Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 28. MARS 1998 UV
dagur í lífi
Æfingabúðadagur í lífi Jóns Stefánssonar. stjórnanda Langholtskirkjukórsins:
Máttlaus í hnjánum
„Það er laugardagur 21. mars.
Undarlegt að vakna á mínútunni
7.30 klukkulaus. Á sömu mínú-
tunni og ég er vanur að fara í hest-
húsið. En nú er ég staddur í nota-
legum sumarbústað í Úthlíð og
fram undan er þolæfing á
Mattheusarpassíunni. Ég skelli
mér í sturtu og byrja síðan að taka
til morgunmatinn. Lýsi, egg, skyr-
hræringur (hátíðarútgáfa með
rjómaskyri og tveim dósum af
sýrðum rjóma), súrt slátur og lifr-
arpylsa ásamt rauðu greipaldini.
Sambýlingar mínir eru komnir til
leiks með sitt tillegg. Séra Jón
Helgi og Margrét með brauð og
fjölbreytt álegg og frænkur mínar,
Begga og Solla, með expresso-kaffi
og annað góðgæti. Þegar sest er að
snæðingi er reynt að telja réttina.
Yflr fimmtán - sjö stjörnu morg-
unverður!
Brandarar fjúka
Það er hressandi að ganga í rok-
inu og rigningunni til glæstra sal-
arkynna Björns bónda þar sem
flestir kórfélagar eru mættir og
Halldóra (kroppatemjari) byrjar á
morgunleikfimi á mínútunni níu.
Sendur er út leiðangur til að vekja
í einu húsi en þaðan er enginn
mættur. Sendiboðinn mætir þeim
í útidyrum. Allir eru í góðu skapi
og brandarar byrja að fjúka.
Kvöldið áður (en æfingabúðirnar
byrjuðu þá) hafði skemmtinefndin
úthlutað öllum leynivini og átt að
sýna honum notalegheit með hjálp
milliliðs. Um kvöldið átti síðan að
upplýsa leyndardóminn. Dularfull-
ar sendingar eru í gangi fram eft-
ir morgni. Glas af
ávaxtasafa, birkivönd-
ur, einn sópran fékk
axlanudd og önnur
ástarsöng í hléi. Þegar
upphituninni er lokið
eru allir tilbúnir og
eínu sinni enn er
kenningin um að
erfitt sé að syngja á
morgnana afsönnuð.
Mattheusarpassian,
eitt magnaðasta kór-
verk allra tíma. Þegar
farið er i æfingabúðir
er kórinn á því stigi
að búið er að læra
raddimar að mestu og
hægt að fara að fin-
pússa. Stór hluti
verksins er fyrir tví-
skiptan kór, átta radd-
ir. Þetta eru margar
nótur, sem allar þurfa
að hljóma rétt. Það er
mikill munur að
vinna svona verk í
annað sinn en við fluttum
Mattheusarpassíuna árið ’92.
Núna verður textinn áleitnari og
þegar kaflarnir eru orðnir eins og
ég vil hafa þá kemur oft fyrir að ég
verð máttlaus í hnjánum og fæ
gæsahúð. Snilldin hjá Bach er slík
að manni fallast næstum hendur
og hugsar með sér: „Hvað hef ég
unnið til þess að fá að flytja þetta.“
Veðrið tekur þátt í dramanu.
Stundum framkallar rokið úti
ótrúlega hjáróma tóna með hjálp
gluggafaganna. En þegar við
syngjum „Sind Blitze, sind Donn-
er“ dynur slík haglhryðja á hús-
inu að allt ætlar um koll að keyra.
Eftir góða vinnu í hálfan annan
tíma sláum við á léttari strengi.
Ég tek alltaf með nokkur lög til að
brjóta upp. Nú dreifi ég lagi eftir
hinn sænska jass-snilling Svend
Asmussen og brátt hljómar
„Scandinavian Shuffle" og hinn
margræði texti: „Lam da ba du ba
dam bam bah“. Úthlíðarhjónin,
sem bíða með rjúkandi kaffið, taka
nokkur létt spor. Kaffi, spjall,
hlátrasköll og fleiri gjafir fyrir
leynivini, spennan eykst. Æfa
meira.
Klukkan tólf er gefinn rúmur
klukkutími í mat og síðan aftur
æfing. Það er ótrúlegt hvað vinnst
vel í svona æfingabúðum. Ég hef
haldið þvi fram að þær jafnist á
við sex vikna æfingar í bænum.
Klukkan hálfljögur er ég farinn að
merkja þreytu hjá kórnum. Kröf-
urnar hjá Bach eru miskunnar-
lausar. Raddsviðið er mikið og
auk þess er nútímastilling hálftóni
hærri en á tímum Bachs. Það er
gefið síðasta kaffihlé. Einhver
byrjar að gefa félaga axlanudd.
Annar kemur að og fer að nudda
þann sem byrjaði og áður en varir
verður sagan um Tvíbjörn, Ein-
bjöm, karl, kerlingu og kálfsróf-
una ljóslifandi.
Klukkan tæplega hálfsex hætt-
um við loksins. Enda er einbeit-
ingin farin að gefa sig og kórinn
orðinn óþolinmóður því nú eiga
raddirnar eftir að ljúka við aðalæf-
ingu á skemmtiatriðum fyrir árs-
hátíðina sem hefst kl. átta. Þær
safnast saman í húsum en ég fæ
kærkomið hlé. Heiti potturinn í
okkar húsi hefur ekki náð að
hitna í rokinu en við skellum okk-
ur í pottinn í næsta húsi. Það er
með ólíkindum hvað tekur stuttan
tíma að safna kröftum aftur. Mak-
ar kórfélaga byrja að koma og
mikil eftirvænting í loftinu því
árshátíð KL er með glæsilegri
samkomum.
Sungið milli rétta
Klukkan átta er salurinn orðinn
þéttskipaður prúðbúnum gestum.
Glæsilegt veisluhlaðborð frá Múla-
kaffi setur munnvatnsframleiðsl-
una í gang. Á milli rétta er sungið.
Já, ótrúlegt! Það er búið að æfa af
mikilli einbeitingu í níu og hálfan
tima en samt er haldið áfram að
syngja. Svo koma skemmtiatriðin.
Hver rödd með sitt. Oft er gaman-
ið á kostnað hinna raddanna og
söngstjórinn fær að sjálfsögðu
sinn skammt. Gott ef ekki prestur-
inn líka. Svo er Diskótekið Dísa
mætt og það er byrjað á „Gamla
marsinum" með valhoppi, undir
og yfir, sextúr, hringbroti og fleiri
gömlum og góðum kúnstum og
áður en varir er klukkan orðin
tólf og dagurinn sem ég er að segja
frá liðinn. Árshátíð KL var hins
vegar langt í frá búin en ég átti jú
bara að segja frá laugardeginum!"
ffttim breytingar
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefúr
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðrium birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Hitachi-útvarpsvekjari frá Sjón-
varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að
verðmæti kr. 3.490.
„Hvað myndi kosta að láta stilla hann, setja diskabremsur í hann og
kannski beina innspýtingu?"
Nafn:______________________________________________________________
Heimili:_____________________
Vinningshafar fyrir getraun nr. 454 eru:
1. verðlaun: 2. verðlaun:
Daníel Óli Ólafsson. Lára Sigurðardóttir,
Skeljatanga 37. Ásgarðsvegi 7.
270 Mosfellsbæ. 640 Húsavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkid umslagid med lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 456
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík