Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 28. MARS 1998 i fréttir Böövar Bragason segir þaö ekki sitt aö fylgjast með „birgöatalningu“: Lögreglustjóri vísar á lögreglufulltrúa Böðvar Bragason lögreglustjóri vís- ar frá sér ábyrgð gagnvart því að hafa átt að fylgast með birgðatalningu fikniefnadeildar lögreglunnar. „Nei, það var innan verksviðs lögreglufull- trúans," sagði Böðvar, aðspurður um þetta í gær. Böðvar sagði að eyðing fikniefna hefði verið undir stjóm „eins mikilvægasta mannsins í lið- inu“ - manns sem hann hefði átt að geta treyst - og það hefði verið gert í viðurvist fulltrúa frá lyfjaeftirlitinu. Böðvar neitar því alfarið að hafa átt að fylgjast með birgðatalningu. Ljóst er að fiknefni fyrir andvirði tuga milljóna króna eru horfin úr vörslum lögreglunnar, þar af hálft kíló af amfetamíni og rúm þrjú kíló af hassi og kannabisefnum. Þetta eru efni sem tengjast mjög mörgum mál- um. Málin eru tiltekin þar sem skrán- ing lögreglunnar á haldlögðum efnum hefur þrátt fyrir allt verið mjög ná- kvæm. DV hefur ítrekað en árangurslaust reynt að ná sambandi við Bjöm Hall- dórsson, fyrrum lögreglufulltrúa í fikniefnadeild. Hann gerði á sínum tíma skýrslur sem sumir hafa nefnt „eyðingarskýrslur" hjá lögreglunni. Björn mun væntanlega verða spurður um það hjá settum lögreglustjóra i rannsókn þessa máls hvar skýrslum- ar em, hvað þær upplýstu og hvort hann hafi gert yfirstjórn lögreglunnar kunnugt um hvert innihald þeirra væri. „Ef mér hefði verið kunnugt um að efni hefði vantað hefði ég fyrirskipað rannsókn þegar í stað,“ sagði Böðvar Bragason, aðspurður um hvort hann hefði haft vitneskju um hin horfnu efni. -Ótt Tveir flugmenn á TF-LÍF í fyrstu björgun sinni á sjó: Frábær tilfinning - segir Pétur Steinþórsson, flugstjóri þyrlunnar „Þegar við vorum að koma að slysstaðnum sáum viö ekki neitt. Það fór slæm tilfinning um okkur því okkur leist lítið á að þurfa að leita í myrkrinu. Siðan sáum við endurskinsmerki frá björgunar- bátnum og mennina tvo um borð í honum. Björgunin gekk vel, fyrir utan minni háttar óhapp þegar tengilína flæktist í fæti Auðuns Kristinssonar sigmanns. Það er frábær til- fhming að geta bjargað mannslífum. Þetta var virki- lega góð afmælisgjöf," segir Pétur Steinþórsson, flug- stjóri á TF-LÍF, sem bjargaði feðgum frá Vestmannaeyjum úr sjávarháska eftir að bátur þeirra, Mardís VE, sökk í fyrrakvöld. Pétur fagnaði 46 ára af- mæli sinu í gær ásamt félög- um sínum i Landhelgisgæsl- unni. Þetta var fyrsta björg- un Péturs frá því hann varð flugstjóri. Pétur og Sigurður Ásgeirsson flugmaður voru einnig í fyrsta sinn að bjarga mönnum úr sjó. Sigurður tók undir orð Péturs flug- stjóra aö það væri frábær tilfínning að taka þátt í björgun. Björgun feðganna, Jóels Pétur átti afmæli t gær og hér sést hann skera afmælistertuna t húsakynnum Gæslunnar. DV-mynd S Áhöfnin á TF-LÍF sem bjargaöi feögum úr sjávarháska í fyrrakvöld. Frá vinstri: Auöunn Kristinsson, stýrimaöur og sigmaöur, Hilmar Pórarinsson, flugvirki og stýrimaöur, Siguröur Ásgeirsson flugmaöur og Pétur Steinþórs- son flugstjóri. Andersens og Halldórs Jóelssonar, gekk