Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Síða 17
sviðsljós
17
LAUGARDAGUR 28. MARS 1998
Ólyginn sagði...
... aö kynbomban úr Strand-
vörðunum, Carmen Electra,
væri að hætta í þáttunum eftir
aðeins eina þáttaröö. Framleið-
endur þáttanna, Warner Bros.,
hyggjast nýta sér frægð hennar
með því að búa til algjörlega
nýja þætti, sérstaklega skrifaða
í kringum hennar persónu.
... að lag sem Bob Dylan samdi á
sjöunda áratugnum, Hurricane,
væri nú oröið rót nýrrar kvik-
myndar. Lagiö umrædda fjallaöi
um svartan hnefaleikamann,
Hurricane Carter, sem var hand-
tekinn áriö 1966, grunaður rang-
lega um morö á þremur hvitum
mönnum. Saga þessa hnefa-
leikakappa er á leiðinni á hvíta
tjaldið með Denzel Washington
sem aðalleikara.
... að grínleikarinn Jim Carrey
væri líklega búinn að tryggja
sér aðalhlutverkiö í nýrri kvik-
mynd um leikarann og grínist-
ann Andy Kaufman sem lést
fyrir fjórtán árum langt um ald-
ur fram. Carrey atti kappi við
leikara á borð við Nicolas Cage,
John Cusack og Kevin Spacey.
Leikstjórinn Milos Forman var
sannfærður um að Jim væri
bestur f hlutverkið.
... að nú ætlaöi leikarinn Gary
Oldman að hætta í bransanum -
og það f annaö sinn. Oldman,
sem þrátt fyrir nafnið er aöeins
fertugur, sagði f viötali við
breskt tímarit að fengi hann
stóra lottóvinninginn myndi
hann aldrei þurfa aö standa fyrir
framan kvikmyndavélarnar á ný.
Damon Hill með
fjórða
Breski ökuþórinn og fyrrum heimsmeist-
arinn í Formula 1, Damon Hill, er duglegur
aö kitla pinnann á ökutækjum sínum.
„Gleðipinninn" virðist einnig vera í góðu
lagi því nú hafa þau hjónin, Damon og Ge-
orgie, eignast þeirra fjórða barn, yndisfríða
stúlku. Fyrir eiga þau níu ára og sjö ára syni
og tveggja ára dóttur.
Damon mun líklega ekki eiga í vandræð-
um meö að framfleyta stórfjölskyldunni því
eftir að hann gerði samning við bilaframleið-
barnið
andann Jordan er talið að árslaunin hans
nemi um 550 milljónum króna.
„Við erum í skýjunum yfir nýja baminu.
Nú fá hin bömin litla systur til að leika sér
með. Georgie og barninu heilsast báðum
vel,“ var haft eftir nýbökuðum föður í
bresku blöðunum.
Damon og Georgie Hill eru
dugleg að fjölga mannkyninu.
Sýning í Keflavík, Hornafirði og Reykjavík
um helgina, frá kl. 14-17
Lestu á milli
A síðustu dögum hafa Nissan bílar lækkað í verði og í framhaldi afþví lœkkuðu varahlutir um 30% svo hagkvæmari kostur finnst ekki. Nissan
línanna
Micra kostar aðeins kr. 1.089.000,- og efþig vantar stærri bíl erAlmera frá aðeins kr. 1.239.000 eða Primera á einstöku verði, aðeins kr.
þú finnur hvergi
1.492.000.-með aukahlutaþakka á hálfvirði. Þeirsem staðfesta kauþ um helgina fá verulegan kauþauka. Heimsæktu okkur á sýningunum í
betra verð
Reykjavík, Höfn í Hornafirði eða Keflavík. Þar er þér velkomið að reynsluaka og fá allar nánari uþþlýsingar hjá sölufólki.
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000