Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Blaðsíða 42
50 MÁNUDAGUR 9. MARS 1998 Afmæli Þorvaldur Ingi Jónsson Þorvaldur Ingi Jónsson, viö- skiptafræöingur og framkvæmda- stjóri Þor ehf., til heimilis að Ein- holti 2, Kópavogi, varð fertugur á þriðjudaginn var. Starfsferill Þorvaldur fæddist í Reykjavík en ólst upp á Hvaleyrarholtinu í Hafn- arfirði frá þriggja ára aldri. Hann lauk stúdentsprófi frá VÍ 1978, við- skiptafræðiprófi frá HÍ 1982, stund- aði námskeið í uppgjöri á fjármál- um hins opinbera hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum 1981 og hefur sótt ým- is námskeið um upplýsingtækni, fjármál og stjórnun. Þorvaldur hóf starf í Ríkisbók- haldi 1978 í hlutastarfi með námi og starfaði þar til 1982. Hann varð deildarstjóri og síðar forstöðumað- ur yfir efnahags-, ráðgjafar- og leið- beiningadeild ríkisbókhalds til 1991 og hafði þá umsjón og ábyrgð með hönnun og gerð bókhalds- og áætl- anakerfis ríkisins, BÁR, sem hefur verið í notkun frá ársbyrjun 1987. Jafnframt náminu og c^rfinu í Ríkisbókhaldi var Þorvaldur stundakennari í bókfærslu og hag- fræði við VÍ, kenndi jafnframt á ai- mennum bókhaldsnámskeiðum hjá Stjómunarfélagi íslands og hafði umsjón með kennslu á námskeiðum hjá Stjóm- sýslufræðslu ríkisins er varða bókhald rikisins og kynningu og kennslu á BÁR. Þorvaldur og fyrri eig- inkona hans, Bergþóra Árnadóttir, gáfu út hljómplötur hennar á ár- unum 1982-86. Árið 1991 stofnaði Þor- valdur ásamt eiginkonu sinni fyrirtækið Þor ehf. sem aðallega stundar ráðgjöf fyrir opinberar stofnanir í bókhaldi og fjármálum. Þorvaldur hafði umsjón með gerð gjaldkerakerfis sem nú er notað hjá stærri ríkisstofnunum frá 1994 og umsjón með gerð kerfis fyrir skrán- ingu og úrvinnslu vegna ökuprófa hjá Umferðarráði. Auk almennrar þjónustu hefur Þorvaldur unnið að kynningu á is- lenskum hugbúnaði í Ásíu frá 1994. Þorvaldur sat I Háskólaráði 1980-82, var ritari félags Viðskipta- fræöinga 1980-81, framkvæmda- stjóri stjórnsýslufræðslu rikisins og formaður hennar 1987-91, formaður Bandalags háskólamenntaðra stjómarráðsstarfsmanna 1988-91, Þorvaldur Ingi Jónsson. INNKA Uf?ASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuveqi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavlk Slmi 552 58 0<r- Fax 562 26 16 - Netfang: lsr@rvk.is UTBOÐ F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, Gatnamálastjóra, Rafmagnsveitu og Landssíma íslands er óskað eftir tilboöum í verkið: „Endurnýjun gangstétta og veitukerfa - 4. áfangi 1998, Melar og Hagar“ Endurnýja skal dreifikerfi hitaveitu, leggja strengi fyrir Landsíma íslands og annast jarðvinnu fyrir veitustofnanir í Reynimel, Grenimel, Einimel, Ægisíðu, Kvisthaga, Tómasar-haga, Hjarðarhaga og Fornhaga. Helstu magntölur: Skurðlengd: 5.800 m Lengd hitaveitulagna í plastkápu alls: 8.700 m Lengd plaströra fyrir LÍ: 3.600 m Lengd strengja fyrir LÍ: 27.000 m Steyptar stéttar: 600 m2 Hellulögn: 600 m2 Þökulögn: 10.00 m2 Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn 15.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: fimmtudaginn 19. mars 1998 kl. 11:00 á sama stað. hvr 23/8 F.h. Byggingadeildar borgarverkfræöings er óskaö eftir tilboðum í steypuviögeröir og málun utanhúss á Hlíöaskóla. Helstu magntölur: Múrviðgerðir á flötum 50 m2 Hraunun flata 990 m2 Málun flata 1.490 m2 Verktími: 2. júní til 15. ágúst 1998. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn j0.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: miövikudaginn 25. mars 1998 kl. 14:00 á sama stað. bgd 24/8 F.h. Gatnamálastjorans í Reykjavík er óskað eftir tilboöum í tilboöum í eftirfarandi verk: „Sævarhöföi, lenging aö Tangarbryggju.“ Helstu magntölur: Uppúrtekt 400 m3 Sprengingar 265 m3 Fylling 2.725 m3 Púkk 400 m3 Ræktun 1.800 m2 Verkinu skal lokið fyrir 15. júní 1998. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá og með mánudeginum 9. mars n.k. gegn 10.000 kr skilatryggingu. Opnun tilboða: kl 15:00 miðvikudaginn 18. mars 1998 á sama stað. gat 24/8 Askrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum DV rjrjÆWÆÆjrjrsjrsjrsÆÆjrjr oilt mli» hirm„ Smáauglýsingar FSga 550 5000 stjórnarmaður í Tölvu- samskiptum 1988-94 og stjórnarformaður Hótel Hörpu 1992-97. Fjölskylda Þorvaldur kvæntist 14.4. 1990 Dís Kolbeinsdóttur, f. 5.7. 1957, viðskipta- fræðingi hjá Þor ehf. Hún er dóttir Hlífar Helgadóttur og Kolbeins Jóhannssonar. Stjúpdóttir Þorvalds og dóttir Dísar er Erna Hlíf Jónsdóttir, f. 15.10. 1980. Sonur Þorvalds og Dísar er Ingi Már, f. 14.2. 1990. Stjúpbörn Þorvalds frá fyrra hjónabandi, böm Bergþóru, eru Birgitta Jónsdóttir, f. 17.4. 1967, og Jón Tryggvi Jónsson, f. 1.4. 1975. Hálfbróðir Þorvalds, sammæðra, er Finnur Logi Jóhannsson, f. 22.1. 1956, starfsmaður Véladeildar Reykj avíkurborgar. Alsystkini Þorvalds em Helgi Már, f. 15.9. 1961, d. 28.2. 1994, kenn- aranemi í Reykjavík; Jóhanna Mar- ín, f. 11.7. 1965, sjúkraþjálfari í Reykjavík; Ingibjörg Agnes, f. 14.2. 1975, hárgreiðsludama í Reykjavík. Foreldrar Þorvalds em Jón Már Þorvaldsson, f. 9.12.1933, prentari er starfar nú hjá heimilishjálp Reykja- víkurborgar, og k.h„ Helga Finns- dóttir, f. 17.12. 1930, d. 17.8. 1978, starfrækti Húllsaumastofuna í Hafnarfirði en þau bjuggu að Sval- barði 3, Hafharfirði. Ætt Jón Már er sonur Þorvalds Áma- sonar, skattstóra og ullarmats- manns i Hafnarfirði, og Margrétar Sigurgeirsdóttur. Helga var dóttir Finns, b. í Eski- holti, Sveinssonar, bróður Ásmund- ar Sveinssonar myndhöggvara. Finnur var sonur Sveins, b. í Eski- holti, Finnssonar, og Helgu Ey- steinsdóttur. Móðir Helgu var Jóhanna, hálf- systir Benedikts á Þorbergsstöðum, afa Áma Björnssonar þjóðhátta- fræðings, fóður Marðar málfræð- ings. Benedikt var einnig langafi skákmannanna Helga Áss og Guð- nýjar Lilju Grétarsbarna. Jóhanna var dóttir Kristjáns, oddvita á Þor- bergsstöðum í Laxárdal í Dölum, Tómassonar, og Jóhönnu Stefáns- dóttur frá Reynikeldu, Sveinssonar. Kaj Erling Mnller Kaj Erling Moller lag- ermaður, Gyðufelli 16, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Kaj fæddist í Svaneke og ólst upp í Bomholm. Hann lauk barna- og gagnfræðaprófi I Svan- eke og iðnskólaprófi í Nexo á Bornholm. Kaj stundaði lagerstörf hjá 0ve Jul Christiansen í tiu ár og öðmm þekktum fyrirtækjum í Kaupmannahöfn. Hann flutti til Reykjavíkur 1990 og starfar nú hjá IKEA í Holtagörðum. Kaj stundaði íþróttir í mörg ár. Hann varð þrisvar borðtennismeist- ari Bornholm. Auk þess var hann í hópi þekktustu og markahæstu knattspyrnumanna eyjarinnar en hann lék knattspyrnu með Vanlose og fleiri knattspymuklúbbum í Kaupmannahöfn. Fjölskylda Kaj Erling Moller. Kaj kvæntist 9.5. 1992 Maríu Ragnarsdóttur, f. 9.6. 1942, ritara. Hún er dóttir Ragnars Bjömsson- ar, húsgagnabólstrara í Hafnarfirði, og Jónu Hall- dórsdóttur húsmóður. Stjúpdóttir Kaj er María Jóhannsdóttir, f. 26.8. 1966, aðstoðarstúlka tann- læknis, gift Berki Valdi- marssyni rafvirkja og eru böm þeirra íris, f. 10.6. 1989, og Róbert, f. 14.2. 1992. Systkini Kaj em Else, búsett í Hvidover í Kaupmannahöfn; Henný, búsett á 0sterbro í Kaup- mannahöfn; Inge, býr í Tomp á Jót- landi; Birget, búsett í Svaneke á Bornholm; Bent, býr á Svaneke á Bornholm; Kute, býr á Svaneke á Bornholm. Foreldrar Kaj vom Jens Meller, f. 7.6.1912, d. 1.5.1996, og Hedvig Mar- ía Moller, f. 6.2. 1910, d. 25.12. 1978. 7////////, staðgreiðslu- og greiðslukortaafslóttur og stighœkkandi birtingarafslóttur % % Smáauglýsingar 550 5000 Tll hamingju með afmælið 9. mars 85 ára Jónína Þorgrímsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfiröi. 80 ára Ásdís Mogensen, Bogahlíð 11, Reykjavik. 75 ára Margrét Björnsdóttir, Bláhömrum 2, Reykjavík. 70 ára Sigurður Skúlason, Oddabraut 16, Þorlákshöfn. 50 ára Auður Gústafsdóttir, Háaleitisbraut 34, Reykjavík. Gerður Guðmundsdóttir, Granaskjóli 86, Reykjavík. Guðjón Ómar Hauksson, Borgarvegi 33, Njarðvík. Gunnar H. Loftsson, Suðurhólum 26, Reykjavik. Kristín Bjamadóttir, Eyktarási 4, Reykjavík. Margrét Kolbeinsdóttir, Breiðvangi 6, Hafnarfirði. Ólafur Rúnar Ámasoon, Beykihlíð 1, Reykjavik. Soffía Svava Daníelsdóttir, Logalandi 36, Reykjavík. Sveinbjörn O. Sigurðsson, Eyrarlandsvegi 31, Akureyri. 40 ára Alda Gunnarsdóttir, starfsmannahúsi 8 við Vífilsstaði, Garðabæ. Bragi Egilsson, Hrisalundi 4 C, Akureyri. Edda Kjartansdóttir, Lambastaðabraut 9, Seltjarnarnesi. Elín Reynisdóttir, Lindarbyggð 12, Mosfellsbæ. Guðbjörg Jónsdóttir, Hofgeröi 5, Vogum. Guðjón Gíslason, Hlíðarhjalla 66, Kópavogi. Hulda Skúladóttir, HeOuhóli 7, Hellissandi. Jón Birgir Ármannsson, Strandaseli 9, Reykjavík. Jón Haraldur Ólafsson, Karlsrauðatorgi 12, Dalvík. Magnús Ingi Kristmannsson, Njarðarholti 6, Mosfellsbæ. Sigríður Högnadóttir, Vesturbraut 7, Hafnaifirði. Sigurður Jónsson, Stuðlabergi 58, Hafnarfirði. Sigurður Thorarensen, Bakkahjalla 10, Kópavogi. TZMiJjrm s 2S52S2 ÆllfraOivefur DV ET •*«> -v - j * - r— | ■IT- L Ættfræðigreinar síðustu 10 ára eru á www.dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.