Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 20
20 qfenmng wjc"ii Barbara teiknar eina mynd viö hvern sálm. Pessi er viö hinn þriöja, Um herrans Kristí dauöastríö í grasgaröinum. un sem hefði fremur mátt búast við áratug seinna, en Barbara var á undan sinni samtíð eins og títt er um góða lista- menn. Ég segi af meira en 30 ára reynslu af þessari bók að myndirnar getur maður skoðað endalaust, þær tæmast aldrei af merkingu, halda áfram og áfram að gefa skoð- andanum upplýsingar, reynslu og fagurfræði- legan unað. Eins og sálmamir. Þessi útgáfa á Passíu- sálmunum í máli og myndum hefur verið prentuð hvaö eftir annað síðan 1960. í nýju útgáf- unni er texti sálmanna búinn til prentunar að Gott dæmi um táknræna útfærslu Barböru. Þessi mynd á viö 15. sálm, Um ráöstefnu prestanna yfir Kristó. I / • manninn Ein af perlunum í sögu ís- lenskrar bókaút- gáfu er komin út í nýrri út- gáfu en með sama glæsilega útliti og áður. Þetta eru Passíusálmar Hallgríms Péturssonar með óvið- jafnanlegum teikningum Barböru Ámason sem fyrst komu út saman hjá Menningarsjóði 1960. Barbara Árnason (1911-1975) var fædd í Englandi en það varð hamingja íslands að hún fluttist ung hingað til lands með eiginmanni sínum, Magnúsi Ámasyni myndlistarmanni. Hún myndskreytti á gifturikum ferli íjölda bóka, gerði veggskreytingar og altaristöflur, málverk og teikningar sem allt ber einstöku handbragði hennar og næmu auga fagurt vitni. Óhætt er þó að segja að ekkert hafi hún gefið sinni fósturþjóð sem jafnast á við myndirnar sem hún teiknaði við Passiusálmana. „Það er fyrsta passía í myndum, sem vér höfum eign- ast,“ segir herra Sigurbjörn Einarsson í formála útgáfunnar, „en hitt er þó meira, að hún er gerð af frábærri list. Myndir frú Barböru munu jafn- an taldar meðal merkustu tíðinda á ferli Passíu- sáimanna." Með myndum sinum býr Barbara sálmunum umgjörð viö hæfi en þó óvænta og ögrandi. Fyr- ir íslendinga sem þekktu sígild málverk af per- sónum og atvikum biblíunnar eða alþýðlegar „biblíumyndir" hljóta myndir Barböru að hafa verið nýnæmi - að ekki sé sagt áfall. Það sem hún gerir til dæmis er að flytja persónur sálm- anna beint inn í samtíð sína. í stað hins skeggj- aða, skikkjubúna Krists með jörpu lokkana á herðar niður er hér ungur maður með herra- klippingu, í ljósri peysu og dökkum buxum, lif- andi og einn af okkur - eins og hann verður að sínu leyti líka í sálmum HaUgríms, bróðir okk- ar og vinur. Þjáning hans er djúp á þessum myndum, dregin skýrt fram en væmnislaust með svörtu bleki á hvítan pappír. Túlkun Barböru er líka myndræn og bein- skeytt í táknum sinum eins og hjá HaUgrími. Hún notar krossinn sem uppistöðu i ótal mynd- ir og stundum afar nýstárlega. Hún lætur Krist og lærisveinana standa frammi fyrir kirkjunni, venjulega menn, umkomulausa og vanmáttuga, gagnvart voldugri stofnun. Þetta er róttæk túlk- „Son þinn líttu þar, kvinna" - mynd Barböru viö 37. sáim. Kannski þurfti konu til að túlka þjáning- ar Maríu á þennan einfalda og áhrifaríka hátt. Hér iðrast Pétur í 12. sálmi. nýju og annaðist Mörður Árnason það verk