hratt og vel fyrir sig. Mikið happ þykir að Jóel var í símasam- bandi við bátinn Sjöfn VE þegar Mardís hallaði skyndilega. Jóel gat því beðið um hjálp um leið. Það gæti hafa bjargað feðgunum því á örskömmum tíma lagðist bátur DV-mynd S þeirra á hliðina og sökk. Þeir komust út í björgunarbát. Sjöfn sendi strax neyðarkall til Vest- mannaeyja sem lét Gæsluna vita klukkcm 20.26 í fýrrakvöld. Klukkan 20.54, tæpum hálftíma síðar, var búið að bjarga báðum mönnunum um borð í þyrluna. -RR Norðmaöurinn í e-töflumálinu lýsir tilhögun að innflutningi til íslands: Sagði að ég mætti eiga LSD-ið NILFISK NewIÍMe ENN EIN NYJUNGIN FRÁ NILFISK MINNI 0G ÓDÝRARI RYKSUGA SÖMU STERKU NILHSK GÆÐIN <VNMNGARVF.RÐ ■OtlNb Kr 15.900 . •' TGH /ponix „í Amsterdam er það þannig að þú ferð bara út á götu ef þú ætlar að kaupa fikniefni... Sá sem seldi mér e- töflurnar sagði að LSD-efnið væri ekki svo gott. Hann sagði að ég mætti bara eiga það. Þetta var víst mjög veikt efni,“ sagði norskur karlmaður í dómsalnum í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær en hann er ákærður ásamt sænskri eiginkonu sinni og tveimur ís- lendingum fyrir inn- flutning á 1.100 e-töfl- um og hundruðum skammta af LSD-efni skömmu fyrir síðustu jól. „Mér var sagt að mesta hegning fyrir fiknieftiabrot á íslandi væri 10 ár,“ sagði Norömaðurinn þegar Ragnheiöur Harðardóttir sækjandi lagöi fyrir hann þá spumingu hvort hann hefði gert sér grein fyrir afleiöingum gjörða sinna við aö kaupa og skipuieggja krn- flutning á fiknieftium til íslands. Hin sænska kona mannsins kom með efn- in í líkama sínum til íslands og í tveimur hárgeltúpum. Greinargóö svör fíkniefna- skipuleggjarans Norðmaðurinn talaöi hátt, skýrt og ákveðið. Hann var greinargóður í svörum þegar hann var spurður: „Ég fór heim og pakkaði efnunum í umbúðir," sagði Norðmaðurinn, að- spurður um hvað hann hefði gert eft- ir að sölumaður „á götunni" í Amster- dam seldi honum 1.100 e-töflur þar sem LSD-ið var látið fylgja með í kaupbæti. Norðmaðurinn sagði að fjórmenningarnir hefðu fyrst allir hist heima hjá hjón- unum vegna fyr- irhugaðra fíkni- efnakaupa. Hann og annar íslendinganna hefðu aðallega lagt á ráðin. „Við vorum sammála um að ég keypti þús- und e-töflur. Hann étti síöan að greiða mér,“ sagði Norðmaöurinn og átti við annan ís- lendinganna. Hann sagði aö íslendingurinn heföi samþykkt aö fá LSD-efni „ef ég ætti þaö til“. Örvœntingarfull símtöl hjón- anna Þegar Norömaðurinn var spuröur mn það hvort hann heföi fylgst með konu sinni frá Hollandi eftir að hún kom með efnin til íslands sagði hann aö hún hefði fyrst sagt við sig í síma að hún væri komin til landsins - eftir það hefði hann sagt öðrum íslend- ingnum, þeim sem hann samdi við, að hann gæti farið að ná í efnin. Eftir þetta sagði Norðmaðurinn að kona sín hefði sagt sér að hún hefði verið hand- tekin. Norðmaðurinn sagði að þá hefði örvænting gripið um sig í sím- tölum þeirra hjóna. Neitun og minnisleysi hrakið Annar íslendinganna var handtek- inn eftir að hafa náð í efnin í rusla- tunnu við Laugaveg, þaðan fór hann með efnin út fyrir bæinn til að fela þau. Þessi maður neitaði