Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 28. MARS 1998 I 'l~\7~ fréft/r Landsmót í Eyjafirði eða alls ekki neitt - segja forráðamenn landsmótsins á Melgerðismelum DV, Akureyri: „Það verður aldrei gert aö flytja landsmótið. Það er engin heimild til fyrir því og það kemur aldrei til,“ segir Sigfús Ólafur Helgason, for- maður Hestamannafélagsins Léttis á Akureyri, eins félaganna sem standa að landsmóti hestamanna á Melgerð- ismelum sem hefst 8. júlí. Fékk 12 miUjóna króna sekt: > Dæmdur án þess aö I mætafyrir dómara Maður, sem sinnti ekki boðun I Héraðsdóms Reykjavíkur um að j mæta í réttarhald, hefur verið j dæmdur til að greiða ríkissjóði 12 S milljónir króna i sekt - elia sæti • hann varðhaldi í eitt ár. Hér er um l að ræða svokallaðan útivistardóm j sem þýðir aö mæti ákærði eða stefndi ekki fyrir dóm til að halda j uppi vömum er heimilt að dæma j viðkomandi og mið tekið af því að i hann hafi játaö aliar sakargiftir. I þessu tilviki var umræddur mað- j ur ákærður fyrir 7,3 milijóna króna I vanskii á virðisaukaskatti á árunum : 1993-95. Honum var jafhframt geflð að sök að hafa ekki staðið skil á 2,3 millj- í ónum króna af staðgreiðslu starfs- ; manna sinna á tveggja ára tímabili. j Maðurinn rak verktakafyrirtæki í j Reykjavík. j Málið fór sina hefðbundnu ieið í j skattakerfinu og síöan til lögreglu. \ Þar viðurkenndi maðurinn umrædd j vanskil til ríkissjóðs. Ákæra var síð- I an gefin út hjá ríkislögreglustjóra. I Þegar ákæran fór fyrir dóm var mað- í urinn boðaður til að svara fyrir j ákæru en hann sinnti ekki fyrirköll- j um. Hann boðaði heldur ekki forfoil. i Þar sem maðurinn mætti ekki var j kveðinn upp útivistardómur. Auk vanskilanna er manninum gert að j greiða hátt í þrjár miiljónir króna. Sektin er samtals 12 milijónir , króna. Greiðist hún ekki þarf maður- \ inn aö sæta varðhaldi í eitt ár. -Ótt Einhverjar raddir hafa heyrst sem segja að nú eigi að fara að huga að því að flytja landsmótið til Suðurlands. Þar verði hrossasóttin gengin yfir þegar kemur fram á sumarið en óvíst sé hvort svo verði fyrir norðan. Norð- anmenn mótmæla þessu hástöfum. „Ég tel ekki að þessi umræða sé á meðal manna sem tala af einhverri ábyrgð. Ef einhverjar vamarlínur verða í gildi þegar kemur að lands- móti þá verður einfaldlega ekkert landsmót. Ef einhverjir landshlutar verða einangraðir þá verður ekkert landsmót, hvorki fyrir sunnan eða hér fyrir norðan. Norðlendingar eða aðrir fara ekki yfir neinar vamarlín- ur til að fara á landsmót á Suður- landi, ekki frekar en Sunnlendingar til að fara á landsmót fyrir norðan. Þessi umræða er því út í hött,“ segir Jón Ólafur Sigfússon, formaður framkvæmdanefndar landsmótsins á Melgerðismelum. „Það verður aldrei að einn eða annar taki landsmótið frá okkur eða það verði ekki haldið. Mótið hefst 8. júlí á Melgerðismelum og þangað eru allir velkomnir," segir Jón Ólafur, formaður Léttis. -gk Svo þröngt er á bókasafninu að allar geymslur eru sprungnar. Tímaritin eru við salernisdyrnar. Gífurleg þrengsli hjá Bókasafni Hafnarfjaröar: Tímarit geymd við salernin - hrikalegt ástand, segir yfirbókavörður „Þetta er hrikalegt ástand hér. Við erum löngu sprung- in á plássi. Nú er svo komið að nýlega færöum við hill- urnar fyrir tímarit og blöð inn á ganginn hjá salernun- um. Við höfum verið að grínast með það að þetta sé ágætt fyrir marga kúnnana þvi nú sé auövelt að taka tímaritin með sér á salemið,“ segir Anna Sigríður Einarsdóttir, yfirbókavörður á bókasafni Hafnarfiarðar. Gifurleg þrengsli eru á bókasafninu en húsnæðið hefur verið óbreytt i 40 ár. „Við erum i vandræðum hvar viö eigum að setja hlut- ina því húsnæðið er algerlega sprungið hvað varðar pláss. Við mætum því miður litlum skilningi hjá bæjar- yfirvöldum. Fyrir um 15 árum var talað um að flytja safnið i stærra húsnæði en það hefur ekkert verið gert. Ég hef verið að grínast við bæjarstjórann um að við þyrftum að fá útikamar því þá gætum við sett bókahill- ur inn á sjálf salemin," segir Anna Sigríður. -RR Formaöur framkvæmdanefndar landsmóts hestamanna: Veikin komin til að vera og mun fara um landið allt Hrossaveikin er fremur væg. DV, Akureyri: „Ég hef ekki gefið upp mína per- sónulegu afstöðu í þessu máli vegna þess að framkvæmdanefndin hefur ekki skipt sér af málinu opinberlega. Þaö eru hins vegar ýmsar bollalegg- ingar í gangi og svo virðist sem menn standi frammi fyrir tveimur valkostum í stöðunni," segir Jón Ólafur Sigfússon, formaður fram- kvæmdanefndar landsmóts hesta- manna, sem fram á að fara á Mel- gerðismelum í Eyjafirði i júlí, um þá stöðu sem upp er komin í hrossasótt- armálinu. Svo virðist sem þeir, sem harðast hafa gengið fram í því að allar reglur um umgengni hestamanna og þvi sem þeim tilheyrir milli landshluta væru sem harðastar, séu að linast í afstöðu sinni. Menn hafi séð að veikin sé ekki bráðdrepandi, hún muni fara um land- iö og því liggi beinast við að taka upp eðli- legar samgöng- ur milh manna og hesta svo veikin gangi sem fljótast yfir alit landið. „Það voru settar upp varnarlínur til að hindra útbreiðslu veikinnar en siðan kom í ljós að veikin er ekki nándar nærri eins hættuleg og álitið var í fyrstu sem breytir stöðunni eitthvaö. Menn virðast líka vera að átta sig á því að veikin er komin til að vera og að hún eigi eft- ir að breiðast út um allt land,“ segir Jón Ólafúr. Hann segir þá spumingu því hafa vaknað hvort þaö sé ekki í rauninni betra af tvennu illu að fá veikina í hrossin núna um allt land heldur en í sumar. „Varnarlínur halda ekki og þegar menn sleppa hrossum af hús- um í vor, fara að fara með stóðhesta og hryssur út um allt land og með ferðamenn um allar trissur, þá er veikin komin um allt land. Við get- um ekki horft fram hjá þessari stað- reynd. Því segja sumir að það sé betra að fá þetta í hrossin núna meðan þau eru á húsi og umsjón höfð með þeim. Það sé betra en að fá veikina í hross- in í vor þegar hryssur hafa kastað eða i sumar þegar menn eru famir að fara í ferðalög og.hrossin fara að hrynja niður í miðjum ferðalögum. Þá segja menn að það sé afleitt að sleppa á afrétt hrossum sem ekki hafa fengið veikina, en t.d. á Norður- landi og reyndar víðar eru