og miðaði við eiginhandarrit HaUgríms. Þetta telst 84. útgáfa sálmanna frá því að þeir komu fyrst út á Hólum árið 1666. Mál og menning gefur bókina nú út og hægt er að fá hana bæði í svörtu og hvítu bandi. Minna má á að fram að páskum les SvanhUd- ur Óskarsdóttir Passíusálmana á rás 1 á eUefta tímanum á kvöldin. Það er gott að hlusta á hana, röddin björt og tónninn einlægur og hún fer afar vel með efnið. Ný ítölsk endurreisn Á Ítalíu hefur verið gert átak í menningar- málum undanfarin tvö ár. Menntamálaráðherra stjórnar miöju- og vinstrimanna sem þar hefur verið við völd síðan kosið var 1996, Walter Vel- troni, er stoltur af árangrinum, að sögn Politi- ken: Söfn hafa verið opnuð aftur eftir að hafa ver- ið lokuð árum saman vegna viðgerða sem dróg- ust endalaust á langinn. í fyrrasumar höfðu mörg söfn opið fram eftir á kvöldin - það var nýjung sem mæltist vel fyrir. Mörg söfn hafa komið sér upp minjagripaverslunum og kaffi- stofum sem bæta fjárhaginn. Safngestum hefur Qölgað geysiiega eða um helming og þar yfír hjá stærstu söfnunum. Kvikmyndir höfðu ekki verið vel sóttar á Ítalíu um árabil en einnig það breyttist hratt; á einu ári voru 500 nýir kvikmyndasalir tekn- ir í notkun í landinu. Menntamálaráðherrann er sjálfur kvikmyndaáhugamaður og lét lækka miðaverð á öllum síðdegissýningum og líka á miðvikudagskvöldum. Einkum hefur aðsókn- in aukist að nýjum ítölskum og öðrum evr- ópskum kvikmyndum. Til dæmis fékk ný ítölsk gamanmynd fjórum sinnum betri að- sókn en nýja James Bond-myndin. Walter Veltroni vill kalla þetta menningar- lega endurreisn, almenna vakningu, og nefnir til sannindamerkis að smekkur sjónvarpsnot- enda hafi líka breyst. Fyrir örfáum árum var eiginlega eingöngu sýnt amerískt afþreyingar- Myndin sýnir vel varöveitt veggmáiverk úr heimahúsi í Pompei. Borgin grófst undir ösku- lagi úr Vesúvíusi áriö 79 en hefur veriö grafin upp aö hluta. efni og suðuramerískar sápur í ítölsku sjón- varpi en núna er búið til heilmikið ítalskt leikið efni sem hefur orðið vinsælt. Og áhug- inn hefur líka aukist á heimildarmyndum. En áratugavanræksla verður ekki bætt upp á tveimur árum. Margar fomminjar eru illa famar og ekkert hefur verið gert i forn- leifagreftinum í Pompei í mörg ár. Aðeins 0,67% af ríkisútgjöldum fara til menningar- mála og það er ekki mikið í landi sem á eins volduga fjársjóði í byggingum og öðmm minj- um frá síðustu árþúsundum og Ítalía. Það sem hefur hjálpað upp á er lottópeningar en á ítal- íu eins og víðar rennur drjúgur hluti þeirra til ákveðinna menningarmála, til dæmis viðhalds menningarverðmæta. Mættu íslendingar taka sér þetta til fyrirmyndar. Einnig hefur stjóm- in tekið upp samvinnu við einkaaðila og boð- ið skattaafslátt í staðinn. Til dæmis gerði hún samning við samtök atvinnurekenda í landinu um að laða einkafjármuni í fomleifauppgröft- inn í Pompei. Fortíðin virðist vera í góðum höndum hjá nýju stjóminni en ítölskum listamönnum þyk- ir lítið gefið fyrir nútímalist. Menntamálaráð- herrann er á öðm máli. „Við eigum fræga hljómsveitarstjóra, kvikmyndaleikstjóra, leik- húsmenn og myndlistarmenn. Það er enginn skortur á hæfileikum, málið er bara að þeir em ekki metnir að verðleikum.