Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Blaðsíða 24
36 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 Leiðtogi Háskól- ans út á við „Rektor Háskólans er leiðtogi hans út á við sem inn á við. Það er í hans verkahring að verja hagsmuni skólans með kjafti og klóm og hafna algjörlega allir um- ræðu um skólagjöld og rísa upp fyrir fjöregg Háskólans: sjálfstæði hans.“ Björgvin G. Sigurðsson, ritstjóri, í Stúdentablaðinu. Siglfirskur sumartími „Ég sé fyrir mér ljósaskilti í miðjum Strákagöngum: „Hér tek- ur við siglfirskur sumartími“.“ Örnólfur Thorlacius líffræðingur, um hugmyndir Siglfirðinga um sér sumartíma, í Morgunblað- inu. Ætla ekki að verða neitt „Ég hafði ekki nægt sjálfstraust til þess að ákveða að verða alvöru rithöfundur. Nú er allt í lagi að gefa út bækur því nú ætla ég ekki að „verða" neitt." Davíð Oddsson forsætisráð- herra, i DV. Ummæli Hvemig kvótakerfið varð til „Kvótakerfið myndaðist til þess að stöðva sóun á sjó.“ Hannes Hólmsteinn Gissurar- son, í Morgunblaðinu. Umhverfisráðstefnan í Kyoto „Ef sendiboðar okkar til Japans gleyma sér í misskildu stolti og landlægri þrákelkni er mikil hætta á að við undirstrikum enn frekar sovéskt eðli umræðunnar héma; að við höfum ekkert að sækja til alþjóðasamþykkta nema þegar það hentar okkur." Haraldur Jónsson myndlist- armaður, í DV. Slæmir menn fyrir þjóðina „Það eru almannahagsmunir að taka völdin af mönnum eins og Halldóri Ásgrímssyni. Þeir eru slæmir fyrir þjóðina á líðandi stundu en eru þó enn hættulegri framtíð þjóðarinnar." Valdimar Jóhannesson, fram- kvæmdastj. Samtaka um þjóð- areign, í Morgunblaðinu. Myndverkin í Hafnarhúsinu hafa vakið verðskuldaða athygli. Myndlist '97 Aðsókn að hinni fjölbreyttu myndlistarsýningu, Myndlist ’97 í Hafnarhúsinu, var það mikil að hún var framlengd um eina viku en nú er komið að leiðarlokum því sýningunni lýkur á sunnudag- inn. Um síðustu helgi komu um eitt þúsund manns á sýninguna. Þama má sjá 300 myndverk eftir 75 myndlistarmenn og eru þau öll til sölu. Aðgangseyrir að sýning- unni er 100 kr. og renna þær til Sýningar áhorfendaverðlauna en sjóðurinn fer i heilu lagi til þess verks sem áhorfendur velja. Síðast þegar að var gáð var verk Gjörninga- klúbbsins efst á blaði, þar á eftir fylgdu verk eftir Egil Sæbjöms- son, Guðrúnu Kristjánsdóttur, Sigurð Örlygsson, Þorbjörgu Höskuldsdóttur og Húbert Nóa. Tímaritið Fjölnir mun svo standa fyrir listamannaballi á mánudaginn þar sem áhorfenda- verðlaunin verða afhent. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-22. Bílastæði í miðborginni Vestur- gata n hs nQ Við höfnina Q ,r’ UÉ Ww o ** -\— _ \ °o M O Vlð Ar Unlannrtlft AqS; Landa-Q^ Q kotstím Q q Við Hjálpræðis- ,.}* H hershúsið 01 / q Ráðhús Tjarnargata 18-22 .O' ’w' Skúlagata 4-6 Kolaportið 'v. Hverfisgata gegnt / \oT % ™m£ 0%Q Við Bergstaðar- \ * stræti ^ ^ Grettisgata 11 % Bílageymslur eða vöktuð bílastæði Q Önnur bílastæði o Vitatorg Q Laugavegur 77 Q Laugavegur 92 Sigrún Þor tir, stjórnandi Kvennakórs Reykjavíkur: Eg er öll í menningunni „Jólatónleikamir á sunnudags- kvöld em fyrsta verkefni mitt með Kvennakór Reykjavíkur en ég tók við stjórn hans í haust af Margréti J. Pálmadóttur. Ég hafði aldrei komið nálægt kórnum áður þannig að það er nýtt fyrir mér að starfa með þessum stóra kvenna- kór en í honum eru hvorki meira né minna en 120 konur." segir Sig- rún Þorgeirsdóttir, nýr stjórnandi Kvennakórs Reykjavíkur, sem auk þess er í söngkvartettinum Rúdolfi sem var að senda frá sér jólaplötu. Þá starfar hún að málefnum sem varða menningarborg Evrópu árið 2000, en eins og kunnugt er verður Reykjavík ein þeirra borga sem skartar þessum titli aldamótaárið. Sigrún er, þótt hún sé nýtekin við stjórn Kvennakórs Reykjavík- ur, ekki ókunnug kórstjórn: „Ég er tiltölulega nýkomin heim frá námi í Bandaríkjunum, var fyrst í söng- námi og síðan í kórstjórn. Eftir að ég kom heim hef stjómað skólakór Menntaskólans í Kópavogi og hjálpað til hjá Karlakór Reykjavík- ur.