hross rek- in á afrétt og þau höfð eftirlitslaus í vikur eða mánuði. Það em þessir hlutir sem menn em að velta fyrir sér í dag,“ segir Jón Ólafur. -gk stuttar fréttir Verkfallsbrot rannsakað Skipverjar á frystitogaranum Hersi ÁR, sem hggur bundinn við bryggju á Akureyri, gengu frá borði á fóstudag þannig að skipið gat ekki haldið til veiða eins og ráð var fyrir gert. Togarinn Ljósavík, sem er í eigu sömu útgerðar, hélt til veiða á fóstudagsmorgim og verður það kært til Félagsdóms, enda er tahð að um verkfallsbrot sé um að ræða. Geir brátt ráðherra Menn hafa lengiö beðið eftir ráðherraskiptum eftir að Davíð Oddsson lýsti því yfir fyrir ára- mót að breytingar yrðu á ríkis- stjóminni. Stöð 2 taldi sig í gær- kvöld hafa heimildir fyrir því að Geir Haarde tæki við embætti fiármálaráðherra af Friðriki Sophussyni um miðjan apríl. Ár hafsins Ríkissfióm hefúr sent frá sér yfirlýsingu í th- efniafþvíaðárið 1998 er ár hafs- ins. Henni er ætlað að vera verkfæri fyrir þá sem halda uppi málstað íslend- inga í málum sem tengjast hafinu. í yfirlýsingunni em taldar upp áherslur íslendinga í sambandi við vemd hafsins og nýtingu auölinda þess og bent á hversu íslendingar eigi mikið undh' sjávarútvegi. Yfir- lýsingin er aðgengileg á vefsíðu sjávarútvegsráðuneytisins. Þor- steinn Pálsson er sjávarútvegsráð- herra. Uppsagnir Líkur em á þvi að átta af hverj- um tíu hjúkrunafræðingum á stóm sjúkrahúsunum muni segja upp störfum fyrir mánaðamót. Á flest- um minni sjúkrahúsum úti á lands- byggðinni veröa ekki uppsagnir. RJkisútvarpið greindi frá. Listaverk rannsökuö Hafm er lög- reglurannsókn á meintum fólsun- um á islenskum hstaverkum í Danmörku. ís- lenskur lista- verkasafnari í Kaupmannahöfn hefur kært falsan- ir á sextán verkum sem hann keypti af dönskum aðila og hefúr lögregla nú þessi verk í vörslu sinni. Þau em öh merkt Svavari Guðnasyni listmálara. RÚV sagði frá. Banna frystitogara Fmmvarp, sem bannar veiðar frystitogara, var tekiö fyrir í fúll- trúadehd bandaríska þingsins á fóstudag. Verði frumvarpið að lög- um mun það þýöa að óheimilt er að flyfia inn fisk til Bandaríkjanna sem veiddur hefur verið af frysti- togurum og á þaö einnig við um ís- lensk skip. Bylgjan sagði frá. Vilja aftur á sjó Feðgamir tveir, sem bjargað var á flmmtudagskvöld eftir að trilla þeirra sökk úti fyrir Selvogsvita, vilja komast sem fyrst aftur út á sjó. Trilla þeirra náðist að landi á fostudag og er ekki illa farin. Bylgj- an greindi frá. Vaka mótmælir Sjómannadeild Verkalýðsfélags Vöku á Siglufiröi mótmælir þeim áformum ríkissfiómar að breyta hlutaskiptaákvæðum sem gilda fýrir kjarasamninga rækjusjómanna. Vökumenn segja að þetta leiði til 10% launalækkunar fyrir rækjusjómenn. Damon í íslenska mynd Hugsanlega mun breska popp- sfiaman Damon Albam leika í ís- lensku kvikmynd- inni Symbiosis sem byggö verður á bókinni 101 Reykjavík eftir Hahgrím Helgason. Damon hefur kynnt sér handritið að myndinni og að sögn Bylgjunnar leist honum vel á. Baltasar Kor- mákur mun leikstýra Symbiosis. -JHÞ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.