“ MÁNUDAGUR 9. MARS 1998 IjV PS... Auk þess legg ég til... Sjálfsagt má flokka það undir síf- ur en ég er hjartanlega sammála Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Degi og Jóni Kalman Stefánssyni í Morgun- blaðinu um vítur á úthlutun- arnefnd starfslauna rithöfunda vegna niðurskurðar á launum til Gyrðis Elíassonar. Starf þeirra þre- menninga er erfitt og vanþakklátt, það er vitað; umsóknir þrisvar sinnum fleiri en fengið geta og erfitt valið milli manna oft á tíðum. En það er jafnmikið hneyksli að skera launaðan starfstíma Gyrðis við tölvuna niður um helming og þegar Jónas frá Hriflu skar Halldór Kiljan og Jóhannes úr Kötlum og fleiri niður við trog á timum pólitísks of- stækis. Jónas hafði þó þá af- sökun að honum fannst þeir félagar vera að vinna ís- lensku þjóöfélagi mein; ekki getur það átt við í tilviki Gyrðis. Rödd Gyrðis kom á óvart strax í fyrstu ljóðum, og áhugamenn um skáldskap spurðu hissa: Hvaðan kemur þessi drengur sem hefur slíkt vald á íslensku? Er hægt að ná þessu valdi á tungunni í hraðfleygu margmiðlunarsamfélagi samtím- ans eða kemur drengurinn úr ein- hverri annarri vídd fyrir atbeina yfimáttúrulegra afla? Textum hans fjölgaöi. Ljóðin sýndu samtímann í nístandi birtu en opnuðu líka sýn inn í margræðan, oft óhugnanlegan innri veruleika; skáldsagan Gang- andi íkorni kallaðist áreynslulaust á við íslenskar barnabókmenntir allrar aldarinnar á undan sér en undirtextinn gaf til kynna aðra hlið á bernskunni en þar sjást; smásögurnar birtu veruleika sem bæði var og var ekki og náðu um allar aldir íslandsbyggðar án þess að þykjast nokkum tíma fara út fyrir þorpið. Eitt lag í flóknum text- um hans er ævinlega fyndnin - Gyrðir er vanmetinn sem húmoristi. Gyrðir Elíasson er fágætlega vandvirkur og djúphugull höfund- ur. „Sú hugsun verður áleitnari með hverri bók Gyrðis að verk hans séu öll einn samfefldur vefur, þar sem ýmsar tengingar, bæöi augljósar og duldar, liggja mflli einstakra texta," segir Jón Yngvi Jóhannsson í umsögn um síðustu bók Gyrðis í DV. „Þetta smásagna- safn er þannig eins konar völund- artexti og þaðan getur lesandinn ratað eftir rangölum í óvæntar átt- ir.“ Úthlutunamefndin - með sömu aðilum - ákvað í fyrra að ástæöu- laust væri að Gyrðir fengi vinnu- frið til skáldskapar nema í hálft ár. Það mátti líta á það sem óhapp; nefndinni heföi orðið fótaskortur í öUu stressinu. Ákvörðun hennar í ár er ekki óhapp, heldur skemmd- arverk á íslenskum bókmenntum. Hver er hún? í beinu framhaldi af ofannefndu birtist hér (án leyfis höfundar) jóla- gáta Böðvars Guðmundssonar sem lesendur PS geta glímt við með morgunkaffinu: Hundarnir láía hana lafa, lœrðir um hana skrafa, að hún sé hartnœr að deyja hafa þeir löngum spáó um, og skarnió af henni skafa, samt bögglast hún enn í báóum; og bœndur i henni heyja og skálkar binda hana í skónum og skáldin um hana segja aö hún sé ástkœr og ylhýr. Án hennar mundum við þegja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.