Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 9. MARS 1998 Spurningin Hvernig býstu viö að vorið verði? Sigurður Rúnar Gíslason raf- virki: Ég býst við góðu vori. Ágústa Gunnarsdóttir húsmóðir: Ég er ekki svartsýn. Þröstur Árnason sýningarstjóri: Ég hugsa að það verði gott. Lárus Sigurðsson nemi: Ég er bjartsýnn og vona að það verði gott. Marteinn Jóhannesson bygginga- meistari: Það verður gott. Fanney Steinþórsdóttir húsmóð- ir: Ég held að það verði kalt. Lesendur Falinn fjársjóður Kom á óvart hve mikið Kjalarnesiö hefur upp á bjóða, segir bréfritari. Sigr. Hrólfsdóttir skrifar: Við fjölskyldan höfum gefið okk- ur tíma og farið í bíltúr eftir vinnu eða um helgar. Þá höfum við m.a. ekið í hverfin á höfuðborgarsvæð- inu. I september síöastliðnum ákváð- um við að fara á Kjalamesið, sem tilheyrir Reykjavík í dag. Þetta var á miðvikudegi og veðrið var frá- bært. Við keyrðum inn í hverfið. Þar voru böm að leik. Það minnti mig á gamla daga þegar við vorum börn og þurftum ekki að hafa áhyggjur af umferðinni og við gát- um leikið okkur að vild. Við gerð- umst forvitin og fórum að spyrjast fyrir. Það kom okkur á óvart hversu mikið Kjalanesið hefur upp á að bjóða. Var okkur m.a. tjáð að þarna væri mjög góður einsetinn skóli og að skólastjóri ásamt kennumm væru alveg einstakir og vel virkir í sínu starfi. Þarna er líka gott íþróttahús ásamt sundlaug og lík- amsrækt. Þarna er einnig notalegur hverfispöbb með veitingar og við hliðina á honum er bensínstöðin ásamt verslun sem hefur upp á að bjóða, matvörur, mjólkurafurðir, leikfóng o.fl. Við spurðumst fyrir í versluninni hvert vegurinn lægi frá bensínstöð- inni því hann lægi greinilega ekki inn í hverfið. Okkur var tjáð að þama væri að rísa nýtt íbúðahverfi svo við ákváðum að gera okkur aðra ferð þangað í betri birtu. Við höfum reyndar farið þarna nokkuð oft þar sem þetta er ekki nema 15-20 mínútna akstursleið frá Reykjavík. Við höfum einnig farið í skemmti- lega göngutúra þama og gengið fjör- una. Það er mjög fallegt að sjá snjó- inn yfir öllu og þarna er greinilega hægt að fara allra sinna ferða. Fólkið þama er viðfelldið og gam- an að ræða við það. Við fengum að vita að byggðin þarna er að stórum hluta Lykkjulóðir, Króksland ásamt Hofslandi. Aðalgatan heitir Hofs- braut og eftir því sem mér skilst þá er Hofslandið elsta landið með nafni og gatan fær nafnið þaðan. - Sér- kennileg nöfn. Þarna em 15 einbýl- ishús, 4 af þeim voru byggð á síð- ustu 2 1/2 ári, síðan eru 3 einbýlis- hús í viðbót í byggingu. Satt best að segja er ég alls ekki hissa á að þarna sé komið nýtt íbúðahverfi, þetta er frábær staður og útsýnið al- veg dýrlegt. Það má með sanni segja að þetta er falinn fjársjóður og finnst mér alveg sjálfsagt að leyfa öðrum að njóta hans líka. Valið í landsliðshóp Friðbjörn Ó. Valtýsson skrifar: Það er meira en undarlegt hvern- ig landsliðsþjálfarar undanfarinna ára hafa sniðgengið Sigmar Þröst Óskarsson, besta markvörð 1. deild- ar karla í handknattleik. Það hefur alla vega verið mat leikmanna sjálfra og mjög margra annarra. Það er vitað að persónuleg ill- kvittni Einars Þorvarðarsonar réði mestu meðan hann var og hét. Ekki tekur betra við núna hjá Þorbimi Jenssyni. Eftirminnileg em um- mæli hans er hann spáði í HM á ís- landi á sínum tíma. - Þar sagði hann nær orðrétt að Sigmar væri svona „joker“, sem stæði sig best á móti lélegum liðum. Á þessum tíma var Sigmar Þröst- ur markvörður KA. Frægar eru einmitt úrslitakeppnir Vals og KA á þessum sama tíma þar sem Sigmar vakti landsathygli fyrir frábæra frammistöðu. Hver var þjálfari Vals á þessum tíma? Jú, einmitt þessi sami Þorbjörn JenSson. Skrýtin um- mæli. Varla taldi hann Val með lé- legu liðunum, enda þá örugglega einn um það. Það voru álíka athyglisverð um- mæli sem hann viðhafði í fréttum um val á núverandi landsliðshóp. Hann var inntur eftir því hvers vegna enginn leikmaður væri úr efsta liði deildarinnar, Aftureld- ingu. „Þeir hafa ekki staðið sig nógu vel að undanförnu, því miður, það á enginn áskrift að landsliðs- sæti.