Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Side 1
MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1997 fólk undirbýr ■ BB jolin Bls. 28-2* Haukur Ingi Guðnason, í Liverpool-treyjunni og Liverpool-gallanum, lyftir varaliðstreyju félagsins ásamt föður sínum, Guðna Kjartanssyni Haukur skartar einnig stúdentshúfunni sem hann setti upp á viðburðaríkum laugardegi. DV-mynd Ægir Már Haukur Ingi Guðnason skrifar undir samning við Liverpool til ársins 2001: - er orðinn að veruleika, sagði stúdentinn og atvinnumaðurinn við DV Haukur Ingi Guðnason, knattspymumaður úr Keflavík, skrifar undir samning til ársins 2001 við enska stórliðið Liverpool þann 2. janúar. Frá þessu var gengið um helgina en þá sömdu Keflavík og Liverpool sín á milli og enn fremur var gengið frá samningi Hauks Inga við félagið, sem þar með er klár til und- irritunar. Haukur Ingi komst ekki sjálfúr utan um helgina til að skrifa undir þannig að því var frestað fram yflr áramótin. „Það er stórkostlegt að þetta skuli vera í höfn og að draumurinn um atvinnumennsku skuli strax vera orðinn að veruleika," sagði hinn 19 ára gamli Keflvikingur við DV í gær. Laugardagurinn var stór í lífi Hauks Inga því þá útskrifaðist hann jafnframt sem stúd- ent frá Fjölbrautaskóla Suðumesja. „Ég var hjá Liverpool I viku í vetur og lík- aði mjög vel. Það kom mér á óvart hve allt er fjölskyldulegt hjá félaginu og varaliðið og aðalliðið æfðu alltaf saman, nema síðustu æf- ingu fyrir leik. Ég reikna með því að ég fari beint að spila með varaliðinu og mér skilst að þeir ætli mér tvö ár til að vinna mér sæti í aðalliði félagsins. Ef það gengur ekki, þarf ég ekki að örvænta því ég verð ekki nema 22 ára gamall þegar samningurinn rennur út,“ sagði Haukur Ingi. Hann hefúr verið stuðningsmaður Arsenal alla tíð en sagði að nú yrði forgangsröðin að breytast í þeim efnum. Birgir Runólfsson, stjómarmaður hjá Keflavík, fór til Liverpool um helgina og gekk frá málum félaganna á milli. Hann vildi ekki ræða neitt um kaupverðið en sagði aö báðir aðilar væm sáttir viö sinn hlut. „Við höfúm lika náð þýðingarmiklum tengslum við Liverpool sem geta nýst okkur í framtíðinni. Við getum sent efiiflega leik- menn til Liverpool og fleira á þeim nótum," sagði Birgir við DV í gær. -VS Páll til Ayr Páll Guðmundsson, knattspymiunaður úr Leiftri, fer að öllum líkind- um til skoska 1. deildar liðs- ins Ayr United í janúar og spilar þar til vorsins. Páll gekk til liðs við Leiftur fyr- ir skömmu eftir ársdvöl hjá Raufoss í Noregi eins og áður hefur komið fram í DV. „Ég æfði í þijár vikur með St. Mirren og spilaði síðan æfingaleik með Ayr. Þeir vilja síðan fá mig og það yrði mjög gott að spila þar og komast í góða æf- ingu fyrir sumarið," sagöi Páll við DV í gær. -VS Jóhann og Jakob líka á förum? - með tilboð frá Genk og Degerfors Tveir leikmenn úrvalsdeildarliðs Keflavíkur í knattspymu komu til landsins í gær með tilboð frá erlend- um félögum upp á vasann. Það stefn- ir því í það að fleiri Suðumejsmenn en Haukur Ingi Guðnason hverfi á braut í atvinnumennsku á næstunni. Jóhann B. Guðmundsson hefúr undanfarið dvalið hjá belgíska félag- inu Genk og staðið sig vel. Hann kom heim í gær og flest bendir til þess að honum verði boðinn samningur við félagið í dag. Það er því útlit fyrir að hann spili við hlið Þórðar Guðjóns- sonar. „Já, það er ekki ólíklegt að ég fari utan aftur strax eftir áramótin. Ann- ars á þetta eftir að skýrast nánar. Mér leist mjög vel á mig og gekk ágætlega í þremur leikjum, tveimur með varaliðinu og einum bikarleik með aðcdliðinu,“ sagði Jóhann við DV í gær. Jakob Már Jónharðsson, fyrirliði Jóhann. Jakob. Keflvíkinga og vamarjaxl, er með til- boð frá Degerfors í Svíþjóð, en þar hefúr hann dvalið við æfingar að undanfómu. „Degerfors og Keflavík eiga eftir að ræða sín á milli en ef allt fer sem horfir þá slæ ég til og fer til Svíþjóð- ar,“ sagði Jakob við DV. Þeir Jóhann og Jakob léku báðir í fyrsta skipti með A-landsliði Islands í ár og myndu skilja eftir sig stór skörð í Keflavíkurliðinu. „A framtíð fyrir sér“ „Jóhann á framtíð fyrir sér en gengur þó ekki beint inn í byij- unarlið Genk. Hann gæti þó verið kominn þangað eftir nokkra mánuði,“ sagði Aime Anthuenis, þjálfari Genk, við DV um Keflvíkinginn Jóhann B. Guðmundsson. -KB/Belgíu Lottó: 1 13 16 27 30 B: 29 Enskí boltinn: 112 1x2 xll x22x

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.