“ Sigrún finnur ekki mim á að stjóma körlum og konum: „Það er helst að tónlistin sem valin er sé ólík, að öðru leyti er þetta ekki mikill munur. íslend- ingar em söng- menn og kóraá- huginn er mik- Ul, svo mikill að það vekur alltaf furðu hjá út- lendingum hvað það eru margir sem eru í kór- um og hve margir kórar era starfrækt- ir.“ Áhugamálin og vinnan fara saman hjá Sig- rúnu. „Ég er auk þess að stjórna kórum að vinna að menningarmál- um fyrir Reykjavík og er svo að syngja í kvartettnum Rúdolfi, er satt að segja öll í menn- ingunni. í Rúdolfi fæ ég hina hlið- ina á söngnum, fæ sjálf að syngja. Við í Rúdolfi höfum einbeitt okkur að jólatónlistinni, höfum verið með innlent og erlent pró- gramm. Ný- komin er út plata, Jóla- vaka, þar sem eingöngu er innlent efni sem við syngj- um án undir- leiks fyrir utan tvö lög. Við komum til með að fylgja plöt- unni eftir með ýmsum tónleik- um auk þess sem við syngj- um þriðja árið í röð í miðnæt- urmessu í Dóm- kirkjunni." Eiginmaður Sigrúnar er Þór Heiðar Ásgeirsson og er hann einnig í Rúdolfi. Þau eiga tvö börn. -HK Sigrún Þorgeirsdóttir. Maður dagsins Myndgátan Keðjubréf Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. DV Bergþór Pálsson hefur eins og aðrir fengið góða dóma fyrir leik og söng. Cosi fan tutte Nú fer hver að verða síðastur að sjá hina bráðskemmtilegu óp- era Mozarts, Cosi fan tutte, sem hefur verið sýnd við góðar undir- teknir í íslensku óperunni en síð- asta sýning verður í kvöld og eru hljómsveitarstjórinn og margir söngvaranna á fórum til útlanda til nýrra verkefna. Sviðsetning leikstjórans, Dav- ids Freemans, þar sem sex glæsi- legir óperusöngvarar ærslast á sandströnd, íklæddir baðfötum, hefur vakið verðskuldaða athygli og laðað að marga nýja óperuunn- endur. Skólar hafa tekið vel við sér en íslenska óperan bauð vild- arkjör fyrir skólabekki. Leikhús Hart í bak Síðustu sýningar eru fram und- an á Hart i bak eftir Jökul Jakobs- son sem Leikfélag Akureyrar hef- ur sýnt á Renniverkstæðinu und- anfamar vikur. Þetta sívinsæla leikrit Jökuls hefur fengið góðar viðtökur og hefur aðsókn verið góð. Næsta sýning er í kvöld. Leiðrétting Þau mistök urðu í gær í viðtali við Elísabetu Sif Haraldsdóttur að hún var sögð heita Hrafnhildur í myndatexta og á einstaka stað i greininni. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Bridge Þetta skemmtilega spil er úr ný- endurútgefinni bók Bretans Victors Mollo, „Masters & Monsters" sem kom fyrst út árið 1979. Spilið hafði komið fyrir í tvimenningi og vin- sælasti samningurinn í NS var 3 grönd, spiluð í suður. Á flestum borðum hafði vestur komið út með spaða, sagnhafi hafði gefið spaðann tvisvar, drepið á ás í þriðja slag og ekki tekist að fá nema 8 slagi, þegar í ljós kom að tígulliturinn var stíflaður. Á einu borði sýndi sagn- hafi færni sina þegar hann gaf spað- ann aðeins einu sinni, drap á ásinn i öðrum slag og spilaði síðan meh’i spaða: 4 KG632 44 D108 ♦ G105 * KG 4 1054 «4 ÁK43 4 9876 4 Á4 4 D9 * G7652 4 4 4 109765 4 Á87 * 9 4 ÁKD32 4 D832 Vestur tók sina upplögðu 4 slagi á spaða og sagnhafi gætti þess vel að henda tígli í blindum. Þannig hafði hann notað andstæðingana sem hjálpartæki til að losa stífluna i tígullitnum. Annar sagnhafi var einnig svo framsýnn að drepa á ás- inn í spaða í öðram slag og spila spaða áfram. Þar var vestur hins vegar sannfærður um að sagnhafi hafi ætlað að spila upp á þvingun í hjarta og laufi síðar i spilinu. Þess vegna ákvað hann að taka ekki spaðaslagi sína strax heldur spila tígultíunni. Eftir þá vöm átti sagn- hafi enga möguleika þótt vömin væri á misskilningi byggð. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.