Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 9. MARS 1998 Fréttir DV Marcelo De Sousa Vasconcelos, sjávarútvegsráöherra Portúgals, segir fisk- veiöistefnu Evrópusambandsins vera aö þróast á jákvæöan hátt fyrir íslend- inga. DV-mynd Pjetur þá átt að hún ætti að falla vel að hagsmunum ríkja eins og íslands, að minnsta kosti hvað varðar ákveðin lykilatriði. Það verður þó að hafa í huga að þessi vinna er skammt á veg komin,“ sagði portú- galski sjávarútvegsráðherrann að lokum. -JHÞ Samvinnuháskólinn: Kennt á ensku DV, Vesturlandi: Kennsla í rekstrarfræðadeild II við Samvinnuháskólann á Bifröst fer á vorfjórðungi fram á enskri tungu. Kemur það til af því að nokkrir erlendir skiptinemar verða við nám í deildinni. Gert er ráð fyrir að í framtíð- inni fari öll kennsla í þessari deild Samvinnuháskólans fram á ensku. Rekstrarfræðadeild II tekur yfir síðasta námsár nemenda Sam- vinnuháskólans til BS-prófs. í hana eru teknir nemendur sem lokið hafa tveggja ára námi í rekstrarfræðum við Samvinnuhá- skólann eða sambærilegu námi við aðra háskóla. Samvinnuháskólinn hefur gert samninga við fjóra evrópska há- skóla innan menntaáætlunar Evr- ópusambandsins. Nemendur skól- ans hafa þegar farið til námsdval- ar við tvo þessara skóla og kenn- ari frá skólanum hefur flutt fyrir- lestra við þýskan háskóla í haust. Samvinnuháskólinn hefur að undanförnu lagt vaxandi áherslu á alþjóðleg viðhorf og viðfangsefni í námi í samræmi við stefnuyfirlýs- ingu skólans. Bandarískur kenn- ari á vegum Fulbright-stofnunar- innar kenndi við skólann á haust- misseri. Að sögn Jónasar Guð- mundssonar rektors mun skólinn vinna áfram að því að styrkja þennan alþjóðlega þátt í skóla- starfinu. Sjávarútvegsráöherra Portúgals: Sjávarútvegur á íslandi til Frosin fjallatár fyrirmyndar „íslenskur sjávarútvegur er vel skipulagður og í honum starfar há- menntað fólk sem hefur skýra fram- tíðarsýn," segir Marcelo De Sousa Vasconcelos, sjávarútvegsráöherra Portúgals, sem kynnti sér íslenskan sjávarútveg í síðustu viku. Ráðherrann hefur meðal annars ferðast um Suðurnes og til Vest- mannaeyja, auk þess sem hann hefur rætt við íslenska embættis- menn. Að hans sögn eiga þeir sem starfa í sjávarútvegi í löndunum tveimur það helst sameiginlegt að lífsbarátta þeirra er hörð. „Það skortir ekki fagfólk í portúgölsk- um sjávarútvegi en hann mætti vera betur skipulagður," sagði hann. Þó Portúgalar séu öflug sjávar- útvegsþjóð vildi ráðherrann lítið gera úr áhrifum þeirra á mótun hinnar sameiginlegu sjávarútvegs- stefnu Evrópusambandsins. Nú stendur yfir endurskoðun hennar en þeirri vinnu á að vera lokið árið 2002. „Þegar Evrópusamband- ið er gagnrýnt fyrir sjávarútvegs- stefnu sína verður að hafa í huga að hún er afrakstur málamiðlana milli 15 aðildarríkja sambandsins. Mér hefur sýnst að stefnumótunin í þessum málaflokki sé að þróast í f Bílrúðufilmur A Setjum litaða filmu í bílrúður. Sun-Gardfilma m/ábyrgð. Vönduð vinna. Ásetning með hitatækni. Öryggis (og sólar) filma, glær eða spegill. Gerir glerið 300% sterkara. Vörn gegn innbrotum- fárviðri- jarðskjálfta. Tryggingafélögin mæla með filmunni. sólar (og öryggisfilma) á rúður húsa Stórminnkar hita, glæru og upphitun Eykur öryggi gegn innbrotum, fárviðri og eldi. GLÓI hf. sólar- og öryggisfilma. Dalbrekku 22, ^lmar 544 6770 & 544 5990/ í kuldanum undanfarna daga hafa klettar og fjallshlíöar tekiö á sig nýjar myndir. Þessir klettar hjá Vik í Mýrdal eru meö klakastykki þar sem vatniö vætlar úr þeim daglangt í sólinni. Frosin fjallatár um nætur. DV-mynd Njöröur Vik Siglufjörður: Loftlínan í skarðinu varð bjargvættur DV, Fljótum: „Þetta var mjög erfið viðgerð, veðr- ið með því versta sem gerist hér, norðan hvassviðri með snjókomu og hörkufrosti,“ sagði Sverrir Sveinsson, útibússtjóri RARIK á Siglufirði, eftir að starfsmönnum tókst að koma aftur á straumi á loftlínuna um Siglufjarð- arskarð á sunnudagskvöld. Rafmagn fór af Siglufirði að kvöldi 27. febrúar. Fljótlega varð ljóst að bil- un væri á jarðstreng sem lagður var sl. haust. Ekki hafði tekist að finna nákvæmlega hvar bilunin er en vitað er að hún var Fljótamegin við Siglu- fjarðarskarð. Það var hins vegar brugðið á það ráð að setja aftur straum á loftlínuna yfir Skarðið sem jarðstrengurinn átti að leysa af hólmi. Það kom sér vel að línan var í lagi þrátt fyrir að hún sé verulega komin til ára sinna. Líklegt er að við þetta verði látið sitja tii vors, að minnsta kosti þykir ekki fýsilegt að berjast um vegleysur og snjó eins og nú er til að gera við strenginn. Meðan viðgerðin stóð yfir höfðu Sigl- firðingar rafmagn frá dísilstöð. -ÖÞ ______________-DVÓ Stykkishólmur: Vilja samn- inga um minjavörð DV, Vesturlandi: Á síðastliðnu ári var samþykkt hjá Þjóðminjasafni íslands að minjavörður fyrir Vesturland og Vestfirði yrði í Stykkishólmi. Á síð- asta fundi bæjarráðs Stykkishólms var skorað á stjóm Samtaka sveitar- félaga á Vesturlandi að ganga nú þegar til samninga við Þjóðminja- safn íslands um starf minjavarðar fyrir Vesturland og Vestfirði, þar sem liggur fyrir vilji og áhugi Þjóð- minjasafnsins á að minjavörður veröi ráðinn til svæðisins. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.