri sem hlutfall íbúa, miðað við önnur kjördæmi. Hefúr Gísli haldið því fram að félags- þjónusta við þessa hópa borgara sé miklu lélegri vestra en annars staðar á landinu og jafnvel sú versta. Félagsmálastjórinn hins vegar hefur haldið þvi fram að atvinnuleysi vestra sé nánast ekkert og þessir hópar séu í vinnu og þvi ekki á lífeyri ffá Almannatrygging- um. Einnig fullyrðir félagsmálastjór- inn að þjónusta við aldraða i ísa- fjarðarbæ sé sú besta á landinu. Gárungamir styðja skoðun félags- málastjórans og benda máli sínu til stuðnings á að gamlingjamir á Hlíf, heimili aldraðra í ísafjarðarbæ, hafi það of gott. Þeir hafi verið svo feitir sl. vetur að forstöðukonanan hafi mokað í þá ókjörum af megrunarlyf- inu Herbalife til að ná þeim niður. Umsjón. Stefán Ásgrfmsson Fréttir Kennarar Isafirði: Fá ekki stað- aruppbót Ákveðið hefur verið að kennarar, sem sögðu upp starfi í sambandi við verkfallsboðun í sumar, fái ekki staðaruppbót nema þeir dragi upp- sagnimar til baka fyrir 1. desem- ber. Sagt er að þeim hafi verið lofað persónuuppbót - 5000 krónum á mánuði. Greiða átti uppbótina í einu lagi 1. desember - 60 þúsund á hvem kennara í fullu starfi. Uppsagnarfrestur kennara hefúr verið framlengdur til 1. apríl svo ljóst er að þeir munu starfa að minnsta kosti 7 mánuði af skólaár- inu. Mikill urgur er í kennurum á ísafirði vegna málsins enda telja þeir sig eiga rétt á greiðslum. Nokkrir þeirra vom í þann veginn að draga uppsagnir sínar til baka þegar tilkynnt var um þessar að- gerðir. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra. Halldór Ásgrímsson: Þurfum vinnufrið „Það er alveg ljóst að við leysum ekki þessa deilu með viðtölum eins og þessu,“ sagði Halldór Ásgríms- son utanríkisráðherra þegar DV bar undir hann ummæli Peter Ang- elsen, sjávarútvegsráðherra Noregs, í yfirheyrslu DV í gær um Smugu- deiluna, m.a. um að engir samning- ar komi til greina við íslendinga nema gegn því að Norðmenn fái að veiöa í íslenskri lögsögu. Halldór sagði að Smugudeilan væri uppi á borðum utanríkisráð- herra Noregs, Rússlands og íslands sem muni hittast á fundi í Moskvu í byrjun desembermánaðar. Um deiluna og þær forsendur sem hinn norski starfsbróðir hans telur einar vera fyrir lausn hennar vill Halldór Ásgrímsson ekki tjá sig efnislega. Utanríkisráðuneyti landanna beri ábyrgð á málinu. „Þau verða að fá frið til að vinna að því og síðan verður að sjá til hvort botn fæst í það,“ sagði Halldór Ásgrímsson ut- anrikisráðherra. Árskógsströnd: Mikil vinna og fólksfjölgun DV Dalvik: Næg atvinna hefur verið á Ár- skógsströnd siðustu mánuðina. Dæmi eru um að fólk frá Hjalteyri og Akur- eyri sæki vinnu á Árskógsströnd og enn vantar fólk til starfa. Að sögn Kristjáns Snorrasonar oddvita hefur þetta góða atvinnu- ástand leitt til þess að fólki hefur fjölgað á Árskógsströnd það sem af er árinu. Fjölgunin nemur um 5%, eða 15 manns. Fyrri hluta ársins voru nokkrar íbúðir í eigu sveitarfélagsins auðar, 9 þegar verst lét. Þær eru nú sem óðast að ganga út - aðeins ein íbúð laus nú. Þá virðist sem áhugi fólks á að kaupa gömul hús og gera þau upp sé að aukast. Hús sem staðið hefúr autt nokkuð lengi var selt nýlega. Þegar er farið að vinna að endurbót- irni á því. -hiá 7 Láttu senda þér heim! Komðu og sæktu! Cá PIONEER The Art of Entertalnment .Pioneer markaosyfirburði a Islandi? Samkvæmt skoðanakönnun Hagvangs í desember 1996 eru 26,2% heimila á íslandi með ftaieer hljómflutningstæki. Fjórir næst stærstu keppinautamir samanlagt eru minni en FSœæer. Hvað segir þetta þér um gæði Ptoneer tækja? Thé Art of Entertalnment VSX 806-Heimabíðmagnarl • m/ útvarpi 2x110w RMS ■ 5x60w RMS • Sterío (bak • 30 stöðva minni VSX 405-Helmabíðmagnarl • RDS • m/ útvarpi 2x 70w RMS 4x50w RMS • 30 stöðva minni i The Art ot Entertalnment PD106 Geislaspilari • 1-Bit • Forritanlegur Handahófsspilun • Endurtekning ________\ SX 305 Utvarpsmagnar! • 2x85w RMS 30 stöðva minni • Fjarstýring PDM 426 Gelslaspilari • 6 diska • 1-Bit • Forritanlegur • Handahófsspilun • Endurtekning • Fjarstýring m CTW 202 Segulbandstæki • Tvöfalt jamo: The Art of Entortalnment CS 7030 hátalarar 190w Din þrískiptur CS 5030 hátalarar 140w Din þrískiptur Surround 50 40w CS 3030 hátalarar 120w Din þrískiptur !a 8 • Sími 533 2800 UmboÖ8menn: Reykjavfk: Byggt & Búið.Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi. Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir.Hellissandi. Guðm Hallgrímsson, Grundarfirði. Asubúð, Búðardal Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfiröi. Rafver, Bolungarvík. Straumur, ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.Verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Lónið Þórshðfn Austurland: Kf. Hóraðsbúa, Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Suöurland: Árvirkinn, Seífossi. Rás, Þoriakshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn, Keflavík. Rafborg, Grindavík. I O MiLLÚ m/3 áleggsteg 12“ hvítlauksbrauð eða IVIargarita, 2L Coke og hvítlauksolia Aðeins 1.790 kr. IILLd m/2 áleggsteg Aðeins 890 kr. JiLLd m/2 áleggsteg Aðeins 990 kr. 18.900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.