Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1998, Síða 24
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1998
32
Sviðsljós
DV
Elizabeth Hurley í leynilegu sambandi:
Gleymdi náttfötum
Hughs í rúmi annars
Fyrirsætan Elizabeth Hurley
átti í leynilegu sambandi við kvik-
myndaframleiðandann William
Annesley. William gortaði sjálfur af
sambandi þeirra við vini sína, að
því er bresk slúðurblöð greina frá.
William segir frá því að unnusti
Elizabeth, Hugh Grant, hafi eitt
sinn hringt í hana rétt eftir að þau
höfðu gamnað sér saman nótt eina
fyrir fimm árum. Hugh var þá við
kvikmyndatökur i Ástralíu. Willi-
am hafði tekið hundinn sinn með í
heimsókn til Elizabeth og hann fór
að gelta á meðan Elizabeth var að
tala við Hugh í símann. Að því er
William segir gerði Hugh sér grein
fyrir aö þetta var ekki gelt í hundi
unnustunnar. Hún mun hafa orðið
vandræðaleg og útskýrt málið með
því að segja að hún hafi bjargað
nýja hundinum af götunni.
En Hugh frétti brátt hvemig í Hugh Grant og Elizabeth Hurley. Kvikmyndaframleiðandinn William
öllu lá. Kærasta Williams tilkynnti Annesley fullyrðir að hann og Elizabeth hafi sofið saman fyrir fimm árum.
honum það eftir að hún hafði kom-
ist að hinu sanna. Það gerðist þegar
kærastan, sem heitir Charlotte, vai-
einu sinni sem oftar uppi í hjá
William og síminn hringdi.
Charlotte svaraði og vinur Willi-
ams, sem hélt að hún væri Eliza-
beth, sagði: „Hæ, Liz. Get ég fengið
að tala við William?"
Charlotte var í karlmannsnátt-
fötum sem Liz gekk í og Hugh átti.
Elizabeth hafði skilið þau eftir hjá
William. Ekki batnaði skap
Charlotte þegar hún uppgötvaði í
hvaða náttfbtum hún var. Hún
ákvað að senda Hugh náttfotin til
Ástralíu með þeim skilaboðum að
hann sæi til þess að unnustan
gleymdi þeim ekki í rúmi Willi-
ams. Þegar pakkinn kom hringdi
Elizabeth, sem var í heimsókn hjá
Hugh, í William og bað hann að
neita öllu ef Hugh hringdi, og það
gerði hann.
Gerðu það í
breiðþotunni
Kryddpían Mel B og íslenskur
kærasti hennar, Fjölnir Þor-
geirsson, nutu ásta í breiðþotu í
háloftunum. Þar með komust
þau í svokallaðan tíu þúsund
metra klúbb sem alla dreymir
um að ganga í en fáum tekst. Mel
B upplýsti þetta í viðtali við
breskt popptímarit sem rannsak-
aði hvenær Kryddpíurnar hefðu
síðast haft kynmök á almanna-
færi. Victoria krydd og eigin-
maðurinn tilvonandi, fótbolta-
kappinn David Beckham, gerðu
það hins vegar í baksæti Benzins
hennar fyrir stuttu.
Costner og Bullock
verstu leikararnir
Kevin Costner, Val Kil-
mer, Sandra Bullock og
Fran Drescher hafa ver-
ið útnefnd sem verstu
kvikmyndaleikarar árs-
ins í Hollywood af
starfsmönnum í kvik-
myndabransanum,
blaðamönnum og bíó-
gestum.
Costner er útnefndur
fyrir leik sinn í The
Postman og Kilmer fyrir hlutverk
sitt í Dýrlingnum. í félagsskap
þeirra eru einnig Steven Seagal fyr-
ir leik í Fire Down Below og Jon
Voight í Anaconda.
Kvikmyndin Batman & Robin
var útnefnd sem versta
myndin auk Speed 2:
Cruise Control, Ana-
conda, The Postman og
Fire Down Below. Bat-
man & Robin fékk alls
11 útnefningar. Speed 2:
Cruise Control fékk 8 út-
nefningar og er þá með-
talin útnefning Söndru
Bullocks sem versta
leikkonan. Bullock
keppir um titilinn við Demi Moore,
sem þótti afleit í GI Jane, Fran
Drescher í Beautician and The Be-
ast, Lauren Holly i A Smile Like Yo-
urs respektive Turbulence og Aliciu
Silverstone i Excess Baggage.
Sandra Bullock.
, 'í($0fr
Wmk
Hagstœö kjör
Ef sama smáauglýsingin
fi
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% ^láttur
af annarri auglýsingunni.
a\\t milff hiryt^
Smáauglýsingar
550 5000
Þýska leikkonan Veronica Ferres heldur hér á gullnu myndavélinni, verðlaunum sem henni voru veitt í fyrrakvöld við
athöfn í Schauspielhaus-leikhúsinu í Berlín. Verðlaunaafhendingin var undanfari hinnar miklu kvikmyndahátíðar í
Berlín sem hófst í gær og stendur f tólf daga.
Elton fékk viðurkenningu
Breski popparinn Elton John hef;
ur verið iðinn við kolann, það er að
segja góðgerðarkolann. Á undan-
fórnum árum hefur hann verið
óþreytandi að rétta lítlmagnanum
hjálparhönd, jafnt í stórum málum
sem smáum. Nú hefur hann fengið
enn eina viðurkenninguna fyrir
góðmennskuna.
Það var sjálfur Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, sem af-
henti Elton viðurkenninguna sem
kennd er við annan poppara,
Freddy heitinn Mercury, söngvara
sveitarinnar Queen. Freddy lést úr
alnæmi fyrir nokkrum árum.
„Vá, það er nú ekki hægt aö fá
neitt merkilegra," sagði Elton þegar
hann tók við viðurkenningunni úr
hendi ráðherrans.
Blair var ekki óspar á hrósyrðin
og sagði að Elton væri einhver
mesti listamaður heimsins sem enn
væri á lífi.
„Ég ólst upp við lögin hans, eins
og við gerðum öU,“ sagði Blair.
Viðurkenningin var afhent i
Hvíta húsinu í Washington, að lokn-
um dýrindis kvöldverði hjá Clinton
Bandarikjaforseta.