“ Nú er bara spurningin, með sömu rökum: Hvaða markvörður hefur staðið sig best að undan- förnu? Það skal auðvitað tekið fram að ekki er verið að kasta rýrð á þá leik- menn sem eru í náðinni og eru svo heppnir að fá að keppa fyrir okkar hönd. Gangi þeim allt í haginn. - Áfram ísland. Island og Evropusambandið Karl Karlsson skrifar: Enginn vafi leikur á því að við ís- lendingar höfum litla sem enga möguleika til að koma sjónarmiðum okkar á framfæri í samstarfi Evr- ópuþjóða nema við göngum í Evr- ópusambandið. Skýrsla Samtaka iðnaðarins er mikill fengur að því leyti að þar eru þessi mál reifuð með skýrum hætti og lagt til að við göngum í ESB sem fullgildir aðilar. Oftar en ekki nægir EES-samn- ingurinn okkur ekki og því þurfum við að leita ásjár Evrópusambands- ins. Því má segja að við séum orðn- ir háðir sambandinu. Almenningur hér á landi hefur ekki hugmynd um hvaða þættir það eru sem við sækj- um í dag til ESB og í hvaða þáttum EES-samningurinn nægir okkur. Ég mmm Þjónusta - eða hringið í síma IL^íSSÖ 5000 milli kl. 14 og 16 Fá íslendingar að velja um stööuna: utan eða innan Evrópusambandsins? er viss um að margir ráðamanna okkar vita það ekki heldur. Sameiginlegt myntkerfi Evrópu- landanna verður brátt að veruleika og þá vitum við heldur ekki í hvorn fótinn við eigum að stíga. Ætlum við að nota verðlausu krónuna áfram? Er ekki timi til kominn að þjóðin fái að segja til um vilja sinn um aðild að Evrópusambandinu? Hjá því veröur ekki komist að bera aöildina undir vilja þjóðarinnar hvort sem er. - Nema við kjósum frekar að tengjast NAFTA-ríkjun- um. Það er einnig góður kostur. Líklega sá besti. DV Tommur en ekki gæsalappir Gunnar Ólafsson hringdi: Það er furðulegt hvemig margir mgla saman alþjóðlegum merking- um á tommum og gæsalöppum. Þetta á einkum viö í raftækjageir- anum þegar sýndar eru stærðir á sjónvarpsskjám. Þar eru oftast sett- ar gæsalappir (“) í stað tommu- merkinga („). Þetta er því hvim- leiðara sem fleiri ástunda svona flaustm-svinnubrögð. Vonandi fer þessu að linna eftir að á það hefur verið bent. Umferðar- hnútar R-listans Þorkell skrifar: Eins sérkennilegt og það nú er hefur lítið verið fjallað um rót vandans í umferðarmálum Reyk- víkinga, t.d. Gullinbrú og aðra um- ferðarhnúta. Stundum virðst þeir sem leiða umræðuna halda að vandinn stafi af fjárskorti borgar- innar eða viljaleysi ríkisvaldsins. Hvorugt er þó rétt. Rótin er sú að einhverra hluta vegna er R-listinn þeirrar skoðunar að „umferðar- rýmd“ skuli vera sem minnst. Þannig hefur forseti borgarstjórnar ítrekað haldið fram þeirri skoðun sinni að þessa umferðarrýmd megi ekki auka. Þegar skoðanir meir- hluta borgarstjórnar eru þessar þarf engan að undra þótt ekki sé tekið til hendi við að leysa umferð- arhnúta í borginni. Þingmanna- fjöldi lands- byggðarinnar Pétur Ólafsson skrifar: Nú er loks farið að ræða í alvöru hugmyndir um breytta kjördæma- skipan. Það hefur lengi verið stórt mein í kjördæmaskipaninni að landsbyggðarþingmenn skuli hafa meira vægi hlutfallslega en þing- menn þéttbýlisins hér sunnan- lands. Stjórnarskrárbreytinga er þörf og þótt fyrr hefði verið. Ef allt væri með felldu neituðu kjósendur að taka þátt í kosningum fyrr en ný kjördæmaskipan liggur fyrir. Stjórnarlaun í fyrirtækjum Guðjón hringdi: Mörgum blöskrar hve stjórnar- menn í sumum fyrirtækjum eru stórtækir er þeir leggja fram til- lögu um laun stjómarmanna og jafnvel varamanna í stjórn. Oft hefur stjómin í raun lítið sem ekkert gert annað en að koma saman og skeggræða og þá mest um væntanlegan aðalfund og hvernig verja skuli tillöguna um laun stjómar. Dæmi era um að stjómir í litlum fyrirtækjum, sem nánast engin umsvif hafa, geri til- lögu um að stjórnarmönnum séu greidd laun sem nemur tugum, jafnvel á annað hundrað þúsund krónum hverjum og varamönnum eitthvað ívið minna. Ég hvet hlut- hafa í fyrirtækjum, einkum hin- um minni, til að láta í sér heyra þegar bornar eru upp slíkar tillög- ur til samþykktar. Leiðrétting frá borgarstjórn Gunnar Eydal, skrifstofustj. borgarstjórnar, skrifar: Á lesendasiðu DV 18. febrúar sl. er að finna stuttan pistil eftir Gísla Guðmundsson. Þar er sagt að for- seti borgarstjórnar hafi bíl til um- ráða sem útsvarsgreiðendur borgi. - Hið rétta er að forseti borgarstjórn- ar hefur ekki bíl tU umráða, hvorki núverandi né fyrrverandi. Forseti borgarstjómar getur hins vegar átt rétt á akstursþjónustu ef um opin- berar erindagjörðir er að ræða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.