Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 9. MARS 1998 Farhús byggð í Búðardal DV, Búöardal: Byggð voru tvö nýstárleg ibúðar- hús í Búðardal á síðasta ári, svokölluð farhús. Þau eru byggð í hlutum á verkstæði og flutt á bygg- ingarstað fullbúin í fjórum hlutum. Sett á steinsteypta stöpla eða for- steypta sökkla á frostfríum grunni. Húsin fást tilbúin, máluð, með gólfefnum og öflum innréttingum eða skemmra á veg komin. Allt eft- ir óskum og þörfum kaupenda. Þau eru 135 m2 að flatarmáli, fimm her- bergja og með sólpalli. Að sögn Ágústs Magnússonar tré- smíðameistara er þetta byggingar- kerfi þróað með stuðningi Húsnæð- isstofnunar með það í huga að auð- velt sé að flytja húshlutana á bygg- ingarstað og raða þeim saman eða taka í sundur tfl flutnings á ör- skömmum tíma. Hannaður hefur verið bæklingur með upplýsingum. Fréttaritari DV heimsótti Sigfríði Eggertsdóttur og Guðjón V. Guð- jónsson og börn þeirra fyrir skömmu en þau fluttu inn í sitt far- hús í október. Þau eru mjög ánægð með húsið sem er fallegt og vandað að sjá bæði utan og innan. Sigfríður og Guðjón segja líka rýmra um fjöl- skylduna núna því þau voru áður í 90 m2 íbúð. -M.B. Farhúsin tvö viö Stekkjarhvamm í Búðardal. Hólmavík: Innfjarðarrækjan búin DV, Hólmavik: „Bátamir hér eru einn af öðrum að klára kvóta sinn af innfjarðar- rækju þessa dagana svo við gætum alveg þegið meira hráefni. Afkasta- geta vinnslunnar er ekki nýtt til fulls sem stendur. Við keyrum eina vakt á dag,“ segir Gunnar Jóhanns- son, útgerðarstjóri Hóhnadrangs hf. Hann segir hag hráefnisöflunar- innar vænkast mjög fljótlega. Út- gerðin hafi verið að kaupa úthafs- veiðiskip sem hefji veiðar næstu daga. Kemur sá afli til viðbótar afla Víkumess ST 10 sem er í eigu út- gerðarinnar svo horfumar eru frek- ar góðar þó einhver bið verði á að minni bátar geti sótt rækju á fjar- lægari veiðislóðir. Guðfinnur 10.000. gesturinn: Fékk tíu þúsund krónur DV, Akranesi: í tflefni af 10 ára af- mæli íþróttamiðstöðv- arinnar á Jaðarsbökk- um á Akranesi í ár var ákveðið að veita 10.000. gestinum 10 þúsund króna vöruúttekt frá Verslun Einars Ólafs- sonar. Nú í vikunni kom 10.000. gesturinn og sá heppni var Magn- ús Karl Gylfason, 13 ára Skagapeyi, sem fermist í vor. -DVÓ Drífa Garöarsdóttir, starfsmaöur Iþróttamiöstööv- arinnar, afhendir Magnúsi Karli verölaunin. DV-mynd Daníel Fréttir Sigfríður og Guðjón og börnin þeirra, Gunnar Hugi, Drífa Huld og Margrét Eik. DV-myndir Melkorka m 21 Álfheimar 74 sími 588 2966 nc,umi sarnd ^9ur skórinn r "Hest seller" HOIMDA 4 d-yLL.a 1-S.i.................... 9 0 h e s t ö f l Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri Innifalið í verði bílsins 1400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautuiM Loftpúðar fyrir ökumann og farþega4 Rafdrifnar rúður og speglar< ABS bremsukerfi4 Samlæsingarl 14" dekkf Honda teppasett4 Ryðvörn og skráningd Útvarp og kassettutæki4 Verð á götuna: 1.455.000,- Honda Civic 1.5 LSi VTEC 1.550.000,- 115 hestöfl Fjarstýröar samlæsingar 4 hátalarar Hæðarstillanlegt ökumannssæti Sjálfskipting 100.000,- 0 HONDA Sfml: 520 1100 VliRSLUÁ - sparar fé, tíma og fyrirhöfn 11 if i fe||| vörulistinn kr. 400. Ótrúleg verð á vönduðum vörumerkjum. Skartgripir, . ~~ZZ’ búsáhöld, leikföng, garðáhöld. ferðatöskur o.fl. o.fl. ið af vörum. Alltaf eitthvað á útsölu Opið frá kl. 9-18 mánudaga til föstudaga og frá 11-13 laugardaga. panduro fönduriistinn. Páskalistinn kominn. Þar finnst allt til föndurgerðar, bæði hugmyndir og efnið. Golfvörur EAS EXPERIMENTAL AND APPUED SCIENCES Frumherjar í fæðubótaefnum. BM B. MAGNÚSSON HF. Hólshrauni 2-sími 555 2866 - P.0. Box 410 - Hafnarfirði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.