í dómsalnum I gær að hafa vitað rnn að flkniefhi hefðu verið í pakkanum. „Ég var bara ekkert að spá í það,“ sagði hann. Mað- urinn sagðist reyndar ekki reka minni til að hafa farið heim til hjón- anna. Sá framburður var síðan hrak- inn þegar öll hin þijú sögöu aö viö- komandi hefði komið oftar en einu sinni á heimilið. Auk þess sagöi hinn íslendingurinn aö landi hans hefði haft fúlla vitneskju um ráðageröina - það er aö láta kaupa fíknieftii og flytja til íslands. Sá íslendinganna, sem samdi aöal- lega viö Norömanninn um kaupin á efnunum, kvaöst hafa verið í mikilli neyslu á þeim tíma sem innflutning- urinn var skipulagður. Austfjarðalistinn í nafnlausa sveitarfélaginu á 1 Reyðarfirði, Eskifirði og Nes- kaupstað er óháður listi í fæð- | ingu. Efsta sæti listans mun væntanlega verða skipað af Reyðfirð- ingnum og sjálf- stæðismanninum Þorvaldi Aðal- steinssyni og talið er að í næsta sæti verði Norðfirðingur- inn Pétur Ósk- arsson sem einnig er merktur Sjálfstæðis- flokknum og þekktur fyrir andúð sína á kommum. Mikill titringur er vegna þessa máls enda víst að framboðið mun höggva í fylgi gömlu flokkanna... Trúmann formaður Hinn nýi formaður bankaráðs J Landsbankans, Helgi S. Guð- íí mundsson, hefur skotist með ör- skotshraða upp á stjömuhimin- 1 inn. Viðtal helgar- blaðs DV við hann jvarö umrætt sök- I um áhuga for- mannsins á guð- fræðilegum efn- | um. En Helgi j kvaðst tæpast hafa önnur t áhugamál utan viimu og fjölskyldu en trúmál. Sömuleiðis sagðist i hann vera í bænahring með val- í inkunnum mönnum og eyða flest- !um sunnudagskvöldum í fundi ‘ hjá kristnum söfnuðum. Gamall j forseti Bandaríkjanna hét Harry S. Truman og í Landsbankanum ' hafa gárungamir nú byrjað að j kalla formann bahkaráðsins l Helga S. Trúmann... Nikulás ábóti Innan tíðar er væntanleg heim- sildarmynd um Nikulás ábóta úr klaustrinu á Munkaþverá í sam- vinnu þeirra Hjálmtýs Heiðdal auglýsingasmiðs og Sumarliða ísleifs- sonar rithöfundar. Nikulás, sem var uppi fyrir 7-8 öld- mn, var ótrúlega víðförull. Hann gekk meðal ann- ars suður til Rómar en heim- sótti líka Kýpur og Grikkland. Þeir tvímenningar hafa fetað í fótspor hans og þegar lokið ferðakaflanum til Rómar. t sumar er ætlunin að fara til Kýp- ur og Grikklands og væntanlega verður myndin fullgerö næsta vetur. Meðal þeirra sem styrkja myndina mun vera kaþólska kirkjan enda veitti páfinn þeim áheym þegar þeir komu með hópi íslendinga til Rómar... í ráðherraröð Það vekur eftirtekt að Friðrik Sophusson fjármálaráöherra var á sínum tíma formaður í íslands- deild Alþjóða þingmannasam- bandsins. Skömmu síðar varð hann ráöherra. Eftir- maður hans varð Geir H. Haarde sem flestir telja aö verði kominn inn í ríkisstjóm- ina áður en apr- íl er hálfhaður. Formennska í deildinni viröist þvi tryggur að- göngumiöi að ríkissljóm. Menn velta því fyrir sér þessa dagana hver taki viö formennskunni af Geir þegar hann veröur ráWierra. Það er enginn annar en Vestfirð- ingurinn Einar K. Guðfinnsson sem samkvæmt því verður þá nassti ráðherra á eftir Geir... Umsjón Reynlr Traustason Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.