Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 9. MARS 1998 Fréttir DV 5 kíló af hassi - í thiKimKammi. Sítwr i sbrnmtu t.mci lM í Nkt>. fUfcviAt .Uþlít ísjfiíU'ii! | - /4?*1 ’iÉí kiiL'JJJJJJ 81«. 2 I^MavanMr- •vefnl *u* hv*rfl*i«* . *£*£ 'O/ ÍVft U!í?í,sf ^>1'Uíí ivmttf ^»1: flu 9r ^^haskif. *‘ming y® 0ifrei6 éh ! UÍS b fiugvéi 1 Mafn ni^urve^ »an* ttatt irt • j; .... ■ í • : m i Léttist um 48 kíló Sagt upp eftir slys U’t mta« U><wbiun ómwuwrWnle* viiuiulnrWl «•«» v.|<muiíVirtim, Ch- ’u ' ..... ................~....." Ihuga að kaupa brauðverksmiðju Starfsmenn a launum en engin starfsemi -, K W‘ Hinu ilk Fréttaskot DV, sími 550-55-55: í hverri viku greiðir DV tugi þúsunda fyrir fréttaskot sjö þúsund krónur greiddar fyrir besta fréttaskot vikunnar Lesendur DV hafa verið mjög ötul- ir við að senda ábendingar um frétt- ir til blaðsins frá því að Fréttaskotið, sími 550-55-55, hóf göngu sína 29. mars 1984. Rúmlega 18.250 fréttaskot hafa veriö skráð á þessum tíma sem þýðir að þau hafa farið í vinnslu á ritstjórn blaðsins. Fjöldi þessara ábendinga hefur síðan birst sem fréttir á síðum DV. Nokkuð hefur borið á þeim mis- skilningi þeirra sem senda fréttaskot til blaðsins að þau séu tekin hrá og sett í blaðið. Málið er flóknara en svo. Þegar fréttaskot berst er það skráð og fer síðan til fréttastjóra. Hann úthlutar því til blaðamanns sem gengur úr skugga um sannleiks- gildi þess og fær upplýsingar um all- ar hliðar málsins. Þá fyrst er fréttin tilbúin til birtingar í DV. Rétt er að taka fram að ekki er tek- ið við fréttatilkynningum, smáaug- lýsingum eða lesendabréfum í síma Fréttaskotsins. Heldur ekki kvörtun- um um að blaðið hafi ekki borist til áskrifenda og hringjendur eru beðn- ir að hafa ekki útvarp eða sjónvarp hátt stillt þegar hringt er. Eins og sjá má hafa margvíslegar fréttir borist DV í gegnum símann sem aldrei sefur, 550-55-55, á síðustu vikum. Má þar nefna frétt um að sjó- manni var sagt upp eftir slys og fékk uppsagnarbréf útgerðar tveimur dög- um fyrir jól; að húsmóðir á Höfn létt- ist um 48 kíló á 15 mánuðum; starfs- menn væru á launum í nýjum leik- skóla í Hafnarfírði en engin starf- semi þar vegna þess að keypt voru ódýrari húsgögn en skólastjóri hafði valið; um fjórtán ára flugnema sem notar fermingarpeningana í námið og frétt var um að Kópavogsbúar hirtu stóru vinningana, bæði i happ- drætti HÍ og SÍBS. Frétt var um að Jóhannes Snorra- son, fyrrum flugstjóri, hefði farið með tveimur sonum sínum í áætl- unarferð til Hamborgar. Sat hann í flugstjómarklefanum þar sem synir hans stjórnuðu flugvélinni og flugu saman sem slíkir í fyrsta sinn; for- ráðamenn Bónusar og Hagkaups fóru saman til Danmerkur til að líta á brauðverksmiðjur með það í huga að kaupa eina slika til að rjúfa ein- okun á brauðmarkaði í Reykjavík og víðar; um frjósama hjúkrunar- fræðinema á 3ja ári í hjúkrunar- skólanum. Stúlkurnar eignuðust sextán börn á einu ári og frétt var um íslenskan exemáburð sem vekur mikla athygli erlendis og vinnur á hinu illræmda hestaexsemi. Frétt var um að húsaleigan í fé- lagslegum leiguíbúðum í Reykjavík hækkaði um helming; íslending sem handtekinn var vegna eiturlyfja- smygls við landamæri Frakklands og Spánar. Var hann með 5 kíló af hassi í bakpokanum á leið til Ítalíu; Akrahreppur vill tryggja fólksfjölg- un 1 hreppnum og borgar fyrir bam- eignir. 100 þúsund krónur fyrir hvern nýbura í hreppnum; um nýj- ar reglur um atvinnuleysisskrán- ingu, verið að pína fólk til sveitar; um íslenskan skipstjóra sem fór til Argentínu til aö kenna heimamönn- um handtökin á fiskibátum. Það gekk mjög vel fyrir sig og skipstjór- inn hitti forseta landsins og talaði við hann á reiprennandi spænsku. Frétt var um að hjólastól stúlku, sem hefur verið spastísk frá fæð- ingu, hefði verið stolið en fannst fljótt eftir að fréttin birtist i DV. Sú frétt var raunar valin fréttaskot vik- unnar sem þýðir að sendandi varð 7000 krónum ríkari. Það er rétt að rifja aðeins upp leikreglur. Hafi einhver ábendingu um frétt, sem hann óskar eftir að koma á framfæri við DV, hringir hann í síma Fréttaskotsins, 550-55- 55. Þar er tekið við fréttum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Hringjandi gefur strax - i byijun fréttaskotsins - upp nafn, heimilis- fang, póstnúmer og síma, óski hann eftir að fá greiðslu fyrir fréttaskotið. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist í blaðinu, eru greiddar 3000 krónur. Ef margir hafa hringt í síma frétta- skotsins vegna sama efnis fær sá greiðslu sem á fyrstu hringinguna. Fyrir besta fréttaskotiö í viku hverri eru greiddar 7000 krónur. DV greiðir í hverri viku tugi þúsunda króna fyrir fréttaskot. DV heitir þeim sem senda inn ábendingar um fréttir fullum trún- aði og fullrar nafnleyndar er gætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.